Kópavogsblaðið - 29.11.2013, Síða 10

Kópavogsblaðið - 29.11.2013, Síða 10
„Miklir möguleikar ef Sorpa flytur frá Dalveginum.“ Undanfarin ár hef ég skrifað eina og eina grein um bæjarfélagið mitt Kópavog. Að mestu hafa þær fjallað um ferðaþjónustu í Kópavogi, verslun og þjónustu á miðju höfuðborgarsvæðinu og undirbúning að stofnun Markaðsstofu Kópavogs. Á þessu hef ég mikinn áhuga og mig langar að skapa umræður á meðal bæjar- búa um bæinn okkar, um skipulagsmál, um viðburði, um skólamál, um íþróttafélögin og almennt um þróun og uppbyggingu í Kópavogi. Ekki til að gagnrýna heldur til að við hjálpumst að við að þróa bæjarfélagið. Við getum kallað það almenningsstjórnmál, eins og einhver sagði. Við erum svo sannalega ekki komin á endastöð í þróun og uppbyggin- gu í Kópavogi og tilefni greinarinnar í dag er Dalvegurinn, en fyrst aðeins að mér sjálfri. Ég bý í Lindahverfi, því sæki ég mest alla þjónustu í Lindir, Smárahverfið og efri byggðir Kópavogs. Ég versla mat- vöru meðal annars í Krónunni, Bónus og Kosti. Finnst þæginlegt að hafa Lyfju, Sýslumanninn, Pósthúsið og öll hin fyrirtækin í nágrenninu. Freistast stundum á Smáratorgi eða í Smáralind á leiðinni heim og sæki í Turninn í auknu mæli. Heilsugæslan og Læknavaktin er í göngufæri, fisksa- linn, fatahreinsun, föndurbúðin og allar hinar verslanirnar í stafrófinu eru hér allt í kring um mig. Ef við horfum á Dalveginn í heild þá höfum við tvær stórar akkerisverslanir á sitthvorum endanum, annars vegar Smáralind og hins vegar Byko. Þar á milli er eitt flottasta og dýrasta verslunar- og þjónustusvæði á höfuðborgarsvæðinu. Uppbygging á eftir að eiga sér stað þar sem gróðrarstöðin Birkihlíð stóð en nær Smáratorgi er mikil gróska í verslun og þar er einnig fjöldi veitingastaða. Á nitjándu hæð í Turninum við Smáratorg er veitingastaður sem er að hasla sér völl í markaðssetningu meðal ferðamanna og kynnir sig sem The Tower Restaurant, „It is the highest restaurant in Iceland with spectacular view to the sea and the beautiful mountain circle.“ Smáralind, Smáratorg, Dalvegur og Smiðjuhverfi er ekki bara verslunarsvæði á miðju höfuðborgarsvæðinu heldur verður klárlega miðstöð verslunar og þjónustu fyrir stór- höfuðborgarsvæðið á næstu árum. Við höfum alla burði til að ná þeirri forystu, fjölga fyrirtækjum og um leið hækka atvinnustigið í bænum okkar. Eitt er þó sem ég staldra við og hef gert í nokkur ár, það er staðsetning Sorpu á Dalveginum. Við erum með móttökustöð fyrir rusl og endurvinnslu á verðmætasta verslunarsvæðinu á landinu. Að mínu mati er ekki skynsamlegt að hafa slíka starfsemi á Dalveginum. Það fer ekki saman að hafa þessa miklu umferð gámabíla akandi um aðal verslunarsvæðið í Kópavogi. Það er ekki snyrtilegt, óspennandi fyrir fyrirtækin í nágrenninu og beinlínis hættulegt. Ég veit ekki um neitt annað bæjarfélag sem hefur móttökustöð fyrir rusl og endurvinnslu á aðal verslunarsvæðinu hjá sér. Ég tala um aðal verslunarsvæði því miðbær Kópavogs er skilgreindur í Hamraborg.. Engar ákvarðanir né umræður hafa verið um að flytja Sorpu af Dalveginum, sem mér finnst miður. Það þyrfti ekki að fara mjög langt með Sorpu, t.d upp við Áhaldahús eða á aðrar slóðir, það þarf bara vilja til að finna út úr því. Ég sé fyrir mér mikla möguleika ef Sorpa flytur frá Dalveginum. Þetta er skjólgott svæði í nálægð við fallegt grænt svæði í tengingu við göngustíga og fallegt útivistars- væði. Hvort sem þarna yrði grænt torg með kaffihúsi eða lágreist verslunarhúsnæði er ljóst að það mun lyfta svæðinu mikið að fá þarna aðra og hentugri starfsemi. Nú langar mig til að spyrja ykkur Kópavogsbúa hvað ykkur finnst um staðsetningu Sorpu á Dalvegi? Theodóra Þorsteinsdóttir Lögfræðingur og í Y- Lista Kópavogsbúa Theodóra Þorsteinsdóttir, Lögfræðingur og í Y-lista Kópavogsbúa. Sunnudagar í Hjallakirkju á aðventu Guðsþjónustur alla sunnudaga kl. 11. 1. desember kl. 13.00 Jólaföndur fjölskyldunnar. Jólakort föndruð og lituð við ljúfa jólatóna, smákökur og kakó. Efni og veitingar í boði kirkjunnar. 8. desember kl. 11.00 Kór Álfhólsskóla syngur í guðsþjónustu. Kl. 13.00 Sunnudagaskóli 20.00 Aðventutónleikar Kórs Hjallakirkju. Fjölbreytt efnisskrá. Ókeypis aðgangur. 15. desember kl. 13.00 Jólaball sunnudagaskólans. Yngsti kór Álfhólsskóla syngur. Jólasveinar ganga með í kringum jólatréð. 22. desember Kl. 11.00 Við syngjum inn jólin . Kór Hjallakirkju og Kór Víðistaðakirkju í Hafnarfirði, syngja ásamt öllum kirkjugestum. Ritningarlestur og ljóð lesin milli sálma. Minnum á annað kirkjustarf, sjá www.hjallakirkja.is “Við kveikjum einu kerti á...” Óhætt er að segja að Kópavogur sé að styrkja hlutverk sitt sem öflugt svæði ver- slunar og þjónustu með þeirri uppbyggingu sem átt hefur sér stað á Nýbýlaveginum á síðustu vikum og mánuðum. Með opnun verslunar Bónus, fremst á Nýbýlavegi, hófst uppbygging sem vonandi á eftir að styrkja atvinnusvæðið í kring, þar með talið Auðbrekku og Hamraborg. Lyfja, ZO- ON, líkamsræktarstöðin Sparta, heildsalan K. Karlsson, hönnunarverslunin Ræman, fasteignasalan Domusnova og kaffihúsið Kruðerí eru fyrirtæki sem nýverið hafa komið sér fyrir fremst á Nýbýlavegi og brátt munu Fylgifiskar, Tokyo sushi, Serrano og Nam bætast í hóp þessara fyrirtækja. Nýbýlavegurinn liggur nálægt miðbæ Kópavogs en þar er kjarni stjórnsýslu, ver- slunar, þjónustu og menningar. Á hverjum degi eiga þúsundir íbúa höfuðborgars- væðisins leið um þennan hluta Kópavogs sem teygir sig frá Nýbýlavegi að Ham- raborg. Margir hafa tekið uppbyggingunni á Nýbýlavegi fagnandi og má búast við að jákvæð uppbygging á Nýbýlaveginum styrki svæðið allt frá Nýbýlavegi að Ham- raborg. En það er ekki bara á Nýbýlaveginum sem góðir hlutir eru að gerast. Uppbygging á sér stað víða í bænum og má sem dæmi nefna að fyrirtækjum hefur fjölgað mikið á svæðinu í kringum Smáratorg, í Bæjarlind, Hlíðarsmára og Hæðarsmára. Til er orðinn öflugur ás verslunar og þjónustu sem teygir sig frá Smiðjuhverfi, eftir Dalveginum og inn á svæðið við Smáralind. Eftirspurn fyrirtækja eftir húsnæði í Kópa- vogi er því mikil og skal engan undra því Kópavogur er miðja höfuðborgarsvæðisins og erfitt að ímynda sér betri staðsetningu fyrir verslun og þjónustu. Áshildur Bragadóttir framkvæmdastjóri Markaðsstofu Kópavogs Jákvæð uppbygging verslunar og þjónustu í Kópavogi Kópavogsblaðið kfrettir.is10 Aðsendar greinar Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 Njótum aðventunnar saman

x

Kópavogsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kópavogsblaðið
https://timarit.is/publication/1117

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.