Bæjarins besta


Bæjarins besta - 10.01.1990, Síða 7

Bæjarins besta - 10.01.1990, Síða 7
BÆJARINS BESTA 7 Frá Tónlistarskóla ísafjarðar Vorönn hefst þann 23. janúar n.k. Getum bætt við nemendum í eftir- farandi greinum: fiðla - selló kornet - horn - básúna - túba harmónika blokkflauta forskóli (þriðjudaga og föstudaga kl. 930-1015) Innritun fer fram á skrifstofu skól- ans að Austurvegi 11 alla virka daga kl. 13-16. Nánari upplýsingar í síma 3926. Skólastjóri Bolungarvíkurkaupstaður Zetor dráttarvél til sölu Bæjarsjóður Bolungarvíkur aug- lýsir eftir tilboðum í Zetor dráttar- vél. Vélin er til sýnis við áhaldahús bæjarins og selst í því ástandi sem hún er í. Nánari upplýsingar gefa bæjar- verkstjóri og bæjartæknifræð- ingur. Tilboðum skal skila á skrifstofu bæjarins fyrir kl. 11 mánudaginn 22. janúar n.k. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Bæjartæknifræðingur Árið 1989 leið eins og öll önnur og þjóðin lifði allt sem því fylgdi af, enda hefur hún gert það í rúm ellefu hundruð ár þótt á ýmsu hafi gengið. Hins nýliðna árs verður vafalaust minnst fyrir margt, ekki síst harðan vetur, og þá fleiri en í ein- um skilningi þess orðs. Veturinn 1989 var Vest- firðingum mjög harður og erfiður að því er snerti veðurfar. Og vonandi verður veturinn nú mildari sem og árið allt. En það hefur verið vetur í íslenskum efnahagsmál- um. Atvinnuleysi hefur ekki verið meira en á árinu 1989 í tuttugu ár, ekki síðan á síldarleysisárunum Það hefur líka verið erf- iður vetur i fiskveiðum þessarar þjóðar sem á allt sitt undir aflabrögðum og það góðum. Kvótakerfið - nauðsynlegt eða ekki - hefur haft i för með sér minnkandi afla á hvert skip. Öllum er nauðsyn þess ljós að nýta auðlind- irnar, fiskistofnana, skyn- samlega en menn greinir á um aðferðina. Auk þess hefur verðlagningin á fiski úr sjó haft það í för með sér að sjómenn eru óánægðir með sinn hlut. Sé fiskur seldur erlendis eða á fisk- mörkuðum syðra er verðið hærra. Og útgerðirnar hafa meira fyrir sinn snúð að gera út frystitogara. sjónarmiðum og þjóðinni meira umburðarlyndi gagnvart sjálfri sér og öðrum og ekki síst meiri víðsýni, sem er íslending- um nauðsynleg. í stjórn- málaheiminum örlar lítið á nýjum sjónarmiðum. En þeirra verður vart annars staðar í þjóðlífinu svo sem sameining margra fyrir- tækja að undanförnu hefur sýnt. Að nýta kraftana og auðlindirnar, bæði mann- afla og aðrar, skynsamlega er nauðsyn og það brýn. Ef þessi sjónarmið næðu inn á Alþingi mætti ef til vill búast við árangri í baráttu við eilífðardraug- inn verðbólgu auk þess sem sameinuð Evrópa allt umhverfis ísland gerir í upphafi árs og lok áratugar 1967 og 1968. Þá var sama uppi á teningnum og nú, atvinnuleysi og landflótti. Það hefur líka verið erfiður vetur í íslenskri pólitík. Síðan í alþingiskosning- unum 1987 hafa setið þrjár ríkisstjórnir að völdum. Fyrst þriggja flokka, síðan fjögurra flokka með stuðningi huldumanna og loks ein fjögurra eða fimm flokka eftir því hvort Sam- tök um félagshyggju og jafnrétti teljast með eða ekki. Spurningin er reyndar sú hvort þau studdu nokkurn tímann fyrri ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar á þessu kjörtímabili nema til að tryggja setu formanns í einu bankaráðanna. Að minnsta kosti mætti ætla það af níðvísum Stefáns Valgeirssonar í Alþingi fyrir jól. Nýjar línur í íslenskri pólitík ?! Ef til vill sýnir framan- ritað okkur það, að þörf er nýrrar hugsunar í Alþingi og íslensku stjórnmálalífi almennt, bæði á vettvangi landsmála eins og sveit- arstjórnarmála. Það virðist sameiginlegt einkenni að þjóðin eyðir um efni fram, bæði í stórum einingum og smáum. Gildir þetta um einstaklinga jafnt og fyr- irtæki og jafnvel opinberar stofnanir. Það hafa aldrei jafn- margir íslendingar farið til náms erlendis og undan- farin áratug. Ef til vill skilar það okkur nýjum okkur það að skyldu að mæta breyttri heimsmynd með nýjum sjónarmið- um. Ef ekki koma til breytt viðhorf þjóðarinnar eru efnahagsleg kjör hennar og velferðin margfræga í mikilli hættu. Þess vegna þarf nýja pólitík - og betri. Árshátíð bílstjóra Árshátíð bílstjóra verður haldin laugar- daginn 13. janúar n.k. í Staupasteini. Húsið opnar kl. 1930. Borðhald hefst stundvíslega kl. 2030. Rokkbændur leika fyrir dansi. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Miðapantanir í síma 3418. STAUPASTEINN:* * ★★ * HINIR FRÁBÆRU ROKKBÆNDUR SKEMMTA Á HÖRKUDANSLEIK LAUGARDAGSKVÖLD KL. 23-03. ALDURSTAKMARK 20 ÁRA. MUNIÐ NAFNSKÍRTEININ L

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.