Morgunblaðið - 22.09.2020, Qupperneq 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 2020
LÉLEG
RAFHLAÐA?
Við skiptum
um rafhlöðu
samdægurs
Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is
s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a
Sem meðlimur þjóð-
kirkjunnar hef ég
undrast verulega
fréttaflutning og um-
ræður að undanförnu,
þar sem fjallað hefur
verið um umtalsverðar
breytingar á boðunar-
háttum í kirkjustarfi
þjóðkirkjunnar.
Reyndar er rétt að
geta þess að enn sem
komið er tengist um-
fjöllunin að mestu einu prestsemb-
ætti utan höfuðborgar. Einnig var
sagt að í barnastarfi þjóðkirkjunnar
skyldi nú tekið tillit til þess að Jesús
gæti hafa verið samkynhneigður og
því rétt að taka mið af því í barna-
starfi, þó börn verði ekki kynþroska
fyrr en á unglingsaldri, ef þau fá frið
til að vera börn og lifa eðlilegu lífi
samkvæmt aldri sínum.
Bernskuár mín var ég alinn upp
hjá fósturföður, sem var starfs-
maður þjóðkirkjunnar. Einnig var
afar djúp og einlæg vinátta milli
hans og sóknarprestsins. Ræddu
þeir mikið saman um skilning nú-
tímamannsins á helstu kennisetn-
ingum kristinnar trúar, eins og þær
birtast í Biblíunni og öðrum ritum
sem lýsa kenningum og beinum til-
vísunum til orða Jesú. Þegar ég
nálgaðist fermingaraldur hlustaði
ég oft á samræður þeirra af athygli
og tók stundum þátt í umræðunum
með einföldum spurningum. Mér
fannst merkilegt að heyra hve
óskólagenginn alþýðumaður og
menntaður kennimaður voru al-
mennt sammála um á hvað grund-
velli boðskapur Jesú hefði verið
byggður.
Þeirra óbilandi trú var sú að
grundvöllur kristindómsins stæði
föstum fótum í kærleiksviljanum,
sem stæði öðrum fæti í hjartanu en
hinum fæti í vitund og greind
mannsins. Meðan sköpunarverk
Guðs væri í þeirri mynd sem verið
hefði óbreytt frá upphafi yrði engin
breyting þar á frá hendi Guðs. Eng-
ar breytingar lífsafkomu manna á
komandi öldum myndi í neinu
breyta þeim grundvelli sem trúin
byggðist á, vegna þess að uppskrift
Guðs að vellíðan manna myndi ekki
breytast. Guð hafði fengið mann-
inum sjálfum fullt sjálfræði til nýt-
ingar á öllu kærleikssviðinu, frá því
besta til þess versta, að eigin vali.
Og hvað það væri svo sem færði
mönnum hina eftirsóttu vellíðan
myndi að ytra útliti breytast en und-
irstaðan yrði um ókomna tíð hin
fölskvalausa og einlæga kærleik-
stilfinning sem gróðursett væri
hjarta hvers manns og hann stjórni
sjálfur hvernig hann
nýti þá hæfileika.
Þegar ég sá mynd af
áðurnefndum presti, í
fullum messuskrúða
standa fyrir altari þjóð-
kirkjunnar, og vera þar
merkisbera kynferðis-
legrar öfgastefnu og
misþyrminga, varð mér
verulega brugðið. Ekki
batnaði líðan mín er ég
fékk fregnir af því að
biskup landsins hefði
samþykkt að birta
börnum á Íslandi skrumskælda
mynd af frelsaranum, færðan í bún-
ing ófrjósamrar kynlífsiðkunar, sem
með engu móti getur talist eiga er-
indi við börn. Ég varð að kyngja
þessari staðreynd þegar ég skoðaði
sjálfur heimasíðu biskupsembættis
og gat kallað þar fram umrædda
skrípamynd af frelsaranum í líkams-
mynd konu.
Þegar ég hafði séð það ógæfuspor
sem þarna var stigið, fletti ég upp á
lögum og starfsreglum um þjóð-
kirkjuna, í leit að breytingum á
grundvallarundirstöðum í boðun
kristinnar trúar á Íslandi. Enn hef
ég engar slíkar breytingar fundið.
Ég er því vægast sagt undrandi að
vera með fyrir framan mig tvö mjög
alvarleg tilvik um grófa afvegaleið-
ingu trúargilda kristinnar trúar á
Íslandi, en finna ekki eina einustu
tilvísun í lögum eða starfsreglum
fyrir slíkum breytingum. Áður en ég
tek þá alvarlegu ákvörðun að segja
mig úr þjóðkirkjunni vil ég fara
fram á við kirkjuráð að það gefi mér
skýra mynd af því með hvaða hætti
og undir hvaða formerkjum þær
grundvallarbreytingar kristinnar
trúar voru teknar, sem að framan er
vísað til. Jafnframt vildi ég gjarnan
fá sjónarmið kirkjuráðs á því hvort
svo róttækar aðfarir að mikilvæg-
ustu undirstöðum kristninnar ættu
ekki að eiga lokaafgreiðslu sína í al-
mennri þjóðaratkvæðagreiðslu allra
kristinna manna í landinu? Ég vænti
heiðarlegra svara á grundvelli kær-
leiksvitundar.
Opið bréf
til kirkjuráðs
Eftir Guðbjörn
Jónsson
Guðbjörn
Jónsson
»Ég er undrandi að
vera með fyrir fram-
an mig tvö tilvik um af-
vegaleiðingu trúargilda
kristinnar trúar á Ís-
landi og finna ekki eina
einustu tilvísun í lögum
eða starfsreglum fyrir
slíkum breytingum.
Höfundur er fv. ráðgjafi.
Fjórir þingmenn
Framsóknarflokksins
hafa áður flutt þings-
ályktunartillögu um
að Sundabraut verði
strax sett inn á sam-
gönguáætlun, sem nú-
verandi meirihluta
borgarstjórnar er
þvert um geð.
Tímabært er, að
allir þingmenn Reyk-
víkinga svari því
strax hvort útboð Sundabrautar sé
í sjónmáli, til að íbúum höfuðborg-
arsvæðisins verði ekki mismunað
meira en orðið er. Stigið er fyrsta
skrefið til að fljótlegra verði hægt
að bregðast við neyðartilfellum,
fari svo að Neyðarlínan fái til-
kynningu um eldsvoða vegna um-
ferðaróhapps í Hvalfjarðargöng-
um. Í greinargerð tillögunnar kom
fram fjarstæðukenndur og villandi
málflutningur, um að meðalumferð
á dag í Hvalfjarðargöngum sé að-
eins 500 bílar, þegar því var spáð
að meira en þrjú þúsund bílar
færu í gegnum Héðinsfjarðargöng
og um Víkurskarð á jafnlöngum
tíma. Aldrei hafa þessir þingmenn
séð ástæðu til að kynna sér vand-
lega hvort öryggi vegfarenda verði
betur tryggt í tvennum aðskildum
göngum undir Hvalfjörð, í stað
þess að tvöfalda núverandi neðan-
sjávargöng.
Í greinargerð þingsályktunar-
tillögunnar, sem þingmennirnir
Sigrún Magnúsdóttir, Vigdís
Hauksdóttir, Karl Garðarsson og
Frosti Sigurjónsson fluttu um að
flýta útboði Sundabrautar, komu
fram ótrúverðugar fullyrðingar
um að meðalumferð í Hvalfjarðar-
göngum væri helmingi færri bílar
á sólarhring en í Héðinsfjarðar-
göngum. Frásögn fjórmenning-
anna um meðalumferðina undir
Hvalfjörð er villandi og sögð gegn
betri vitund til að afskræma allar
staðreyndir, um þann
heildarfjölda öku-
tækja sem er í umferð
á öllu Reykjavíkur-
svæðinu. Skamm-
arlegt er, að þessir
þingmenn skuli taka
rándýrar fram-
kvæmdir utan hring-
vegarins fram yfir
brýnustu verkefnin
sem hafa allt of lengi
setið á hakanum. Öll-
um tillögum, um að
bregðast strax við
umferðarteppunni
sem Kringlumýrarbraut og Mikla-
braut þola ekki, svöruðu fyrrver-
andi innanríkisráðherra, borgar-
stjóri og forseti borgarstjórnar
með útúrsnúningi og hnútuköst-
um. Hjá þeim féll tillagan um mis-
lægu gatnamótin og Sundabraut-
ina í grýttan jarðveg.
Umferðarspár sýna að með-
alumferð um þetta samgöngu-
mannvirki verði 32 þúsund bílar á
dag. Talið er að þessi tala muni
hækka þegar tímar líða. Þessa
samgöngubót yrði mikið fljótlegra
að fjármagna með 500 króna veg-
tolli á hvern bíl heldur en Vaðla-
heiðargöng, sem verða aldrei arð-
bær framkvæmd. Í 12 ára áætlun
um vegaframkvæmdir í landinu
kemur fram, að stærstur hluti af
þeim 240 milljörðum króna fari í
rándýr samgöngumannvirki á
landsbyggðinni, án þess að talað
sé um hvað höfuðborgarsvæðið
skuli fá í sinn hlut. Um þetta náð-
ist samkomulag milli fyrrverandi
borgarstjóra, Jóns Gnarrs, og for-
manns borgarráðs sem tóku þátt í
pólitískum hrossakaupum á bak
við tjöldin, til að réttlæta tilefn-
islausa árás fyrrverandi borg-
arstjórnarmeirihluta á lífæð allra
landsmanna í Vatnsmýri og
sjúkraflugið.
Þetta samkomulag, sem þáver-
andi ráðherra samgöngumála
skrifaði undir, er hnefahögg í and-
lit íbúa Reykjavíkursvæðisins.
Með þessari undirskrift lýsti
Hanna Birna fyrirlitningu sinni á
samgöngumálum borgarbúa sem
eiga líka að sitja við sama borð og
aðrir landsmenn. Fullvíst þykir,
að framkvæmdir við mislæg
gatnamót á höfuðborgarsvæðinu,
og Sundabraut, sem borgarstjóri
vill afskrifa endanlega, verði ekki í
sjónmáli næstu tvo áratugina, fari
svo að Vinstri grænir og Samfylk-
ingin myndi meirihluta í Reykja-
vík í næstu sveitarstjórnarkosn-
ingum.
Vitlaus forgangsröðun sam-
göngumannvirkja utan þjóðvegar
1, sem Alþingi var blekkt til að
samþykkja, tefur fyrir því, að
hægt sé að flýta brýnustu verk-
efnunum á höfuðborgarsvæðinu,
sem þola enga bið.
Best væri, fyrir alla þingmenn
Reykjavíkursvæðisins, að svara
spurningunni um hvort nú sé
tímabært að bregðast við slysa-
hættunni sem eykst allt of mikið á
Grindavíkurveginum, í stað þess
að halda uppi tilefnislausum árás-
um á flugvöllinn í Vatnsmýri,
sjúkraflugið og samgöngumál
höfuðborgarsvæðisins. Milli
Grindavíkur og Reykjavíkur eykst
meðalumferðin á sólarhring þvert
á allar hrakspár.
Þingmenn höfuðborgarsvæðisins
skulu svara því afdráttarlaust
hvort besta leiðin til að klára mál-
ið sé að tvöföldun núverandi vegar
alla leið að Hvalfjarðargöngum
verði miðuð við 2+2 áður en
þungaflutningarnir eyðileggja
hann endanlega. Ákveðum strax
ný Hvalfjarðargöng.
Enga Sundabraut
segir Dagur B.
Eftir Guðmund
Karl Jónsson » Tímabært er að allir
þingmenn Reykvík-
inga svari því strax
hvort útboð Sunda-
brautar sé í sjónmáli.
Guðmundur Karl
Jónsson
Höfundur er farandverkamaður.
Náð Guðs og friður sé
með okkur öllum í dag
og alla daga.
„Guð er andi, og þeir
sem tilbiðja hann, eiga
að tilbiðja í anda og
sannleika.“ (Jóhannes-
arguðspjall 4:24)
„Í upphafi var Orðið
og Orðið var hjá Guði og
Orðið var Guð. Hann
var í upphafi hjá Guði.
Allt varð til fyrir hann, án hans varð
ekki neitt sem til er. Í honum var líf og
lífið var ljós mannanna. Ljósið skín í
myrkrinu en myrkrið tók ekki á móti
því.
Hið sanna ljós, sem upplýsir hvern
mann, kom nú í heiminn. Hann var í
heiminum og heimurinn var orðinn til
fyrir hann en heimurinn þekkti hann
ekki. Hann kom til eignar sinnar en
hans eigið fólk tók ekki við honum. En
öllum þeim sem tóku við honum gaf
hann rétt til að verða Guðs börn, þeim
sem trúa á nafn hans. Og Orðið varð
hold, hann bjó með oss, fullur náðar og
sannleika og vér sáum dýrð hans, dýrð
sem sonurinn eini á frá föðurnum.“
(Úr 1. kafla Jóhannesarguðspjalls)
„Því svo elskaði Guð heiminn að
hann gaf einkason sinn til þess að hver
sem á hannn trúir glatist ekki heldur
hafi eilíft líf.“ (Jóhannesarguðspjall
3:16)
Bæn
Takk, Guð, fyrir kærleika þinn.
Takk fyrir að senda okkur son þinn
Jesú Krist til að minna
okkur á hver þú ert og
hver hann er, hver við
erum, hvaðan andi þinn
kemur. Andi sköpunar
og lífs. Andi náðar og
miskunnar. Andi kær-
leika, fyrirgefningar og
friðar.
Hjálpaðu okkur að sjá
okkur og hvert annað; já
og náttúruna alla með
þínum augum.
Takk fyrir að vitja
okkar og takk fyrir að
elska okkur alltaf skilyrðislaust. Viltu
minna okkur á þig í öllum aðstæðum.
Og takk, Jesús, fyrir að taka á þig
vænrækslu okkar og syndir og deyja í
okkar stað og rísa svo upp frá dauðum
og tileinka okkur sigurinn og gefa okk-
ur líf með þér um eilífð. Já, öllum þeim
sem þiggja vilja.
Takk, Guð, fyrir Maríu móður Jesú
og Jósef sem var þinn staðgengill í föð-
urhlutverkinu hér á jörð og ól hann
upp. Blessaðu minningu þeirra og
hjálpaðu okkur að halda henni einnig á
lofti. Og eins minningu allra þinna trúu
vina fyrr og síðar sem jafnvel hafa lát-
ið líf sitt vegna trúar sinnar á þig af því
að heimurinn hefur alltaf hafnað kær-
leika þínum.
Blessaðu einnig minningu Maríu
Magdalenu. Það var jú hún sem kom
að hinni tómu gröf og mætti þér upp-
risnum frá dauðum og flutti síðan læri-
sveinunum tíðindin góðu svo heims-
byggðin hefur aldrei orðið söm.
Blessaðu einnig öll þau sem líða og
þjást, eru sjúk eða syrgja og sakna. Öll
þau sem hallað er á með einhverjum
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson »Hjálpaðu okkur að sjá
okkur og náttúruna
alla með þínum augum.
Takk fyrir að elska okkur
alltaf skilyrðislaust.
Sigurbjörn Þorkelsson
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og aðdáandi lífsins.
Takk, Guð, fyrir Jesú
hætti og fá ekki að lifa í friði eða við
sem eðlilegastar aðstæður.
Blessuðu einnig okkar viðkvæmustu
hópa. Þau sem eru langveik eða með
undirliggjandi sjúkdóma sem hamla
daglegri getu og eiga því jafnvel oft
erfitt með að framfleyta sér og sínum
og verða því að treysta á aðstoð ríkis
eða sveitarfélaga eða vina og vanda-
manna.
Já, takk Jesús, þú sem ert ljós
heimsins og ert vegurinn, sannleikur-
inn og lífið sjálft, fyrir lífið og vonina,
friðinn og frelsið sem felst í og fylgir
þér.
Við felum okkur þér á vald og biðj-
um um þinn vilja, eilífi Guð. Miskunna
þú okkur börnum þínum sem þú elsk-
ar út af lífinu. Lífinu sem er svo fallegt
og dýrmætt, gott og blessað og vara
mun um eilífð. Takk fyrir að gleyma
okkur ekki og yfirgefa okkur ekki.
Aldrei. Gefstu ekki upp á okkur.
Góður Guð gefi okkur öllum góðan
dag, alla daga og sinn frið í hjarta.
Í Jesú nafni.
Með kærleiks-, samstöðu- og friðar-
kveðju.
– Lifi lífið!