Morgunblaðið - 22.09.2020, Síða 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 2020
✝ Guðný Sigurð-ardóttir fædd-
ist 7. júlí 1927 í
Kálfshamarsvík á
Skaga. Hún lést á
Dvalarheimilinu
Höfða á Akranesi 8.
september 2020.
Foreldrar henn-
ar voru Guðbjörg
Guðjónsdóttir,
f.7.10. 1892, d. 5.12.
1965, og Sigurður
Finnbogason Júlíusson, f. 6.10.
1888, d. 23.1. 1980. Systkini
hennar: Sigurbjörg, f. 16.2. 1925,
d. 27.2. 1925. Fjóla, f. 8.8. 1926, d.
15.5. 2012. Sólveig, f. 18.5. 1928,
d. 10.6. 1928. Hallgrímur, f. 14.7.
1931, d. 18.5. 2006. Birna, f. 20.8.
1932, d. 5.12. 2011, og Páll Gunn-
ar, f. 30.6. 1936, er búsettur í
Perth í Ástralíu.
Guðný giftist Hallgrími Ólaf-
syni málara og vélstjóra þann
31.12. 1955, f. 21.10. 1924, d. 26.9.
2009. Foreldrar Hallgríms voru
Guðmundína Einarsdóttir, f.
15.12. 1901, d. 4.9. 1987, og Ólaf-
ur Matthías Samúelsson, f. 21.5.
1890, d. 17.9. 1960.
Börn Guðnýjar og Hallgríms
eru 1) Guðmundína. Maki Matt-
hías Pálsson. Börn: a) Páll Þor-
geir, maki Gunnvör Braga Jóns-
1959, en þau létust samdægurs.
Fyrstu fimm árin bjó Guðný í
Kálfshamarsvík en þá fluttist
fjölskyldan til Skagastrandar.
Guðný flutti til Akraness 15 ára
til að vinna fyrir sér, en foreldrar
hennar fluttu þangað stuttu síð-
ar. Þar kynnist hún manni sínum
en hann og bróðir hans Samúel
höfðu fengið leigt herbergi hjá
föður hennar og fengu hvor sína
dótturina í kaupbæti, en Samúel
varð eiginmaður Fjólu. Guðný og
Hallgrímur bjuggu fyrst í
Reykjavík meðan hann var í mál-
aranámi en fluttust síðan á Akra-
nes.
Fyrstu starfsárin vann hún á
hótelum og veitingastöðum. Auk
heimilisstarfa á Akranesi sá hún
um kostgangara, vann við fisk-
vinnslu, veitingarekstur og í eld-
húsi sjúkrahússins. Guðný og
Hallgrímur tóku föður Guðnýjar
til sín þegar kona hans lést og
dvaldi hann hjá þeim til æviloka..
Guðný hélt alla tíð mikilli tryggð
við systkini sín og bar mikla um-
hyggju fyrir þeim. Guðný söng í
fjölda ára með kór eldri borgara
á Akranesi auk þess að taka virk-
an þátt í félagsstarfi og stjórn
kórsins.
Útför Guðnýjar fer fram í dag,
22. september 2020, frá Akra-
neskirkju kl. 13. Streymt verður
frá útförinni á vef Akra-
neskirkju: www.akra-
neskirkja.is/.
Virkan hlekk á útför má nálg-
ast á https://www.mbl.is/
andlat/.
dóttir. Þau eiga
fjóra syni og eitt
barnabarn. b) Kári
Þór, maki Maibritt
Hansen. Þau eiga
fjórar dætur. c)
Matthías Freyr,
maki Sigríður
Didda Aradóttir.
Matthías á eina
dóttur og Sigríður
Didda á tvö börn.
2) Ólafur
Hallgrímsson. Maki Bryndís
Bragadóttir. Börn Ólafs og Sig-
þóru Gunnarsdóttur: a) Hall-
grímur; maki Matthildur Magn-
úsdóttir. Þau eiga tvo syni en
fyrir átti Hallgrímur eina dótt-
ur. b) Gunnar Hafsteinn, maki
Kristín Björg Jónsdóttir. Þau
eiga þrjú börn. c) Jón Valur,
maki Helene Tyvold. Þau eiga
tvö börn. d) Guðný Birna, sam-
býlismaður Elías Viktor Lár-
usson. Þau eiga eina dóttur en
fyrir á Elías tvö börn. Bryndís á
tvö börn, Hannes, og Halldóru,
sem á tvö börn. 3) Hörður, maki
Geirlaug Jóna Rafnsdóttir.
Börn: a) Klara Árný, sambýlis-
maður Roger Sjöström. b)
Guðni Rafn. c) Davíð Örn. Einn-
ig eignuðust Guðný og Hall-
grímur tvíbura, dreng og stúlku
Móðir mín, mildin þín studdi
mig fyrsta fetið.
Mamma er konan sem heldur
í höndina á manni fyrstu árin en
hjartað alla ævi. Þetta eru orð
að sönnu og koma upp í hugann
núna þegar móðir mín blessunin
hefur yfirgefið sviðið og haldið
til Sumarlandsins að vitja geng-
inna ástvina. Þó að árin séu orð-
in mörg og vitað er að endalok-
in nálgast þá er alltaf erfitt að
kveðja móður sína. Eins og
kemur fram í ágripinu efst var
mamma fædd 7.7. 1927 og því
orðin 93 ára síðan í júlí síðast-
liðnum. Daginn eftir 90 ára af-
mælið sitt fluttist hún á Dval-
arheimilið Höfða á Akranesi en
fram að því bjó hún í sínu eigin
húsi og sá um sig sjálf.
Mamma hugsaði vel um
drenginn sinn og okkur krakk-
ana. Ein saga er til af því þegar
pabbi var í landi og hafði farið
með mig í barnavagni upp í
mjólkurbúð. Síðan kemur hann
til baka og fer inn í stofu að lesa
blaðið. Mamma hefur eflaust
haldið að ég væri í vagninum
fyrir utan en svo seinna upp-
götvar hún að þar er enginn
vagn. Hún kallar á Halla og
beinlínis öskrar: „Hvar er
strákurinn?“ „Ha, strákurinn,
nú kom ég ekki með hann?
Hann hlýtur þá að vera uppi í
mjólkurbúð.“ Það hefur verið
strangt augnaráð sem fylgdi
skömmustulegum föður arka í
skyndi upp í mjólkurbúð að at-
huga með drenginn. Það skal
tekið fram að ekkert amaði að
drengnum, hann hafði eignast
aðdáendur því konurnar í hverf-
inu höfðu raðað sér í kringum
vagninn og voru að dást að
þessum væra og fallega dreng.
Einn veturinn tók mamma
kostgangara í fæði til þess að
drýgja tekjurnar og fékk mikið
hrós fyrir ljúffengan mat og
þetta varð hennar ævistarf, að
stússa í matargerð, fyrir utan
nokkur ár sem hún vann í
frystihúsi. Hún rak sjoppu með
systurdóttur sinni og einnig rak
hún matsölu um tíma áður en
hún hóf að vinna við eldhúsið á
sjúkrahúsinu þar sem hún vann
óslitið þar til hún fór á eft-
irlaun.
Fyrstu búskaparárin mín bjó
ég í nágrenni við mömmu og
eldri strákarnir okkar urðu þar
heimagangar enda alltaf vel-
komnir til afa og ömmu. Nú að
leiðarlokum hugsa ég með hlýju
og virðingu til móður minnar.
Eftir að ég og fyrri konan mín
skildum hélt ég heimili með
mömmu um árabil en á þeim ár-
um vann ég á sjó erlendis og
var ekki mikið heima. Við áttum
skap saman og oft var glatt á
hjalla hjá okkur, einnig var gott
að geta rétt henni hjálparhönd
með ýmislegt og sérstaklega all-
ar suðurferðirnar þegar hún
þurfti til lækninga. Ég vil þakka
Mundu systur og Gillu Jónu
tengdadóttur mömmu fyrir ein-
staka umhyggju í hennar garð
síðustu árin og einnig Dagnýju
Fjólu fyrir þeirra fallegu vin-
áttu og sömuleiðis Guðna vini
mínum Þórðarsyni og hans
börnum tryggð þeirra við hana.
Farðu í friði mamma mín og
takk fyrir allt.
Þinn sonur,
Ólafur Hallgrímsson.
Heyr mína bæn, mildasti blær,
berðu kveðju mína’ yfir höf.
Syngdu honum saknaðarljóð.
Vanga hans blítt vermir þú sól.
Vörum mjúkum kysstu hans brá,
ástarorð hvísla mér frá.
(Ólafur Gaukur)
Elsku amma Gauja kvaddi
södd lífdaga 8. september síð-
astliðinn. Ég er þér svo afskap-
lega þakklátur fyrir ótal margt
en vináttu þína allra helst. Það
voru ófáar stundirnar sem við
sátum saman í eldhúsinu á Dal-
brautinni eða inni í stofu og
ræddum saman um lífið, til-
veruna, pólitík og allt sem lífið
hefur upp á að bjóða. Þegar ég
var hvað týndastur í mínum
hugrenningum var ætíð gott að
tala við þig, því aldrei voru þær
hugrenningar dæmdar eða
teknar niður. Ekki varstu þó
skoðanalaus, sem betur fer en
þér tókst ætíð að ræða við mig
af virðingu. Við gátum hlegið
saman og afskaplega var nú
gaman að hlæja með þér. Að
horfa á spennuþætti í sjónvarp-
inu var líka skemmtun út af fyr-
ir sig því þú áttir það til að
segja persónum í sjónvarps-
þættinum frá því hvað væri að
gerast í kringum þær og vara
þær við.
Þér þótti ofurvænt um fólkið
þitt og alltaf spurðir þú frétta af
börnum mínum ef þau voru ekki
með í för. Elsku amma og
langamma og stjúplangamma,
takk fyrir vináttuna, takk fyrir
kærleikann og takk fyrir hlát-
urinn og takk fyrir væntum-
þykjuna. Góða ferð, góða ferð.
Matthías Freyr, Sigríð-
ur Didda, Gúa Dögg,
Hulda og Ari.
Fyrir sex árum síðan varð ég
þeirrar gæfu aðnjótandi að
kynnast Guðnýju Sigurðardótt-
ur, síðar tengdamóður minni.
Það var á þriðja stefnumóti
okkar Óla sonar hennar að hann
vildi að ég hitti móður sína. Ég
varð hálfskelkuð að hitta
ókunnuga konu en það reyndist
ástæðulaust. Frá fyrsta degi tók
hún mér opnum örmum og upp-
komnum börnum mínum eins og
hennar eigin barnabörn væru.
Guðný var mikill gestgjafi og
naut þess mjög að hafa fólk í
kringum sig. Á heimili hennar
var mikill gestagangur ættingja
og vina og lagði hún sig mjög
fram um að taka vel á móti fólki
þótt aldurinn færðist yfir og
heilsunni hrakaði. Fram undir
það síðasta fylgdist Guðný vel
með allri þjóðfélagsumræðu og
hafði áhuga og skoðanir á því
sem bar á góma. Hún fylgdist
einnig af kappi með íþróttum og
sérstaklega landsleikjum, hvort
sem um knattspyrnu eða hand-
knattleik var að ræða. Gylfi
Sig., Óli Stef. og Guðjón Valur
voru hennar menn. Mér fannst
það sérstakt þegar ég heyrði að
hún, af þessari kynslóð sem alla
tíð lét aðra ganga fyrir, hefði
tekið sig til og lagt í langferðir
bæði til Ameríku og Ástralíu að
heimsækja systkini sín. Þetta
fór hún ásamt systur sinni og
mági og lét það ekki stoppa sig
þótt að eiginmaðurinn sýndi því
ekki áhuga að ferðast yfir hálf-
an hnöttinn til þess eins að
heimsækja fólk. Guðný hugsaði
samt vel um sinn mann og útbjó
mánaðarskammt af allskyns
réttum í frystikistuna. Ég vil að
leiðarlokum þakka fyrir hlýju
og vináttu góðrar konu.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem)
Bryndís Bragadóttir.
Guðný
Sigurðardóttir
Elsku frændi okkar og mágur,
HERMANN SIGURJÓNSSON
bóndi,
Raftholti,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Kirkjuhvoli fimmtudaginn 17. september.
Útförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jóna Heiðbjört Valdimarsd.
Ágústa Kristín Hjaltadóttir
Sigurjón Hjaltason Guðríður Júlíusdóttir
Guðrún Margrét Hjaltadóttir Oddur Hlynur Kristjánsson
Valdimar Hjaltason Hrefna María Hagbarðsdóttir
og fjölskyldur
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
SIGURVEIG ÓLAFSDÓTTIR
frá Syðstu-Mörk undir Eyjafjöllum,
Skeiðarvogi 133, Reykjavík,
lést 13. september.
Útför hennar fer fram frá Langholtskirkju
föstudaginn 25. september klukkan 15.
Pálmi Guðjónsson
Haukur Hjaltason Þóra Steingrímsdóttir
Ómar Hjaltason Hjördís Kjartansdóttir
sonadætur og makar
Ástkær faðir, afi, tengdafaðir og bróðir,
GUÐMUNDUR THEÓDÓRSSON,
lést 3. september.
Útförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju
24. september klukkan 13.
Eiríkur Örn Guðmundsson Þorbjörg Ósk Úlfarsdóttir
Guðlaugur Theódórsson
Guðbjörg Jónsdóttir Guðbjartur Sigurðsson
Guðný Jónsdóttir
og fjölskyldur
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
BJÖRN HAFLIÐI EINARSSON,
Lyngholti, Hofsósi,
lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands,
Sauðárkróki, 19. september.
Elsa Hlíðar Jónsdóttir
Guðbjörg Særún Björnsd. Jón Gísli Jóhannesson
Bára Björnsdóttir Hendrik Berndsen
Einar Guðmundur Björnsson
Sævar Björnsson
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæra móðir, systir,
tengdamamma, mágkona og amma,
MARGRÉT ANN RADER
launafulltrúi,
Ránargötu 44,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
15. september.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn
25. september klukkan 13. Streymt verður frá útförinni á vefsíðu
Fríkirkjunnar (www.frikirkjan.is).
Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á að styrkja starf Rauða krossins á Íslandi.
Kristinn Máni Þorfinnsson Adda Bjarnadóttir
Þorkell Máni Kristinsson Benedikt Bjarni Kristinsson
Erla Margrét Kristinsdóttir
Róbert E. Rader Priss E. Rader
Dónald Jóhannesson Helga Mattína Björnsdóttir
Samkomubann og óvenjulegar aðstæður í þjóðfélaginu
hafa leitt til þess að útfarir eru nú með breyttu sniði.
Morgunblaðið hefur brugðist við með því að rýmka reglur
um birtingu á minningargreinum.
Minningargreinasíður blaðsins standa opnar öllum þeim
sem vilja minnast ástvina eða sýna aðstandendum samúð
og samhug.
Í ljósi aðstæðna hefur verið slakað á fyrri verklagsreglum
hvað varðar útfarir í kyrrþey. Ekkert er því til fyrirstöðu að
birta minningargreinar sama dag og útför einstaklings er
gerð hvort sem hún er háð fjöldatakmörkunum eða gerð í
kyrrþey.
Starfsfólk greinadeildar Morgunblaðsins er boðið og búið
að aðstoða þá sem hafa spurningar um ritun minningar-
greina eða hvernig skuli senda þær til blaðsins.
Ekkert gjald er tekið fyrir birtingu minningagreina.
Þær eru einnig birtar á www.mbl.is/minningar.
Birting minningargreina
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Minningargreinar