Kópavogsblaðið - 29.11.2013, Page 18

Kópavogsblaðið - 29.11.2013, Page 18
Sportið Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur heldur betur fundið fyrir auknum áhuga á íþróttinni eftir velgengni karla og kvennalandsliða Íslands á árinu. Deildin stendur nú frammi fyrir því að þurfa að kaupa tíma af Kópavogsbæ þar sem hefðbundin úth- lutun dugar ekki til. Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar segir þetta vera eitt af skemmtilegu vandamálunum sem knattspyrnudeildin glímir við. Hugsa þurfi þessi mál nokkur ár fram í tímann ef þessi þróun heldur áfram. „Kópavogsbær hefur staðið sig vel í að byggja upp góða aðstöðu fyrir knattspyrnuna hér í bæ en sú uppbygging þarf að halda áfram. Kannski er næsta spurning sú hvort við þurfum ekki að fara að setja gervigras og flóðlýsingu á Kópavogsvöll og gera hann að upphituðum heilsársvelli sem nýtist þá öllum flokkum allan ársins hring,“ segir Eysteinn Pétur. Daði Rafnsson, yfirþjálfari knattspyrnudeildar Breiðabliks segir að innan félagsins sé talað um aðra iðkendasprengju, og er þá vísað í þá fyrri sem varð veturinn 2008. Þá voru válynd veður í þjóðfélaginu og fólk virtist áfjáð í að koma börnum sínum í skjól íþrótta og tómstundastarfs. “Nú tengjum við þetta hins vegar við árangur landsliðanna og félagsins sjálfs undanfarin ár. Frá 2008 höfum við unnið stóra titla karla og kvennamegin og leikmenn okkar hafa náð eftirtektarverðum árangri erlendis og með landsliðunum. Þetta hefur skapað kjöraðstæður fyrir knattspyrnuáhuga í Kópavogi. Krakkar horfa upp til eldri iðkenda og finnst það eftirsóknarvert að vera Blikar. Að auki erum við heppin með aðstæður í Fífunni. Síðan starfsemin fluttist þangað að mestu leyti höfum við fundið fyrir auknum félagsanda,” segir Daði. Daði bendir einnig á að í samanburði við margar aðrar íþróttir er ódýrt að stunda knattspyrnu, sérstaklega fyrir yngstu börnin en iðkendum yngri en sex ára hefur fjölgað úr 120 í 240 á ör- skömmum tíma. “Við vonumst til að fá einhverja tíma til viðbótar ef svo heldur áfram sem horfir. Við höfum gantast með það að kannski þurfi að fara að opna Vallagerðisvöll á ný og senda knatthallakynslóðina aftur á mölina. En í fullri alvöru þá liggur metnaður knattspyrnudeildar í að bjóða upp á bestu fáanlegu þjónustu sem völ er á og við munum áfram leggja okkur fram við að svo verði áfram.” Önnur iðkendasprenging í Breiðablik Árangur landsliðanna þýðir aukinn áhugi Kópavogsblaðið kfrettir.is18 ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is Arnór L. Pálsson framkvæmdastjóri Ísleifur Jónsson útfararstjóri Frímann Andrésson útfararþjónusta Jón G. Bjarnason útfararþjónusta Hugrún Jónsdóttir útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson útfararþjónusta Þorsteinn Elísson útfararþjónusta Ellert Ingason útfararþjónusta Önnumst alla þætti útfararinnar Þegar andlát ber að höndum REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST

x

Kópavogsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kópavogsblaðið
https://timarit.is/publication/1117

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.