Morgunblaðið - 22.09.2020, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 22.09.2020, Qupperneq 32
Töfrar eldhússins byrja með Eirvík Eldhúsið er ekki bara herbergi, heldur upplifun Hvort sem þú leitar að innbyggðum heimilistækjum gæddum nýjustu tækni, rómantískri eldavél í sumar- bústaðinn, litríkum matvinnslutækjum í eldhúsið eða nýrri fallegri innréttingu erum við með frábæra valkosti fyrir þig. Vöruúrval Eirvíkur er afar fjölbreytt og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Af hverju að vera eins og allir hinir - þegar maður getur verið einstakur! Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is. Opnunartími mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 11-15 Í dag hefst í kirkjunni San Carlo al Lazza- retto í Mílanó á Ítalíu gjörningur Ragnars Kjartanssonar „Him- inninn í herbergi“. Í rúman mánuð munu söngvarar leika í sex tíma á dag á orgel kirkjunnar og syngja látlaust sömu útsetn- inguna á frægu Lagi Ginos Paolis frá 1960, „Il cielo in una stanza“. Gjörn- ingur Ragnars var upphaflega fluttur í Wales en hug- myndina að flutningnum nú á þessum stað á ítalskur sýningarstjóri við New Museum í New York. Kirkjan í Mílanó hefur áður komið við sögu í alvarlegum farsótt- um en Covid-19 lék íbúana þar í kring illa í vor. Gjörn- ingurinn hefur vakið mikla athygli, meðal annars var ít- arleg umfjöllun um hann, með viðtali við Ragnar, í The New York Times. Mánaðarlangur gjörningur Ragnars Kjartanssonar hefst í Mílanó í dag ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 266. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Valsmenn léku Stjörnuna grátt í Pepsi Max-deild karla í fótbolta í gærkvöld með því að skora fimm mörk á fyrsta hálftímanum. Lokatölur urðu 5:1 og Stjarnan tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu. FH-ingar virðast vera eina liðið sem gæti veitt Val keppni um titilinn. Átta stig skilja liðin að en þau mætast á fimmtudag. FH vann Fylki, KR vann Breiðablik, ÍA vann Gróttu en Vík- ingur og HK skildu jöfn. »26 Valsmenn fóru á kostum í Garðabæ ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Þátturinn Heima með Helga í beinni útsendingu Sjónvarps Símans létti landsmönnum lund í samkomubann- inu vegna kórónuveirufaraldursins og listafólkið hélt uppteknum hætti í þriðju seríu, sem hófst síðastliðið laugardagskvöld. „Það var gaman að koma inn í þetta,“ segir Matthías Stefánsson, fiðlu- og gítarleikari, sem lék í fyrsta sinn með Helga Björns og Reiðmönnum vindanna í þáttunum. Samstarf Matthíasar og Helga Björns er samt ekki nýtt af nálinni. „Ætli fyrsta giggið með Helga hafi ekki verið á 20 ára afmælistón- leikum Sssól í desember 2007,“ segir hann. Bætir við að hann hafi verið í Reiðmönnum vindanna í upphafi og spilað á plötum bandsins. „Ég hef lengi verið á kantinum hjá Helga.“ Kvöldvaka Helga er með öðrum hætti nú en fyrri seríur. Ingólfur Sigurðsson lék til dæmis á venjulegt trommusett á laugardag en ekki á cajun-trommurnar og ný vídd kom með Matthíasi, sem tók í fiðluna og gítarinn jöfnum höndum. „Ég held að strákarnir hafi viljað breyta að- eins hljómnum með því að fara yfir á settið, bæta við rafgítar og fá mig inn,“ segir hann um innkomuna. Bætir við að það sé alltaf sérstakt að vera í beinni útsendingu sjónvarps og það krefjist aukakrafts. „Orkan leynir sér ekki og það er alltaf spennandi þegar græna ljósið kvikn- ar. Eftir það verður ekki aftur snú- ið.“ Nýtt lag á Spotify Matthías er enginn nýgræðingur í tónlistinni. Hann hefur starfað sem tónlistarmaður frá því hann lauk burtfararprófi frá Tónlistarskól- anum í Reykjavík 2002 auk þess sem hann hefur reglulega kennt á fiðlu og gítar. Hann hefur unnið með mörgum af þekktustu tónlistar- mönnum landsins, meðal annars með Björk, SigurRós, Björgvini Halldórssyni og Siggu Beinteins, og spilað á yfir 150 geisladiskum. Enn- fremur hefur hann tekið þátt í fjölda tónlistaruppfærslna hjá Þjóðleik- húsinu, Borgarleikhúsinu, Íslensku óperunni, Íslenska dansflokknum, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Caput og Sinfóníuhljómsveit Ís- lands. Fyrir um áratug gekk Matthías í hljómsveitina Papa frá Vestmanna- eyjum og kemur bandið reglulega fram við ýmis tækifæri. „Svo spila ég líka með Sycamore Tree.“ Við þetta má bæta að Matthías spilar reglulega í jarðarförum, en þær voru ekki á döfinni í fyrstu. „Ég byrjaði fimm ára að læra á þessa spýtu og hef sargað á hana síðan,“ segir hann um fiðluleikinn. „Móð- ursystir mín er fiðluleikari, systir mín spilaði á selló og ég var settur á fiðlu.“ Um fermingaraldurinn hafi gítarinn komið til sögunnar. „Móð- urbróðir minn sagði að ég ætti ekki að vera að glamra á fiðlu, gítarinn væru miklu flottari. Hann kenndi mér fyrstu gripin og við tókum „House of the rising Sun“ í ferming- arveislunni.“ Matthías hefur lengst af spilað meira fyrir aðra en sjálfan sig. „Fyr- ir bragðið á ég mörg lög sem hafa orðið út undan, en vegna kórónu- veirufaraldursins hef ég gefið mér tíma til að skoða í kistuna og á dög- unum setti ég lagið „Beginning of the End“ inn á Spotify.“ Hann út- skýrir að lagið hafi verið hugsað sem forleikur að stærra verkefni, sem hann hafi hugsað sér að gera en ekk- ert orðið enn úr. „Veiran hefur gert það að verkum að ég hef haft tíma til þess að dusta rykið af hinu og þessu og fleiri lög eru væntanleg inn á Spotify á næst- unni.“ Áfram á grænu ljósi Ljósmyndir/Mummi Lú Heima með Helga Björns Matthías Stefánsson fór á kostum á fiðlunni.  Matthías aftur með Helga Björns og Reiðmönnum vindanna Fjölhæfur Matthías byrjaði að spila á gítar í fermingarveislunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.