Málfríður - 15.11.1988, Blaðsíða 23
TUNGUMÁLAKENNSLA
í GRUNNSKÓLA
Námskeið fyrir dönsku-, ensku-, norsku- og sænskukennara,
Kennaraháskóla íslands 6.-10. júní 1988.
Síðastliðið sumar voru auglýst tvö
námskeið fyrir tungumálakennara í
grunnskólum á vegum endurmennt-
unardeildar Kennaraháskólans:
Virkni nemenda í byrjunarnámi í
dönsku og ensku, ætluð kennurum
5. og 6. bekkjar og námskeið fyrir
dönsku-, ensku-, norsku- og
sænskukennara, ætluð kennurum
7., 8. og 9. bekkjar. Vegna dræmrar
þátttöku framan af voru þessi nám-
skeið sameinuð. Þátttakendur voru
alls um 40 tungumálakennarar í 5. -9.
bekk grunnskóla, víða að af landinu.
Of langt mál yrði að lýsa nám-
skeiðinu í smáatriðum og læt ég því
nægja að drepa á það helsta er varð-
ar skipulag þess og það sem mér nú
er eftirminnilegast úr máli fyrirles-
ara.
Stjórnendur og kennarar á nám-
skeiðinu voru Auður Torfadóttir,
lektor í ensku við Kennaraháskóla
íslands og Svandís Ólafsdóttir,
dönskukennari við Æfinga- og til-
raunaskóla Kennaraháskólans og
æfingastjóri við Kennaraháskólann.
Námskeiðið skiptist í fyrirlestra,
kynningu á leiðum til að örva og
virkja nemendur í tungumálanám-
inu og drjúgum hluta námskeiðsins
var einnig varið í verkefnagerð í
hópvinnu. Sú vinna fór að hluta
fram í kennslumiðstöð. I lok nám-
skeiðsins kynntu hóparnir verkefnin
hver fyrir öðrum og einnig voru þátt-
takendum send ljósrit af þeim síðar.
Fjölbreytt sýnishorn af því
kennsluefni sem fáanlegt er til
tungumálakennslu lá frammi nám-
skeiðsdagana. Var þar bæði að finna
eldra efni úr bókasafni Æfingaskól-
ans og nýjar bækur frá ýmsum bóka-
verslunum í Reykjavík, þar á meðal
enskukennsluefni fyrir útlendinga
eftir Tom Hutchinson, sem hann
sjálfur kynnti sérstaklega utan dag-
skrár námskeiðsins.
Aðalfyrirlesarar námskeiðsins
voru Gerd Manne frá Noregi og
Tom Hutchinson frá Bretlandi en
auk þeirra og stjórnendanna, Auðar
og Svandísar, kynntu nokkrir grunn-
skólakennarar ýmsar hugmyndir
Þýska bókasafnið
Goethe Institut
Tryggvagötu 26
101 Reykjavík
Sími 91-16061
Stærsta safn þýskra bóka á íslandi
Menningarmiðstöö Sambandslýðveldisins Þýskalands
Fagurbókmenntir og fræðirit bæði fyrir börn og fullorðna
Plötur, tónbönd, kennsluefni fyrir þýskukennslu
Dagblöð og tímarit
Safnið er öllum opið og útlán endurgjaldslaus
Opið þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá 15.00—18.00
23