Morgunblaðið - 22.09.2020, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 22.09.2020, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Það varð aðrisafrétt íBandaríkj- unum þegar það spurðist að Ruth Bader Ginsburg, einn af 9 dóm- urum Hæsta- réttar Bandaríkjanna, væri fallin frá. Það hljómar ein- kennilega í okkar eyrum og víðar, þótt dómarar í efsta þrepi kerfisins séu víðast í virðingarstöðu. En ólíklegt er þó að almenningur kunni skil á því hverjir þeir séu. En í Bandaríkjunum þykir það á meðal mikilvægra þátta valdskiptingar stjórn- málanna hvernig Hæstirétt- ur er skipaður. Frú Ginsburg var orðin 87 ára gömul og hafði lengi átt við erfið veikindi að stríða og staðið þau af sér mun lengur en ætla hefði mátt. Það er óumdeilt að Ginsburg var vel heima í sínum fræðum og þess vegna eftirsóttur fyrirlesari um lögvísindi um langt ára- bil. En hún var jafnframt talin til vinstrisinnuðustu dómara réttarins og hafði verið skipuð í embætti af Bill Clinton forseta. En rétt er að taka fram að skipt- ingin í vinstri og hægri í þessu tilviki snýr ekki að öllum hefðbundnum átaka- málum sem stjórnmálin taka til. En það fylgir þess- ari skiptingu að „vinstri“ dómararnir lúta þeim laga- skilingi að þegar þannig háttar til geti dómstóllinn tekið ákvarðanir þótt þær eigi ekki sjáanlega rót í gildandi settum lögum. Ákvörðun dómstólsins sé því ígildi þess í þeim til- vikum að ný lagaheimild hafi komið til. „Hægri“ dómararnir telja hins vegar að stjórnarskráin (en hún er helsta verkefni Hæsta- réttar Bandaríkjanna) sé algjörlega ótvíræð varðandi þrígreiningu ríkisvaldsins. Hæstiréttur setji ekki lög, segi stjórnarskráin. Geti talsmaður kröfu ekki fært sannindi fyrir henni með vísun til gildandi laga þá beri að hafna henni með rökstuddri ályktun um það. Þegar sá þáttur liggur fyrir getur löggjafinn, ef hann kýs, skapað skilyrði til þess að krafa á borð við þá sem rétturinn hafnaði verði að veruleika. Bent er á að þegar meiri- huti réttarins sé skipaður „hægri“ dómurum, sam- kvæmt framangreindri skil- greiningu, sé minni hætta á ferð en í hinu til- vikinu. Þeir telja sér óheimilt að dæma í samræmi við ímynduð lög, og það þótt þeir teldu æskilegt að slík lög væru til staðar, eins og „vinstri“ dómararnir telja sér rétt og skylt. Þeir væru því ólíklegir til að beita réttinum pólitískt, því slíkt væri, samkvæmt stjórnar- skrá, heimildarlaus valda- sókn inn á afmarkað svæði löggjafans. Donald Trump sagðist að- spurður myndu tilnefna dómaraefni eins fljótt og fært og viðeigandi væri. Demókratar urðu æfir, eins og þeir verða reyndar hve- nær sem Trump svarar spurningu um áform sín. Þegar langt var liðið á síðara kjörtímabil Obama forseta losnaði sæti dómara við Hæstarétt. Augljóst var að Obama yrði ekki í fram- boði. Hann ákvað þó að til- nefna dómara í lausa sætið, Merrick Garland. Það bar honum að gera, sagði hann, eins og Trump segir nú, og báðir réttilega. Þá var mál- ið að lögum komið til kasta þingsins. Repúblikanar voru þá með meirihluta í öldungadeildinni. Þeir sögðu sína athugun stað- festa að ekki myndi nást meirihluti fyrir tillögunni um útnefningu Garlands og engum væri til gagns að hefja tímafreka leiksýningu um það sem ekkert yrði úr. Nú háttar hins vegar þannig til að repúblikanar hafa meirihluta í öldunga- deildinni og forseta á fyrra kjörtímabili og alls ekki úti- lokað að hann muni gegna því starfi áfram næstu fjög- ur árin. Allt bendir því til að öldungadeildinni megi takast vel að leiða málið til lykta. Það er vissulega rétt að repúblikanar hafa 53 þing- menn af 100 í deildinni. En tveir þingmenn þeirra hafa þegar lýst efasemdum sín- um um hvort þeir muni standa að afgreiðslu máls- ins, enda eru þeir taldir standa veikt í sínum kjör- dæmum. Detti þeir fyrir borð hafa repúblikanar einn þingmann til góða og reyndar eftir atvikum tvo, því ef atkvæði falla jafnt í öldungadeildinni ræður at- kvæði Pence varaforseta úrslitum. Obama sagði sér skylt að skila tillögu um dómara til þingsins án ástæðu- lausrar tafar} Fordæmið þekkt T ími innviðafjárfestinga er runninn upp. Slíkar fjárfestingar snúast um fleira en vegi og brýr, því innviðir samfélagsins eru margir og sam- fléttaðir. Hugmyndir um lang- þráðar framkvæmdir við Menntaskólann í Reykjavík eru loksins að raungerast, greining á húsnæðisþörf fyrir iðn- og tæknimenntun er á lokametrunum og undirbúningur vegna nýs Listaháskóla er í fullum gangi. Unnið er að framtíðarskipan Náttúruminjasafns Íslands og Hús íslenskunnar hefur þegar tekið á sig mynd. Um áratugaskeið hefur þjóðin átt sér þann draum að byggja þjóðarleikvanga fyrir íþrótta- starf í landinu. Slíkt er löngu tímabært, enda núverandi mannvirki úr sér gengin og standast ekki kröfur alþjóðlegra íþróttasambanda. Þannig uppfyllir ekkert íþróttahús hérlendis lágmarkskröfur sem gerðar eru í alþjóðakeppnum í hand- knattleik eða körfuknattleik. Laugardalshöllin kemst næst því, en þar er gólfflötur of lítill, rými fyrir áhorfendur of smátt og aukarými fyrir ýmsa þjónustu ekki til staðar. Al- þjóðasambönd hafa þegar gefið okkur gula spjaldið vegna aðstöðuleysis, og ef ekkert verður að gert gæti það rauða fylgt í kjölfarið. Svipaða sögu er að segja um Laugardalsvöllinn, sem er einn elsti þjóðarleikvangur í Evrópu. Líkt og handbolta- og körfuboltafólkið okkar hefur knattspyrnulandsliðið náð undraverðum árangri, bæði í kvenna- og karlaflokki. Það er þó ekki vellinum að þakka, sem líkt og Laugardalshöllin stenst ekki kröfur sem gerðar eru í alþjóð- legum mótum. Aðfinnslurnar eru svipaðar; völlurinn er lítill, áhorfendaaðstaða óviðunandi og skortur er á rýmum fyrir ýmsa þjónustu. Þá hafa keppnistímabil í alþjóðlegum mótum lengst og þörfin fyrir góðan völl því brýnni en nokkru sinni fyrr. Eftir áratuga draumfarir sést nú til lands. Tveir starfshópar – annar vegna inniíþrótta og hinn vegna knattspyrnuiðkunar – hafa skilað greiningu á ólíkum sviðsmyndum, kostum, göllum, ávinningi og áhættu af ólíkum leiðum. Þannig er stór hluti undirbúningsvinnunnar kominn vel á veg og hægt er að taka næstu skref. Fram undan er að tryggja fjármögnun, ráðast í hönnun og grípa skófluna og byggja framtíðarleikvanga fyrir landslið Íslendinga. Þótt meginmarkmiðið sé að byggja utan um og yfir íþróttastarfið er mikilvægt að þjóðin öll finni sig í nýjum þjóðarmannvirkjum. Að hún sé velkomin í mann- virkin árið um kring, en þau standi ekki tóm og safni bæði kostnaði og ryki. Það má gera með ýmsum hætti; 1) bjóða sérsamböndum, stökum félögum og skólum vinnu- og æf- ingaaðstöðu, 2) hugsa fyrir viðburðahaldi strax á hönn- unarstigi og tryggja að almenningur, sér í lagi börn, geti notið og prófað ólíkar íþróttir. Þjóðarleikvangar eiga að iða af lífi frá morgni til kvölds, eigi þeir að standa undir nafni. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Pistill Þjóðarleikvangar fyrir þjóðina Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Andres Magnússon andres@mbl.is Fjölmargir bankar víða umheim virðast hafa veriðeinstaklega kærulausir viðval á viðskiptavinum og snúninga í kringum þá, sem fólu með- al annars í sér vafasama fjármagns- flutninga á meira en tveimur billj- ónum Bandaríkjadala á árunum 2001-2017, sem er í námunda við 275- föld útgjöld íslenska ríkisins, fyrir plágu. Meðal viðskiptavinanna voru eit- urlyfjabarónar, grunaðir hryðju- verkamenn, spilltir embættismenn, glæpafjölskyldur, gírugir valdhafar og auðmenn með óljósan eða illan feng. Bankarnir geta ekki varið sig með því að þeim hafi ekki verið ljóst hvers kyns var, því heimildirnar um þessa þjónustu þeirra við skugga- baldrana eru tilkynningar þeirra sjálfra um grunsamlegar færslur. Alþjóðlegt regluverk Alþjóðlegt eftirlit með fjármuna- færslum og peningaþvætti var hert til muna eftir hryðjuverkin í Bandaríkj- unum árið 2001, en þar gegnir banda- ríska fjármálaráðuneytið lykilhlut- verki. Samkvæmt því alþjóðlega regluverki ber bönkum að senda sér- stakri upplýsingastofu um fjárglæpi, FinCEN, tilkynningar um allar grun- samlegar færslur sem þeir telja að geti verið liður í peningaþvætti, fjár- svikum, fjármögnun hryðjuverka eða öðru ólöglegu athæfi. Regluverðir bankanna virðast hafa sent slíkar tilkynningar nokkuð samviskusamlega, en starfsmenn bankanna framkvæmdu færslurnar engu að síður, án þess að hirða frekar um að gera lögreglu eða öðrum yfir- völdum viðvart. Þar var þó ekki að- eins hirðuleysi eða værukærð um að kenna. Oft virðast bankamenn hafa gert sér fulla grein fyrir eðli og at- hæfi viðskiptavinanna, og jafnvel haft frumkvæði að peningaþvætti og ámóta myrkraverkum. Það var bandaríski netmiðillinn BuzzFeed sem komst yfir afrit af þúsundum slíkra tilkynninga frá bankastofnunum á borð við JPMorg- an Chase, Citigroup og Bank of Am- erica vestanhafs og Deutsche Bank, HSBC og Danske Bank austanhafs. Standard Chartered, sem einkum starfar í Mið-Austurlöndum hand- langaði peninga til talibana, en JPMorgan og Bank of New York Mellon mokuðu fé til Norður-Kóreu í trássi við alþjóðabann. Þjónustufulltrúar mafíunnar í Mexíkó og Rússlandi HSBC vílaði ekki fyrir sér að að- stoða mexíkóska glæpahringi við að þvætta hundruð milljóna Bandaríkja- dala, en jafnvel eftir að það komst upp og bankinn greiddi metsektir ár- ið 2012, hélt hann uppteknum hætti og færðist raunar í aukana við að þjónusta rússnesku mafíuna í úti- búinu í Hong Kong. Evrópskir bankar á borð við Deutsche Bank, Danske Bank, RBS, Société Générale og Barclays voru engu skárri, en þeir einbeittu sér margir að því að annast fjársýslu við rússneska auðkýfinga af ýmsum stærðum og gerðum, án þess að for- vitnast of mikið um hvernig féð væri fengið. Eða vissu allt um það og tóku beinan þátt í svínaríinu, eins og raun- in virðist hafa verið í Danske Bank. Útibúið í Eistlandi var undirlagt undir slík viðskipti, en bankinn þurfti að skipta um alla yf- irstjórnina eftir að upp komst. Nú er meira slíkt að koma í ljós og litla Dan- mörk sýpur hveljur. Bankar með bófum og hryðjuverkamönnum Það var bandaríski netmiðillinn Buzzfeed sem komst yfir skjöl frá FinCEN, sem sýna tilkynn- ingar banka um grunsamlegar færslur sem þeir samt sem áð- ur framkvæmdu. ICIJ, alþjóðleg samtök rann- sóknarblaðamanna, hafa tekið þátt í úrvinnslu og birtingu efnis úr þeim, en aðeins hefur brot þeirra verið birt enn. Fyrsta fréttin úr þeim kom á sunnudag og verður moðað úr gögnunum á næstu dögum, þar sem fjallað verður um ein- staka banka. Forvitnast má um gögnin á icij.org, en bandarísk stjórnvöld hafa varað við birt- ingunni. Um 130 lönd koma við sögu í tilkynningunum, en Ísland virðist ekki eitt þeirra, hvað sem öllum gráum listum líður. FinCEN- skjölin ILLUR FENGUR Þvætti Danske Bank við Laxagötu í Kaupmannahöfn, en hann er meðal margra banka sem ekki virðast hafa verið vandir að viðskiptavinum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.