Kópavogsblaðið - 29.11.2013, Page 17
Breski miðillinn Kay Cook, sem starfar hjá
Sálarrannsóknafélagi Íslands og er búsett hér
á landi, fullyrðir að á lóðinni þar sem húsið
Hamraborg 1 stendur, hafi áður fyrr verið
bænahús eða samkomusalur þar sem hafi verið
stundað mikið bænahald. Engar heimildir eru
til um slíkt. Kay segir að um leið og hún hafi
komið í sal Sálarransóknarfélagsins, sem er á
þriðju hæð hússins, hafi hún fundið sterkt fyrir
jákvæðri orku sem hún tengir við bænahald.
Undir þetta taka aðrir miðlar félagsins sem segja
það ekki tilviljun hversu notalegt andrúmsloftið
sé í sal Sálarransóknarfélagsins og reyndar í
húsinu öllu. Magnús Harðarson, forseti Sálar-
ransóknafélags Íslands, segir að samkvæmt
riti Sögufélags Kópavogs um kampa og breska
herinn, sem kom út fyrr á þessu ári, komi fram
að stór kampur hafi verið á þessu svæði á
stríðsárunum 1941- 1943.
„Ef einhverntímann er ærin ástæða til að
biðjast fyrir, þá er það einmitt á stríðstímum,“
segir Magnús, og minnir á að miðlarnir Bíbí
Ólafsdóttir og Þórhallur Guðmundsson verða
með opin skyggnilýsingafund í húsakynnum
félagsins, sunnudaginn 8. desember kl. 20:00.
Var bænahús í Hamraborg?
Kópavogsblaðiðkfrettir.is 17
Bæjarmolar
Nýtt aðalskipulag Kópavogs 2012 til 2024 var samþykkt einróma á fundi bæjarstjórnar í vikunni. Í aðalskipulaginu
er sett fram stefna bæjaryfirvalda um byg-
gðaþróun, landnotkun, byggðamynstur og
samgöngu- og umhverfismál til ársins 2024. Lögð
er meðal annars áhersla á þéttingu byggðar en
áætlað er að íbúafjöldi bæjarins verði kominn yfir
40 þúsund árið 2024. Miðað er við að fullgerðar
verði um 300 íbúðir á ári þangað til.
Vinna við endurskoðun aðalskipulagsins hefur
staðið yfir í um fjögur ár og hefur á þeim tíma
verið leitað víðtæks samráðs við íbúa bæjarins.
Fjölmargir fundir hafa verið haldnir í öllum
hverfum Kópavogsbæjar og á vef bæjarins
var á sínum tíma opnuð vefgátt þar sem leitast
var við að virkja enn frekar íbúa til þátttöku í
ferlinu. 31 athugasemd barst við sjálfa tillöguna
á kynningartíma nú á haustdögum og var á
lokametrunum unnið úr þeim.
Í aðalskipulaginu eru skilgreind nokkur
þróunarsvæði sem skoða á nánar í framhaldinu en
þau eru í Smáranum, að meðtöldum Glaðheimum,
Auðbrekku og á Kársnesi. Einnig er í aðalskipu-
laginu gert ráð fyrir nýrri byggð í Vatnsendahlíð.
Í aðalskipulaginu er aukinheldur gert ráð fyrir því
að nánar verði unnið að skipulagi í fimm hverfum
bæjarins, þ.e.a.s í Kársnesi, Digranesi, Smáranum,
Fífuhvammi og á Vatnsenda. Reiknað er með að í
byrjun næsta árs verði m.a. fundað með fulltrúum
hverfaráða þar sem farið verði yfir stöðu mála í
hverfunum og skilgreind þau verkefni sem brenna
á þeim.
Að lokum má geta þess að í aðalskipulaginu er
gert ráð fyrir vistvænni brú yfir Fossvoginn, í
samráði við Reykjavíkurborg sem einnig hefur
samþykkt nýtt aðalskipulag..
Aðalskipulag Kópavogsbæjar verður nú sent
skipulagsstofnun til staðfestingar.
Á næstu dögum verður gengið frá samþykktum
gögnum sem aðgengileg verða á vef
Kópavogsbæjar.
Nýtt aðalskipulag samþykkt einróma í
bæjarstjórn. Brú yfir Fossvog samþykkt.
Auglýstu í Kópavogsblaðinu
og á kfrettir.is
Auglýsingasími: 895 6406
Netfang: kfrettir@kfrettir.is
Kópavogsfréttir er ný upplýsinga- og fréttaveita fyrir Kópavogsbúa nær og fjær
sem á að endurspegla fjölbreytt og fjölskrúðugt mannlíf í Kópavogi. Það sem býr
að baki er áhugi okkar og umhyggja fyrir Kópavogi. Við vonumst til að fá að
njóta dyggrar aðstoðar Kópavogsbúa við að veita þessari fréttaveitu brautargengi.
Ritstjórnarstefna Kópavogsfrétta er eftirfarandi:
Kópavogsfréttir hafa sérstakan áhuga á skemmtilegu mannlífi í Kópavogi; atvinnulífi,
framkvæmdum og framförum. Einnig eflingu byggðar og öllu því sem gerir Kópavog
sérstakan og jákvæðan bæ að búa í, starfa og heimsækja.
Kópavogsfréttir gerir þá kröfu til sveitarstjórnarmanna að þeir kappkosti að gera sitt
besta í störfum sínum í þágu íbúanna af heilindum og áhuga.
Kópavogsfrettir vilja stuðla að aukinni samheldni og samstöðu Kópavogsbúa.
Útgefandi: ago.slf.
Netfang: audun@kfrettir.is
Heimasíða: kfrettir.is
Netfang: kfrettir@kfrettir.is
Auglýsingastjóri: Magnús Karl Daníelsson
Prentun: Landsprent ehf.
Dreifing: Landsprent ehf.
Kópavogsblaðinu er dreift frítt í öll hús í Kópavogi.
Svona gæti brúin frá Kársnesi yfir í Fossvog litið út,
samkvæmt tillögu í aðalskipulagi sem nú hefur verið
samþykkt.