Kópavogsblaðið - 29.11.2013, Síða 6
Dögun, stjórn-m á l a s a m t ö k um réttlæti
lýðræði og sanngirni,
sem buðu fram í öllum
kjördæmum í síðustu
A l þ i n g i s k o s n i n g u m
munu láta til sín taka í
komandi sveitarstjór-
narkosningum – ein
sér eða í samstarfi við
íbúahreyfingar, flok-
ka eða málefnahópa
– þar sem jarðvegur
er fyrir hendi.
Á fundinum var
kynnt könnun frá
Félagsvísindastofnun um
hver yrðu helstu mál sveitarstjórnarkosninganna og hvaða
áhuga Dögun vekti í því samhengi. Athygli vakti að nærri
30% svarenda á landsvísu sögðust örugglega ætla að kjósa
Dögun eða gætu hugsað sér það.
Einnig var á fundinum kjörinn þriggja manna hópur til að
vinna með framkvæmdaráði Dögunar að því að styðja við
einstaklinga og hópa sem vilja vinna að sveitarstjórnarmálum
í sínu sveitarfélagi í samstarfi við, eða undir merkjum og
málefnaáherslum Dögunar. Hópinn skipa Gísli Tryggvason,
Margrét Tryggvadóttir og Björgvin Vídalín.
Það sem vekur sérstaka athygli Kópavogsblaðsins
eru nöfn tveggja Kópavogsbúa í þessum hóp, Mar-
grét Tryggvadóttir fyrverandi þingmaður og Gís-
li Tryggvason talsmaður neytenda. Mun annað
þeirra eða bæði leiða lista Dögunar í Kópavogi?
„Það eru margir innan okkar raða sem starfa á vettvangi
sveitastjórna og íbúahreyfinga auk þess sem málefnaáherslur
okkar um aukið lýðræði, gegnsæi og húsnæðis- og
skólamál eiga brýnt erindi,“ segir Margrét Tryggvadóttir,
bókmenntafræðingur og fyrrverandi þingmaður Dögunar.
-Hafið þið sett saman framboðslista í Kópavogi nú
þegar?
„Undirbúningshópur okkar mun ræða hvort við munum
bjóða fram undir okkar eigin nafni eða í samstarfi við aðra
flokka. Það er alveg opið með hvaða hætti þetta verður“
segir Margét.
-Hafið þið rætt við til dæmis Kópavogslistann um samstarf?
„Það hefur ekki verið rætt við nein framboð ennþá formlega
en við útilokum ekki neitt. Könnun Félagsvísindastofnunar
sýnir, svo ekki verði um villst, að fólk vill nýja og ferska
nálgun í stjórnmálin og það er kominn tími á þann valkost í
Kópavogi,“ segir Margrét Tryggvadóttir.
Í viðtali við Kópavogsblaðið í síðustu viku gerði Ómar Stefánsson, oddviti Framsóknarfl okksins í Kópavogi, upp
stjórnmalaferilinn, en hann hefur sem
kunnugt er ákveðið að taka sér hlé frá
þátttöku í stjórnmálum. Í viðtalinu nefndi
Ómar að kastast hefði í kekki milli hans
og Gunnars Inga Birgissonar, fyrrverandi
bæjarstjóra, svo að til átaka hafi komið,
einkum þegar rætt var um gerð ársskýrslu
bæjarins.
„Ég stakk upp á að við buðum út verkefnið.
Þá varð Gunnar svo reiður að hann strunsaði
út úr fundarherberginu með þeim orðum að
ég væri á móti sér og sinni fjölskyldu. Ég elti
hann og svaraði því fullum hálsi en þá sló
hann mig fast í bringuna „að sjómannasið,“
eins og sagt er. Mér krossbrá og snöggreiddist
við þetta og elti hann að skrifstofu hans en
þá skellti hann hurðinni beint á nefi ð á mér.
Það sauð á mér þarna og munaði litlu að ég
rifi upp hurðina inn á skrifstofu hans og færi
bara almennilega í kallinn,“ sagði Ómar.
Nokkrum dögum að eftir að þetta viðtal
við Ómar birtist sendi Gunnar frá sér
grein í Morgunblaðið þar sem hann rekur
forsöguna að því þegar þáverandi meiri-
hluti Samfylkingar, Vinstri grænna, Næst-
besta fl okksins og Y-lista, sprakk vegna
þess sem hann segir hafa verið kröfu Sam-
fylkingar og VG um að segja Guðrúnu Páls-
dóttur, þáveranda bæjarstjóra, upp störfum.
Sjálfstæðisfl okkurinn hafi gagnrýnt þetta
enda hafi Guðrún verið fórnarlamb í pólitískri
atburðarrás, segir Gunnar og bætir þessu við:
„Við tók nýr meirihluti Sjálfstæðisfl okks,
Framsóknarfl okks og Y-lista. Þessi meirihluti
gekk frá starfslokasamningi við Guðrúnu
þar sem var lögð áhersla á að virða samning
fyrri meirihluta við hana þar á meðal að hún
fengi sitt gamla starf sviðstjóra menningar-
mála aftur eða sambærilega sviðsstjórastöðu
þegar hún kæmi aftur til starfa. Allt gekk vel
þar til Guðrún átti að koma til starfa og gera
þurfti breytingar á skipuriti bæjarins vegna
samningsins. Þá bar svo við að bæjarfulltrúi
Framsóknarfl okksins neitaði að standa við
samninginn og málið komið í uppnám. Hvað
skyldi nú hafa valdið þessari afstöðu Ómars?
Á tíma Guðrúnar sem bæjarstjóra stækkaði
Ómar íbúðarhúsnæði sitt og þurfti að greiða
bænum gatnagerðargjöld. Hann fór fram
á að greiða þau með jöfnum afborgunum.
Þessu hafnaði Guðrún eðlilega, gat ekki
annað, enda hefði hún með slíkum gjörningi
mismunað öðrum byggjendum sem fl estir
gætu sjálfsagt notað tilslakanir á greiðslum.
Þetta fór illa í bæjarfulltrúann og nú var
komið að skuldadögum,“ segir Gunnar Ingi
Birgisson.
Gunnar rekur síðan að Guðrún hafi verið sett
á ís á grundvelli tillagna um nýtt skipurit þar
sem hún hafi verið sett í sviðstjórastarf án
sviðs. Örfáum mánuðum seinna hafi Ármann
Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, einhliða lagt til að
starf Guðrúnar yrði lagt niður.
„Ekki átta ég mig á hvað bæjarstjóri hefur
á móti Guðrúnu sem hefur að baki 25 ára
farsælan starfsferil í bænum ,kannski áhr-
if meðreiðarsveina. Formaður bæjarráðs,
Rannveig Ásgeirsdóttir, Y-lista, studdi þessa
aftöku Guðrúnar. Fyrir síðustu kosningar pre-
dikaði hún heiðarleika, mannúð og gegnsæi
í stjórnmálum sem hún hefur greinilega
gleymt nú. Þegar aftakan hafði verið ákveðin
var Guðrúnu birt uppsögnin af stefnuvotti
í leigubíl. Sviðstjóri stjórnsýslusviðs sem
hefur numið guðfræði og stjórnsýslufræði
kvittaði undir aftökubréfi ð í fjarveru bæ-
jarstjóra,“ segir Gunnar Ingi Birgisson
og bætir því við að Guðrún Pásdóttir sé
leikskoppur örlaganna í þessari atburðarrás
og að þessi framkoma sé Kópavogsbúum til
háborinnar skammar.
Gunnar Ingi Birgisson,
fyrrverandi bæjarstjóri.
Dögun undirbýr framboð í Kópavogi
Kópavogsblaðið kfrettir.is6
Í umræðunni
Gunnar Ingi Birgisson: „Framkoman við Guðrúnu Pálsdóttur, fyrrverandi bæjarstjóra, er
Kópavogsbúum til háborinnar skammar.“
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-flokks í bæjarstjórn Kópavogs heldur velli, ef gengið yrði til kosninga nú, samkvæmt könnun
Félagsvísindastofnunar sem unnin var fyrir Morgun-
blaðið. Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig manni en Y-
listinn, listi Kópavogsbúa, sem nú myndar meirihluta með
Sjálfstæðisflokki og Framsókn, myndi tapa sínum manni,
ef kosið yrði nú.
Sjálfstæðisflokkurinn fer úr 30,2% fylgi úr kosningunum
2010 í 41,4% ef gengið yrði til kosninga nú, bætir við
sig manni í bæjarstjórn og fengi fimm menn kjörna nú.
Framsókn heldur sínum manni og bætir við fylgi sitt, fer
úr 7,2% frá síðustu kosningum í 9,5% ef kosið yrði nú.
Kópavogslistinn fer úr 10,2% fylgi niður í 3% samkvæmt
könnuninni.
Meirihlutaflokkar úr fyrri bæjarstjórn; Samfylking, Vinstri
Grænir og Næstbesti flokkurinn tapa fylgi, samkvæmt
könnun Félagsvísindastofnunar. Samfylking færi úr 28%
niður í 14,5% og tapar manni í bæjarstjórn, úr þremur í
tvo. Vinstri Grænir halda sínum manni í rétt rúmum 9% en
Næstbesti flokkurinn hrynur úr 13,8% niður í 0,6% Björt
framtíð mælist með 13,9% fylgi og ná inn manni. Það gera
líka Píratar sem mælast með 7,7% og ná inn manni, sam-
kæmt könnun Félagsvísindastofnunar sem birt er í Morgun-
blaðinu.
Könnunin fór fram dagana 6. til 25. nóvember. Úrtakið
var samanlagt 1.012 manns. Svarhlutfallið var 60% Flestir
kjósenda töldu fjármál sveitarfélagsins vera þeim efst í huga
þegar þeir voru spurðir hvert væri mikilvægasta pólitíska
verkefnið sem sveitarfélagið stæði frammi fyrir um þessar
mundir.
Sjálfstæðisflokkur og Framsókn bæta við sig í fylgi í könnun Félagsvísindastofnunar.