Kópavogsblaðið - 29.11.2013, Qupperneq 4
Kópavogur hefur eignast enn einn atvinnumanninn í fótbolta því eins og kunnugt er gekk sóknar-maðurinn efnilegi, Hólmbert Aron Friðjónsson,
fyrrum leikmaður HK og síðast FRAM, nýlega í raðir
skoska úrvalsdeildarfélagsins Celtic. Þetta sögufræga
skoska lið leikur i sama búningi og Íþróttafélag Kópavogs,
ÍK, lék í á árum áður – þverröndóttum grænum treyjum.
Saga ÍK og Celtic er tvinnuð saman en Jóhannes
Edvaldsson, sem lék með liðinu á árum árum, var
sérstakur verndari ÍK þar sem „Jóhannesar Edvaldssonar
skjöldurinn“ var veittur bestu leikmönnum félagsins ár
hvert. ÍK heitið rann inn í HK þaðan sem Hólmbert sleit
takkaskónum. Og nú fær Celtic okkar besta son.
-Það er hörð baráttan um að komast í liðið hjá Celtic.
Hvernig leggst þetta í þig?
„Bara mjög vel. Ég er mjög spenntur en líka örlítið
stressaður. Þetta er hörku lið en ég fékk góðar móttökur
hjá þeim og þjálfarinn, Neil Lennon, hefur trú á mér. Það
eru margir góðir leikmenn hjá Celtic og ekki sjálfgefið
að komast í liðið en ég mun leggja mig allan fram,“ segir
Hólmbert Aron.
-Þú ert fæddur og uppalinn í Kópavogi?
„Já, og HK-ingur fram í fingurgóma.. Ég bjó í Hlíðarhjalla
en hef nú upp á síðkastið búið í Salarhverfinu. Ég gekk í
Digranesskóla þar sem menn eins og Hannes Guðmundsson
og Skafti Þ. Halldórsson reyndu að kenna mér eitthvað
en ég vildi oftast vera í fótbolta að æfa mig. Ég lék minn
fyrsta leik í fyrstu deildinni sautján ára gamall fyrir HK.
Kópavogur er minn bær og HK er mitt lið,“ segir Hólmbert.
-Hvernig er svo að vera kominn í ÍK treyjuna?
„Þetta er bara gríðarlega flott treyja! Gaman að sögulegu
tengingunni við gamla ÍK, en ég er of ungur til að muna
hana. Það eru margir ÍK-ingar sem starfa í HK og margar
sögur sagðar. En treyjan er flott og ég hlakka til að reyna
mig með Celtic.
-Þú gekkst í raðir FRAM árið 2011 og negldir inn fullt
af mörkum þannig að eftir var tekið. Celtic sýndi fljótt
áhuga, gengu félagsskiptin hratt fyrir sig?
„Já, þetta tók um fjórar vikur frá því Celtic hafði samband
við FRAM þangað til kaupin gengu í gegn. Eftir að þeir
gerðu tilboð gekk þetta fljótt og vel. Mér líst mjög vel á
að leika með Celtic og ætla að láta ljós mitt strax skína.
Það er hörð samkeppnin um stöðurnar eins og hjá flestum
stórliðum sem eru í Meistaradeildinni. Celtic á leik gegn AC
Milan í lok nóvember en ég verð löglegur með liðinu strax
eftir áramót þegar félagsskiptin ganga formlega í gegn. Ég
fer út núna í byrjun desember og byrja að æfa aftur eftir stutt
hlé,“ segir Hólmbert sem hefur haldið sér í góðu formi
þrátt fyrir að keppnistímabilið sé löngu búið á Íslandi.
-Margir muna eftir þegar Celtic sigraði Barcelona í
Meistaradeildinni í fyrra og söngvarinn Rod Stewart,
sem er eldheitur stuðningsmaður liðsins, grét í stúkunni.
Þetta er hörkulið?
„Já, það þarf hörkulið til að sigra Barcelona. Það eru kannski
ekki þekktir leikmenn sem leika með liðinu, fyrir utan Geor-
gios Samaras, gríska landsliðsmanninn, og ef til vill Scott
Brown, fyrirliða, en svo er líka hörku markmaður, Fraser
Forster sem hefur verið varamarkvörður enska landsliðsins.
Liðið er mjög þétt og hefur metnað til að ná lengra.“
-Hvað viltu segja að lokum við unga lesendur
Kópavogsblaðsins sem hafa hug á atvinnumennsku i
knattspyrnu?
„Æfa, æfa og æfa. Það er það sem hefur fleytt mér
hingað, fyrst og fremst. Aldrei að gefast upp og vera úti á
fótboltavelli alla daga, öllum stundum. Æfa sig með boltann
og hafa metnað til að ná lengra. Þetta er það sem ég hef
alltaf gert og ætla áfram að gera.“
-Hvenær er svo fyrsti leikurinn?
„Ég verð löglegur með liðinu strax eftir áramótin en ég
þarf að hafa fyrir því að komast í liðið. Það eru góðir knatt-
spyrnumenn í Celtic og ég þarf virkilega að hafa fyrir því
að minna á mig. En þjálfarinn hefur trú á mér og það hve-
tur mig áfram,“ segir Hólmbert Aron Friðjónsson, fyrrum
leikmaður HK sem nú er genginn í raðir Celtic í Skotlandi.
Úr HK í FRAM og frá FRAM í „ÍK“
Sportið: Hólmbert Aron er nýjasti atvinnumaðurinn í fótbolta úr Kópavogi. Leikur með Celtic í Skotlandi.
Hólmbert Aron í leik með HK.
Mynd: Eva Björk Ægisdóttir.
Hólmbert fagnaði bikarmeistaratitli með FRAM í
sumar og raðaði inn mörkum fyrir Safamýrapilta.
Mynd: Eva Björk Ægisdóttir.
Kópavogsblaðið kfrettir.is4
Viðtalið
Celtic og HK
Samningur Hólmberts við Celtic er mjög
sögulegur fyrir knattspyrnuna í HK. Mikil
tengsl voru á milli Celtic og ÍK, sem var
forveri knattspyrnudeildar HK. Jóhannes
Eðvaldsson, þáverandi landsliðsfyrirliði
og leikmaður Celtic, var verndari ÍK við
stofnun félagsins árið 1976, og félagið lék
í hinum frægu þverröndóttu, grænu og
hvítu, Celtic-búningum.
Fyrsta utanlandsferðin í sögu ÍK var farin
til Skotlands árið 1979, þegar 3. flokkur
karla fór þangað, og þá voru höfuðstöðvar
Celtic einmitt heimsóttar. Núverandi
formaður meistaraflokksráðs karla hjá
HK, Þórir Bergsson, var einmitt í hópi
3. Flokks piltanna í ÍK á þessum tíma,
sem og annar mikill HK-ingur, Sigvaldi
Einarsson.