Morgunblaðið - 16.12.2020, Page 12

Morgunblaðið - 16.12.2020, Page 12
AFGREIÐSLUTÍMI Mán.–fös. 10–18 | Lau. 11–16 www.betrabak.is HÄSTENS VERSLUN Faxafeni 5, Reykjavík 588 8477 AFGREIÐSLUTÍMI Mán.–fös. 11–18 | Lau. 11–16 www.betrabak.is ÞITT BESTA ÁR HEFST MEÐ RÚMI FRÁ HÄSTENS Þegar þú vaknar í rúmi frá Hästens munt þú skilja virði þess að ná fullkomnum nætursvefni. Rúmin eru framleidd með einstöku samspili handverks og hráefna þar sem hvergi eru gerðar málamiðlanir í gæðum náttúrulegra efna eða tíma við óþreytandi handverkið. Þú sérð það ekki en þú munt finna fyrir því. Allan sólarhringinn. Heimsæktu Hästens í Faxafeni eða pantaðu vörulistann á hastens.com. VIÐSKIPTA Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Stefán Einar Stefánsson fréttastjóri, ses@mbl.is Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. VIÐSKIPTI Á MBL.IS Brjálað að gera á opnun Miniso Kalt stríð í Skeljungi 240 milljóna þrot hótels ... Ýtir niður verðlagi Útibú flutt og höfuðstöðvum breytt Mest lesið í vikunni INNHERJI RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON SKOÐUN Þessi niðurstaða er fengin með því að áætla að verð íbúða á 6. hæð sé jafn hátt verði íbúða á 5. hæð. Þar sem verðið stighækkar eftir hæðum er þetta sennilega varlega áætlað. Með því að birtar hafa verið ítar- legar upplýsingar um verð íbúðanna á vef Austurhafnar er hægt að greina meðalverðið eftir hæðum. Allt að 345 milljónir Eins og sjá má á grafinu kosta íbúðir á 2. hæð allt að 250 milljónir en allt að 280 milljónir á 3. hæð. Á hæðum 3 og 4 kosta íbúðirnar allt að 310 og 345 milljónir króna. Verð íbúða á 6. hæð er ekki gefið upp en ef fermetraverð íbúðar 501, þeirrar dýrustu á 5. hæð, 1,62 millj- ónir, er margfaldað með fermetra- fjölda stærstu íbúðarinnar á 6. hæð, sem er 354 fermetrar, myndi sú kosta 573 milljónir. Um er að ræða horníbúð 601 sem er með útsýni yfir höfnina. Hún er afhent fokheld að innan sem gæti haft áhrif á söluverð. Á færi nokkuð margra Fasteignasali sem óskaði nafn- leyndar segir nokkuð stóran hóp á Íslandi geta keypt íbúð á 250 millj- ónir. Hins vegar sé spurning hversu margir kaupendur á Íslandi séu til- búnir að greiða það verð fyrir íbúð. Hann áætlaði aðspurður að aðeins nokkrir tugir einbýlishúsa seljist á ári hverju á Íslandi sem kosti yfir 200 milljónir. Jafnvel aðeins 10 til 20 hús á hverju ári. Hann sagði vaxta- lækkanir og takmarkað framboð á sérbýli hafa ýtt undir verðið. Stíg- andi hefði verið í sölu sérbýlis á þessu ári. Auglýst verð íbúða á Austurhöfn í Reykjavík Samtals 13.147,5 *M.v. sama fermetraverð og á 5. hæð Mynd: Austurhöfn.is Fjöldi íbúða Stærð (m2) Verð (m.kr.) Meðalverð (m.kr./m2) Heildarverð íbúða (m.kr.) 2. hæð 16 50 til 200 59 til 250 1,07 2.193,5 3. hæð 17 50 til 210 63 til 280 1,13 2.591,0 4. hæð 16 73 til 210 77 til 310 1,20 2.762,0 5. hæð 15 104 til 213 105 til 345 1,30 3.214,0 6. hæð 7 149 til 354 Verð er ekki gefi ð upp 2.387,0* Skv. söluskrá 14. desember 2020 Lúxusíbúðir á yfir 13 milljarða Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ætla má að meðalverð 71 íbúðar í Austurhöfn sé 185 milljónir króna og ásett verð alls 13,15 milljarðar. Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Það á enginn að þurfa að kvíðajólunum þótt reyndin sé sú að þessi fallegi árstími getur reynt á marga, ekki síst þá sem búa við skort. Á jólahátíðinni gengur svo nýtt ár í garð og nýju upphafi fylgja oftast vonir og væntingar um áframhaldandi gott gengi eða vænni hag ef tíðin hefur reynst erfið. Nú er sú staða uppi að margiratvinnurekendur kvíða nýju ári, jafnvel þótt bóluefnið sé hand- an við hornið. Því ræður sú stað- reynd að þrátt fyrir ítrekuð varn- aðarorð og beiðnir þar um hefur verkalýðsforystan haft að engu hugmyndir um að fresta íþyngjandi launahækkunum um komandi ára- mót. Með þeim verða meiri fjár- munir fluttir til þeirra sem þó standa traustum fótum, þ.e. með atvinnu, en ekki leitast við að rétta þeim hjálparhönd sem misst hafa vinnuna. Í gær efndi svokallaður sérfræð-ingahópur verkalýðshreyfing- arinnar til veffundar um stöðuna í hagkerfinu og bentu þar flestir á þá staðreynd að láglaunafólk tæki skellinn í kreppunni – helst þó þeir sem missa vinnuna. Sérfræðing- arnir vita þó innst inni að draga hefði mátt úr högginu, með því að létta sem mest byrðum af fyrir- tækjunum og gera þeim kleift að halda aftur af annars nauðsyn- legum uppsögnum starfsfólks. En þetta munu þeir aldrei viðurkenna. Því miður. Tveggja heima sýnÍ febrúar síðastliðnum skunduðufjármálasnillingar í Ráðhúsi Reykjavíkur á fund borgarstjóra og hirðarinnar í kringum hann. Brúnaþungir lýstu þeir því yfir að ógnarlangur reiknistokkur borg- arinnar sýndi að enginn ábati hefði orðið af straumi ferðamanna til landsins fyrir fjárhag höfuðstaðar- ins. Þvert á móti væri sviðin jörð eftir flíspeysuliðið og hefði halli vegna þess numið 6-9 milljörðum króna á árunum 2015 til 2018. Og þegar embættismennirnir íBirkenstock-skónum höfðu lokið sér af steig forseti borgar- stjórnar fram líkt og endranær. Hún sagðist hissa. Tölurnar hefðu komið sér verulega á óvart. En enginn fyrirvari var settur við ruglið sem horfði algjörlega ein- angrað á tekjurnar sem af um- svifum ferðaþjónustunnar hljótast en greip vítt og breitt þegar kostnaðurinn allur var tiltekinn. En rétt í þann mund semskýrslan svarta var kynnt og forsetinn tilkynnti að „hugsa þyrfti hlutina upp á nýtt“ bárust ný bjargráð frá Kína. Kórónuveiran hélt innreið sína og skrúfaði í einni svipan fyrir hið „ömurlega“ og kostnaðarsama innflæði ferða- mannanna fljúgandi. Hafa þeir ekki sést síðan í mars og væntan- lega hefur dregið allhressilega úr kostnaði borgarinnar í kjölfarið. Snillingarnir geta andað léttar – eða hvað? Þeir hinir sömu leita nú logandiljósi að lánsfé til að koma í veg fyrir greiðsluþrot borgarsjóðs sem aldrei hefur staðið verr – og það í kjölfar mesta hagvaxtar- skeiðs í sögu íslensks efnahagslífs. Til þess að klóra í bakkann gefur borgin nú út skuldabréf af miklum móð og hvað blasir við. Ávöxt- unarkrafa bréfanna hefur rokið upp. Ávöxtunarkrafan nú er 4,5% ení maí var hún 2,99%. Og þótt skiljanlegt megi vera að krafan hækki í núverandi ástandi þá hef- ur hún aukist mjög hlutfallslega þegar litið er til þess álags sem borgin greiðir ofan á útgáfu rík- issjóðs. Allt ber að sama brunni. Borgin tapaði á ferðamönnunum og hún tapar á brotthvarfi þeirra. Það hlýtur að vera þungbært hlut- skipti að sinna áhættustýringu á stað þar sem bara er hægt að tapa peningum. Apakattahagfræði Allir sem framleiða öpp fyrir vefverslun Apple þurfa að sýna hvaða gögnum þeir safna. Apple þvingar öpp 1 2 3 4 5

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.