Fréttir - Eyjafréttir - 22.01.2020, Blaðsíða 2
Útgefandi: Eyjasýn ehf. 480278-0549.
Ritstjórn og ábyrgð: Sindri Ólafsson
- sindri@eyjafrettir.is
Umbrot: Sæþór Vídó - sathor@eyjafrettir.is
Ljósmyndir: Óskar Pétur Friðriksson og blaðamenn.
Prentun: Stafræna Prentsmiðjan ehf.
Aðsetur ritstjórnar: Ægisgata 2, Vestm.eyjum.
Sími: 481 1300
Netfang: frettir@eyjafrettir.is.
Auglýsingar: auglysingar@eyjafrettir.is
Veffang: www.eyjafrettir.is
Eyjafréttir er áskriftarblað.
Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og
annað er óheimilt nema heimilda sé getið.
Eyjafréttir
Viðbragðsaðilar í Vestmanna-
eyjum funduðu með fulltrúun
frá Vegagerðinni og smíða-
nefnd ásamt hluta af vélstjór-
um og skipstjórum á Herjólfi í
síðustu viku. Tilefni fundarins
var að samræma og ræða
hugsanleg viðbrögð ef eldur
kemur upp í skipinu. Formaður
almannavarnarnefndar í Vest-
mannaeyjum Páley Borgþórs-
dóttir boðaði til fundarins.
Kröftug sprenging í skipinu
Við fengum Hjört Emilsson skipa-
tæknifræðing hjá Navis til að fara
yfir málið með okkur en hann sat
fundinn fyrir hönd Vegagerðar-
innar. Forsaga málsins er sú að
þann 10. október síðast liðinn var
tilkynnt um bruna í rafgeymarými
skipsins MF Ytterøyningen. Um er
að ræða bílaferju sem var byggð
2006 og var breytt í tvinn-ferju
(rafgeymar og Diesel vélar) 2019.
Ferjan var þá á siglingu um 200
metra frá ferjuhöfninni í Sydnes.
Ferjan komst til hafnar þar sem far-
þegar og áhöfn, samtals 15 manns
yfirgáfu skipið heilu og höldnu.
Um kvöldið taldi slökkviliðið sig
hafa ráðið niðurlögum eldsins en
vakt var við skipið yfir nóttina. Á
sjöunda tímanum morguninn eftir
varð öflug sprenging í skipinu og
er talið að sú sprenging hafi orðið
í tækjarými við hlið rafgeyma-
rýmisins. Þegar óhappið varð sigldi
ferjan fyrir vélarafli, rafgeymar
skipsins voru ekki tengdir og
aðvörunarkerfi þeirra var óvirkt
þar sem enn var unnið að frágangi
þeirra.
Páley segist strax í október hafa
kallað rekstraraðila Herjólfs ohf. á
sinn fund þegar hún fékk veður af
atvikinu í Noregi. Ákveðið var að
boða til fundar með viðbragðsað-
ilum um málið þegar bráðabirgða
niðurstöður lægju fyrir um tildrög
málsins. Í upphafi var ástæða
atviksins talin vera að eftirlitskerfi
rafgeymanna hafi verið ótengt. Þá
lá fyrir að Herjólfi er ekki siglt
án þess að eftirlitskerfið sé virkt.
Ljóst er að um alvarlegan atburð
var að ræða í Noregi. Ef viðlíka
ástand kæmi upp í Herjólfi væri um
almannavarnaástand að ræða, með
virkjun aðgerðastjórnar þar sem
samræma þyrfti öll viðbrögð.
Bráðabirgða niðurstaða
Bráðabirgða niðurstöður rann-
sóknar á óhappinu eru í stuttu máli
þessar. Leki kom að vatnskælikerfi
rafgeymapakkans í norsku ferjunni
vegna gallaðs þéttihrings. Þetta
leiddi til þess að ljósbogi myndað-
ist í rafkerfinu. Þetta myndaði
hita og eldur braust út. Eldurinn
magnaðist við það að frostlögurinn
í kælivatninu (etýlen glýkól) lak út.
Sprengingin sem síðan varð er talin
stafa af því að saltvatns-úðakerfi
var notað til að slökkva eldinn og
hafi saltið leitt til skammhlaups í
rafhlöðunum.
Mikill munur á ferjunum
tveimur
Hjörtur segir mikinn mun á
ferjunum tveimur. „Herjólfur er
frá upphafi hannaður og smíðaður
sem rafmagnsferja. Rafgeymarnir í
Herjólfi eru frá Corvus, sama fram-
leiðanda og rafgeymarnir í Ytterø-
yningen en rafgeymarnir í Herjólfi
eru loftkældir en ekki vatnskældir
eins og var í Ytterøyningen, en leki
frá vatnskælikerfinu olli brunanum
eins og fyrr segir. Úðakerfið í
rafgeymarýminu notar ferskvatn
en ekki sjó. Fyrirkomulag skipsins
og öll kerfi í kringum rafgeymana,
s.s. loftkælikerfi, loftræsting
rafgeymarýmisins, aðvörunar- og
eftirlitsbúnaður og slökkvikerfi
uppfylla ströngustu skilyrði flokk-
unarfélagsins og siglingayfirvalda.
Corvus segir þetta einstakt atvik
og staðfestir norska siglingastofn-
unin niðurstöðu þeirra.“
Hlutverk nefndarinnar að búa
sig undir það versta
Páley segir mikilvægt að halda
samráðs fundi sem þessa. „Það er
okkar hlutverk að búa okkur undir
það versta þó svo líkurnar séu litlar
á sambærilegu atviki og í Noregi.
Á sama hátt og við æfum viðbrögð
vegna eldgosa og annarra nátt-
úruhamfara verðum við að vera
upplýst um á hverju við eigum
von ef allt fer á versta veg.“ Páley
sagði fundinn hafa verið gagnlegan
og hún hafi ekki miklar áhyggjur
af Herjólfi enda þessu allt öðru-
vísi farið hjá okkur en ferjunni úti
í Noregi. Áhöfn Herjólfs er vel
upplýst og vel að sér um búnað
skipsins og nú eru viðbragðsað-
ilar að verða það líka. Páley segir
hópinn þó ætla að hittast aftur
og fara betur yfir þetta mál þegar
öllum rannsóknum er lokið úti í
Noregi.
Viðbragðsaðilar funduðu vegna bruna í rafmagnsferju í Noregi:
Kröftug sprenging í
rafgeymarými skipsins
:: „Það er okkar hlutverk að búa okkur undir það versta þó svo
líkurnar séu litlar á sambærilegu atviki,“ segir lögreglustjóri
Páley Borgþórsdóttir, lögreglu-
stjóri í Vestmannaeyjum.
Bruninn í norsku tvinnferjunni MF Ytterøyningen var ill viðráðanlegur. Mynd af nrk.no: JONN KARL SÆTRE / KVINNHERINGEN
Hjörtur Emilsson skipatækni-
fræðingur hjá Navis.