Bæjarins besta


Bæjarins besta - 10.01.1990, Qupperneq 1

Bæjarins besta - 10.01.1990, Qupperneq 1
BÆJARINS BESTA 2. TBL. J 7. ÁRG - MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1990 AÐILI AÐ SAMTÖKUM BÆJAR- OG HÉRAÐSFRÉTTABLAÐA Skálavík um helqina Pöbbinn opinn föstudags- kvöld og laugardagskvöld kl. 21 - 2330. Aldurstakmark 18 ár. SKÁLAVIK Bolungarvík 0 7130 Álfadrottningin (Arndís Ólafsdóttir) og álfakonungurinn (Sigurður Th. Ingvarsson) fylgdust með því sem fram fór úr hásætum sínum. ísafjörður: Rækjustöðin: Stefnt að flutningi í næsta mánuði RÆKJUSTÖÐIN á ísa- firði mun væntanlega flytja úr húsi sínu við Aðal- stræti í nýtt húsnæði við Sundahöfn í lok febrúar og byrjun marsmánaðar. Byggingin við Sundahöfn er um 1350 fermetrar auk frystiklefa og rýmkast veru- lega um starfsemi Rækju- stöðvarinnar við flutninginn. Framkvæmdir við grunn hússins hófust árið 1978 og síðan var nokkurt hlé á fram- kvæmdum. Flutt var í hluta hússins árið 1984 og sem fyrr segir verður það allt tekið í gagnið eftir nokkrar vikur. Guðmundur Agnarsson sagði í samtali við BB að það tæki líklega um mánuð að flytja alla starfsemina yfir. Ekki verður bætt við neinum tækjum en einhver þeirra verða endurnýjuð. Þrettándagleði á T orfnesi ALFAR, huldufólk, fjöl- skylda Grýlu og fleiri vættir stigu dans á Torfnesi á Þrettándanum í kringum bál og fylgdist fjöldi bæjarbúa með. Alfarnir gengu í skrúð- göngu frá skátaheimilinu að venju og stönsuðu í Mána- götu til þess að syngja fyrir fólkið á Elliheimili Isafjarð- ar. Síðan var haldið upp á Torfnes og dansað framan við nýja sjúkrahúsið. Lúðra- sveit Isafjarðar og nokkrir liðsmenn úr lúðrasveit Tón- listarskólans léku fyrir dans- ínum og söngfólk úr ýmsum kórum söng með álfunum og bæjarbúar tóku undir. Jóla- sveinar voru einnig mættir til þess að kveðja aðdáendur sína og lauma að þeim kara- mellum og fleira góðgæti. Púkar, svartir og ljótir, fóru um með ærslum og látum og stríddu bæði álfum og mönn- um að púkavenju. Alfakon- ungur var Sigurður Th. Ingv- arsson og álfadrottning var Arndís Olafsdóttir og fylgd- ust þau með þegnum sínum úr hásætum en stigu niður úr þeim til að taka þátt í síðasta dansinum. Að loknum dansi og söng gengu álfarnir fylktu liði frá Torfnesi niður í bæ undir dynjandi trommuslætti og fylgdust með flugeldasýn- ingu skáta á Pollgötusvæð- inu. Síðan var genginn hring- ur á torginu og upp í skátaheimili aftur. Það var Kvenfélagið Hlíf á ísafirði og skátafélögin sem höfðu veg og vanda af Prett- ándagleðinni en þau hafa staðið sameiginlega að gleði þessarri frá upphafi árið 1971 og haldið hana annað hvert ár til skiptis við Bol- víkinga. Þess má geta að þetta var fyrsta verkefni kvenfélagsins á afmælisár- inu. Félagið var stofnað árið 1910 og verður því 80 ára í ár. í þetta sinn var ákveðið að taka ekki fé úr sjóði félagsins til að kosta búninga- og blysakaup heldur var gengið um með söfnunarkassa og safnað í þá frjálsum framlög- um. Að sögn Kristjönu Sig- urðardóttur formanns Kven- félagsins Hlífar voru viðtökur ágætar og kunna fé- lagskonur bæjarbúum bestu þakkir fyrir. Frá fræðslufundi kennara: ,,í skólanum, í skólanum er skemmtilegt að vera...“ Grunnskólinn á ísafirði: Kennarar á starfsleikninámskeiði ÞAÐ hefur eflaust komið mörgum foreldrum á óvart að fjórum dögum eftir að jólafríum skólabarna lauk var gefið frí í Grunnskólan- um á ísafirði í tvo daga, þ.e. á mánudag og þriðjudag. Skýringin á þessu er sú að þessa daga fór fram nám- skeið kennara í Stjórnsýslu- húsinu. Námskeið þetta er upphaf annars hluta af fjórum í starfsleikninámi kennara og er stýrt af leiðbeinendum sem farið hafa í nám sérstak- lega vegna þessa verkefnis hjá Kennaraháskóla íslands. Þá koma fyrirlesarar og flytja erindi. Hver önn hefst á tveggja daga fræðslufundi sem þessum og á níu daga fresti hittast minni hópar á vinnufundum en þcss á milli vinna kennararnir sjálfstætt að verkefnum. Af 45 kenn- urum Grunnskólans á ísa- firði taka 36 þátt í náminu og 3 frá Grunnskólanum í Súða- vík.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.