Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 22.01.2020, Qupperneq 11

Fréttir - Eyjafréttir - 22.01.2020, Qupperneq 11
22. janúar 2020 | Eyjafréttir | 11 Við höldum áfram að kynna þau ótal félög sem starfandi eru í Eyjum. Að þessu sinni er það félag ungra sjálfstæðis- manna í Vestmannaeyjum, Eyverjar. En þeir fögnuðu nítíu ára afmæli á dögunum. For- maðurinn Ragnheiður Perla Hjaltadóttir sat fyrir svörum. Nafn á félagi: Eyverjar Hvað er félagið gamalt: Félagið var stofnað 20. desember 1929 og varð því 90 ára í desember sl. Hvað eru meðlimir margir? Skráðir félagar eru um 250 og stjórnina skipa 13 einstaklingar hverju sinni. Hverjir geta orðið meðlimir og hvernig? Allir á aldrinum 15-35 ára og hægt er að skrá sig í félagið með því að senda okkur skilaboð á facebook, email á eyverjarxd@ gmail.com eða einfaldlega heyra í einhverjum í félaginu. Hver er tilgangur félagsins: Tilgangur félagsins er meðal annars að hvetja ungt fólk til að taka þátt í gefandi stjórnmálastarfi þar sem frelsi fólks og fyrirtækja sem og jöfn tækifæri eru höfð að leiðarljósi. Einnig að auka áhuga ungmenna á samfélaginu okkar og hvetja þau til að láta í sér heyra og hafa áhrif. Hvernig fer starfið fram? Í stjórninni eru 7 aðalmenn og 6 varamenn og hittist stjórnin að jafnaði 1x í mánuði yfir vetrar- tímann og fundar. Við höldum svo reglulega viðburði sem eru opnir öllum. Fastir liðir eru útgáfa Stofna um áramótin, grímuballið á þrett- ándanum, golfmót á sumrin og svo allskonar fjör í kringum kosningar. Hvað er fram undan í vetur? Við erum nýbúin að halda upp á stóraf- mæli félagsins og okkar árlega grímuball svo að núna verður smá pása hjá okkur. Við reynum svo að hafa einhvern viðburð í kringum páskana og svo golfmót í sumar. Einnig er ætlunin hjá okkur að fjölmenna á næsta milliþing ungra Sjálfstæðismanna. Eitthvað annað? Við hvetjum ungt fólk til að koma og starfa með okkur enda er það mjög þroskandi og gefandi að vera í félagi eins og Eyverjum. Einnig bendum við á facebook og instagram síðuna okkar en við erum dugleg að setja fréttir og komandi viðburði þar inn. Mjög þroskandi og gefandi að vera í félagi eins og Eyverjum FélagSkapurinn Myndir frá 90 ára afmælisfögnuði Eyverja í desember. Það var tilfinn- ingaþrungin stund að fylgja Leif Magnúsi síðustu metrana austur í kirkjugarð eftir út- förina í Landakirkju föstudaginn 10. desember sl. Kistan á vagni sem dregin var af dráttarvél sem Leif Magnús hafði átt og líkfylgdin var fjölmenn og það hvíldi sorg yfir fólkinu og veðrinu. Síðustu metr- arnir frá vagninum að gröfinni voru varðaðir af fólki sem stóð heiðursvörð beggja vegna gönguleiðarinnar. Vestan megin voru starfsmenn Grunnskólans í Vestmannaeyjum og austan megin samnemendur og bekkjarsystkin drengsins, margt fólk. Mikið var það fallegt. Erfi var drukkið í Höllinni og ég sat á stól þegar flestir gestirnir voru farnir. Starfsmenn Grunnskólans í Vestmannaeyjum voru þá byrjaðir að taka dúka af borðum og ganga frá. Ég er að átta mig á aðstæðum og dást af þessu hjálpsama fólki. Þarna var hópurinn að verki sem sá um erfidrykkjuna, bakaði, þjónaði og gekk frá öllu, frá A til Ö. Það hafði verið listi í skólanum og starfs- fólkið skipti á sig bakkelsi og kökum með Einsa kalda sem lagði hús- næðið til, tæki og tól ásamt Herði Þór Harðarsyni. Þarna birtist mér styrkur samfélagsins í Eyjum þar sem öll bönd halda þegar á reynir. Eftir marga erfiða daga snart þessi stund okkur fjölskylduna mest þegar við upp- lifðum samkennd- ina og kærleikann í samfélaginu sem einkenndi allan undirbúning útfarar Leif Magnúsar. Allir lögðust á eitt, fjölmiðlar í Eyjum rukkuðu ekki auglýsingar, prestar og starfsfólk, kór og listamenn í Landakirkju voru mögnuð í öllu samstarfi eins og listafólkið úr fjölskyldu okkar sem stóð sig svo vel. Við erum þakklát, þökkum öllum sem lögðu okkur lið og gerðu útför Leif Magnúsar svo fallega í öllum skilningi. Fjölskylda Leif Magnúsar Grétarssonar Thisland. Við stöndum ekki ein Leif Magnús Grétarsson Thisland f. 22. janúar 2003 - d. 11. desember 2019 AðAlsAfnAðArfundur OfAnleitissóknAr Og AðAlfundur kirkjugArðs VestmAnnAeyjA Sunnudaginn 26. janúar verður haldinn aðalsafnaðarfundur Ofanleitissóknar og Kirkjugarðs Vestmannaeyja í Safnaðar- heimili Landakirkju. Fundurinn fer fram að loknu messuhaldi þess dags og hefst kl. 15.00. Dagskrá fundar: - Aðalfundarstörf skv. lögum og starfs- reglum Þjóðkirkjunnar. sóknarnefnd landakirkju

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.