Morgunblaðið - 22.09.2020, Síða 2

Morgunblaðið - 22.09.2020, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 2020 Í YFIRRÉTTI (E. HIGH COURT OF JUSTICE) FYRIRTÆKJA- OG FASTEIGNADÓMSTÓLAR (E. BUSINESS AND PROPERTY COURTS) ENGLANDS OGWALES FYRIRTÆKJADÓMSTÓLL (E. COMPANIES COURT) VARÐANDI ARCH INSURANCE (UK) LIMITED - og - VARÐANDI ARCH INSURANCE (EU) DAC - og - VARÐANDI BRESK LÖG UM FJÁRMÁLAÞJÓNUSTU OG -MARKAÐI FRÁ ÁRINU 2000 Hér með tilkynnist að hinn 10. september 2020 lögðu Arch Insurance (UK) Limited (framseljandi) og Arch Insurance (EU) DAC (framsalshafi) fram beiðni skv. 107. gr. breskra laga um ármálaþjónustu og -markaði frá árinu 2000 (e. Financial Services and Markets Act 2000) (lögin) hjá dómstólnumHigh Court of Justice, Business and Property Courts of England andWales, Companies Court (ChD) í London, um úrskurð: (1) samkvæmt 111. gr. laganna semheimilar áætlun (áætlunin) um framsal til framsalshafa á vátryggingastarfsemi framseljanda (að undanskilinni starfsemi sem felst í að veita endurtryggingar) sem stunduð er í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES-ríki) á grundvelli staðfesturéttar og/eða þjónustufrelsis framseljanda, og (2) semmælir fyrir um viðbótarákvæði í tengslum við áætlunina skv. 112. gr. og 112. gr. A í lögunum. Eintak af skýrslu um skilmála áætlunarinnar, sem var samin í samræmi við 109. gr. laganna af óháðum sérfræðingi (skýrslan um áætlunina), skjal með yfirliti um skilmála áætlunarinnar og samantekt skýrslunnar um áætlunina og áætlunarskjalið eru fáanleg endurgjaldslaust með því að hafa samband við framseljanda og framsalshafa gegnum neðangreind símanúmer eða póstfang/netfang. Þessi skjöl og önnur tengd skjöl, þ. á m. sýnishorn af samskiptum við vátryggingartaka, eru einnig fáanleg á vefsvæðinuwww.archcapgroup.com/Insurance/Arch-Part-VII. Þetta vefsvæði verður uppfært ef einhverjarmikilvægar breytingar verða á fyrirhuguðu framsali. Vakni spurningar í tengslum við fyrirhugaða áætlun skal hafa samband við framseljanda og framsalshafa með því að hringja í neðangreind símanúmer (gjaldfrjálst þegar hringt er frá Bretlandi) eðameð því að senda póst á neðangreint póstfang og netfang: Símanúmer: +44 (0)808 196 3200 (opið virka daga frá kl. 09:00-17:00 að staðartíma í London) Ofangreindur afgreiðslutími gildir ekki á almennum frídögum. Ef hringt er utan afgreiðslutíma er hægt að skilja eftir skilaboð og biðja um að haft verði samband við þann sem hringdi. Póstfang: Arch Insurance (UK) Limited, 5th Floor, Plantation Place South, London EC3R 5AZ, Bretlandi Netfang: Archpart7@archinsurance.co.uk Sértu með vátryggingu hjá framseljanda og/eða framsalshafa, vinsamlegast tilgreindu þá númer vátryggingarskírteinisins (e. policy number) í öllum samskiptum. Þetta númer er að finna í vátryggingarskjölunum og tengdum samskiptum. Beiðnin verður tekin fyrir hjá dómstólnum High Court of Justice of England and Wales, 7 Rolls Buildings, Fetter Lane, London, EC4A 1NL, Bretlandi hinn 18. desember 2020. Hverjum þeim sem telur að framkvæmd áætlunarinnar myndi hafa neikvæð áhrif á sig eða andmælir henni er heimilt að vera viðstaddur dómþingið í eigin persónu eða gegnum fyrirsvarsmann og koma sjónarmiðum sínumþar á framfæri. Þess er farið á leit að hver sá sem hyggst gera það tilkynni það skriflega til framseljanda og framsalshafa gegnum ofangreint póstfang/netfang svo fljótt sem auðið er, helst fyrir 1. desember 2020, og tilgreini eðli andmæla sinna. Það mun gera framseljanda og framsalshafa kleift að tilkynna hvers kyns breytingar í tengslum við dómþingið og, ef unnt er, að ráða bót á vandamálum sem tilkynnt er um fyrir dómþingið. Hver sá sem andmælir áætluninni, eða telur að hann kunni að verða fyrir neikvæðum áhrifum af henni, en hyggst ekki mæta á dómþingið getur komið sjónarmiðum sínum um áætlunina á framfæri með því að senda skriflega tilkynningu þar að lútandi til framseljanda og framsalshafa á ofangreint póstfang/netfang eða hringja í ofangreind símanúmer, í hverju tilviki eins fljótt og auðið er og helst fyrir 1. desember 2020. Framseljandi og framsalshafi munu gera bresku ármálaeftirlitsstofnunum Financial Conduct Authority og Prudential Regulation Authority viðvart um öll andmæli sem berast fyrir dómþingið, óháð því hvort sá sem hreyfir andmælunum hyggst vera viðstaddur það. 16. september 2020 Womble Bond Dickinson (UK) LLP, 4 More London Riverside, London, SE1 2AU, Bretlandi Lögmenn framseljanda Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Það er auðvitað áhyggjuefni að geta ekki gengið að því að vera með fastar flugferðir til og frá Vestmannaeyj- um,“ segir Díana Óskarsdóttir, for- stjóri Heilbrigðisstofnunar Suður- lands, um þá ákvörðun flugfélagsins Ernis að hætta flugi til og frá Vest- mannaeyjum. Félagið flaug sína síð- ustu áætlunarferð til Eyja fyrr í sept- embermánuði. Ástæðan þar að baki er sú að flugleiðin bar sig ekki og var því ekki sjálfbær. Að sögn Díönu þurfa heilbrigðis- stofnanir nú að treysta á þjónustu Herjólfs. Áður gátu umræddar stofn- anir sent sýni eða blóð með flugi til og frá Eyjum. „Þetta er auðvitað mjög mikið ferðalag ef þú hefur ekki flugið. Fólk sem ætlar að sækja þjónustu í bænum verður jafnframt að taka bát- inn. Við höfum verið að nota flugið til að senda sýni og neyðarblóð. Þetta er því áhyggjuefni,“ segir Díana sem tekur fram að vandamálið sé ekki bundið við Vestmannaeyjar. Þannig búi fjöldi bæjarfélaga við sambæri- legar aðstæður. „Þetta er ekki bara vandamál hjá okkur heldur er þetta alls staðar. Þetta er vandamál á fleiri stöðum.“ Vélarnar staðsettar fyrir norðan Við flutning á sjúklingum frá Vest- mannaeyjum til Reykjavíkur notast heilbrigðisstofnanir við þjónustu Mý- flugs. Flugfélagið var stofnað fyrir 35 árum, en alls er félagið með fjórar vél- ar á sínum snærum. Mýflug er með höfuðstöðvar á Akureyri og eru vél- arnar staðsettar þar. Að sögn Díönu er sjúkraflugið ein- vörðungu notað til sjúkraflugs. „Þeir eru staðsettir á Akureyri og gera út þaðan. Við notum þetta sjúkraflug til að flytja sjúklinga sem eru veikir. Þetta eru aðilar sem eru með alvar- legri veikindi og þurfa að komast í bæinn,“ segir Díana. Aðspurð segir hún að framan- greindar sjúkraflugsferðir séu farnar um þrisvar í viku. Að hennar sögn hafa veikir sjúklingar aldrei verið sendir með farþegaflugi. Niðurfelling farþegaflugs feli því eingöngu í sér breytingu á ferðatilhögun. „Við erum með sjúklinga sem verða að komast í bæinn og það er mikið ferðalag þegar þú hefur ekki flugið. Hins vegar er það svo að við höfum aldrei sent veik- an sjúkling í farþegaflug heldur hafa þeir farið með sjúkraflugi. Þessar breytingar koma því ekkert við.“ Áhyggjuefni að flugið leggst af  Heilbrigðisstofnun Suðurlands sendir sýni og blóð með Herjólfi til borgarinnar Morgunblaðið/Ernir Flugvél Flugfélagið Ernir var áður með áætlunarferðir milli Reykjavíkur og Eyja. Flugleiðin hefur nú lagst af þar sem hún var ekki sjálfbær. Atli Steinn Guðmundsson skrifar frá Vadsø Gunnar Jóhann Gunnarsson, sem ákærður er fyrir að hafa orðið hálf- bróður sínum, Gísla Þór Þórarins- syni, að bana í Mehamn í Noregi að- faranótt 27. apríl í fyrra, kvaðst fyrir héraðsdómi í Vadsø við upphaf aðal- meðferðar málsins í gærmorgun ekki hafa ætlað sér að ganga svo langt sem raun bar vitni, fyrir hon- um hefði einungis vakað að skjóta Gísla Þór skelk í bringu eftir að hann varð þess áskynja að Gísli og Elena Undeland, barnsmóðir og fyrrverandi eiginkona Gunnars, felldu saman hugi. Ekki alltaf reiður Játaði Gunnar fúslega, þegar Kåre Skognes héraðsdómari innti hann eftir því, að hann hefði átt við áfengis- og fíkniefnavandamál að stríða sem markað hefði samband þeirra Elenu meðan á hjónabandi þeirra stóð og eftir að því lauk. „Það er einhvern veginn þannig með mitt líf að þegar hlutirnir ganga mjög vel þá er eins og ég höndli ekki góðærið. Vandamálið mitt með áfengi er að ég drekk þegar ég er glaður og ég drekk þegar ég er leið- ur. Ég vil ekki meina að ég hafi alltaf verið reiður og vondur þegar ég var að drekka, en vissulega var ég það stundum,“ játaði Gunnar fyrir hér- aðsdómi í gær. Leitaði ásjár Kvaðst hann hafa orðið viti sínu fjær af sorg og bræði í kjölfar þess að hafa orðið þess áskynja að fyrr- verandi eiginkona hans og hálfbróðir hans væru orðin svo náin sem raun bar vitni. Gunnar Jóhann leitaði aðstoðar á geðdeild í Karasjok, sveitarfélagi suður af Mehamn, í apríl í fyrra, í kjölfar úrskurðar um nálgunarbann gagnvart hálfbróður sínum og Elenu, en fór þaðan sjálfviljugur föstudaginn 26. apríl, daginn fyrir þann dag sem honum er gefið að sök að hafa stytt hálfbróður sínum ald- ur. Skulum bara drekka Gunnar tók þá að eigin sögn leigu- bíl til Mehamn og settist að drykkju með vinum sínum, gegn betri vitund. „Strákarnir sögðu við mig: „Gunn- ar, í kvöld skulum við bara drekka,“ og ég var svo sáttur við það, ég vildi bara drekka mig fullan og geta gleymt ástandinu í bili. Við fórum svo út, fórum á skemmtistaði en það var bara enginn úti að skemmta sér þetta kvöld. Svo þegar við komum á Nissen-barinn [í Mehamn] helltist þetta allt yfir mig aftur, ég fór að hugsa um hvernig bróðir minn gæti gert mér þetta. Og þá ákvað ég að fara heim til hans og hræða hann,“ segir Gunnar. Var brjálæði „Ég vildi bara fá hann til að pakka niður, taka draslið sitt og bátinn sinn og koma sér frá Mehamn. Ég hafði tvo valkosti, annaðhvort að hengja mig og láta börnin mín alast upp án mín eða fá bróður minn til að hætta þessu. Á þessum tíma sá ég þetta sem einu valkostina. Þetta var brjál- æði, ég viðurkenni það alveg,“ sagði Gunnar frá þegar Kåre Skognes héraðsdómari bað hann að fara yfir atburði aðfaranætur 27. apríl 2019 í Mehamn með viðstöddum í gær. Kvaðst hafa verið viti sínu fjær af sorg og bræði  Ætlaði sér ekki að ganga svo langt  Vildi hrekja hálfbróður sinn frá Mehamn  Ákvað að skjóta honum skelk í bringu Ljósmynd/Eril Brenli/Finnmark Réttur Gunnar Jóhann Gunnarsson sagði það ekki hafa verið ásetning sinn að ráða hálfbróður sinn af dögum. Aðal- meðferð í máli hans hófst í Vadsø í gærmorgun. Þar sagðist Gunnar hafa verið viti sínu fjær af sorg og bræði. Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt sautján ára pilt í tíu mánaða fangelsisvist, skilorðsbundna til þriggja ára, fyrir að stinga jafnaldra sinn í kviðinn við Jórufell í apríl á þessu ári. Sá hlaut lífshættulega áverka af stungunni. Dómur í málinu féll í gær, en í dóm- inum kemur fram að stungan hafi átt sér stað við átök milli tveggja hverfa- hópa, þar sem að stofni til hafi verið drengir á fjórtánda og fimmtánda aldursári. Drengirnir tveir, ákærði og brotaþoli, voru þeirra elstir. Úlfúð hafi verið á milli þessara hópa og þeir eldað saman grátt silfur um nokkra hríð. Svo virðist sem átök- in hafi stigmagnast og loks farið al- gjörlega úr böndunum. Horft til ungs aldurs Við ákvörðun refsingar var meðal annars horft til ungs aldurs drengs- ins og þess að hann eigi ekki að baki sakaferil. Þá var til þess litið að ákærði og brotaþoli hefðu rætt sam- an í þinghaldi undir aðalmeðferð málsins, að viðstöddum aðstand- endum sínum og dómara í málinu, og ákveðið að slíðra sverðin þannig að ekki kæmi til frekari átaka milli þeirra eða þessara drengjahópa. 900 þúsund í miskabætur Auk tíu mánaða skilorðsbundinnar refsingar var ákærði dæmdur til að greiða brotaþola 900 þúsund krónur í miskabætur. Slíðruðu sverðin eftir stunguárás  Tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi Morgunblaðið/Þór Héraðsdómur Reykjavíkur Dómur var kveðinn upp í málinu í gær.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.