Morgunblaðið - 22.09.2020, Side 6

Morgunblaðið - 22.09.2020, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 2020 Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Gert er ráð fyrir að auknar veiðar verði leyfðar á bleikju í Mývatni á næsta ári. Guðni Guðbergs- son, fiskifræðingur á Hafrannsóknastofnun, segir að nýliðun hafi verið góð síðustu ár og nú séu fjór- ir „býsna góðir“ árgangar á leiðinni. Bleikjustofn- inn sé að ná sér á strik og veiðistjórnun og vernd- unaraðgerðir hafi greinilega skilað sér. Síðustu ár hafi fæðuframboð yfirleitt verið gott, til að mynda hafi mýið verið nokkuð sterkt síðustu sjö ár. Farið var í miklar aðgerðir árið 2011 til að byggja bleikjustofninn upp í kjölfar alvaregrar niðursveiflu. Aðeins hafa verið leyfðar takmark- aðar netaveiðar undir ís að vetri til og fá net verið leyfð samkvæmt arðskrá, veiðiálag yfir sumarið hefur verið mjög takmarkað og ekkert leyft að veiða í september. „Þannig hefur verið komið í veg fyrir að menn væru að veiða silung upp undir landi á sama tíma og hann var að undirbúa hrygningu,“ segir Guðni. Hann segir að síðasta áratuginn hafi veiðin yfirleitt verið 2-2.500 silungar. Rannsóknaleið- angur um síðustu mánaðamót hafi lofað góðu og ráðgjöf um afla næsta árs gæti miðast við 5-10 þúsund fiska. Guðni segist reikna með að notast verði við sóknarmark, sem hafi gefist betur en kvóti, og þannig sé hægt að fylgjast með hvort afli á sóknareiningu gefi eftir. Þá miði hann einn- ig við aukna möskvastærð til að vernda smáfisk- inn. Til samanburðar var meðalveiðin á árunum í kringum 1970 um 30 þúsund silungar. Hornsílið hefur náð sér á strik „Ef ástandið helst gott á bleikjustofninum á hann að geta staðið undir einhverri útgerð,“ segir Guðni. „Menn mega þó ekki rífa sig af stað með stórútgerð og hreinsa silunginn upp á skömmum tíma. Menn þurfa að nýta þennan stofn af skyn- semi, virða veiðitakmarkanir og hafa sjálfbærni að leiðarljósi.“ Guðni segir að gott ástand hafi verið á sil- ungnum í haust og fæða verið fjölbreytt. Hann nefnir að mýið hafi verið stöðugt síðustu ár og hornsílið hafi náð sér á strik en lítið sást af því 2015. Miklar áhyggjur komu fram um ástand líf- ríkisins í Mývatni um það leyti og áhrif þess á Laxá. Sveiflur í lífríkinu hafa stundum farið illa með bleikjuna, þannig drápust fiskar úr hungri í Mý- vatni sumrin 1988 og 1997. „Nokkuð sem menn óraði ekki fyrir að gæti gerst í eins frjósömu vatni og Mývatni. Eftir síðara áfallið var stofninn svo lítill að hann hafði ekki tímgunargetu til að ná sér á strik,“ segir Guðni. Veiðar á bleikju í Mývatni hafa ekki aðeins ver- ið þáttur í afkomu bænda heldur einnig hluti af menningu og lífsmynstri þeirra sem búa við vatn- ið, að sögn Guðna. Veiðifélag var stofnað við Mý- vatn 1905. Guðni segir að stofn urriða í vatninu hafi held- ur gefið eftir síðustu ár, en segist hafa trú á að hann nái sér á strik. Bleikjuveiðar auknar í Mývatni  Verndaraðgerðir skila árangri  Fjórir góðir árgangar á leiðinni  Sjálfbærni að leiðarljósi Ljósmynd/Árni Einarsson Í sparifötunum Bleikjupar á hrygningartíma, en aðeins sporðurinn sést á hrygnunni. Hængur- inn er í rauðum og grábláum búningi með hvítar bryddingar á uggum og föla flekki í andliti. Lítið er að frétta af kúluskítnum í Mý- vatni. Vatnið hefur verið gruggugt í allt sumar og segir Árni Einarsson, forstöðumaður Náttúrurannsóknastöðv- arinnar við Mývatn, að blábakteríu- blómar sem komi í vatnið hindri trúlega vöxt kúluskítsins. Mikill blómi hafi verið í vatninu í sum- ar eins og var 2015. Vatnið hafi verið gruggugt í allt sumar og engin birta komist á botninn, sem takmarki vöxt þörunga. Árni segir að verði vatnið tært nokkur sumur í röð ætti kúluskítur að geta náð sér á strik. Stór kúluskítur sem var áður í stórum breiðum í Mývatni hefur ekki fundist í vatninu frá 2014. Litlir hnoðrar kúlu- skíts, álíka að stærð og þokkaleg mynt, eins og gamli fimmeyringurinn, hafa hins vegar fundist í vatninu síðustu ár. Kúluskítur er eitt vaxtarform græn- þörungs sem heitir vatnaskúfur. Kúlu- skítur var alfriðaður í Mývatni árið 2006 og komst þá í flokk með nokkrum öðr- um sjaldgæfum og sérstökum plöntum. Talið er að kúluskítur lifi einungis á ör- fáum stöðum í heiminum og stórvaxinn kúluskítur aðallega í þremur stöðuvötn- um, þ.e. í Mývatni, í Akanvatni í Japan og einu vatni í Úkraínu. Hann finnst m.a. einnig í Kringluvatni í Suður- Þingeyjarsýslu, en verður ekki stór. Litlar fréttir af kúluskítnum GRUGGUGT Í ALLT SUMAR Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Byggðasafn Árnesinga á Eyrar- bakka fékk á dögunum að gjöf eitt elsta píanó landsins; sem er af gerðinni Cadby, smíðað árið 1855. Það sem meira er: hljóðfærið teng- ist sögu Hússins, hinni sögulegu byggingu þar sem aðsetur safnsins er. Lýður Pálsson safnstjóri segir þessa gjöf afar dýrmæta og í safn- húsinu verði píanóið sýningar- gripur og á góðum stundum megi nota það til tónlistarflutnings. Í byggðasafninu er fyrir píanó, smíðað árið 1871. Lýður segist lengi hafa staðið í þeirri trú að það væri elsta píanóið frá tímum fak- toranna; dönsku kaupmannanna sem stunduðu forðum verslunar- rekstur á Eyrarbakka og bjuggu í Húsinu. Seinna fann Lýður með bókagrúski að eldra hljóðfæri hefði verið í kaupmannshúsinu og mynd- in skýrðist enn betur nú í vor þegar Glúmur Gylfason, lengi kennari og organisti við Selfosskirkju, hafði samband og sagði honum frá um- ræddu píanói, sem langamma hans og langafi höfðu átt. Þau voru Helga Friðrikka Vigfúsdóttir og Siggeir Torfason, sem kynntust í Húsinu árið 1887. Píanóið fylgdi þeim og afkomendum þeirra – og síðast áttu það systkinin Halla, Birna, Tryggvi og Kristbjörn Helgabörn í Reykjavík. „Í vor höfðum við Glúmur sam- band við systurnar Birnu og Höllu og könnuðum hjá þeim hvort píanó- ið gætið farið á sinn upprunalega stað. Því var tekið vel og safninu var gefið hljóðfærið sem við erum afar þakklát fyrir,“ segir Lýður. „Húsið var miðstöð tónlistarmenn- ingar á 19. öld eftir að hingað komu hjónin Sylvía og Guðmundur Thor- grímsen árið 1847 og unnu hér í þágu Lefolii kaupmanns í fjóra ára- tugi. Hér var tónlist og söngur í há- vegum hafður á þeirra tíma og tón- listarmenningin breiddist út um allt héraðið. Hér í stofu Hússins hefur verið spilað á píanó og efni- legu fólki kennt.“ Lýður hefur jafnframt orð dr. Bjarka Sveinbjörnssonar, tónlistar- fræðings frá Stokkseyri, fyrir því að píanóið sé hið fyrsta sem farið hafi á heimili utan Reykjavíkur – það er á Eyrarbakka þangað sem hljóðfærið er aftur komið nú. Fyrsta píanóið fær aftur sess í Húsinu  Góð gjöf til Byggðasafns Árnesinga  Hljóðfæri frá árinu 1855 af gerðinni Cadby aftur komið á Eyrarbakka Ljósmynd/Gunnar Páll Pálsson Píanó Lýður Pálsson hér við hljóðfærið góða í Byggðasafni Árnesinga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.