Málfríður - 15.11.1988, Blaðsíða 28
ENSKUNÁMSKEIÐ
Dagana 23.-25. ágúst s.l. hélt Fé-
lag enskukennara, HÍ og KHÍ nám-
skeið í Reykjavík fyrir enskukenn-
ara í grunn- og framhaldsskólum.
Námskeiðið var vel sótt. Leiðbein-
andi okkar var Dave Allan, for-
stöðumaður Bell School of Lan-
guages í Norwich á Englandi. En
eins og áður hefur komið fram í Mál-
fríði sóttu íslenskir kennarar nám-
skeið í þeim skóla sumarið 1987.
Yfirskrift námskeiðsins var:
„Teaching language for commun-
ication - activating the language
ciassroom“. Aðaláhersla var sem
sagt lögð á að kynna okkur hvernig
betur mætti virkja nemendur í skóla-
stofunni og um leið gera kennsluna
skemmtilegri á markvissan hátt.
Hinu hefðbundna fyrirlestrar-
formi var sleppt, í stað þess fengum
við að „upplifa" flestar þær hug-
myndir sem kynntar voru. Allir virt-
ust njóta sín vel í hlutverki nemand-
ans og vonandi á þessi reynsla okkar
eftir að skila sér í skólastarfinu fram-
vegis.
Leikir voru notaðir til að æfa
margvísleg atriði svo sem: orða-
forða, áherslur og hrynjandi og al-
menn tjáskipti við mismunandi að-
stæður. Því miður kom fram hjá
kennurum að í sumum skólum á Is-
landi eru þrengsli það mikil að nær
ógerlegt er að koma mörgum þess-
ara hugmynda í framkvæmd.
Söngtextar voru teknir fyrir og
sýnt fram á að þá má nota á margan
hátt.
Eyðufylling er til margs nýt: strika
má út t.d. nafnorð, lýsingarorð eða
sagnorð í textanum og láta nemend-
ur fylla í eyðurnar áður en hlustað
er. Á sama hátt má æfa forsetningar
eða nýlærðan orðaforða. Þá má
sleppa endaorðum í línu og láta
nemendur fást við rím; eða klippa
sundur texta og láta nemendur raða
saman. Möguleikarnir eru margir.
Að lokum fengum við alltaf réttan
texta í hendur og hlustuðum þá í
annað sinn. Þessi þáttur námskeiðs-
ins þótti mér mjög uppörvandi þar
sem ég hef verið heldur rög við að
nota söngtexta í kennslu.
Til þess að mappan með öllum
góðu hugmyndunum lenti nú ekki
niðri í skúffu og gleymdist, fletti ég í
gegnum námsefni komandi skólaárs
þegar heim kom og merkti við þá
staði þar sem mér þótti henta að
bæta inn söngtextum, leikjum og
öðru slíku til frekari æfinga á atrið-
um í texta og málfræði. En þar sem
þyngdarstig æfinganna sem við
spreyttum okkur á miðaðist heldur
við getu framhaldsskólanema, verð-
um við grunnskólakennarar að beita
einföldunaraðferðinni áður en við
leggjum þær fyrir okkar fólk.
Hér á eftir fylgja tvö dæmi um
söngtexta frá fyrirlesara.
I’ve got you babe
(UB40 & Chrissie Hynde)
They say we’re young and we don’t
We won’t find out until we grow—
Well I don’t know, baby, if that’s
—true—
’Cos you’ve got me and baby I’ve
got-yeu—
Babe
I’ve got you babe, I’ve got you
babe
They say our love won’t pay the
- rent
Before it’s earned our money’s
always spent
I guess that’s so, we don’t have a
—iet—
But at least I’m sure of all the
things we’ve get-
Babe
I’ve got you babe, I’ve got you
babe
I’ve got flowers in the spring
I’ve got you to wear my ring
And when I’m sad, you’re a-elewn—
Við hér í SÖGUBÚÐINNI, Laufásvegi 2 í Reykjavík, viljum vekja athygli á
að við höfum í auknum mæli séð um að hafa á lager þær erlendu
kennslubækur sem notaðar eru í framhaldsskólum landsins.
Við bjóðum þér að líta inn hjá okkur til skrafs og ráðagerða um innkaup á
bókum sem henta þinni kennslu.
Þá viljum við vekja athygli þína á að við höfum lagt áherslu á að hafa gott
úrval af þýskum bókum í versluninni, auk þes sem við sérpöntum ýmsar
bækur fyrir einstaklinga og skóla. Slíkar pantanir eru yfirleitt innan við 14
daga á leiðinni.
Sögubúðin
LAUFÁSVEGI 2, SÍMI 27144
28