Málfríður - 15.11.1991, Blaðsíða 19
um, límt þau á spjöld og málað
yfir öll nöfn sem kynnu að koma
upp um hvaða stað er um að
ræða. Spjöldin eru númeruð og
þeim síðan hrúgað á borð eða
gólf. Liðin útbúa sér lista með tíu
númerum og leikurinn felst í því
að vera sem fljótastur að lesa og
draga ályktanir af þeim vísbend-
ingum sem eru í textanum. Þessa
æfingu má útfæra með ýmsu
móti, allt eftir því á hvaða stigi
nemendur eru. Löndin geta verið
helstu nágrannalönd okkar eða
borgir í þeim eða fjarlægar lönd
og vísbendingar verið margar
eða fáar. Auglýsingar er hægt að
fá í erlendum tímaritum eða bæk-
lingum frá ferðaskrifstofum.
Önnur lestraræfing fólst í upp-
hitunaræfingu með mynd og
nokkrum orðum og var nemend-
um ætlað að finna hvað væri
sameiginlegt með mynd og orð-
um. A þessu stigi komu fram
ýmsar hugmyndir og mörg orð,
sem reyndist ágætis undirbún-
ingur fyrir það sem á eftir kom,
en það var að hraðlesa fjóra
stutta texta um skyld efni, og
bera sig saman og spjalla um það
við sessunautinn. Að lokum
komu svo lengri og erfiðari textar
sem kröfðust ítarlegs skilnings, á-
lyktunarhæfni og skoðanamynd-
unar. Las þá hver og einn f 3-4
manna hóp sinn texta vel og
vandlega og tók nokkrar glósur.
Lokastigið var síðan að segja hin-
um í hópnum frá þvf sem lesið
var, ræða kosti og galla þeirra
þátta sem fjallað var um og velja
á milli. (Efnið í þessu verkefni var
góðgerðarstarfsemi og hjálpar-
starf, og síðasta stigið í æfing-
unni reynir mjög á færni nemand-
ans).
Ritun
Á námskeiðinu var fjallað um
ritunarþáttinn í tengslum við
aðra þætti, en einnig sérstaklega.
Nokkuð var fjallað um að kennar-
ar þyrftu að gera sér grein fyrir í
hverju ritun felst og hvaða til-
gangi hún þjónar í kennslunni.
Krafa um málfræðilega ná-
kvæmni kann að hemja sköpun-
argáfuna. Kennari þarf að geta
séð nemendum fyrir fjölbreytileg-
um ritunaræfingum og stuðlað að
því að í þeim felist raunveruleg
boðskipti (communicative) og
þær séu unnar í lengra ferli
(process), þar sem nemendum
gefst kostur á að skila uppkasti
og síðan endurvinna það. Hóp-
vinna getur verið ágæt á fyrsta
stigi ritunar til að fá fram við-
brögð, hugmyndir og orðaforða.
Ein athyglisverð ritæfing sem
lögð var fyrir fólst í því að lesa
nokkur lesendabréf sem skrifuð
höfðu verið til dagblaðs og voru
um ýmis dagleg umkvörtunar-
mál. Síðan áttum við (í litlum
hópum) að velja eitt bréf og
skrifa eins konar svarbréf saman
í hóp. Kosturinn við þessa aðferð
er að nemendum finnst skrifin
hafa ,,tilgang“ og að þeir séu að
skrifa fyrir raunverulega lesend-
ur. Með því að lesa bréfin fæst
auk þess tilfinning fyrir réttu
málsniði (register) og stíl slíkra
bréfa. Það má geta þess að hóp-
urinn sem ég var í reyndist of
stór og við gátum illmögulega
skrifað í sameiningu. Því varð úr
að við skrifuðum hvert sitt bréf.
Það er að sjálfsögðu opinn mögu-
leiki, en ef halda á fast við hóprit-
un, þarf að gæta þess að hafa
hópana ekki of stóra.
Ótalmargt fleira mætti fjalla
um af þessu námskeiði en hér
verður látið staðar numið að
sinni.
Þórey Einarsdóttir,
MH.
Með þökk fyrir viðskiptin
Landsbankinn
Suðurlandsbraut 1 8
19