Morgunblaðið - 22.09.2020, Qupperneq 29
AF LISTUM
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Fjöllistahópurinn CGFC reið ávaðið undir merkjum Um-búðalauss, sem Borgar-
leikhúsið hleypti af stokkunum síð-
asta haust með það að markmiði að
efla tengslin við grasrótina og gefa
ungum sviðshöfundum tækifæri til að
stíga sín fyrstu skref. Hópurinn, í
samstarfi við raftónskáldið Halldór
Eldjárn, frumsýndi Kartöflur í októ-
ber í fyrra og uppskar í framhaldinu
tilnefningu til Grímunnar 2020 fyrir
leikrit sitt. Rýnir missti því miður af
sýningunni í fyrra, þar sem hún var
aðeins sýnd þrisvar í litlu rými með
takmörkuðu sætaframboði, og gladd-
ist því þegar tilkynnt var að sýningar
yrðu teknar upp á ný þetta haustið,
að þessu sinni á Litla sviði leikhússins
í stað þriðju hæðar áður.
Líkt og titillinn gefur til kynna er
kartaflan í forgrunni í fjöllistaverki
CGFC. Þau Arnar Geir Gústafsson,
Birnir Jón Sigurðsson, Hallveig
Kristín Eiríksdóttir og Ýr Jóhanns-
dóttir, sem skipa CGFC, leggja upp í
spennandi rannsóknarleiðangur í
anda sviðslistahópa á borð við 16
elskendur, Kriðpleir og Ást og
karókí, sem skömmu fyrir samkomu-
bann í mars síðastliðnum frumsýndi
Skattsvik Development Group, einn-
ig undir merkjum Umbúðalauss.
Eitt helsta einkenni heimildar-
verka í sviðslistum er að fókusinn er
fyrst og fremst á rannsóknina, sem
veitir áhorfendum skemmtilega inn-
sýn í vinnuferlið sjálft. Í Kartöflum
fáum við til dæmis reglulega að heyra
upptökur af símtölum og samtölum
úr vettvangsferðum CGFC-liða í
heimildaöflun þeirra sem gefur sýn-
ingunni aukna vídd. Einnig er lesið
upp úr tölvupóstsamskiptum, meðal
annars við hið opinbera, og færslur af
samfélagsmiðlum nýttar til að skapa
dramatíska spennu á sviðinu.
Tilraun fjöllistahópsins til að leið-
rétta á vef Garðheima föðurnafn
Helgu Gísladóttur kartöflubónda í
Unnarholtskoti, sem náði snemma á
síðustu öld að rækta upp sitt eigið
yrki af kartöflum sem kennt er við
hana, rammar inn sýninguna. Fyrir
vikið hafa vafalítið fleiri áhorfendur
en rýnir látið það verða sitt fyrsta
verk eftir að heim var komið að skoða
vef Garðheima til að athuga hvort
ætlunarverk sýnenda hafi tekist.
Hópurinn gerir sér mikinn mat úr
jarðeplunum sem fylgt hafa mann-
kyninu í nokkur þúsund ár frá því
jurtin var fyrst ræktuð til manneldis í
Suður-Ameríku þaðan sem hún barst
til Evrópu um miðja 16. öld, en ekki
var farið að rækta kartöflur hérlendis
fyrr en upp úr miðri 18. öld.
CGFC-liðar nýta sér sögulegt slúð-
ur með skemmtilegum hætti til að
kynna kartöfluverksmiðju Þykkva-
bæjar til sögunnar og þar fer Arnar
Geir á kostum sem hinn danski Erik
K. Eriksen frá Munkebo sem nýtur
aðstoðar Ýrar til að gera sig skiljan-
legan áhorfendum. Ýr var einnig
dásamlega umkomulaus í hlutverki
kartöflu sem neyðist til að fara í skyn-
mat. Birnir Jón flutti verðlauna-
smásöguna um Kalla kartöflu af góðri
innlifun með hjálp myndvarpa og
Hallveig Kristín var þægilega af-
slöppuð í frásögn sinni af búskap
hjónanna Helgu og Hjörleifs í Unnar-
holtskoti.
Inn í verkið blandast síðan málverk
ætlað atvinnuvega- og nýsköp-
unarráðuneytinu og rannsókn á af-
drifum beikonbugðunnar hérlendis
sem leiðir hópinn í vettvangsferð í
Hafnarfjörðinn og aftur tengir hann
óvænt við snakkunnendur vestan-
hafs. Þannig liggur rótarkerfi verks-
ins víða og skýtur öngum á óvænt-
ustu stöðum, áhorfendum til gleði og
yndisauka.
Samkvæmt leikskrá mun Kart-
öflur vera níunda verk fjöllista-
hópsins CGFC frá því hann tók til
starfa 2015. Jafnframt er um fyrsta
verk hópsins að ræða sem ratar á fjal-
ir atvinnuleikhúss. Borgarleikhúsið á
þakkir skildar fyrir að gefa þessum
hæfileikaríka og skemmtilega hóp
tækifæri til að gleðja leikhúsgesti
með rannsókn sinni. Það verður
spennandi að fylgjast með CGFC í
framhaldinu, því undirrituð er nú svo
sannarlega komin á bragðið.
Gómsætur biti
» CGFC-liðar nýta sérsögulegt slúður með
skemmtilegum hætti til
að kynna kartöfluverk-
smiðju Þykkvabæjar til
sögunnar og þar fer
Arnar Geir á kostum
sem hinn danski Erik K.
Eriksen frá Munkebo.
Ljósmynd/Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir
Bragð „Það verður spennandi að fylgjast með CGFC í framhaldinu, því undirrituð er nú svo sannarlega komin á bragð-
ið,“ segir í rýni um Kartöflur sem fjöllistahópurinn CGFC sýnir undir merkjum Umbúðalauss í Borgarleikhúsinu.
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
AÐRAR MYNDIR Í
SÝNINGU:
* Harry Potter
* Tröll 2 (ísl. tal)
* Hvolpasveitin (ísl. tal)
* The Secret :
Dare to dream
* The New Mutants
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
Frábær ný teiknimynd fyrir
alla fjölskylduna.
FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS
Nýjasta Meistaraverk
Christopher Nolan
★★★★★
★★★★★
★★★★★
The Guardian
The Times
The Telegraph
Emmy-sjónvarpsverðlaunin voru af-
hent í fyrrakvöld og var það fyrsta
slíka verðlaunahátíðin á tímum kór-
ónuveirufaraldursins – sent var út
frá meira en 100 stöðum þar sem
margar stjörnur kvöldsins tóku við
verðlaununum heima hjá sér á zoom
en kynnirinn Jimmy Kimmel talaði
til áhorfenda heima fyrir tómum sal.
Þáttaraðirnar Watchmen, Succes-
sion og Schitt’s Creek voru sigur-
sælastar en verðlaun eru veitt í fjöl-
mörgum flokkum. Schitt’s Creek
hreppti öll helstu verðlaunin fyrir
gamanþáttaröð, Succession að sama
skapi helstu verðlaun fyrir drama-
tíska þáttaröð og Watchmen var val-
in besta stutta þáttaröðin og hreppti
alls 11 verðlaun.
Meðal annarra verðlaunahafa má
nefna Last Week Tonight með John
Oliver, RuPauls Drag Race var valin
besta raunveruleikakeppnin og Billy
Crudup fékk verðlaun fyrir leik í
The Morning Show en það voru einu
verðlaunin sem streymisveitan
Apple TV+ hreppti.
Athygli vakti að efni framleitt af
og dreift á Netflix var tilnefnt til 160
verðlauna, sem er met, en hreppti
aðeins 21 verðlaun. Efni framleitt af
HBO hreppti hins vegar 30 verð-
laun.
AFP
Þakklát Catherine O’Hara þakkar
fyrir verðlaunin sem hún hlaut fyrir
bestan leik í Schitt’s Creek.
Schitt’s
Creek
hirti öll
Emmmy-hátíð í
skugga veirunnar