Morgunblaðið - 22.09.2020, Síða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 2020
Góð þjónusta í tæpa öld
10%afslátturfyrir 67 ára
og eldri
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ert að öllu jöfnu varkár í pen-
ingamálunum en í dag er hætt við að þú
fallir í einhvers konar freistni. Þú leitar
allra leiða til að ná sáttum við nágranna
þína.
20. apríl - 20. maí
Naut Reyndu að standast freistinguna að
prédika yfir öðrum. Nú er mikilvægt að þú
endurskoðir gildsmat þitt þannig að þú vit-
ir á hvaða grunni þú byggir ákvarðanir þín-
ar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Vertu opin/n gagnvart tillögum
samstarfsmanna þinna og leyfðu þeim að
velta upp sem flestum flötum. Draumar
geta orðið að veruleika.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þið þurfið að koma lagi á fjármálin
og þurfið því að beita ykkur aga og sleppa
öllu sem kallar á óþarfa eyðslu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Hugsaðu vandlega um þær skuld-
bindingar sem þú tekur þér á hendur. Ekki
óttast breytingar, þær eru oft til góðs.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þér verða fengin ný verkefni og þótt
þér lítist hreint ekki á þau við fyrstu sýn,
skaltu hefjast handa ótrauð/ur.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er hollt að staldra við og gera sér
grein fyrir því af hverju maður gerir þenn-
an hlutinn eða hinn og af hverju endilega
svona. Hristu af þér slenið.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú nærð frábærum árangri í
vinnunni. Vertu uppörvandi þegar þú talar
við óörugga manneskju.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú mátt ekki leggja svo hart að
þér við vinnu að þú finnir þér aldrei stund
eða stað til þess að sinna eigin hugðar-
efnum. Njóttu kraftsins sem þú finnur fyrir
og leyfðu hugmyndunum að flæða.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þig langar til að brjótast út úr
viðjum vanans. Gerðu ráðstafanir til þess
að fækka streituvöldum í kringum þig.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Taktu það ekki nærri þér, þótt
einhverjir tali um þig. Þú ert með hreina
samvisku. Hvernig væri að blanda meira
geði viðaðra, fara í gönguhóp eða mála
listaverk?
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er ekki hægt að þjóna tveimur
herrum. Það verður mikið annríki hjá þér á
komandi vikum.
mjög langan tíma. „En við mamma
vorum að fara til þess að forframa
okkur í borginni og heilsa upp á föð-
urfólkið mitt, þá helst föðursystur
mína Guðríði, sem var mér kær og
ég er skírð í höfuðið á,“ segir hún.
Guðríður á forláta jólakort sem
hún heldur mikið upp á enda fylgir
því saga. „Afi Þórður var með skrif-
stofu verkalýðsfélagsins á jarðhæð
Einnig starfaði Guðríður lengi í
þágu Sjálfstæðisflokksins á Fá-
skrúðsfirði.
Guðríður man vel eftir því þegar
hún fór fyrst til Reykjavíkur, enda
var það heilmikið ferðalag og ólíkt
því sem fólk á að venjast í dag. Hún
sigldi með móður sinni með Esjunni
sem var þá strandferðaskip og þær
fóru frá Fáskrúðsfirði og ferðin tók
G
uðríður Karen Berg-
kvistsdóttir fæddist 22.
september 1940 í
Baldurshaga á Fá-
skrúðsfirði. Þegar Guð-
ríður rifjar upp æskuminningar sín-
ar er greinilegt að hún hefur verið
glatt og uppátækjasamt barn. „Mér
fannst gaman að vera á bryggjunni
og í sjóhúsinu hans pabba. Ég var
ekki gömul þegar ég ásamt bróður
mínum og vini hans fór með pabba á
sjóinn. Það var ekki vanalegt í þá
daga að stelpur færu til sjós. Við fór-
um á bátnum hans pabba til Djúpa-
vogs og sváfum þar tvær nætur á
milli róðra á miðin. Við vorum líka í
Papey en þar var frændfólk okkar.
Ég man að vinur bróður míns var
mjög sjóveikur og ældi mestallan
tímann. Þess á milli sagði hann með
smá svekkelsi í röddinni: „Og hún
ælir ekki enn.““
Guðríður fékk líka að fara með á
bátnum til þess að sækja hey í Pap-
ey, en flestir voru með kindur, kýr
og hænur og sumir með hesta. „Ég
fór líka með pabba á bátnum til
Stöðvarfjarðar til þess að kaupa
mjólkurkú. Það var svo maður sem
tók að sér að teyma hana eftir stíg
yfir til Fáskrúðsfjarðar, en þá voru
engir vegir á milli fjarðanna.“
Guðríður Karen gekk í grunnskól-
ann á Fáskrúðsfirði og fór 18 ára í
Húsmæðraskólann á Laugalandi í
Eyjafirði. Vefnaðurinn var það sem
heillaði mest og fór hún einnig á
heimilisiðnaðarnámskeið til Akur-
eyrar. Hún vann um tíma í Amaró,
sem þótti á þeim tíma ein flottasta
verslun landsins. Seinna, þegar
börnin voru orðin sex, kom það sér
vel að kunna hannyrðir. Jólafötin á
allan hópinn voru sniðin og saumuð
rétt fyrir jól og oft var stuðst við nýj-
ustu tískuna í auglýsingum dagblað-
anna.
Guðríður gekk í kvenfélagið 15
ára og varð síðar formaður félagsins.
Hún tók þátt í stofnun félagsheim-
ilisins Skrúðs, en félagasamtök á
staðnum áttu fulltrúa í nefndinni og
var Guðríður fulltrúi kvenfélagsins.
Hún var einnig í leikfélaginu og átti
meðal annars stórt hlutverki í gam-
anleikritinu Saklausa svallaranum.
Baldurshaga og hann átti margar
bækur og las fyrir okkur krakkana.
Um haustið 1952 var hann í Reykja-
vík vegna veikinda. Hann vildi
greinilega vera tímanlega með jóla-
kortin því ég fékk kort frá honum í
pósti í byrjun desember, en afi Þórð-
ur kvaddi þennan heim rétt fyrir jól
og var jarðsunginn á milli jóla og ný-
árs. Jólakortið sem hann sendi mér
Guðríður Karen Bergkvistsdóttir húsfrú – 80 ára
Hjónin Guðríður Karen Bergkvistsdóttir og Jón B. Guðmundsson eiginmaður hennar.
Fór í sjóferð sjö ára gömul
Jólakortið Guðríður hefur geymt
síðasta kortið frá afa sínum alla tíð. Sjóferð Hér sést Guðríður eldhress með Madda Steinþórs á sjónum.
Til hamingju með daginn
Neskaupstaður
Andrea Björt fæddist 8. október 2019
á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaup-
stað kl. 17.53. Hún vó 3.814 g og var
50,5 cm löng. Foreldrar hennar eru
Ágúst Bjarni og Anna Birna. Systkini
hennar eru Hlynur Freyr, Tómas Ingi og
Karitas Líf.
Nýr borgari
30 ára Helga fæddist í
Reykjavík og býr núna
á Seltjarnarnesinu.
Helga er enskukennari
í Verslunarskóla Ís-
lands, þar sem hún
byrjaði fyrir fjórum ár-
um. Hennar helstu
áhugamál eru skíði og ferðalög, fjall-
göngur og samvera með fjölskyldu og
vinum.
Maki: Þorsteinn Rafn Halldórsson Snæ-
land, f. 1985, sérfræðingur í áhættustýr-
ingu hjá Kviku.
Foreldrar: Ása Helga Ólafsdóttir, f. 1953,
lífeindafræðingur og rak einnig versl-
unina Polarn O. Pyret í Kringlunni í mörg
ár, og Benedikt Sigurðsson, f. 1952, lög-
fræðingur. Þau búa á Seltjarnarnesi.
Helga
Benediktsdóttir
30 ára Eyrún ólst upp
á bænum Hamri í
Skagafirði en býr núna
á Sauðárkróki. Hún er
í fæðingarorlofi eins
og er, en vinnur á Hér-
aðsskjalasafni Skag-
firðinga. Hún hefur
mikinn áhuga á ferðalögum og samveru
með fjölskyldu og vinum.
Maki: Jón Dagur Gunnlaugsson, f. 1994,
húsasmiður.
Börn: María Sjöfn, f. 2015, og Hólmar
Daði, f. 2020.
Foreldrar: Hjónin Unnur Sævarsdóttir, f.
1960, starfar hjá Húsnæðis- og mann-
virkjastofnun á Sauðárkróki og Sævar
Einarsson, f. 1962, bóndi á Hamri í
Skagafirði, þar sem þau búa.
Eyrún
Sævarsdóttir