Morgunblaðið - 19.10.2020, Page 16

Morgunblaðið - 19.10.2020, Page 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. OKTÓBER 2020 Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is Við erum sérhæfð í gluggatjöldum alnabaer.is PLÍ-SÓL GARDÍNUR Hr. Jón Steinar Gunnlaugsson ritar grein í Mbl. þann 21. ágúst 2020. Í niðurlagi greinarinnar býður Jón upp á rökræður um mannréttindi. Hann kemur inn á þrískipt- ingu valds sem flestir þekkja en það eru færri sem sjá samsetningu valdsins, hvernig ein starfsstétt/menntastétt á Íslandi hef- ur lagt undir sig allt dómsvaldið 100%, um 80% af öllu framkvæmdarvaldi (stjórar) og er ráðandi afl löggjaf- arvalds (80%), við samningu laga fyrir Alþingi. Með allt þetta vald fer starfs- heitið lögfræðingur og er Jón Steinar fulltrúi fyrir allt valdið sem félagi í Dómarafélagi Íslands og Lögmanna- félagi Íslands. Þann 1. janúar 2019 vísaði Hæsti- réttur Íslands frá réttinum umsókn dansks ríkisborgara, sem fæddur er Inúíti í Grænlandi, um áfrýjun máls síns eftir dóm Landsréttar um 19 ára fangelsi. Nú spyr ég Jón Steinar sem fulltrúa réttarríkisins. Er þetta í samræmi við 70. gr. stjórnarskrárinnar, lög nr. 33/ 1944, en þar segir að allir eigi rétt á að fá úrlausn um réttindi sín og skyldur eða um ákæru á hendur sér um refsi- verða háttsemi með réttlátri máls- meðferð innan hæfilegs tíma fyrir óháðum óhlutdrægum dómstól. Þessi frávísun Hæstaréttar Íslands hafði mjög alvarlegar afleiðingar fyrir mannréttindi danska ríkisborgarans því þannig kom Hæstiréttur í veg fyr- ir möguleika danska ríkisborgarans á að kæra mál sitt og málsmeðferð til Mannréttindadómstóls Evrópu með heimild í 6. gr sáttmálans, samanber lög nr. 62/1944 frá Alþingi Íslendinga. Jón Steinar, er þetta eðlileg máls- meðferð mannréttinda í réttarríkinu þínu? Í grein sinni heldur Jón Steinar áfram og beinir spjótum sínum að frétta- og rannsóknarblaðamönnum og skammar fyrir afskipti af málum sem framkvæmdar- og dómsvaldið eitt á að drottna yfir. Í greininni kallar Jón Steinar ákæruvaldið/ framkvæmdarvaldið „að undangenginni lög- fullri málsmeðferð“, en það er rannsókn rík- issaksóknara og lög- reglu. Ég er ósammála Jóni Steinari um þátt og að- komu frétta- og rann- sóknarblaðamanna að opinberum málum en sammála honum um að- komu óvita úr hópi frétta- og blaða- manna, sem aðeins eru að leita að frægð og frama í starfi, í umfjöllun sinni um mál. Aðkoma fjölmiðla að rannsókn þessa máls sem Hæstirétt- ur vísar frá dómi er mjög stórt fjöl- miðlaslys sem ekki má endurtaka sig. Ég tel að Hæstiréttur Íslands hafi ekki verið að hugsa um rétt ein- staklingsins í þessu máli (dæmda) heldur frekar mistök dómara í héraði og fyrir Landsrétti. Dæmi 1. Dómstjóri Héraðsdóms Reykjaness velur einkahlutafélag til að annast vörn danska ríkisborg- arans. Þetta sama einkahlutafélag með takmarkaða ábyrgð fær sér dæmdan málskostnað frá dómþola en það er brot á 6. gr mannréttinda- sáttmálans. Dæmi 2. Einkahlutafélagið sem átti að verja ákærða sveik hann í hendur ríkissaksóknara, það er brot á 6 gr. mannréttindasáttmálans. Dæmi 3. Dómarar málsins heimila rekstur einkamáls með opinberri ákæru sem rekin er í einu og sama máli. Þar er dómþoli dæmdur til að greiða tengdum aðilum miskabætur. Það er brot á 6. gr. mannréttinda- sáttmálans. Dómaramistökin halda áfram í rekstri málsins fyrir Landsrétti en einkahlutafélagið sem dómstjóri hér- aðsdóms valdi sagði sig frá málinu og dómstjóri Landsréttar velur nýtt einkahlutafélag til að verja dómþola. Það einkahlutafélag gekk öllu lengra í svikseminni gagnvart umbjóðanda sínum, dómþola. Dómþoli fékk ekki þá málsvörn sem lög gera ráð fyrir að formi og efni til og er það brot á 6 gr. mannréttindasáttmálans og er brot á lögum nr. 62/1994. Ákæra ríkissaksóknara er gagn- rýni verð. Ríkissaksóknari er fulltrúi okkar, fólksins í landinu, og um leið ríkisstjórnar Íslands. Sönnunarbyrði ákæruvaldsins er 100%. Það er hlut- verk verjanda að gagnrýna alla þætti í ákæru eins og hún er lögð fram til dómsvalds. Dæmi: Að sjá það í ákæru að allir lækir, ár og vötn og haf séu líklegir þættir í andláti brotaþola frá Hafn- arfjarðarhöfn að Ölfusá fær ekki staðist í 100% sönnun. Hér átti verj- andi að krefjast þess að eitthvað eitt í upptalningu ríkissaksóknara ætti við, ekki allt. Það var ekki gert. Að dóm- arar í héraði og Landsrétti skuli ekki afmarka val ríkissaksóknara er óskiljanlegt. Annað dæmi. Lögregluskýrsla sem ríkissaksóknari leggur fram tiil sönn- unar ákæru og fjallar um ferðir bíls sem dæmdi á að hafa notað við verkið er þannig úr garði gerð að lögregla notar 100 km á klukkustund til að bíllinn komist að Ölfusá. Samkvæmt því er bílnum ekið á 100 km hraða um Reykjavík, Kópavog og Hafnarfjörð og þannig nær bíllinn að Ölfusá. Lög- reglan þegir þunnu hljóði um þá stað- reynd að þá verður bíllinn bensínlaus. Staðreynd málsins er sú að bíllinn hafði um 45 mínútur til aksturs út frá Hafnarfirði. Þetta hefðu dómarar málsins átt að sjá og leggja fram at- hugasemdir við málflutning ríkis- saksóknara en það var ekki gert. Grein Jóns Steinars sýnir fram á þörfina fyrir borgarann í að skoða og yfirfara öll verk dómsvaldsins. Ég vil hvetja fjölmiðla til að skoða efni þess- arar greinar og allt dómsmálið og gögn þess, alla umfjöllun í 13 mánuði. Hvað um þig: Mannréttindi á Íslandi Eftir Guðbrand Jónsson » Þessi frávísun Hæstaréttar hafði mjög alvarlegar afleið- ingar fyrir mannréttindi danska ríkisborgarans. Guðbrandur Jónsson Höfundur er flugmaður. Um þessar mundir er töluvert fjallað um nauðsyn þess að Akureyri breytist úr bæ í borg enda fátt snautlegra en að vera bara bæjarbúi þegar færi gefst á að kenna sig við borg. Nú hefur ráðherra skipað starfshóp sem falið hefur verið að skil- greina svæðisbundið hlutverk Akur- eyrar. Fulltrúi bæjarins í hópnum hefur upplýst að tækifærið verði nýtt til að koma að því nauðsynja- máli að Akureyri verði breytt í borg – gott ef ekki stórborg! Þá muni margt breytast til batnaðar og gleði ríkja í bænum – afsakið: í borginni. Auðvitað þarf ekki að efast um að starfshópurinn komi fram með margar góðar ábendingar um verk- efni sem nauðsynlegt er að vinna að til að ná því markmiði að treysta hlutverk Akureyrar sem höfuð- staðar Norðurlands. Þegar það ligg- ur allt fyrir um mitt næsta ár sýnir reynslan að eitt er að gera fínar áætlanir en allt annar handleggur að koma þeim í framkvæmd. Skoð- um nokkur dæmi um það hér á Akureyri. Atvinnustefna 2000-2005 Árið 1999 var birt vönduð skýrsla starfshóps þar sem leitað var leiða til að styrkja atvinnulífið á Akureyri næstu fimm árin. Þar var tilgreind framtíðarsýn í þessum málaflokki svo og verkefni sem unnið skyldi að á hverju sviði á tímabilinu; allt mjög vandað og vel upp sett. Ennfremur var áréttað að í upphafi hvers árs færi fram endurskoðun stefnumót- unarinnar með tilliti til breytts um- hverfis og þess árangurs sem náðst hefði árið áður. En svo gerðist ekki neitt. Ekki í eitt einasta skipti var skoðað hvernig verkinu miðaði enda sannleikurinn sá að sáralítið ef nokkuð var unnið í því sem gera átti. Margir kenndu því um að eng- um aðila í bæjarkerfinu hefði verið falið að sjá um framkvæmd ein- stakra liða áætlunarinnar. Þess vegna endaði þessi mikla vinna sem hillufóður, gleymd og grafin. Atvinnustefna 2014-2021 Svo leið tíminn og árið 2013 var gerð önnur atlaga að mótun at- vinnustefnu og nú fyrir árabilið 2014 til 21. Fjölmargir úr atvinnulífi bæjarins komu að þeirri vinnu og sérfræðingar við hvert fótmál. Fólkið var reynslunni ríkara frá fyrra starfi og því var hverju verk- efni, sem lagt var til að ráðist yrði í, tilnefndur ákveðinn umsjónaraðili sem átti að bera ábyrgð á því að unnið væri samkvæmt áætluninni. En þrátt fyrir það hafa flest ef ekki öll verkefnin gufað upp og aldrei orðið að veruleika. Dæmi um það er að stofna átti Samráðsvettvang at- vinnulífs og stjórnkerfis þar sem fram færi regluleg greining á stöðu og þróun einstakra atvinnugreina til að auka gegnsæi og stuðla að bættri ákvarðanatöku í stjórnkerfinu og/ eða hjá fyrirtækjunum. Hingað til hefur bæjarstjórnin ekki haft þrek til að skipa þennan vettvang sem svo mikil áhersla var lögð á að stofna. Eins fór með skilgreindar hugmyndir um klasa- myndanir einstakra at- vinnugreina – ekkert aðhafst og málið koðn- aði niður. Nú er eitt ár eftir af þeim tíma sem áætlunin góða tekur til og bendir allt til að hún hljóti sömu örlög og sú fyrri – að vera góð og vönduð skýrsla sem endar uppi í hillu enda alkunna að fjarska langt er á milli orða og at- hafna í þessari verðandi borg. Miðbæjarskipulagið Sjálfur hef ég oftar en talið verð- ur vakið athygli á mikilli vinnu við skipulag miðbæjarins og gríðar- legum fjármunum sem í það ágæta verk var varið. Þar er nú allt sama markinu brennt; ekkert gerist nema þá helst að skipa fleiri nefndir og skrifa nýjar skýrslur um einstaka liði skipulagsins. Ein þeirra fjallaði um staðsetningu umferðarmið- stöðvar sem þó hafði verið fundinn góður staður í skipulaginu frá árinu 2014. Eftir miklar yfirlegur og út- gjöld komst virðuleg nefnd að því að upphaflega tillagan um staðsetn- ingu fyrir norðan Ráðhúsið hafi bara verið aldeilis ágæt! Lauk þar með því merka nefndarstarfi en ekkert bólar á framkvæmdinni. Um þessar mundir er næsta nefnd og fjöldi sérfræðinga með tilheyrandi kostnaði að fjalla um hvort fara eigi eftir meginlínum nýja miðbæjar- skipulagsins eða riðla því öllu án þess að hafa sett sér nokkurt mark- mið með því fikti. Sjálfur legg ég til að þriðja nefndin verði sett á stofn og henni falið að skilgreina hvernig eigi að koma sér að verki þegar bú- ið er að ákveða hlutina! En að öllu gamni slepptu þá sýna þessi dæmi að ekki er nóg að vinna að góðum úttektum og stefnumótun ef kjark- inn skortir til að koma þeim í fram- kvæmd. Tyllivon Síðasti þáttur þessa sjónarspils er tillögugerðin um hlutverk Akur- eyrar og uppsetning fallegrar skýrslu um það göfuga málefni. Hefur jafnvel gripið um sig barns- legur fögnuður yfir þessu verkefni og einlæg trú á að nú muni eitthvað stórbrotið gerast. Sem betur fer ríkir trúfrelsi hér á landi og því óviðeigandi að gera lítið úr þessum nýju trúarbrögðum. Samt sem áður sýnist mörgum í ljósi reynslunnar að hér sé enn ein tyllivonin að fæð- ast sem getur aðeins af sér enn eina skýrsluna. Eftir sem áður getum við Akureyringar haldið áfram þeirri göfugu iðju að týna fram ótal rök fyrir því að bærinn okkar sé borg ef einhverjum líður betur með það. Akureyri – höfuð- borg skýrslugerða Eftir Ragnar Sverrisson Ragnar Sverrisson » Fátt er snautlegra en að vera bara bæj- arbúi þegar færi gefst á að kenna sig við borg. Höfundur er kaupmaður. raggijmj@simnet.is ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS HVAR ER NÆSTA VERKSTÆÐI?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.