Morgunblaðið - 22.09.2020, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 2020
Pepsi Max-deild karla
ÍA – Grótta ................................................ 3:0
Fylkir – FH............................................... 1:4
Stjarnan – Valur ....................................... 1:5
Breiðablik – KR........................................ 0:2
Víkingur R. – HK ..................................... 1:1
Staðan:
Valur 15 12 1 2 39:15 37
FH 14 9 2 3 30:18 29
Stjarnan 13 6 6 1 21:15 24
KR 13 7 2 4 25:17 23
Breiðablik 14 7 2 5 29:23 23
Fylkir 15 7 1 7 22:24 22
HK 15 5 3 7 25:31 18
ÍA 15 5 2 8 34:36 17
Víkingur R. 14 3 6 5 20:22 15
KA 14 2 9 3 12:15 15
Grótta 15 1 4 10 12:32 7
Fjölnir 15 0 6 9 14:35 6
Lengjudeild karla
ÍBV – Þór .................................................. 2:2
Keflavík – Þróttur R ................................ 4:2
Afturelding – Víkingur Ó......................... 1:0
Fram – Grindavík..................................... 1:2
Staðan:
Keflavík 16 10 4 2 49:24 34
Leiknir R. 17 10 3 4 37:21 33
Fram 17 9 6 2 36:23 33
ÍBV 17 6 9 2 28:21 27
Þór 17 8 3 6 32:29 27
Grindavík 16 6 8 2 32:27 26
Vestri 17 7 5 5 24:22 26
Afturelding 17 6 3 8 33:27 21
Víkingur Ó. 17 4 4 9 21:36 16
Þróttur R. 17 3 3 11 15:34 12
Leiknir F. 17 3 3 11 16:36 12
Magni 17 2 3 12 17:40 9
England
Aston Villa – Sheffield United ................ 1:0
Wolves – Manchester City ...................... 1:3
Staðan:
Leicester 2 2 0 0 7:2 6
Everton 2 2 0 0 6:2 6
Arsenal 2 2 0 0 5:1 6
Liverpool 2 2 0 0 6:3 6
Crystal Palace 2 2 0 0 4:1 6
Tottenham 2 1 0 1 5:3 3
Manch.City 1 1 0 0 3:1 3
Brighton 2 1 0 1 4:3 3
Aston Villa 1 1 0 0 1:0 3
Leeds 2 1 0 1 7:7 3
Chelsea 2 1 0 1 3:3 3
Wolves 2 1 0 1 3:3 3
Newcastle 2 1 0 1 2:3 3
Burnley 1 0 0 1 2:4 0
Manch.Utd 1 0 0 1 1:3 0
West Ham 2 0 0 2 1:4 0
Sheffield Utd 2 0 0 2 0:3 0
Fulham 2 0 0 2 3:7 0
Southampton 2 0 0 2 2:6 0
WBA 2 0 0 2 2:8 0
Ítalía
AC Milan – Bologna................................. 2:0
Andri Fannar Baldursson var varamað-
ur hjá Bologna og kom ekki við sögu.
Noregur
B-deild:
Lilleström – Kongsvinger ...................... 2:0
Björn Bergmann Sigurðarson kom inn á
hjá Lilleström á 62. mínútu og skoraði á 89.
mínútu. Arnór Smárason var ekki með.
Sandnes Ulf – Tromsö............................. 0:3
Adam Örn Arnarson var ekki í hópnum
hjá Tromsö.
Svíþjóð
Elfsborg – Häcken................................... 1:1
Oskar Tor Sverrisson var varamaður hjá
Häcken og kom ekki við sögu.
Pólland
Piast Gliwice – Jagiellonia ..................... 0:1
Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn með
Jagiellonia.
Danmörk
Kolding – SönderjyskE....................... 31:29
Ágúst Elí Björgvinsson varði 13 skot í
marki Kolding, þar af 2 vítaköst.
Sveinn Jóhannsson skoraði ekki fyrir
SönderjyskE.
Spánn
Tenerife – Zaragoza .................. (frl.) 91:86
Tryggvi Snær Hlinason var stigahæstur
hjá Zaragoza með 16 stig, tók 7 fráköst og
átti 2 stoðsendingar. Hann lék í 23 mínútur.
Úrslitakeppni NBA
Vesturdeild, úrslit:
LA Lakers – Denver ........................ 105:103
Staðan er 2:0 fyrir Lakers og þriðji leik-
urinn fer fram í nótt.
KNATTSPYRNA
Undankeppni EM kvenna:
Laugardalsvöllur: Ísland – Svíþjóð ......... 18
2. deild karla:
Hertz-völlur: ÍR – Haukar .................. 16.15
Í KVÖLD!
STJARNAN – VALUR 1:5
0:1 Patrick Pedersen 4.
0:2 Patrick Pedersen 18.(v)
0:3 Aron Bjarnason 21.
0:4 Aron Bjarnason 31.
0:5 Birkir Már Sævarsson 34.
1:5 Sölvi Snær Guðbjargarson 63.
MM
Aron Bjarnason (Val)
Patrick Pedersen (Val)
M
Birkir Már Sævarsson (Val)
Sigurður Egill Lárusson (Val)
Lasse Petry (Val)
Einar Karl Ingvarsson (Val)
Valgeir Lunddal Friðriksson (Val)
Sölvi Snær Guðbjargarson (Stjörn.)
Alex Þór Hauksson (Stjörnunni)
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson – 7.
Áhorfendur: Um 400.
BREIÐABLIK – KR 0:2
0:1 Ægir Jarl Jónasson 10.
0:2 Sjálfsmark 83.
M
Beitir Ólafsson (KR)
Arnór Sveinn Aðalsteinsson (KR)
Kennie Chopart (KR)
Ægir Jarl Jónasson (KR)
Kristinn Jónsson (KR)
Atli Sigurjónsson (KR)
Stefán Árni Geirsson (KR)
Viktor Karl Einarsson (Breiðabliki)
Brynjólfur Willumsson (Breiðabliki)
Davíð Ingvarsson (Breiðabliki)
Andri Rafn Yeoman (Breiðabliki)
Dómari: Erlendur Eiríksson – 8.
Áhorfendur: 252.
VÍKINGUR R. – HK 1:1
0:1 Bjarni Gunnarsson 75.
1:1 Ágúst Eðvald Hlynsson 79.
M
Davíð Örn Atlason (Víkingi)
Kári Árnason (Víkingi)
Júlíus Magnússon (Víkingi)
Atli Barkarson (Víkingi)
Erlingur Agnarsson (Víkingi)
Ágúst Eðvald Hlynsson (Víkingi)
Bjarni Gunnarsson (HK)
Jón Arnar Barðdal (HK)
Atli Arnarson (HK)
Ívar Örn Jónsson (HK)
Þórður Þorsteinn Þórðarson (HK)
Martin Rauschenberg (HK)
Rautt spjald: Ívar Örn Jónsson (HK) 83.
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson – 8.
Áhorfendur: 270.
FYLKIR – FH 1:4
0:1 Björn Daníel Sverrisson 48.
0:2 Björn Daníel Sverrisson 59.
0:3 Ólafur Karl Finsen 61.
1:3 Arnór Gauti Ragnarsson 64.
1:4 Sjálfsmark 69.
MM
Björn Daníel Sverrisson (FH)
M
Sam Hewson (Fylki)
Þórður Gunnar Hafþórsson (Fylki)
Gunnar Nielsen (FH)
Þórir Jóhann Helgason (FH)
Jónatan Ingi Jónsson (FH)
Ólafur Karl Finsen (FH)
Dómari: Sigurður H. Þrastarson – 6.
Áhorfendur: Ekki gefið upp.
ÍA – GRÓTTA 3:0
1:0 Tryggvi Hrafn Haraldsson 26.
2:0 Sigurður Hrannar Þorsteinsson 82.
3:0 Tryggvi Hrafn Haraldsson 87. (v).
M
Árni Snær Ólafsson (ÍA)
Ísak Snær Þorvaldsson (ÍA)
Sindri Snær Magnússon (ÍA)
Gísli Laxdal Unnarsson (ÍA)
Tryggvi Hrafn Haraldsson (ÍA)
Ólafur Karel Eiríksson (Gróttu)
Bjarki Leósson (Gróttu)
Axel Freyr Harðarson (Gróttu)
Dómari: Vilhjálmur A. Þórarinsson – 8.
Áhorfendur: Um 100.
Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og
greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot-
bolti.
FÓTBOLTINN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
FH virðist vera eina liðið sem getur
elt Valsmenn í baráttunni um Íslands-
meistaratitil karla 2020. Átta stig
skilja liðin reyndar að en það merki-
lega er að þau eiga eftir báða sína
leiki á tímabilinu og sá fyrri er einmitt
á dagskránni á fimmtudaginn kemur,
eftir aðeins tvo daga, í Kaplakrika.
Valsmenn fór á kostum gegn
Stjörnunni í Garðabæ þar sem þeir
skoruðu fimm mörk á fyrsta hálftím-
anum og unnu að lokum 5:1. Patrick
Pedersen og Aron Bjarnason
splundruðu Stjörnuvörninni hvað eft-
ir annað, skoruðu tvö mörk hvor, Ped-
ersen lagði upp bæði mörk Arons,
sem á móti krækti í vítaspyrnu handa
Dananum og lagði upp fimmta mark-
ið fyrir Birki Má Sævarsson. Hrein
sýning og það sem eftir var af leikn-
um var formsatriði. Fyrsta tap
Stjörnumanna kom í þeirra þrettánda
leik og þá var hreinlega um hrun að
ræða.
„Yfirburðir Valsmanna voru fá-
heyrðir, og sérstaklega þá í fyrri hálf-
leik. Þá skal þess getið að Valsmenn
skoruðu þrjú mörk til viðbótar þess-
um fimm, sem dæmd voru af vegna
rangstöðu,“ skrifaði Stefán Gunnar
Sveinsson m.a. um leikinn á mbl.is.
Patrick Pedersen jafnaði Atla
Guðnason í 21.-22. sæti yfir marka-
hæstu menn deildarinnar frá upp-
hafi en þeir hafa gert 68 mörk hvor.
Pedersen er kominn með 13 mörk og
er jafn Steven Lennon í slagnum um
markakóngstitilinn.
Haukur Páll Sigurðsson og
Kristinn Freyr Sigurðsson voru
báðir í leikbanni en fjarvera þeirra
virtist ekki hafa mjög slæm áhrif á
Valsliðið.
Björn kominn í gang?
Björn Daníel Sverrisson, fyrirliði
FH, fór fyrir sínum mönnum og
skoraði tvö fyrstu mörkin í góðum
útisigri Hafnfirðinganna á Fylki í
Árbænum, 4:1.
Þetta eru fyrstu mörk Björns í
deildinni á tímabilinu og góðs viti
fyrir FH-inga ef hann er að ná sér á
strik.
FH-ingar hafa nú unnið fjóra leiki
í röð og sex leiki af sjö og halda sínu
striki undir stjórn Eiðs Smára Guð-
johnsens og Loga Ólafssonar sem
hafa rifið liðið upp úr meðalmennsku
og komið því á beina braut á undan-
förnum vikum.
„Úrslit leiksins eru kannski svolít-
ið undarleg ef menn skoða tölurnar
yfir skottilraunir. Fylkismenn áttu
sautján tilraunir og bæði lið gátu því
skorað mörg mörk. Gunnar Nielsen
lék mjög vel í marki FH og það getur
virkað sérstakt að nefna það sér-
staklega þegar lið vinnur 4:1. En það
á alveg við í þessu tilfelli,“ skrifaði
Kristján Jónsson m.a. um leikinn á
mbl.is.
Ólafur Karl Finsen skoraði sitt
fyrsta mark í deildinni fyrir FH en
hann hafði áður skorað í bikarnum.
Hann hefur þá gert mörk fyrir fjög-
ur félög í deildinni en áður voru það
Selfoss, Stjarnan og Valur.
KR með Blikana í vasanum
KR-ingar unnu Breiðablik í
þriðja sinn á tímabilinu og sigur
meistaranna í Kópavogi, 2:0, var
verðskuldaður. Þeir fóru þar með
uppfyrir Blikana á markatölu og
eiga líka leik til góða. Eins og deild-
in er að þróast stefnir í jafna bar-
áttu KR, Stjörnunnar og Breiða-
bliks um þriðja sætið og eitt öruggt
Evrópusæti.
„KR-ingar unnu nokkra 1:0-sigra
á síðustu leiktíð þegar þeir urðu Ís-
landsmeistarar og sigurinn í kvöld
minnti svo sannarlega á marga leiki
liðsins frá því á síðustu leiktíð,“
skrifaði Bjarni Helgason m.a. um
leikinn á mbl.is.
Ægir Jarl Jónasson skoraði
sitt fyrsta mark í deildinni í ár fyrir
KR þegar hann kom liðinu yfir.
Hann hefur hinsvegar skorað fimm
mörk fyrir Vesturbæinga í bikar-
keppninni.
Nýtt leikjamet hjá Óskari
Óskar Örn Hauksson, fyrirliði
KR, er orðinn leikjahæsti leikmaður
úrvalsdeildarinnar frá upphafi.
Hann lék sinn 322. leik í gærkvöld og
fór með því fram úr Birki Krist-
inssyni sem lék 321 leik á sínum
tíma. Nánar er fjallað um metið á
mbl.is/sport.
Kristinn Jónsson, félagi Óskars
á vinstri vængnum hjá KR, náði líka
áfanga því hann lék sinn 200. leik í
efstu deild, á sínum gamla heimavelli
í Kópavogi.
Fjörugt jafntefli í Fossvogi
Víkingur og HK skildu jöfn, 1:1, í
nokkuð fjörugum leik í Fossvogi
þar sem mörkin tvö létu þó bíða eft-
ir sér.
Þá skoruðu HK-ingurinn Bjarni
Gunnarsson og Víkingurinn Ágúst
Eðvald Hlynsson með fjögurra
mínútna millibili.
HK er þar með í sjöunda sætinu
og „á toppnum“ í neðri hluta deild-
arinnar en Víkingarnir sitja áfram
uppi með aðeins þrjá sigra í fjórtán
leikjum á tímabilinu.
Ívar Örn Jónsson, vinstri bak-
vörður HK, fékk rauða spjaldið á
sínum gamla heimavelli seint í
leiknum og verður því í banni þegar
HK sækir KA heim á fimmtudag-
inn.
„Liðin geta svo sem vel við unað
að fá sitt hvort stigið en miðað við
hraðan leik og ágætis færi er það
ekki mikið,“ skrifaði Stefán Stef-
ánsson m.a. um leikinn á mbl.is.
Lauk fallslagnum á Akranesi?
Skagamenn unnu langþráðan sig-
ur, 3:0, gegn Gróttu, og héldu hreinu
í fyrsta sinn síðan þeir unnu Seltirn-
ingana 4:0 í fyrri umferðinni. Þar
með má segja að dagskránni sé end-
anlega lokið í fallbaráttunni. Grótta
varð að sækja eitthvað á Akranes til
að vera enn með í baráttunni.
Vissulega eiga Ágúst Þór Gylfa-
son og hans menn enn möguleika á
28 stigum en þeir þurfa heldur betur
að snúa blaðinu við.
„Það var jákvætt fyrir ÍA að
Tryggvi Hrafn Haraldsson spilaði
vel og þá eru ungir Skagamenn á
borð við Gísla Laxdal Unnarsson að
nýta tækifærið vel sömuleiðis. Það
vantar ekki efniviðinn á Skaganum,“
skrifaði Jóhann Ingi Hafþórsson
m.a. um leikinn á mbl.is.
Tryggvi Hrafn Haraldsson
skoraði úr hornspyrnu og vítaspyrnu
og er markahæstur Skagamanna í
deildinni í ár með 8 mörk.
Sigurður Hrannar Þor-
steinsson skoraði sitt fyrsta mark í
efstu deild þegar hann kom ÍA í 2:0.
FH eina liðið
sem getur
stöðvað Val?
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Garðabær Valsmaðurinn Lasse Petry og Stjörnumaðurinn Brynjar Gauti
Guðjónsson í baráttunni á Samsung-vellinum í gærkvöld.
Valsmenn fór á kostum gegn Stjörn-
unni í Garðabæ FH áfram á sigur-
braut Stórleikur á fimmtudaginn
Kópavogur Atli Sigurjónsson, kantmaður KR-inga, reynir að komast fram
hjá tveimur Blikum í sigurleik Vesturbæinga á Kópavogsvelli.