Bæjarins besta


Bæjarins besta - 10.01.1990, Page 11

Bæjarins besta - 10.01.1990, Page 11
BÆJARINS BESTA 11 þessu. Ég held að núverandi flokkar í bæjarstjórn ættu að taka saman höndum og marka einhverja stefnu út úr þessum erfiðleikum fremur en að fara af stað með kosn- ingaloforð um einhverjar nýjar framkvæmdir." Haraldi hefur verið nokk- uð niðri fyrir í þessarrri ræðu og hann tekur sér stutta mál- hvíld. Segirsíðan: „Ogefþú telur að þetta sé pólitík þá eru þetta mínar skoðanir." Þetta er reyndar ekki í fyrsta sinn sem Haraldur gerir skuldastöðuna að um- ræðuefni en það er ljóst að honum finnst ástandið alvar- legt. Sem dæmi um það má nefna að hann sendi bæði forseta bæjarstjórnar og for- manni bæjarráðs bréf í nóv- ember þar sem hann rakti þessar skoðanir og lagði til að ekki verði farið út í neinar nýjar framkvæmdir á næstu árum og hægt verði verulega á byggingum sem komnar eru af stað og að útsvarspró- senta verði hækkuð úr 6,7% í 7,5% sem hefur verið sam- þykkt. Ég spyr hann hvort hann óttist að komandi kosningar verði til þess að bæjarfulltrúar forðist að taka á vandanum. Hann hugsar sig um í stutta stund og segir síðan: ,,Já, maður óttast það auðvitað að menn fari að lofa einhverju sem erfitt verður að standa við.“ Öldrunarmálin stefna í óefni Öldrunarmálin hafa orðið œ viðameiri síðustu árin og stundum valdið deilum hver œtti að stýra þeim, öldrunar- ráð, félagsmálaráð, félags- málastjóri eða forstöðumað- ur öldrunarmála. Nú hefur verið skipuð nefnd til að end- urskipuleggja þau? ,,Já. Þar hefur verið tekið nokkuð hraustlega á málum og menn hafa farið í stórar framkvæmdir. Það er ekki lengra en síðan árið 1982 að Hlíf I var tekin í gagnið. Fyr- ir þann tíma þá var félags- málastjóri í einu stöðugildi og einn maður til í hálfu stöðugildi sem sáu um að þjóna öllum öldrunarmálum í kaupstaðnum að frátöldu elliheimilinu. Síðan hefur þetta vaxið meira og meira þannig að þetta er orðið stór stofnun og við höfum ekki verið nógu vakandi fyrir því að byggja öldrunarmálin upp í kringum hana. Eins og mál- um er háttað hjá okkur í dag og ekki er gripið í taumana þá stefnir þetta bara í óefni. Skipulagið hefur ekki verið í takt við vöxt þessa apparats og þess vegna flutti ég tillögu í bæjarstjórn um að skipuð yrði sérstök nefnd sem færi ofan í öll öldrunarmálin al- veg frá grunni og legði fram tillögur frá a til z um alla þætti þessa málaflokks. í nefndinni sitja Guðjón Brjánsson félagsmálastjóri og Guðmunda Birgisdóttir forstöðumaður öldrunar- mála og þau hafa fengið sér til aðstoðar Helga Þórðarson verkfræðing. Þess má geta að í tillögu að nýrri bæjar- málasamþykkt er lagt til að öldrunarráð verði lagt niður í þeirri mynd sem það er nú og öldrunarmálin fari undir félagsmálaráð. Þjónusta við fólk sem er orðið háaldrað og sjúkt og þarf stöðugrar umönnunar við er vandamál hjá okkur sem þarf að leysa og ég vona að nefndin taki á því. Þar verður að grípa til einhverra ráðstafana á næstu árum. íbúðirnar á Hlíf miðast við að fólk geti hjálpað sér sjálft. Þegar það er orðið háaldrað verður að vera til einhver stofnun sem getur tekið við því. Ég hef ekki trú á því að sjúkrahúsið geti sinnt þessu alfarið og það verður fólk bara að horfast í augu við. Ég er kannski kominn í enn einn þrýstihópinn þegar ég segi þetta en hér erum við að tala um framkvæmd sem er ekki áhugamál nokkurra heldur framkvæmd sem sprettur af nauðsyn; við komumst ekki hjá því að koma á laggirnar stofnunar- aðstöðu fyrir þetta fólk. Ég harma það að ekki hafi verið gengið til samninga við sjómannadagsráðin í Reykjavík og Hafnarfirði um að fá hlut í ágóða af sölu happdrættismiðum DAS til byggingar dvalarheimilis fyr- ir aldraða sjómenn á ísa- firði. Sjómannadagsráðin voru búin að samþykkja þetta en vilji var ekki hér heima þrátt fyrir að samþykkt hafi verið á sínum tíma að leita eftir þessu. Það svíður stundum undan Þú sagðir í upphafi þessa viðtals að þú vœrir ekki lang- rœkinn en nú er stundum sagt um þig að þú sért of hör- undsár gagnvart gagnrýni? ,,Það hefur verið borið upp á mig að ég sé mjög við- kvæmur. Sem dæmi má nefna í því sambandi þegar verið er að setja út á starfs- menn bæjarins og það er al- veg rétt. Bæjarsjóður hefur á að skipa mjög góðu starfs- fólki upp til hópa og það fer alltaf mjög í taugarnar á mér þegar ég heyri menn hnýta í þetta fólk. Mér finnst það vera algjört ábyrgðarleysi hjá bæjarfulltrúum t.d. að leyfa sér að gera slíkt en hafa ekki kjark til að koma og ræða við fólkið sjálft ef þeir hafa eitthvað út á það að setja. Og ég get ekki setið hjá og hlustað á slíkt án þess að gera við það athugasemd- ir. Það er oft sagt að hér á bæjarskrifstofunum sc alltof margt fólk en á almennu bæjarskrifstofunni hefur orðið fækkun enda þótt fjölgað hafi á tæknideildinni. Það verður að taka í reikn- inginn hvað er verið að vinna og öll þau verkefni sem bæst hafa við, t.d. verkamanna- bústaðirnir og endurmat allra fasteigna í bænum o.s. frv. Mér hefur oft fundist gagnrýni bæjarbúa á starfs- fólkið hér beinast að vitlaus- um aðila og held að menn telji sig með því vera að gagnrýna meirihlutann. Þetta kemur við og særir fólk. Ég get ekki neitað því að ákveðnir menn innan Sjálf- stæðisflokksins sem starfað hafa að bæjarmálefnum, hafa af einhverjum ástæðum lagt sig fram um að gera það sem ég hef sagt og gert í mörgum málum ótrúverð- ugt. Auðvitað finnst manni „Maður óttast auðvitað kosningaloforðin.“ slíkt mjög miður og mér hef- ur verið sagt að þessir menn hafi gengið það langt að ræða þetta á opnum fundum hjá flokknum. Mér finnst það alltaf mjög lítilmannlegt þegar menn leyfa sér að tala um hluti sem að maður á að hafa gert eða sagt og hafa ekki kjark til að koma beint til mín og ræða beint um þá. Ég vísa því öllu því sem hef- ur verið borið upp á mig í einhverri tvöfeldni heim til föðurhúsanna. Ég hef lagt mig fram við það að segja satt og rétt frá og talið mig vinna eftir minni bestu sann- færingu. Auðvitað svíður manni svona lagað og ég vil fá að svara fyrir mig þegar ég tel að ekki sé farið með rétt mál og ég er hafður fyrir rangri sök. En þegar ég er búinn að svara fyrir mig er málinu lokið og afgreitt. Þannig vinn ég yfirleitt og vil ekki láta nein mál liggja hjá mér lengi áður en ég afgreiði þau og sama gildir hvort sem það eru mál sem koma upp í vinnunni eða annars staðar. Auðvitað hlýtur það að koma fyrir mann að gera ein- hver mistök á níu ára tíma- bili en ég held að það sé betra að koma málunum frá sér og gera ef til vill einhver mistök heldur en að láta allt liggja hjá sér í lengri tíma og afgreiða það seint og síðar.“ Einkageirinn næstur? Þú sagðir ekki neitt liggja fyrir um hvað tekur við þegar þið farið héðan, en hvert er óskastarfið? Ég hugsa mér ekki neitt ákveðið óskastarf en ég held að það geti orðið erfitt að gíra sig niður úr þessu starfi. Ég hef haft mjög mikið að gera og mér líkar best að vinna undir álagi. Það yrði að minnsta kosti ekki óska- starfið að setjast inn á ein- hverja skrifstofu frá níu til fimm. Nú er ég búinn að vera opinber embættismaður í 12-13 ár þannig að ef ég ætla mér í einkageirann þá verð ég að gera það núna. Hins vegar stefni ég ekki á neitt sérstakt í því og er op- inn fyrir öllu jafnt þar sem hjá hinu opinbera. Hjá bæj- arsjóði vinna um hundrað manns sem heyra beint eða óbeint undir mig og ég hugsa að það verði mjög erfitt fyrir mig að fara að vinna sem undirmaður annarra eftir þennan tíma. Sviðsljósið er þó ekkert kappsmál hjá mér. Ég vil bera ábyrgð í því starfi sem ég gegni og eins og ég sagði áðan, vera undir álagj, Samt sem áður ber ég álagið ekki með mér heim. Um leið og ég er kominn út af þessarri skrifstofu þá er ég búinn í vinnunni og hef eng- ar áhyggjur heima hjá mér. Það eru ekki nema örfá skipti sem ég hef verið að velta einhverjum málum fyr- ir mér heima fyrir og þetta tel ég mjög gott. Það kæmi eflaust niður á starfinu ef maður væri í því svo til allan sólarhringinn. Og ég vil líka þakka bæjarbúum fyrir það að ég verð fyrir mjög litlu ónæði heima fyrir. Kannski eru ísfirðingar svona hugul- samir og kannski er þessi friður líka vegna þess að ég hef frá upphafi tekið slíkum hringingum frekar illa, nema að málið sé þess brýnna. Vinnutíminn er nógu lang- ur samt. Ég er kominn í vinnu klukkan átta og yfir- leitt eru fundir eftir skrif- stofutíma þannig að ég er yf- irleitt aldrei kominn heim fyrr en um átta og oft á tíð- um eru fundir einnig á kvöldin. Ég tók þá ákvörðun mjög snemma að vera ekki í vinnunni um helgar og nota þær til þess að vera með fjöl- skyldunni.“ Þú hefur gegnt ýmsum em- bœttum jafnframt því að vera bæjarstjóri? Já, ég er hafnarstjóri og var formaður stjórnar heilsu- gæslunnar fram að síðustu áramótum. Ég sit í ýmsum nefndum, er formaður bygg- ingarnefndar bæjarins, bygg- ingarnefndar íþróttahússins og Stjórnsýsluhússins. Ég sit auðvitað alla bæjarstjórnar- fundi og bæjarráðsfundi og auk þess hef ég seturétt á öll- um nefndarfundum bæjar- ins. Hins vegar mæti ég ekki á þá nema óskað sé eftir því sérstaklega og þá út af ákveðnum málum. Ég er líka framfærslufulltrúi. Félags- málastjóri vinnur öll fram- færslumál en þarf síðan að bera þau undir mig áður en frá þeim er gengið. Ég þarf því að sitja alla fundi fram- færslunefndar sem er félags- málaráð. Af þessu má sjá að starfið er margbreytilegt. Það var mjög lærdómsríkt að sitja bæði í undirbúningsnefnd og byggingarnefnd Stjórnsýslu- hússins og ánægjulegt að hafa síðan starfað í húsinu. f nefndinni voru með mér mætir menn, þeir Högni, Jó- hann og Brynjólfur. Ég tel að ég hafi lært mikið af að starfa með þeim.“ Fótbolti á þriðjudögum Hvað með áhugamál utan vinnunnar? „Áhugamálin og vinnan fara mjög vel saman, ég á við að ég hef mikinn áhuga á vinnunni og hef fá önnur áhugamál. Ég hef stundað fótbolta meö nokkrum sam- starfsmönnum mínum á þriðjudagskvöldum í vetur og það hefur verið mjög gott. í svona vinnu þarf oft að fórna ansi miklu af tíma en ég líð ekki fyrir það per- sónulega. Þetta bitnar liins vegar verulega á fjölskyld- unni og samviskan er ekki góð gagnvart henni. Þegar maður kemur heim á kvöldin og sest niður til að horfa á fréttir og sofnar kannski yfir sjónvarpinu þá er yngsti strákurinn farinn að sofa þegar ég vakna eftir hálfan eða einn klukkutíma. Það væri mjög erfitt að vera í svona vinnu ef konan og fjöl- skyldan skildu þetta ekki.“ Viðtalið hefur farið fram bæði á heimili þeirra hjóna og á skrifstofunni í Stjórn- sýsluhúsinu. Nú kemur Álma á símanum með stóran bunka af gulum skilaboða- miðum og það er greinilegt að bæjarstjórinn verður að fara að sinna starfinu aftur. Við þökkum fyrir okkur og látum þessu lokið hér. -V.D.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.