Bæjarins besta - 10.01.1990, Page 9
BÆJARINS BESTA
tíðar.“
í meirihluta bæjarstjórn-
arinnar sem réð Harald
hingað voru sjálfstæðismenn
og óháðir borgarar. Næstu
tvær bæjarstjórnir hafa
greinilega verið ánægðar
með valið á bæjarstjóra,
a.m.k. hélt hann starfinu eft-
ir kosningar.
Hann segist hafa kunnað
mjög vel við sig á ísafirði frá
upphafi og hefur ekkert ann-
að en gott að segja um veru
sína hér. En nú er hann á
förum eftir kosningar. ,,Að
þessu kjörtímabili loknu er
ég búinn að vera hér í rúm
níu ár og ég held að það sé
alltaf ákveðin hætta á því að
vera of lengi í starfi og nú er
það spurningin hvort það sé
ekki kominn tími til að
skipta um. Ég er alls ekki að
gefast upp, langt frá því. Ég
hef mjög gaman af sveitar-
stjórnarmálum.“
Hvað tekur við nœst?“
Pað liggur ekkert á borð-
inu fyrir um það ennþá og
næstu mánuðir fara í að leita
að vinnu. Við förum héðan
með ákveðnum söknuði.
Taugarnar eru farnar að
verða sterkar hingað." Ég
spyr um orðróminn um
framboð hjá Sjálfstæðis-
flokknum á Isafirði og hann
segist ekki geta neitað því að
það hafi verið verið nefnt við
sig en það hefur ekki staðið
til af sinni hálfu.
Haraldur kynntist konu
sinni, Ólöfu Thorlacius, ári
áður en hann lauk hagfræði-
námi í London, og þau byrj-
uðu að búa saman í Reykja-
vík þegar hann kom heim.
,,Ég var mjög ung þegar
ég kynntist honum“ segir
hún. ,,Ég held að ég hafi
ekki gert mér neina grein
fyrir því hvers konar námi
hann var í úti. Við keyptum
íbúð í Kópavogi tilbúna und-
ir tréverk og fyrstu árin vor-
um við í þessu venjulega
basli.
Þegar við fluttum hingað
vorum við með tvö börn,
Ragnheiði Dögg, dóttur
okkar og eldri soninn, sem
heitir Haraldur Líndal. Hún
er að verða 16 ára og Halli er
10 ára. Við eignuðumst síð-
an yngri soninn, Arnar, hér
og hann er fjögurra ára.
Strákarnir eru því eiginlega
ísfirðingarnir í fjölskyld-
unni.“
Okkur hefur
lidið vel hér
Þau hjónin segjast ekki
vera mikið fyrir að fara í
heimsóknir. „Okkur finnst
gott að vera heima þegar
tími gefst til og eigum fáa en
góða vini“ segir Ólöf. ,,Ég
hef ekki sótt í neinn félags-
skap, kannski vegna þess að
Haraldur er það lítið heima
að börnunum hefur ekki
veitt af því að hafa mig. Ég
hef mikil samskipti við syst-
ur mína sem hefur búið hér
lengi og það skipti mig miklu
„Ákveðnir menn innan Sjálf'stæðisflokksins hafa lagt sig fram um að gera það sem ég hef sagt og gert í mörgum málum
ótrúverðugt.“
fulltrúi í hálfu starfi. Og í
haust hóf hún nám við öld-
ungadeild menntaskólans.
„Það hefur verið mjög gam-
an og ég held því námi áfram
fyrir sunnan.“
Lélegur bæjar-
stjóri ef öllum
líkar við hann
Haraldur hefur verið mis-
vel þokkaður af bæjarbúum
eins og gengur og gerist með
alla þá sem einhver völd
hafa og eflaust oftar en ekki
ásakaður fyrir umdeildar
ákvarðanir þar eð það er í
hans verkahring að fylgja
þeim eftir. ,,f svona starfi
gengur oft á ýmsu og ég held
að það hljóti að vera lélegur
bæjarstjóri sem öllum líkar
vel við því að það þarf að
taka ákvarðanir og sumum
líkar vel við þær en öðrum
ekki“ segir hann. „Þannig
að auðvitað hlýtur maður að
komast á milli tanna á fólki.
Ég er hins vegar mjög fljótur
að gleyma og er ekki lang-
rækinn maður. Ég afgreiði
málin og þá er þeim lokið.“
Hann brosir við og heldur
áfram: „Sem dæmi þá
nefndir þú í blaðinu um dag-
inn í inngangi að stuttu
spjalli vegna afmælis blaðs-
ins að við hefðum átt í ein-
hverjum deilum þegar þú
hófst störf á BB en ég var al-
veg búinn að gleyma þeim.
Þær deilur sem maður hef-
ur lent í hafa oftast verið lít-
ilfjörlegar og sitja ekki í
mér.“
Þú hefur stundum verið
skammaður fyrir að láta of
oft í Ijósi þínar skoðanir á
bæjarmálunum og verið sagt
um þig að þú sért ofpólitískur
máli að vita af henni hér þeg-
ar við ákváðum að fara vest-
ur. Ég er fædd og uppalin í
vesturbænum í Reykjavík og
hefði ekki verið tilbúin til að
fara á hvaða stað sem var úti
á landi. En mér fannst
spennandi og gaman að
koma hingað. Það hefur ver-
ið mjög gott að vera hér og
okkur hefur liðið vel.“
Hún segir að það komi
fyrir að hún verði þreytt á
því hve vinnutími eigin-
mannsins er langur og pirrist
á þessu eilífa fundastandi en
er ánægð með að hafa hann
um helgar. „Fólk gerir lítið
af að ónáða hann um helgar
og við erum þakklát fyrir
það“ segir hún. „Okkur
finnst mjög gott að slappa af
heima og Haraldur er mikill
fjölskyldumaður og yfirleitt
alltaf geðgóður heima fyrir.
Við ræðum nær aldrei um
bæjarmálefnin, kannski er
það vegna áhugaleysis af
minni hálfu. Hann hefur sagt
við mig að ég ætti nú að
koma og sitja eins og einn
bæjarstjórnarfund, bara til
að sjá hvernig þetta fer fram.
Kannski læt ég nú verða af
því áður en við förum héð-
an.“
Fyrir kemur á löngum
fundum að bæjarstjórinn
seilist í vasa sinn eftir epli og
fari að naga það í miðjum
ræðum og eflaust hafa ein-
hverjir undrast þetta hátta-
lag. Það kemur þó ekki til af
óvenju miklum mataráhuga
því Flaraldur fékk sykursýki
fyrir nokkrum árum og verð-
ur að borða eitthvað á
tveggja tíma fresti, auk þess
að sprauta sig með insúlíni
kvölds og morgna. „Sykur-
sýkin hefur ekki háð honum
en hann þarf að gæta sín í
matarræði“ segir Ólöf.
Hún segist lítið spá í þau
deilumál sem koma upp í
bæjarmálunum og verði
sárasjaldan fyrir því að fólk
segi eitthvað neikvætt við
hana í tengslum við hans
vinnu. Ólöf hefur verið mik-
ið heimavinnandi vegna
barnanna en síðustu árin
hefur hún unnið sem lækna-
„Bæjarfulltrúar vissu varla fyrr en búið var að fjárfesta í skíðalyftu upp á 15 milljónir.“
Haraldur, Magnús Reynir Guðmundsson bæjarritari og bæjarráð ísafjarðar: F.v. Árni
Sigurðsson, Smári Haraldsson og Ingibjörg Ágústsdóttir.