Morgunblaðið - 22.09.2020, Page 17

Morgunblaðið - 22.09.2020, Page 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 2020 Vinnur gegn Laktósaóþoli Fæst í næsta apóteki Allvíða á Vestur- löndum hefur lögum verið breytt í þá veru, að engin eiginleg sönn- unarfærsla sé í raun nauðsynleg fyrir rétti, þegar konur ásaka karla um kynferðislegan dónaskap eða afbrot. Kvenfrelsunarforsæt- isráðherra vor, Katrín Jakobsdóttir, og aðrir ís- lenskir kvenfrelsarar, berjast hat- rammlega fyrir innleiðingu slíkrar „réttarbótar“ á Íslandi. Víða í Banda- ríkjum Norður-Ameríku (BNA) hefur aukinheldur verið á komið á fót sýnd- ardómstólum (svonefndum „keng- úrudómstólum“) í skólum, fyr- irtækjum og stofnunum. Þeir „dæma“ einnig í nefndum málum. Slíkir dóm- stólar eru ekki óalgengir á Íslandi og flokkast jafnvel undir vinnuvernd. Réttarfar á Vesturlöndum, hvað samskipti kynjanna varðar, einkennist sem sé af misrétti gegn körlum. Það er jafnvel svo, að konum sé gert kleift að sölsa undir sig sameiginlegar eignir hjóna með ásökun um ofbeldi einni saman – án eiginlegra réttarhalda. Nú er meira að segja verið að leggja drög að því í Bretlandi, að eiginkona, sem myrðir karl sinn, erfi eigur hans. Það hefur löngum viðgengist, að mæðrum sé miklu oftar dæmd eða úr- skurðuð forsjá sameiginlegra barna og óhæfilega há fjárframlög, eftir skilnað. Feður, sem ekki ráða við greiðslur til framfærslu fyrrum eiginkvenna og barna, eru unnvörpum úrskurðaðir í fangelsi í BNA. Það er miklu líklegra, að karlar séu ákærðir fyrir glæpi, heldur en konur. Þar að auki eru dómar þeirra miklu þyngri. Karlar drepa yfirleitt karla, konur jafnan líka. Á seinni helmingi síðustu aldar frömdu í BNA um nítján hundruð konur morð. Níutíu af hundr- aði drápu karla. Samtals drápu þær um sextíu þúsund karla. Engin kona var tekin af lífi fyrir morð á einum karlmanni. Við réttarhöld er venjulegt, að kon- ur beiti eftirtöldum varnartilbrigðum; 1) konur eru í eðli sínu saklausar; 2) dómgreind kvenna brenglast sökum kynvakatruflana í tíðahringnum; 3) konur þjást af fæðingarþunglyndi eða öðru þunglyndi; 4) konur þjást af ást- arsýki; 5) karlinn heldur fram hjá þeim; 6) karlinn misnotar þær og ber; 7) móðureðlið aftrar því, að mæður drepi afkvæmi sín; 8) börnin þarfnast móður sinnar; 9) eiginlega er föður um að kenna, þegar konur myrða börn; 10) það er réttur móður að misnota eigið barn, eigin framlengingu. Einnig er oft og tíðum samið við ákæruvaldið, þegar ódæði konu er framið ásamt karli, þannig að hann taki á sig sak- argiftir að mestu. Útvegi konan sér leigumorðingja, er hann sekur fund- inn. Konan sleppur. Þegar karlmaður er sakaður um nauðgun, beita konur oft og tíðum því varnartilbrigði, sem kennt er við skjöld. Nauðgunarskjöldurinn verndar sakarábera fyr- ir óþægilegum spurn- ingum verjanda hins ákærða um kynlíf henn- ar. Í raun er gengið út frá því sem vísu, að um réttmæta ákæru sé að ræða, enda þótt rann- sóknir, sem mark er á takandi, segi aðra sögu. Hæstiréttur BNA telur, að slík yfirheyrsla valdi fórnarlambinu tvöföldu áfalli. Fyrst sé konunni nauðgað í eiginlegum skiln- ingi og svo í óeiginlegum skilningi við yfirheyrslu. Norðurameríski fræði- maðurinn Warren Farrell segir um þetta: „Lögin um nauðgunarskjöldinn eru talin standast stjórnarskrá sökum þess, að þegar skoðað er inn að hjarta- rótum, vill enginn gruna um græsku konu, sem fullyrðir, að henni hafi verið nauðgað.“ Algengt er, að kvenmorðingjar séu sýknaðir. T.d. er það talin sjálfsvörn bæði í Kaliforníu og Ohio, þegar konur myrða karla sína í svefni, segi þær sig hafa verið beittar heimilisofbeldi. Al- kunn staðhæfing er sú, að konur drepi einungis karla sína, hafi þær orðið fyr- ir barsmíðum af þeirra hálfu. Rann- sóknir styðja ekki slíka fullyrðingu. Í rannsókn norðurameríska afbrota- fræðingsins, Coramae Richey Mann (1931-2004), sem rannsakaði fjölda slíkra morðingja, hafði engin þeirra barsmíðar af hálfu hins myrta í and- legu farteski sínu. Á hálfum áratugi eða svo fæddist ein milljón eiturlyfjabarna (krakk) í BNA. Einungis sextíu mæður voru ákærðar. Ein þeirra hlaut dóm. Um ellefu af hundraði barna í BNA eru fædd fíkniefnamæðrum. Oftast er um einstæðar mæður að ræða. Meðal eit- urlyfjasala er mæðradagurinn sá dag- ur, sem einhleypar eiturlyfjamæður fá tryggingapeningana sína. í Wash- ington-ríki deyja þrír af hundraði hvít- voðunga af eiturefnaneyslu í gegnum móður sína. „Algengasta réttlæting þess að sýkna mæður, sem drepa börn sín, er sú, að börnin þarfnist þeirra.“ (Warren Farrell) Þeirri réttlætingu er víðar beitt. Þýðingar eru höfundar. Réttarfar og réttlæti Eftir Arnar Sverrisson » Á Vesturlöndum má víða sjá breytingar á réttarkerfinu, sem end- urspegla löggjöf og samninga þess efnis, að konur séu fórnarlömb. Er það réttlætanlegt? Arnar Sverrisson Höfundur er ellilífeyrisþegi. arnarsverrisson@gmail.com Hinn 14. september 2020 skilaði starfs- hópur á vegum at- vinnuvega- og nýsköp- unarráðuneytisins tillögum um hvernig tryggja megi framboð á raforku. Tillögurnar eru birt- ar í skýrslunni „Skýrsla starfshóps um orkuöryggi á heild- sölumarkaði fyrir raforku“. Starfshópurinn var skipaður 31. ágúst 2017 og hefur því starfað í lið- lega þrjú ár. Í hópnum voru tíu manneskjur: Tvær frá Háskólanum í Reykjavík, orkumálastjóri, tvær frá ráðuneyt- unum og fimm frá orkufyr- irtækjum. Koma mætti fram hverjir í starfshópnum skrifuðu skýrsluna. Virkjanir á Íslandi Íslenska raforkukerfið er keyrt með virkjunum sem nota sjálfbæra náttúruorku. Annars vegar stöðu- orku vatnsfalla og hins vegar jarð- varmaorku. Víxláhrif þessara orku- linda eru þannig að ef önnur bregst þá er hin reiðubúin; veðurfar á yf- irborði jarðar hefur ekki áhrif á framboð á jarðvarmaorku sem er tekin á yfir tveggja kílómetra dýpi í jörðu. Í þessu samspili felst ákveðið orkuöryggi sem á sínum tíma lagði grunn af því að leggja niður olíu- virkjanir til orkuframleiðslu. Vatnsmiðlanir safna sumarvatni til að koma í veg fyrir orkuskort að vetri til. Íslenska raforkukerfið hef- ur frá upphafi verið hannað út frá orkuöryggi með tilliti til árs- tíðabundins framboðs á rennsli við vatnsaflsvirkjanir og tilheyrandi virkni vatnsmiðlana. Ekki er minnst á það í skýrslunni. Í dag eru olíustöðvar í raf- orkukerfinu eingöngu til aflfram- leiðslu í stuttan tíma, eða til aflö- ryggis. Orkuöryggi á heildsölumark- aði og hönnun raforkumark- aðar Landsneti er ætlað hlutverk með raforkulögum 2003 og var stofnað í ársbyrjun 2005. Fyrirtækið fékk heimild til að stofnsetja raf- orkumarkað. Landsnet hefur því unnið að hönnun á nýjum raf- orkumarkaði í hartnær 16 ár. Nokkrum sinn- um hefur verið til- kynnt að verkinu væri lokið, en ekki hefur ennþá tekist að koma markaðnum á fót. Sem dæmi var tilkynnt að markaðurinn væri tilbúinn til starfrækslu haustið 2008 en þá var gangsetningu frestað vegna hrunsins, að sögn. Um þessar mundir er enn ein at- lagan í gangi og nýtur Landsnet að- stoðar erlendra sérfræðinga frá fyrirtækinu Market Reform við það verk. Furðu sætir að í skýrslu starfs- hópsins er hvergi getið um að haft hafi verið samráð við Landsnet/ Market Reform, sem verður að telja ámælisvert ef satt reynist. Ég tel að það sé verið að fara í öfugt málið með því að vinna að tillögum um öryggi raforkuafhendingar án þess að taka tillit til hvernig vænt- anlegur raforkumarkaður muni starfa. Ég er í sjálfu sér ekkert á móti því að öryggi í afhendingu raf- orku sé kannað og rætt, en hvort kemur á undan hænan eða eggið? Eitthvað hefur þetta staðið í starfshópnum, sem virðist ekki hafa áttað sig á að honum var gert að koma með tillögur í málinu. Í skýrslunni eru nánast eingöngu til- lögur að greiningum og könnunum, sbr. „ábendingar og tillögur“ á bls. 25 þar sem fjallað er um hvernig fjölga megi aðilum á söluhlið heild- sölumarkaðar. Skýrslan fjallar í takmörkuðum mæli um innihald, þ.e. hvað eigi að gera, en mest er fjallað um formið með upptalningu á lagagreinum, aðdraganda og hlut- verkaskipan. Starfshópnum er þó vorkunn því að hönnun raforkumarkaðar þyrfti að koma á undan fínstillingu á ör- yggismálum. Svo dæmi sé tekið þá tók það Norðmenn tíu ár að slípa til hina ýmsu þætti í sínum raforkumarkaði. Það tókst á endanum og starfar markaðurinn í dag hnökra- og ágreiningslaust og hefur reynst vel. Raforkufyrirtækin Raforkufyrirtækin og Samorka hafa lýst yfir stuðningi við gang- setningu raforkumarkaðar hér á landi í samræmi við þriðja orku- pakkann eins og hann var sam- þykktur með þingsályktun á Alþingi haustið 2019. Kveðið verður nánar á um virkni raforkumarkaðarins í fjórða orkupakkanum, en almennt má segja að nauðsynlegt sé fyrir ís- lenska raforkukerfið að hafa til við- miðunar vel skilgreinda og reynslu- mótaða raforkumarkaði erlendis. Þrátt fyrir einhug raforkufyr- irtækjanna vekur það áhyggjur að fyrirtækin taka lítinn þátt í umræðu um málið á almennum vettvangi. Þau hafa haldið formlega kynning- arfundi, en þegja þess í milli. Heyrst hafa efasemdir starfsmanna fyrirtækjanna um getu markaðarins til að leysa þarfir framleiðenda og notenda raforku, en það endur- speglar vafalaust umræður innan- dyra hjá þeim. Óupplýst og ofsafengin umræða með pólitískum upphlaupum og hót- unum í takt við umræðuna um þriðja orkupakkann gæti sett strik í reikninginn. Um skýrsluna Mér þykir furðu sæta að starfs- hópurinn skuli í mynd 4 taka gagn- rýnislaust upp niðurstöður úr skýrslu Landsnets/Eflu 2019 „Afl og orkujöfnuður fyrir árin 2019- 2023“. Byggðist sú skýrsla á óljós- um forsendum um ástand raf- orkukerfisins 2018. Afljöfnuður var látinn ráða þar við mat á nauðsyn viðbótarafls í virkjunum, sem er röng aðferð, en nota á orkujöfnuð. Þetta er herfileg villa en varla hægt að fara nánar út í það á þessum vettvangi. Ég vísa í athugasemdir mínar í Morgunblaðsgrein 27.7. 2019. Starfshópurinn hefur heldur ekki gert athugasemdir við það að staðan í raforkukerfinu er töluvert önnur í dag en hún var árið 2018. Mætti minnast á það í skýrslu um raforkuöryggi. Skýrsla starfshóps um raforkuöryggi Eftir Skúla Jóhannsson »Miðlanir safna sum- arvatni til að koma í veg fyrir orkuskort að vetri til og kerfið hefur frá upphafi verið hannað út frá orkuöryggi m.t.t. rennslis. Skúli Jóhannsson Höfundur er verkfræðingur. skuli@veldi.is Í tilefni alþjóðlega friðardagsins í dag velti ég því fyrir mér hvort minni umræða um ör- yggismál þýði að heim- urinn sé friðsamari en áður. Eftir kalda stríðið hefur almenn umræða um afvopnunarmál og kjarnorkuvopn minnk- að og næstum horfið hér á landi. Kannanir sýna að almenningur í Evrópu hefur helst áhyggjur af ör- yggi tengdu farsímanum sínum en langtum aftar á listanum eru áhyggj- ur af kjarnorkuvopnum og öðrum gereyðingarvopnum. Ef til vill mætti halda að minni um- ræða og minni hræðsla við slík vopn þýddi að heimurinn væri nú orðinn öruggari staður en áður. Helstu sér- fræðingar í afvopnunarmálum halda því hins vegar fram að stríð milli ríkja með kjarnorkuvopnum hafi aldrei verið líklegra. Ástæður fyrir því eru nokkrar. Þar má nefna auknar líkur á átökum milli kjarn- orkuríkja, fyrir mistök eða ekki, í öðrum ríkj- um eins og t.d. Sýr- landi. Einnig má nefna óskýrar línur stríðs og friðar með tilkomu nýrra vopna eins og netárása, falsfrétta og íhlutana í kosningum annarra ríkja. Þá hefur skapast mikil óvissa um framtíð vopnatakmark- ana með endalokum samningsins um takmörkun með- aldrægra kjarnaflauga (INF- samningurinn), úrsögn Bandaríkj- anna úr samningnum um opna loft- helgi (Open Skies-samningurinn) og óvissa um framtíð nýja START- samningsins. Við stöndum því frammi fyrir þeim veruleika að ef ekki verður gripið til aðgerða gætu fljótlega engir afvopnunarsamningar verið í gildi í heiminum í fyrsta skipti síðan á sjöunda áratug síðustu aldar. Að lokum má nefna að aðrar áhyggjur öryggissérfræðinga eru að almenningur sé orðinn ómeðvitaðri um öryggismál en áður. Það mætti því segja að aukin umræða hér á landi sem og annars staðar um af- vopnunar- og öryggismál sé grund- völlur fyrir því að skapa friðsamari heim. Allir geta því lagt sitt af mörk- um með því að taka þátt í umræðunni og veita stjórnvöldum aðhald og eft- irlit. Kominn tími til að ræða gereyðingarvopn? Eftir Álfrúnu Perlu Baldursdóttur Álfrún Perla Baldursdóttir Höfundur er þátttakandi í ACONA- fræðasamfélaginu (The Arms Control Negotiation Academy) sem er sam- starfsverkefni á milli samninga- tæknideildar Harvard-háskóla, Höfða friðarseturs og fleiri alþjóðlegra rannsóknastofnanna um afvopn- unarmál og alþjóðlega samn- ingatækni. »Allir geta því lagt sitt af mörkum með því að taka þátt í umræðunni og veita stjórnvöldum aðhald og eftirlit.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.