Fréttir - Eyjafréttir - 22.01.2020, Qupperneq 4
SaumanámSkeið – Byrjendur
Á námskeiðinu saumar hver sér flík að eigin vali, og
farið er í gegnum það helsta sem að þarf að hafa í
huga þegar flík er saumuð. Barnaföt eða einfaldari
flík er til grundvallar.
Sniðagerð:
Máltaka er kennd, hvernig á að taka upp snið úr
sníðablöðum, hvernig taka á upp snið af annarri flík,
efnisnotkun, hvernig leggja á snið á efni og klippa
það.
Samsetnig:
Verkröðun við að setja saman flík, frágangur og
ýmisleg atriði svo sem , rennilása ísetnig, saumför,
faldur og hálsmál.
Saumavélar:
Farið er í það helsta um saumavélar og stillingar og
hvenær hvert spor er notað og mismunandi nálar.
Stuttlega verður farið í það hvað klæðir best og hvað
skal varast í sniðum, og efnisval.
Það sem að þarf að hafa með sér, eru helstu verkfæri
til sauma, saumavél, skæri, títuprjónar, málband og
svo framvegis.
Við ætlum að reyna að hafa efni til sölu á staðnum.
Leiðbeinandi er Elín Árnadóttir.
Þátttakendur þurfa að vera 6-8 til að námskeið geti
farið fram. Námskeiðið fer þannig fram að þátttak-
endur hittast fjórum sinnum og vinna heima á milli.
Verð 25.000 kr. Athugið að stéttarfélög niðurgreiða
líka tómstundanámskeið.
SmáSkipavélavörður
- vélgæsla 750kW 12m og styttri
Viska býður upp á nám í vélaverði námið veitir rétt-
indi til að vera vélavörður á bát með allt að 750 kW
vél á bát sem er 12 m og stytti að skráningarlengd.
Um er að ræða bóklegt og verklegt nám. Verklegi
þátturinn felst í almennri vélstjórn og bilanagrein-
ingu. Farið verður í álagskeyrslu véla, dísilvélina +
kerfi, forhleðslu, rafmagn, eldsneyti + kerfi, afgas +
kerfi, varahluti og vetrargeymslu, reglur, kælikerfi
(freon!), vökvakerfi og frágang véla.
Námskeiðið hefst með kynningarfundi 7. febrúar
2019 kl. 17:00 og kennt er í lotum. Námið er alls
56,5 klukkutímar / 85 kennslustundir.
Verð er 130.000.kr. námskeiðsgögn eru innifalin í
verði. Námskeið eru háð því að tilskilin fjöldi þátt-
takenda sæki þau.
Athugið niðurgreiðslu frá stéttafélagi.
Þróun hugmyndar
að viðskiptatækifæri
Námskeiðið er sérsniðið að þörfum þeirra sem hafa
hug á að hrinda í framkvæmd og/eða þróa hugmynd
sína, læra um stofnun fyrirtækis og að koma hug-
myndum sínum á framfæri.
Inntak námskeiðs er sjálfstraust, sköpun, hugmynda-
flæði, viðskiptalíf á Íslandi, hagnýt tölvunotkun,
markaðsmál, viðskiptaáætlun, verkefnastjórnun,
bókhald og gerð reikninga.
Námskeiðið stendur í tvær vikur, 3 klst í senn
síðdegis 25 klst. í allt
aukin ökuréttindi,
oft kallað meirapróf
Stutt lýsing á námi til aukinna ökuréttinda / meira-
próf á rútu, vörubíl, eftirvagn og leigubíl Inntöku-
skilyrði:
• Til að fá inngöngu í skólann þarf viðkomandi
að hafa almennt bílpróf, þ.e. fullnaðarskírteini
og uppfylla aðrar þær reglur sem hið opinbera
setur hverju sinni.
• Hægt er að hefja nám 6 mánuðum áður en rétt-
indaaldri er náð.
• Aldur til réttinda á vörubifreið og vörubifreið
með eftirvagni er 21 árs, á leigubifreið 20 ár en
réttindi fyrir hópbifreið er hægt að taka 23 ára
eða eldri.
• Námið er bæði bóklegt og verklegt.
Stefnt er að því að halda meiraprófsnámskeið á vor-
önninni. Málið er í vinnslu og ekki hægt að fastsetja
neitt ennþá. Skráning er hafin. Námið er í samstarfi
við ökuskóla Vesturlands og verður haldið í Vest-
mannaeyjum.
myndlistarnámskeið
með sossu
Áhersla verður lögð á að þátttakendur vinni að
verkefnum sínum langa helgi og leitast við að að-
stoða hvern og einn eftir bestu getu.
Leikur með liti og striga....blönduð tækni. Olía,
kol, olíupastel og krít. Málverkið tekið á annað
stig. Komum okkur út úr viðjum vanans og út fyrir
þægindarammann sem við festumst öll í.
Haldið dagana 28. febrúar -1. mars. Við byrjum
á stuttum inngangi síðdegis föstudeginum 28.
Ferbrúar. Á laugardeginum byrjum við fyrir hádegi
á hugmyndavinnu og myndbyggingu. Eftir hádegi
sama dag og fram á síðdegi sunnudaginn.
Staðsetning auglýst síðar.
Verð 25.000 kr.
Athugið niðurgreiðslu frá stéttafélagi.
garnlitun!
Ráðum okkar litum á garni og þá verður prjónaskap-
urinn/áframhaldið eitt ævintýri.
Áttu örbylgjuofn? Áttu garn sem er ekki í réttum lit
eða langar þig að læra að lita garn? Guðrún Ólafs-
dóttir mun kenna ykkur að lita garn með heitum og
köldum litum, sem gefa möguleika á að lita ullar-,
silki-, hör- og bómullargarn. Þátttakandi kemur með
sitt eigið garn sem búið er að vefja upp í hespur.
Þáttakendur þurfa að mæta með svuntur.
Haldið 18.-19. apríl og kostar 17.500 kr.
Munið endurgreiðslu stéttarfélaga
dyravarðanámSkeið
Frá mars 2018 hefur eitt skilyrði skemmtanaleyfis í
Vestmannaeyjum verið að starfsfólk í dyravörslu hafi
lokið námskeiði og hafi gilt dyravarðaskírteini.
Að frumkvæði veitingamanna í Vestmannaeyjum
hefur Viska farið þess á leið við lögregluna að hafa
umsjón með námskeiði fyrir þau sem starfa eða hafa
hug á að starfa sem dyraverðir í Vestmannaeyjum
Meðal námsþátta:
Lög og reglugerðir; Áfengislög - Lög um löggæslu
á skemmtunum
Samskipti við lögreglu og neyðaraðila og atvika-
skráning
Tryggingar í starfi – réttindi og skyldur
Hlutverk dyravarða og ábyrgð
Samskipti og framkoma við gesti í óvæntum og
erfiðum uppákomum
Sjálfsvörn, borgaraleg handtaka, viðbrögð við
átökum (verklegt).
Fíkniefni - skoðun skilríkja
Brunavarnir, rýmingar og fjöldatakmarkanir.
Athugið að samkvæmt reglugerð skulu dyraverðir
hafa hreint sakavottorð og vera að minnsta kosti
20 ára. Dyraverðir þurfa einnig að hafa gilt skyndi-
hjálparskírteini. Að öðru leyti metur lögregslustjóri
hverjir teljast hæfir til að gegna dyravörslu.
Verð: 57.500 kr. með skyndihjálparnámskeiði
(49.500 kr. án skyndihjálparnámskeiðs).
Nemendur eru hvattir til að kanna möguleika á
námsstyrkjum hjá stéttarfélögum sínum.
Skráningarfrestur er til og með 5. febrúar.
arnór bakari og bollurnar
Arnór bakari ætlar að vera með námskeið í bollu-
bakstri. Hann ætlar að kenna hvernig vatnsdeigs-
bollur og gerbollur eru unnar. Námskeiðið fer fram í
heimilisfræðistofu Barnaskólanum.
Námskeiðið er sýnikennsla þar sem Arnór kennir
leyndardóma góðrar bollugerðar. Í lokin setjast þátt-
takendur niður og fá sér bollukaffi og hafa þá aðgang
að Arnóri til frekari spurninga. Uppskriftir fylgja.
Haldið miðvikudaginn 12. febrúar kl 17:00-20:30.
skráning á WWW.viskave.is | viSka@viskave.is | sími: 488-0103 eða 488 0115
námSkeið
framundan