Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 22.01.2020, Blaðsíða 8

Fréttir - Eyjafréttir - 22.01.2020, Blaðsíða 8
8 | Eyjafréttir | 22. janúar 2020 Nú í byrjun árs var haldin hér í Eyjum áhugaverð vinnustofa á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Fab Lab Íslands í Vestmannaeyjum. Áhersla var lögð á menntaverkefni, CAD/CAM og samstarf. Full- trúar allra Norðurlandanna, Danmerkur, Svíþjóðar, Noregs, Finnlands, Færeyja, Græn- lands og Íslands sendu sína fulltrúa ásamt því að fulltrúar frá Japan, Belgíu og Englandi komu á staðinn til þess að taka þátt í svokölluðu Nordic Fab Lab Bootcamp. „Þátttakendur, sem voru alls 34, eru flestir stjórnendur í Fab Lab smiðjum og komu til þess að deila þekkingu sín á milli, fræðast af hver öðrum og efla tengslanetið,“ sagði Frosti Gíslason, forstöðu- maður Fab Lab í Vestmannaeyjum og nýkjörinn formaður Norræna Fab Lab netsins. „Vinnustofan er hluti af Distributed Design Market Platform, verkefni sem Nýsköp- unarmiðstöð Íslands er hluti af og er styrkt af Creative Europe áætlun Evrópusambandsins.“ Frosti sagðist ánægður með hvernig til tókst. „Mér þótti vel til takast með vinnustofuna og við fengum til okkar frábært fólk með flottan bakgrunn og góð stemning myndaðist í hópnum.“ Veðrið á meðan á vinnustofunni stóð var ekkert til að hrópa húrra fyrir og hver vetrarlægðin á fætur annarri. „Veðrið þjappaði hópnum saman og þótti þeim sem komu lengst að þetta mögnuð upplifun. Það verður að viðurkennast að einn lærdóm dreg ég af þessu. Það er að ekki er hægt að treysta á strætó- samgöngur til að koma fólki að Herjólfi úr bænum á þessum tíma ársins,“ sagði Frosti og glotti. „En þátttakendur voru sérlega ánægðir með móttökurnar hérna í Eyjum og viðmótið sem þeir fengu.“ Hagkerfi Vestmannaeyja Á fyrsta degi vinnustofunnar kynntust þátttakendur hagkerfi Vestmannaeyja, heimsóttu m.a. Sigurð VE sem er eitt stærsta skip í uppsjávarflotanum á Íslandi. Þá var farið yfir mikilvægi fiskvinnslu og -veiða fyrir Vestmannaeyjar og kynnt sér starfsemi Ísfélags Vest- mannaeyja. Vélaverkstæðið Þór var heimsótt og þar fengu þátttakendur að sjá 5 ása vatnsskurðarvél í vinnslu, CNC rennibekk og CNC fræsivél. Þá var einnig rætt um Distributed Design Market Platform og Make.Works verkefnin. Að því loknu var varmadælustöð- in í Vestmannaeyjum heimsótt og þátttakendur upplýstir um hvernig stöðin nýtir varmann úr sjónum í kringum Vestmannaeyjar til upp- hitunar á húsum í Eyjum. Eftir heimsóknirnar voru haldin nám- skeið um CNC, Fab Lab verkefni og þátttakendur kynntust og deildu þekkingu sín á milli. Sköpunarsmiðja Á öðrum degi vinnustofunnar var haldin sköpunarsmiðja þar sem þátttakendur fengu tiltekin verkefni út frá mismunandi forsendum og áttu að nýta ýmsar aðferðir við lausnir sínar. Prófessor Edmund Harriss hélt áhugavert erindi um sköpunar- smiðjur og stærðfræði og var með námskeið í notkun stærðfræðifor- rita við sköpun. Auk þess var boðið upp á nokkur námskeið t.a.m. í CAD CAM hluta Fusion 360 og notkun stóru Shopbot fræsivélarinnar. Takuma Oami frá Japan hélt námskeið í notkun Sonic Pi, hugbúnaðar sem nýtir forritun til sköpunar á tónlist og margt fleira. Frosti kosinn formaður Á þriðja degi var haldinn ársfundur Fab Lab smiðja á Norðurlöndunum og var fráfarandi stjórn þökkuð góð störf. Jani Ylioja frá Finnlandi lét af störfum sem formaður og Frosti Gíslason kosinn nýr formaður. Aðrir í stjórninni eru Rasmus Fangel Vestergaard frá Danmörku, Sam Edlund frá Svíþjóð, Haa- kon Karlse frá Noregi, Jóannes Djurhuus frá Færeyjum, Jani Ylioja frá Finnlandi og Susanne Høegh frá Grænlandi. Rætt var um ýmis konar sam- starfsverkefni milli norrænu Fab Lab smiðjanna og annara. Haldin voru áhugaverð nám- skeið í notkun Fusion 360 með CNC málmfræsivélum, og CNC rennibekkjum frá Haas. Voru þau námskeið leidd af Eyjamönn- unum Sigursteini Marinóssyni og Friðbirni Benónýssyni. Þá var einnig námskeið í notkun KiCad til hönnunar rafrása. Farið var yfir aðferðarfræði dreifðrar hönnunar og tækifæri tengd því. Rætt var við Neil Gershenfeld, prófessor í MIT og stofnanda Fab Lab netsins, um alþjóðlegt samstarf og Fab Academy. Menntun og menntaverkefni Á fjórða degi vinnustofunnar var megináherslan á menntun og menntaverkefni. Kynntar voru ýmis konar námsleiðir innan Fab Lab netsins, þ.á.m. Fab Academy, Fabricademy textíl akademíunnar, líftæknibrautar, Fab Academy X og einnig ýmiskonar námsleiðir hjá norrænu Fab Lab smiðjunum á mismunandi skólastigum. Smári McCarthy, alþingismaður, ræddi um mótun iðnaðarstefnu og mikilvægt hlutverk Fab Lab smiðja. JJ Lennert-Sandgreen hélt áhugavert erindi um Grænland og tækifæri til framtíðar þar. Hafey Viktoría Hallgrímsdóttir og Þóra Óskarsdóttir héldu námskeið í notkun tiltekinna sveppa til fram- leiðslu á lífrænu ,,plastefni”. Opin smiðja Á fjórða degi var opið fyrir al- menning til þess að koma að hlíða á erindi og taka þátt í vinnustof- unni. Þóra Óskarsdóttir hélt erindi um nýsköpunarhraðal, nýsköpunar- spretti og menntaverkefni. Amy Beaulisch fyrrverandi nemi í Fab Academy í Vestmannaeyjum stýrir nú Fab Lab smiðju í Belgíu. Hún hélt áhugavert námskeið í hvernig hægt að gera áhugaverð sköpunarverkefni fyrir börn. Helle Hauskov frá Danmörku hélt skemmtilegt námskeið til að efla sköpunarfærni. Ýmis erindi m.a. um möguleika Fusion 360,forritun skjástýringa o.fl. Þétt dagskrá framundan í Fab Lab Aðspurður sagði Frosti mikla og þétta dagskrá framundan í Fab Lab smiðjunni hér í Eyjum. „Við erum að fara af stað með 80 tíma námskeið í samstarfi við Visku og fleiri aðila sem heitir Hönnunar- og tilraunasmiðja þar sem farið er yfir hönnun og nýtingu tækni til sköpunar. Þá erum við einnig með kennslu fyrir nemendur 7. bekkjar Grunnskóla Vestmannaeyja og valhópa. Nemendur í Fram- haldsskólanum nýta sér einnig smiðjuna til ýmis konar sköpunar. Svo bjóðum við einnig upp á opna tíma fyrir almenning á föstudögum kl:13:00-16:00. Þá ber sérstaklega að nefna þátt- töku okkar í Fab Academy sem er nám á háskólastigi og er kennt af prófessor Neil Gershenfeld í MIT háskólanum í Boston og byggist á áfanga hans þar sem heitir „How to make (almost) anything“. En það nám er kennt samtímis á yfir 74 stöðum í heiminum, og þar á meðal í fjölmörgum háskólum og svo að sjálfsögðu hér í Fab Lab smiðjunni í Eyjum,“ sagði Frosti. Samhliða ofangreindu tekur Fab Lab einnig þátt í nokkrum Evrópuverkefnum. „Við höfum fengið styrki m.a. frá Creative Europe áætlun Evrópusambandsins og erum að ræsa stórt verkefni á sviði textíls og tækni. Tökum þátt í hönnunarmars og erum með fleiri áhugaverð verkefni sem við kynnum síðar,“ sagði Frosti að lokum. Nordic Fab Lab Bootcamp fór fram í Eyjum dagana 6. til 10. janúar Veðrið þjappaði hópnum saman :: segir Frosti Gíslason nýkjörinn formaður Norræna Fab Lab netsins.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.