Morgunblaðið - 22.09.2020, Qupperneq 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 2020
Liðið mitt í ensku knatt-
spyrnunni vann sinn fyrsta leik í
efstu deild í sextán ár á laug-
ardag. Vann liðið þá nýliðaslag
við Fulham, 4:3. Var síðasti sig-
urleikur Leeds í deild þeirra
bestu fyrir laugardaginn hinn 10.
apríl 2004. Þá var ég tólf ára. Nú
er ég 28 ára. Kærkomið!
Komst Leeds í 4:1 snemma í
seinni hálfleik á móti Fulham og
lék á als oddi. „Mikið er þessi úr-
valsdeild létt,“ hugsaði ég með
mér og hló. Ég sendi vinum mín-
um, sem eru löngu orðnir þreytt-
ir á Leeds-blaðrinu í mér í gegn-
um árin, skilaboð þess efnis.
Mikið er þessi úrvalsdeild létt.
Þarna gerði ég mistök því
ég lagði að sjálfsögðu álög á
mína menn. Áður en ég vissi var
staðan orðin 4:3 og Fulham hárs-
breidd frá því að jafna í 4:4 þeg-
ar enn voru 25 mínútur eftir. Síð-
ustu 25 mínúturnar liðu eins og
125 mínútur, en liðið hélt út. Þrjú
sæt stig.
Eftir sextán erfið ár átti ég
auðvitað að vita betur en að fara
að monta mig þegar staðan var
góð. Næst bíð ég þangað til eftir
lokaflautið. Félagarnir eru ekki
lausir við Leeds-blaðrið í mér
þrátt fyrir þessi mistök.
Annars má gera ráð fyrir
fjöri í leikjum Leeds á tímabilinu.
Hinn magnaði Marcelo Bielsa er
á hliðarlínunni og er markatalan
7:7 eftir tvo leiki. Mínir menn
gáfu Englandsmeisturunum
sjálfum alvöruleik í fyrstu um-
ferð á Anfield þar sem lokatöl-
urnar urðu einnig 4:3.
Ég er ekki viss um að hjart-
að í mér ráði við að allir leikir
endi 4:3 þótt skemmtanagildið
sé mikið. Þá vona ég líka innilega
að ég þurfi ekki að bíða sextán ár
í viðbót því mikið rosalega var
þetta gaman!
BAKVÖRÐUR
Jóhann Ingi
Hafþórsson
johanningi@mbl.is
EM KVENNA
Víðir Sigurðsson
Kristján Jónsson
Jóhann Ingi Hafþórsson
Erfiðasta verkefni undankeppni
Evrópumóts kvenna í fótbolta til
þessa bíður íslenska kvennalands-
liðsins í kvöld. Bronsverðlaunaliðið
úr síðustu heimsmeistarakeppni, lið
Svía, mætir þá á áhorfendalausan
Laugardalsvöllinn en þetta er upp-
gjör tveggja efstu liðanna í F-riðli
undankeppninnar og eru bæði með
12 stig af 12 mögulegum eftir fjóra
leiki.
Aðeins eitt lið er öruggt áfram
úr hverjum riðli og því er sérlega
mikið í húfi. Um er að ræða sann-
kallaðan lykilleik riðilsins því nið-
urstaða hans mun ráða gríðarlega
miklu fyrir bæði lið. Þrjú bestu lið-
in í öðru sæti undanriðlanna fara
líka beint á EM á Englandi og til
þess að verða eitt þeirra þarf ís-
lenska liðið líklega að taka stig af
Svíum. Besta leiðin er reyndar ein-
faldlega að sigra þá!
Og það hefur íslenska landsliðinu
tekist tvisvar í fimmtán við-
ureignum þjóðanna. Ísland vann
síðasta leikinn gegn Svíum, lagði
þá óvænt að velli, 2:1, í leik um
bronsverðlaunin í Algarve-
bikarnum í Portúgal árið 2014 þar
sem Sara Björk Gunnarsdóttir og
Harpa Þorsteinsdóttir skoruðu
snemma leiks. Antonia Göransson
kom Svíum á blað í uppbótartíma
leiksins.
Margar með frá árinu 2014
Sjö leikmenn sem nú eru í ís-
lenska landsliðshópnum tóku þátt í
þeim leik en auk Söru voru það
Glódís Perla Viggósdóttir, Hallbera
Guðný Gísladóttir, Dagný Brynj-
arsdóttir, Anna Björk Kristjáns-
dóttir, Elísa Viðarsdóttir og Rakel
Hönnudóttir. Átta af Svíunum sem
mæta Íslandi í kvöld tóku þátt í
þessum tapleik gegn Íslandi árið
2014, þar á meðal fyrirliðinn Car-
oline Seger, varnarjaxlinn Nilla
Fischer og hin snjalla Kosovare
Asllani, núverandi leikmaður Real
Madrid, sem allar hafa verið burð-
arásar í sænska liðinu um árabil.
Svíar nánast með HM-liðið
Nánast engar breytingar hafa
orðið á sænska liðinu frá því á HM
í fyrra þegar það vann England 2:1
í leiknum um bronsið. Hingað til
Íslands eru mættar 20 af þeim 23
konum sem skipuðu HM-hóp Sví-
anna á síðasta ári.
Caroline Seger, samherji Glódís-
ar Perlu hjá Rosengård, er leikja-
hæst Svíanna með 204 landsleiki og
er tíu leikjum frá leikjameti The-
rese Sjögran. Nilla Fischer á 182
landsleiki að baki, markvörðurinn
Hedvig Lindahl, sem nú leikur með
Atlético Madrid, er með 170 lands-
leiki, Asllani hefur spilað 140,
Linda Sembrant frá Juventus er
með 120 leiki og Sofia Jakobsson
frá Real Madrid, sem var valin í 11
manna úrvalslið HM í fyrra, hefur
leikið 113 landsleiki.
Sara jafnar leikjametið
Sara Björk Gunnarsdóttir jafnar
í kvöld landsleikjamet Katrínar
Jónsdóttur en fyrirliðinn leikur
sinn 133. landsleik. Ekki skorti
hrósyrðin í garð hennar og Glódís-
ar Perlu á fréttamannafundi Svía á
Laugardalsvelli í gær. Seger fyr-
irliði og Peter Gerhardsson þjálfari
Svía fóru fögrum orðum um þær.
Gerhardsson sagði að Sara væri
einn af bestu leikmönnum heims í
dag og Glódís væri einn besti leik-
maður sænsku úrvalsdeildarinnar.
Svíar unnu Ungverja 8:0 síðasta
fimmtudag, á sama tíma og Íslend-
ingar unnu Letta 9:0. „Við skor-
uðum átta mörk á móti Ungverjum
en vitum að við þurfum að hafa fyr-
ir hlutunum á móti íslenska liðinu
og vera klár að verjast föstum leik-
atriðum,“ sagði Gerhardsson.
Þær verða meira með boltann
„Ég held að þetta verði hörku-
leikur. Tvö lið sem vilja sigur og
þurfa á sigri að halda til að vinna
riðilinn. Þær sænsku verða senni-
lega meira með boltann. Við mun-
um reyna að verjast en viljum
framkvæma ákveðna hluti þegar
við fáum boltann. Þær eru með
meiri hefð og þeirra lið er mjög vel
skipulagt. En ég á von á skemmti-
legum leik,“ sagði Glódís Perla,
leikmaður sænska meistaraliðsins
Rosengård, á fréttamannafundi ís-
lenska liðsins í gær en sex sam-
herjar hennar hjá Rosengård eru í
sænska hópnum.
Jón Þór Hauksson landsliðsþjálf-
ari gaf ungu leikmönnunum tæki-
færi gegn Lettum. Sveindís Jane
Jónsdóttir skoraði tvö mörk í sín-
um fyrsta landsleik, Barbára Sól
Gísladóttir lék einnig sinn fyrsta
leik, Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
skoraði í sínum öðrum landsleik og
Alexandra Jóhannsdóttir í sínum
sjötta.
Jón sagði að allar væru klárar í
slaginn, nema hvað óvíst væri með
Svövu Rós Guðmundsdóttur sem
hefði meiðst lítillega á æfingu og
væri í kapphlaupi við tímann.
Lykilleikur undankeppninnar
Nær íslenska liðið að endurtaka leik-
inn frá 2014 og sigra sterka Svía?
Morgunblaðið/Eggert
Landsleikurinn Glódís Perla Viggósdóttir mun væntanlega hafa nóg að
gera í vörn íslenska liðsins í kvöld þegar það tekur á móti Svíum.
með 2:2 jafntefli í Eyjum. Eyjamenn
eru án sigurs í sjö leikjum í röð en
þeir þóttu fyrirfram afar sigur-
stranglegir í deildinni. Þórsarar
gerðu sjálfsmark og José Sito skor-
aði seinna mark ÍBV en Fannar
Daði Malmquist Gíslason og Álvaro
Montejo skoruðu fyrir Þór. Halldór
Páll Geirsson, markvörður ÍBV,
fékk rauða spjaldið undir lokin.
Kári Steinn Hlífarsson skoraði
sigurmark Aftureldingar gegn Vík-
ingi frá Ólafsvík, 1:0, og þar með
eru Mosfellingar sloppnir af hættu-
svæði deildarinnar.
Keflvíkingar standa vel að vígi á
toppi 1. deildar karla í fótbolta eftir
að þeir sigruðu Þrótt 4:2 á heima-
velli í gær og Framarar töpuðu fyr-
ir Grindavík á heimavelli, 1:2.
Aðeins eitt stig skilur að Kefla-
vík, Leikni og Fram en Keflvík-
ingar eiga leik til góða á keppinaut-
ana.
Ástralinn Josep Gibbs skoraði
tvö mörk gegn Þrótti og hefur nú
gert 20 mörk fyrir Keflavík í deild-
inni. Adam Árni Róbertsson og
Nacho Heras skoruðu líka og Kefla-
vík komst í 4:0 áður en Sölvi
Björnsson og Esaú Rojo skoruðu
fyrir Þrótt undir lokin.
Sigurður Bjartur Hallsson
skoraði sigurmark Grindvíkinga í
uppbótartíma gegn Fram í Safa-
mýri, 2:1. Aron Jóhannsson hafði
áður komið Grindavík yfir en Aron
Þórður Albertsson jafnað fyrir
Fram sem hefði farið á toppinn á ný
með sigri. Gunnar Þorsteinsson,
fyrirliði Grindavíkur, og Unnar
Steinn Ingvarsson úr Fram fengu
báðir rauða spjaldið seint í leiknum.
ÍBV og Þór fóru langt með að
stimpla sig út úr toppbaráttunni
Keflvíkingar með bestu stöðuna
Ljósmynd/Fram
Fram Fred Saraiva samdi við Fram
til tveggja ára í gær en liðið tapaði.
Manchester City hóf tímabilið í
ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu
með góðum útisigri á Wolves, 3:1,
þar sem Kevin De Bruyne kom mik-
ið við sögu.
Hann skoraði fyrsta markið úr
vítaspyrnu eftir að brotið var á
honum og átti þátt í hinum tveimur
sem Phil Foden og Gabriel Jesus
skoruðu. Raúl Jiménez hleypti
spennu í leikinn þegar hann minnk-
aði muninn í 2:1 þegar stundar-
fjórðungur var eftir af leiknum.
Ezri Konsa tryggði Aston Villa
sigur á Sheffield United, 1:0. Emi-
liano Martínez, sem Villa keypti af
Arsenal á dögunum, varði víta-
spyrnu í fyrri hálfleik frá John
Lundstram.
City byrjaði
á útisigri
Góður Kevin De Bruyne skorar
fyrsta mark City gegn Wolves.
Rúnar Alex Rúnarsson, landsliðs-
markvörður í knattspyrnu, skrifaði í
gær undir fjögurra ára samning við
enska félagið Arsenal sem keypti
hann af Dijon í Frakklandi fyrir
tæplega tvær milljónir punda.
Rúnar Alex verður þar í baráttu
við Bernd Leno, einn af landsliðs-
markvörðum Þýskalands, sem er að-
almarkvörður liðsins, en Arsenal
seldi á dögunum argentínska mark-
vörðinn Emiliano Martínez til Aston
Villa fyrir 17 milljónir punda.
Þriðji markvörður Arsenal er
Matt Macey en reiknað er með að
hann sé á förum og viðbúið að annar
markvörður komi í hans stað til að
veita Leno og Rúnari samkeppni.
Þetta er í annað sinn sem íslensk-
ur markvörður semur við enskt úr-
valsdeildarfélag. Árni Gautur Ara-
son var í röðum Manchester City í
nokkra mánuði árið 2004. Hann spil-
aði ekki í deildinni en lék tvo bikar-
leiki. Reikna má með að það verði
einmitt hlutverk Rúnars að spila
bikarleiki og mögulega Evrópuleiki
með liðinu. Á síðasta tímabili spilaði
Leno 32 leiki og Martínez 22 af 54
mótsleikjum liðsins. vs@mbl.is
Ljósmynd/arsenal.com
London Rúnar Alex Rúnarsson er orðinn markvörður Arsenal.
Samdi við Arsenal
til fjögurra ára
Rúnar Alex kominn til London
AFP