Kópavogsblaðið - 29.11.2013, Page 4

Kópavogsblaðið - 29.11.2013, Page 4
Kópavogur hefur eignast enn einn atvinnumanninn í fótbolta því eins og kunnugt er gekk sóknar-maðurinn efnilegi, Hólmbert Aron Friðjónsson, fyrrum leikmaður HK og síðast FRAM, nýlega í raðir skoska úrvalsdeildarfélagsins Celtic. Þetta sögufræga skoska lið leikur i sama búningi og Íþróttafélag Kópavogs, ÍK, lék í á árum áður – þverröndóttum grænum treyjum. Saga ÍK og Celtic er tvinnuð saman en Jóhannes Edvaldsson, sem lék með liðinu á árum árum, var sérstakur verndari ÍK þar sem „Jóhannesar Edvaldssonar skjöldurinn“ var veittur bestu leikmönnum félagsins ár hvert. ÍK heitið rann inn í HK þaðan sem Hólmbert sleit takkaskónum. Og nú fær Celtic okkar besta son. -Það er hörð baráttan um að komast í liðið hjá Celtic. Hvernig leggst þetta í þig? „Bara mjög vel. Ég er mjög spenntur en líka örlítið stressaður. Þetta er hörku lið en ég fékk góðar móttökur hjá þeim og þjálfarinn, Neil Lennon, hefur trú á mér. Það eru margir góðir leikmenn hjá Celtic og ekki sjálfgefið að komast í liðið en ég mun leggja mig allan fram,“ segir Hólmbert Aron. -Þú ert fæddur og uppalinn í Kópavogi? „Já, og HK-ingur fram í fingurgóma.. Ég bjó í Hlíðarhjalla en hef nú upp á síðkastið búið í Salarhverfinu. Ég gekk í Digranesskóla þar sem menn eins og Hannes Guðmundsson og Skafti Þ. Halldórsson reyndu að kenna mér eitthvað en ég vildi oftast vera í fótbolta að æfa mig. Ég lék minn fyrsta leik í fyrstu deildinni sautján ára gamall fyrir HK. Kópavogur er minn bær og HK er mitt lið,“ segir Hólmbert. -Hvernig er svo að vera kominn í ÍK treyjuna? „Þetta er bara gríðarlega flott treyja! Gaman að sögulegu tengingunni við gamla ÍK, en ég er of ungur til að muna hana. Það eru margir ÍK-ingar sem starfa í HK og margar sögur sagðar. En treyjan er flott og ég hlakka til að reyna mig með Celtic. -Þú gekkst í raðir FRAM árið 2011 og negldir inn fullt af mörkum þannig að eftir var tekið. Celtic sýndi fljótt áhuga, gengu félagsskiptin hratt fyrir sig? „Já, þetta tók um fjórar vikur frá því Celtic hafði samband við FRAM þangað til kaupin gengu í gegn. Eftir að þeir gerðu tilboð gekk þetta fljótt og vel. Mér líst mjög vel á að leika með Celtic og ætla að láta ljós mitt strax skína. Það er hörð samkeppnin um stöðurnar eins og hjá flestum stórliðum sem eru í Meistaradeildinni. Celtic á leik gegn AC Milan í lok nóvember en ég verð löglegur með liðinu strax eftir áramót þegar félagsskiptin ganga formlega í gegn. Ég fer út núna í byrjun desember og byrja að æfa aftur eftir stutt hlé,“ segir Hólmbert sem hefur haldið sér í góðu formi þrátt fyrir að keppnistímabilið sé löngu búið á Íslandi. -Margir muna eftir þegar Celtic sigraði Barcelona í Meistaradeildinni í fyrra og söngvarinn Rod Stewart, sem er eldheitur stuðningsmaður liðsins, grét í stúkunni. Þetta er hörkulið? „Já, það þarf hörkulið til að sigra Barcelona. Það eru kannski ekki þekktir leikmenn sem leika með liðinu, fyrir utan Geor- gios Samaras, gríska landsliðsmanninn, og ef til vill Scott Brown, fyrirliða, en svo er líka hörku markmaður, Fraser Forster sem hefur verið varamarkvörður enska landsliðsins. Liðið er mjög þétt og hefur metnað til að ná lengra.“ -Hvað viltu segja að lokum við unga lesendur Kópavogsblaðsins sem hafa hug á atvinnumennsku i knattspyrnu? „Æfa, æfa og æfa. Það er það sem hefur fleytt mér hingað, fyrst og fremst. Aldrei að gefast upp og vera úti á fótboltavelli alla daga, öllum stundum. Æfa sig með boltann og hafa metnað til að ná lengra. Þetta er það sem ég hef alltaf gert og ætla áfram að gera.“ -Hvenær er svo fyrsti leikurinn? „Ég verð löglegur með liðinu strax eftir áramótin en ég þarf að hafa fyrir því að komast í liðið. Það eru góðir knatt- spyrnumenn í Celtic og ég þarf virkilega að hafa fyrir því að minna á mig. En þjálfarinn hefur trú á mér og það hve- tur mig áfram,“ segir Hólmbert Aron Friðjónsson, fyrrum leikmaður HK sem nú er genginn í raðir Celtic í Skotlandi. Úr HK í FRAM og frá FRAM í „ÍK“ Sportið: Hólmbert Aron er nýjasti atvinnumaðurinn í fótbolta úr Kópavogi. Leikur með Celtic í Skotlandi. Hólmbert Aron í leik með HK. Mynd: Eva Björk Ægisdóttir. Hólmbert fagnaði bikarmeistaratitli með FRAM í sumar og raðaði inn mörkum fyrir Safamýrapilta. Mynd: Eva Björk Ægisdóttir. Kópavogsblaðið kfrettir.is4 Viðtalið Celtic og HK Samningur Hólmberts við Celtic er mjög sögulegur fyrir knattspyrnuna í HK. Mikil tengsl voru á milli Celtic og ÍK, sem var forveri knattspyrnudeildar HK. Jóhannes Eðvaldsson, þáverandi landsliðsfyrirliði og leikmaður Celtic, var verndari ÍK við stofnun félagsins árið 1976, og félagið lék í hinum frægu þverröndóttu, grænu og hvítu, Celtic-búningum. Fyrsta utanlandsferðin í sögu ÍK var farin til Skotlands árið 1979, þegar 3. flokkur karla fór þangað, og þá voru höfuðstöðvar Celtic einmitt heimsóttar. Núverandi formaður meistaraflokksráðs karla hjá HK, Þórir Bergsson, var einmitt í hópi 3. Flokks piltanna í ÍK á þessum tíma, sem og annar mikill HK-ingur, Sigvaldi Einarsson.

x

Kópavogsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kópavogsblaðið
https://timarit.is/publication/1117

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.