Morgunblaðið - 19.10.2020, Qupperneq 32
MÁNUDAGUR 19. OKTÓBER 293. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Englandsmeistarar Liverpool urðu fyrir miklu áfalli um
helgina þegar einn besti knattspyrnumaður heims,
Virgil van Dijk, slasaðist í nágrannaslagnum gegn Ever-
ton. Nú hefur verið staðfest að Hollendingurinn þurfi
að fara í uppskurð á hné og þar með gæti hann misst af
því sem eftir er af þessu keppnistímabili. »27
Verður van Dijk ekki meira með?
ÍÞRÓTTIR
bjuggu um 400 manns í þorpinu. „Á
þeim tíma var minna hugsað um list-
nám en það að lifa af og bókin ber
þess merki að ég ólst upp í skugga
Þormóðsslyssins 1943,“ rifjar hún
upp. Þar vísar hún til þess þegar vél-
skipið Þormóður frá Bíldudal sigldi
frá Patreksfirði 17. febrúar með sjö
manna áhöfn og 24 farþega til
Reykjavíkur en steytti á skeri út af
Garðsskaga daginn eftir með þeim
afleiðingum að skipið fórst og enginn
um borð lifði af. „Þegar ég náði sama
aldri og foreldrar mínir voru á þegar
þessi alvarlegi atburður varð furðaði
ég mig á því hvernig fólk lifði af þessa
ofboðslegu sorg og þetta hræðilega
áfall sem gekk yfir þetta litla þorp.
Ekkert heimili á Bíldudal var ósnort-
ið af þessum atburði.“
Lífsins gangur veitir Valgerði inn-
blástur og hún segist gjarnan setjast
niður og hugsa um það sem sé að ger-
ast í veröldinni. „Þegar eitthvað
stingur mig í hjarta er gott að geta
komið því niður á blað.“ Hún gerir
ekki upp á milli ljóðanna, því þau segi
öll ákveðna sögu, en segir að fyrsta
ljóðið, „Snúið“, sé kannski lýsandi
fyrir bókina. Þau búi á afskekktum
stað og megnið af vetrinum í mikilli
kyrrð og þögn. „Ég skrifa mikið um
náttúruna og kemst vel í snertingu
við hana hérna á Leirubakka.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Bókaútgáfan Sæmundur hefur gefið
út bókina Öldufax, sjónarrönd af
landi, eftir Valgerði Kr. Brynjólfs-
dóttur íslenskufræðing. „Eftir að ég
hætti að hafa tíma
til að sinna fræð-
unum fékk ég út-
rás fyrir þörfina
til að skrifa með
þessum hætti,“
segir Valgerður
um þessa fyrstu
ljóðabók sína, en
hún starfaði áður
meðal annars á
Árnastofnun og skrifaði þá fræði-
greinar um bókmenntir auk þess sem
ljóð eftir hana hafa birst í tímaritum.
Hjónin Valgerður og Anders Han-
sen hafa verið með hótelrekstur, veit-
ingahús og hestaleigu á Leirubakka
við Heklurætur síðan 2005. Það hefur
verið meira en fullt starf og skrift-
irnar því setið á hakanum, en Val-
gerður segist hafa reynt að nýta vel
þann litla frítíma, sem hafi gefist á
veturna frá um 2011, til að sinna
ljóðagerð. „Þegar maður vinnur alla
daga frá morgni til kvölds er lítill tími
til sköpunar samhliða hefðbundnum
störfum,“ útskýrir hún.
Valgerður leggur áherslu á að
sveitafólk sé vant að nota hverja mín-
útu, því alltaf sé verk að vinna. „Ljóð-
in hafa dottið ofan í skúffuna öðru
hverju þessi ár og þegar kórónu-
veiran skall á gafst frí frá önnunum í
hótelrekstrinum og þá fór ég að tína
upp úr skúffunni,“ segir Valgerður
um bókina. Hún segist reyndar oft
hafa hugsað sér að gefa út ljóðabók
en ekki hafi gefist tími til þess fyrr en
nú. „Stundum hef ég sagt að gaman
væri að geta málað vegna þess að ein-
hverjar myndir voru í höfðinu á mér
og skemmtilegt væri að koma þeim á
blað en svo áttaði ég mig á því að ég
gæti frekar málað með orðum en
pensli.“
Sjóslys og heimsviðburðir
Valgerður ólst upp á Bíldudal við
sunnanverðan Arnarfjörð og þá
Málar með orðum
frekar en penslum
Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir með fyrstu ljóðabók sína
Ljósmynd/Anders Hansen
Skáld Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir sækir innblástur í náttúruna.
MENNING
Hið nýstofnaða Dúó Edda heldur streymistónleika í
Hljóðbergi menningarhússins Hannesarholts í dag,
mánudag, klukkan 16. Fylgjast má með á facebooksíðu
Hannesarholts. Dúettinn skipa tvær ungar tónlistar-
konur, Vera Panitsch á fiðlu og Steiney Sigurðardóttir á
selló. Fyrstu tónleikar Dúós Eddu voru í Eldborgarsal
Hörpu í vor og á döfinni eru tónleikar hér heima og er-
lendis. Á streymistónleikunum í dag flytja þær verk eft-
ir Erwin Schulhoff og Zoltán Kodály.
Hið nýstofnaða Dúó Edda heldur
streymistónleika í Hannesarholti
Sýndu að þú
sért framúrskarandi
EKKI SPARA
KRAFTANA
Í KRAFTI CREDITINFO
Á hverju ári mælir Creditinfo hreysti íslenskra
fyrirtækja út frá lykiltölum í rekstri síðustu þriggja
ára. Að jafnaði standast aðeins 2% fyrirtækja þær
ströngu kröfur sem gerðar eru til Framúrskarandi
fyrirtækja sem þýðir að þau eru komin í
úrvalshóp, landsliðið í sinni grein, og eru líklegri
til að ná árangri og standast álag en önnur.
Ef þitt fyrirtæki er í þessum hópi getur þú pantað
vottun og sýnt að þú sért framúrskarandi.
Kynntu þér málið á creditinfo.is.
ER ÞITT FYRIRTÆKI
FRAMÚRSKARANDI?
PANTAÐU VOTTUN!