Morgunblaðið - 22.09.2020, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 2020
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Sími 555 3100 www.donna.is
Honeywell
gæða lofthreinsitæki
Hreint loft - betri heilsa
Loftmengun er hættuleg heilsu
og lífsgæðum. Honeywell loft-
hreinsitæki eru góð viðmyglu-
gróum, bakteríum, frjókornum,
svifryki, lykt og fjarlægir allt að
99,97% af ofnæmisvaldandi efnum.
Verð kr.
59.100
Verð kr.
37.560
Verð kr.
16.890
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Nýr veruleiki blasir við menntskæl-
ingum sem ber nú að mæta með
grímu í skólann á næstunni. Grímu-
skyldan er greinilega tekin föstum
tökum innan veggja Borgarholts-
skóla því í gær mátti sjá starfsmann
í anddyri skólans með grímupakkn-
ingu sér við hlið. Eins þurfa nem-
endur á ný að aðlagast hólfaskipt-
um byggingum, fjarlægð við
náungann og fjarkennslu.
„Skrítið“ var orðið sem samnem-
endurnir í sjónlistartíma, þau Art-
húr Rós, Lady Lene, Ari og Breki
Snær sammæltust um að velja til að
lýsa verunni í skólanum á tímum
kórónuveirunnar. Þau segja nem-
endur almennt jákvæða. „En sumir
eru nú ekkert að virða þessa eins
metra reglu,“ segir Ari og öll jánka
þau því. „Þetta er orðið svolítið eðli-
legt þó það sé það ekki,“ segir
Lady.
Hitta vinina í matsalnum
Ungmennin kvarta ekki undan
því að nota grímuna og samsinna
því að þetta sé einfaldlega nauðsyn-
legt. Þau eru öll á fyrsta ári og
mega eingöngu vera á vissum svæð-
um í skólanum og ganga eftir viss-
um leiðum til að komast inn í
kennslustofu.
Spurð hvort þau séu vonsvikin að
missa af félagslífinu, þá neita þau
því. „Ég held að það eigi að bæta
okkur það upp. Kannski verður eitt-
hvert eitt ball sem við náum að fara
á,“ segir Ari bjartsýnn.
Helst eru þau á því að þar sem
þau eru nýnemar þekki þau ekkert
annað og viti fyrir vikið ekki af
hverju þau eru að missa. „En maður
er miklu minna að hitta fólk í skól-
anum til að hanga,“ segir Arthúr.
Þau segjast hitta vini sína dags-
daglega en finna fyrir því að ekki
má gera það sem áður þótti eðlilegt.
„Að knúsa“ nefna þau, spurð um þá
hluti sem þau sakna mest. „Svo er
maður mjög meðvitaður þegar mað-
ur tekur í höndina á einhverjum og
veltir því fyrir sér hvort maður eigi
að vera að gera þetta,“ segir Breki.
Aðspurð hvað þau ætli að gera í
öðruvísi í skólanum þegar veirufar-
aldrinum lýkur þá segjast þau m.a.
ætla að hitta vini sína í matsalnum.
Mjög aðlögunarhæfir
„Almennt eru nemendur mjög að-
lögunarhæfir. Ég þurfti t.a.m. ekki
að nefna það við neinn þegar þau
komu í tíma að þau þyrftu að hafa
grímu. Allir voru tilbúnir. Svo eru
þau flest til í að stökkva til þegar ég
boða þau til fjarkennslu,“ segir Cur-
ver Thoroddsen sjónlistakennari.
„Ef eitthvað er jákvætt í þessu þá er
það sú staðreynd að kennslan hefur
þróast ótrúlega hratt síðan farald-
urinn byrjaði. Bæði nemendur og
kennarar hafa tileinkað sér kennslu-
aðferðir og tækni sem þau þurftu
ekki að nota áður,“ segir Curver.
Sakna þess mest að knúsa
Öllum menntskælingum á höfuðborgarsvæðinu gert að mæta með grímu í skólann á næstunni
Nýnemarnir vita ekki af hverju þeir eru að missa Kennsluhættir þróast hratt í faraldrinum
Morgunblaðið/Eggert
Grímur Nemendur í Sjónlist Borgarholtsskóla voru ekki mikið að kippa sér
upp við það að grímuskylda er á þeim sem sækja skólann um þessar mundir.
Morgunblaðið/Eggert
Skrítið Þeim Arthúri Rós Saifa Pálssyni, Lady Lene Ýri Atladóttur, Ara
Pálssyni og Breka Snæ Baldurssyni þykir skólavistin hafa verið skrítin.
Ragnhildur Þrastardóttir
Freyr Bjarnason
Samtals greindust 30 ný innanlands-
smit kórónuveiru á sunnudag, 15
smitaðra voru í sóttkví við greiningu.
Meðalaldur smitaðra er nú um 40 ár
og má rekja stóran hluta smitanna til
skemmtistaða í miðbæ Reykjavíkur,
að því er Þórólfur Guðnason sótt-
varnalæknir greindi frá á upplýs-
ingafundi almannavarna í gær.
Eins og áður hefur verið greint frá
hefur virkum smitum hérlendis
fjölgað mikið á síðastliðinni viku.
„Þessi fjölgun smita er áhyggju-
efni, staðan er alvarleg og þess
vegna þarf að skerpa á öllum þáttum
sóttvarna og það eru þegar miklar
aðgerðir í gangi. Það er mikið í hönd-
um okkar sem einstaklinga hvernig
málin þróast,“ sagði Alma D. Möller
landlæknir á fundinum í gær.
Bæði hún og Þórólfur sögðu að
ekki væri þörf á hertum aðgerðum.
„Það er stöðugt verið að meta
hvort þörf sé á eða gagn sé að frekari
fjöldatakmörkunum og lokunum og
verður gripið til þeirra ef þörf kref-
ur,“ sagði Alma og bætti við:
„Það væri auðvitað bara hægt að
loka öllu og grípa til hörðustu að-
gerða en það á samt ekki endilega
við nú þegar við erum að reyna að
feta okkur að því að halda niðri smit-
um og afleiðingum þeirra með sem
minnstri röskun á daglegu lífi.“
Ánægjuleg fækkun
Smitin sem greindust á sunnudag
voru þó nokkuð færri en smitin sem
greindust á laugardag og föstudag.
38 greindust á laugardag og 75 á
föstudag.
„Það er ánægjulegt að sjá þessa
fækkun en við gætum fengið ein-
hverja uppsveiflu og niðursveiflu.
Það er eðli svona faraldra að gera
það. Að jafnaði viljum við náttúrlega
sjá hann fara niður. Ég tel alls ekki
ástæðu til að grípa til harðari að-
gerða núna en við höfum verið að
grípa til,“ sagði Þórólfur.
Síðustu daga hefur fólki í sóttkví
fjölgað stöðugt og eru nú 2.102 í
sóttkví.
„Sem er náttúrlega eðlileg afleið-
ing af fjölda þeirra einstaklinga sem
hafa verið að greinast,“ sagði Þór-
ólfur og bætti því við að ánægjulegt
væri að sjá hvað fyrirtæki og ein-
staklingar hafi tekið við sér í smit-
vörnum. „Þannig náum við árangri,“
segir hann.
Yfirvöld hafa ekki gripið til víð-
tækra aðgerða vegna aukins smit-
fjölda og frekar leitast við að hvetja
til ýmissa viðbragða fyrirtækja og
einstaklinga við smitfjöldanum.
Þannig hafa embætti landlæknis
og almannavarnadeild ríkislögreglu-
stjóra hvatt fyrirtæki og stofnanir til
að skipta upp rýmum, fá starfsfólk
sem getur verið í fjarvinnu til að
gera það og að sameiginleg rými séu
sótthreinsuð oft og vel.
Fram kemur í tilkynningu frá al-
mannavörnum að mikilvægast sé þó
að allir gæti að einstaklingsbundn-
um sóttvörnum, það er að starfs-
menn þvoi og sótthreinsi hendur oft
og tryggi að minnsta kosti eins
metra fjarlægð.
Andlitsgrímur í skólum
Þá hefur Þórólfur einnig mælst til
þess að framhalds- og háskólar bjóði
nemendum upp á fjarkennslu. Þar
sem það sé ekki mögulegt bjóði skól-
arnir nemendum upp á andlitsgrím-
ur.
Virk smit eru nú í öllum landshlut-
um nema á Austurlandi. Langflest
virku smitin eru á höfuðborgarsvæð-
inu en tvö smit greindust utan höfuð-
borgarsvæðisins í gær, annað á
Vesturlandi og hitt á Vestfjörðum.
Grípa til hertra að-
gerða „ef þörf krefur“
30 ný innanlandssmit Fjölgunin sögð áhyggjuefni
Kórónuveirusmit á Íslandi
Nýgengi smita frá 30. júní
2.377 staðfest smit
Heimild: covid.is
Nýgengi innanlands 20. sept.
59,7 ný smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa
2 einstaklingar eru á sjúkrahúsi,
enginn á gjörgæslu
253.708 sýni hafa verið tekin
Þar af í landamæraskimun
145.196
sýni, samtals í skimun 1 og 2
2.092 einstaklingar eru í skimunarsóttkví
50
40
30
20
10
0
59,7
4,6
2.102 einstaklingar eru í sóttkví
242 eru með virkt smit og í einangrun Nýgengi innanlands Nýgengi, landamæri
júlí ágúst september
Ef vel bókast í nýja tíma á Heilsuveru
gæti Heilsugæsla höfuðborgarsvæð-
isins tekið um 5.000 sýni í dag. Útlit
er fyrir langan vinnudag hjá „góðum
hópi fólks“ sem hefur sýnatökur nú
klukkan átta í morgunsárið og vinnur
fram á kvöld ef þess gerist þörf þó
vonandi náist að klára alla sýnatök-
una á 8-10 tímum. Þetta segir Óskar
Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins.
Mest hafa um 4.000 sýni verið tekin
á landsvísu á einum degi í faraldr-
inum, en það var 17. september síð-
astliðinn þegar 75 smit greindust í
kjölfarið. Heilsugæsla höfuðborgar-
svæðisins tekur gjarnan 2-3 þúsund
sýni daglega en ákvörðun um að bæta
við tímum á Heilsuveru var tekin í
gær og mun heilsugæslan geta tekið
2.000 fleiri sýni en vant er í dag, eða
allt að 5.000 sýni alls.
Ástæðan fyrir því að gefið er í við
sýnatökuna er mikill fjöldi smita sem
hafa greinst í samfélaginu undanfarið
og hefur Heilsugæsla höfuð-
borgarsvæðisins fengið ábendingar
um að fólk hafi ekki komist að í skim-
un, þrátt fyrir að það sé með ein-
kenni.
„Það er ekki gott ef fólk er með
einkenni og kemst ekki að,“ segir
Óskar. ragnhildur@mbl.is
Gætu tekið metfjölda
veirusýna í dag
Bæta við tímum í sýnatöku
Morgunblaðið/Eggert
Sýnataka Frá sýnatöku við Orku-
húsið á sólríkum degi í lok ágúst.
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI