Kópavogsblaðið - 29.11.2013, Side 2
Ingibjörg Hinriksdóttir
„Það er svo merkilegt
að jólin koma ekki fyrr
en maður hefur fengið
“Íslensk knattspyrna”
bókina í hendurnar. Miðað
við það sem Víðir Sigurðs-
son segir þá koma jólin
snemma í ár!“
Sigurjón Sigurðsson
„Jæja, klárlega miklar
framfarir hjá okkur, þökk
sé knattspynuhöllunum í
Kópavogi. Nú verða Kópa-
vogsbúar að vera duglegir
í svefnherberginu að framleiða fleiri nýja
snillinga. Þjóðin treystir á Kópavog.“
Blaz Roca
HAMRABORG, SLAMCITY
OF DREAMS!
Stígur Stefánsson
„Er á landsleik Finna og
Svía í íshokkí. Mínir menn,
þeir blágulu, eru yfir 2-1.“
STÖÐUTAKA
Á FACEBOOK
Performing my own song
“My Broken Chord” with
Christian Asmussen last
Saturday night in Copenha-
gen CVI
Bergljót Arnalds
Takk fyrir Eiður Smári,
þú hefur hitað manni í öll
þessi ár.
Heiðar Bergmann
Heiðarsson
NÝTT LAG!!! // NEW SONG!!
Check it out, share, like, or
just sing along:)
Awesome - SamSam
www.youtube.com
Gréta Mjöll Samúels-
dóttir
Unglingadeild Leikfélags Kópavogs
frumsýndi nýtt frumsamið leikverk á
dögunum. Verkið heitir Kemurr’á deit?
og var samið og unnið í hópvinnu undir
stjórn leikstjórans Ástbjargar Rutar
Jónsdóttur. Sextán leikarar taka þátt í
sýningunni.
Unglingadeild LK hefur komið víða
við á undanförnum árum og grands-
koðað ýmislegt í mannlífinu og utan
þess svo sem blóðsugur, Facebook, líf
unglingsins og fleira. Nú er komið að
ástinni sem hópurinn skoðar með sínum
sérsmíðuðu gleraugum.
Hægt er að kaupa miða á Miðakaup og
kostar stykkið heilar 500 krónur. Einnig
er hægt að senda inn pöntun á midasala@kopleik.is.
Kemurr’á deit?
Einstæð handritasýning
Íslenska teiknibókin
er einstæð meðal
handrita í safni Árna
Magnússonar. Hún er
ein af fáum fyrirmynd-
abókum sem varðveist
hafa í Evrópu og sú
eina frá Norðurlöndum.
Myndirnar eru gerðar
af fjórum óþekktum
listamönnum á tímabilinu
1350-1500. Myndirnar
voru ætlaðar til nota við
ýmis konar listsköpun,
aðallega í listaverk af
kristilegum toga.
Bókin var í notkun
fáum áratugum áður
en hún komst í eigu
Árna Magnússonar um
aldamótin 1700. Það mun
einsdæmi um miðalda-
teiknibók.
Ekki er hægt að hafa
Teiknibókina til sýnis
að jafnaði vegna
ástands blaðanna. Þegar
handritið var flutt frá
Kaupmannahöfn hingað
til lands 2. júní 1991 var
keypt undir hana flugsæti
svo að hún yrði fyrir sem
minnstu hnjaski.
Á sýningunni í Gerðar-
safni er eftirgerð á skinn
af nokkrum blöðum
handrits. Auk þess hefur
bókin verið prentuð í
heild í raunstærð. Þá hafa
allmargar fyrirmyndir
verið teiknaðar upp í
tölvu í því skyni að gera
þeir algengilegri fyrir
almenning
.
Sýningin sem opnuð var
á afmælisdag Árna 13.
nóvember stendur til
2. febrúar 2014.
Þuríður Ósk Smaradóttir
Ég verð með bás á Hönnun
og handverk í Kópa-
vogi á laugardaginn frá
12-18 í Safnaðarheimili
Kópavogskirkju, sem er
partur af aðventuhátíð í
Kópavogi, allir að mæta:)
Kópavogsblaðið kfrettir.is
Stuttar bæjarfréttir
2
Stórglæsileg aðventuhátíð
Ungir sem aldnir létu kuldabola ekki á sig fá og dönsuðu á Aðventuhátið
bæjarins í kringum jólatréð sem nú lýsir upp Hálsatorg. Tréð kemur frá
vinabænum Norrköping í Svíþjóð. Aðventuhátíðin hefur sjaldan verið
glæsilegri. Listamenn úr bænum seldu handverk og hönnun í safnaðarheimili
Kópavogskirkju. Í safnahúsunum á Borgarholtinu var jólakötturinn á kreiki,
karlakór Kópavogs tók lagið í Gerðarsafni og einn af jólasveinabræðrunum
lét sjá sig. Jólaljósin lýsa nú upp Hamraborgina og svæðið í kring og hanga
meðal annars fallegar jólaseríur á brúnni.