Málfríður - 15.11.1991, Blaðsíða 32
Nýjar bækur til
tungumálakennslu
Eso sí 1 — Lesbók og Vinnubók, er skemmtilegt spænsku-
kennsluefni, handa byrjendum. Efnið er talið hæfilegt fyrir tvo
fyrstu spænskuáfangana í íslenskum framhaldsskólum.
í Lesbókinni er fjölskrúðugt textasafn; samtöl, frásagnir og
greinar um landshagi og menningu á spænsku málsvæðunum.
Lesbókin geymir einnig æfingar, skrá yfir algengar setningar og
orðatiltæki, og spænsk-íslenskan orðalista.
í Vinnubókinni eru t.d. framburðar- og hljómfallsæfingar, orða-
forðaæfingar, hlustunaræfingar ogverkefni sem þjálfa lesskilning
og málfræðiþekkingu; auk ýmiss konar ítarefnis og íslensks-
spænsks orðalista.
Vandað hlustunareíni íylgir þessu verki.
Esó sí 2 kemur út í íslenskri gerð næsta vor.
Sigurður Hjartarson íslenskaði efnið.
Accent on English 2 — Lesbók og Vinnubók, er eins og nafnið
gefur til kynna framhald af Accent on English 1, sem kom út á
síðastliðnu ári og fékk góðar viðtökur.
Hér er haldið áfram á þeirri leið sem mörkuð var; bókmennta-
textar víða að úr hinum enskumælandi heimi, ívið lengri en tíðkast
í viðlíka bókum, og fjölbreytileg verkefni sem snerta alla veiga-
mestu þætti málanámsins.
Hlustunarefni er fáanlegt, sérlega notadrjúgt.
Accent on English 3 kemur út á næsta ári.
Elísabet Gunnarsdóttir íslenskaði verkið.
Sænsk málfræði eftir Sigrúnu Helgadóttur Hallbeck, er hagnýt
handbók handa öllum þeim sem stunda sænskunám, hér á landi
eða í Svíþjóð. Bókin ber svip handbókar eins og aðrar málfræði-
bækur M&M og nýtist því með hvaða kennsluefni sem er. Auk
hinnar eiginlegu málfræði er að finna í bókinni stíla og æfingar, og
lausnir á hvorutveggja. Bókin hentar jafnt til bekkjarkennslu og
sjálfsnáms.
Mál og menning
Laugavegi 18. Sími 24240
Síðumúla 7-9. Sími 688577