Bæjarins besta - 18.02.2016, Blaðsíða 4
4 Fimmtudagur 18. febrÚAr 2016
The School for International Training is
recruiting an Academic Director for its Iceland
new semester study abroad program on Climate
Change and the Arctic
The program is located in Ísafjörður but travels to Reykjavik and
Greenland. The Academic Director is responsible for the academic
content of the program, student safety, and general management and
administration of day-to-day logistics of the program.
The candidate should have an academic background in climate change,
the Arctic, earth science, environmental science or a related discipline.
To apply, please submit a Curriculum Vitae and cover letter at World
Learning web site at:
http://www.worldlearning.org/connect/employment
before February 29th, 2016 or contact Mimi Marchev at:
Mimi.Marchev@worldlearning.org
Útgefandi: Athafnagleði ehf., kt. 690715-0740
Afgreiðsla og ritstjórn: Silfurgötu 1, Ísafirði, sími 456 4560
Ritstjóri BB og bb.is: Bryndís Sigurðardóttir, 896 9838, bb@bb.is
Ábyrgðarmaður: Bryndís Sigurðardóttir.
Blaðamaður: Smári Karlsson, 866-7604, smari@bb.is
Auglýsingar: Sími 456 4560, auglysingar@bb.is
Prentvinnsla: Litróf ehf.
Upplag: 2.200 eintök
Dreifing: Íslandspóstur. Dreift án endurgjalds inn á öll
heimili á norðanverðum Vestfjörðum
Stafræn útgáfa: www.bb.is / facebook.com/pages/bbis
Önnur útgáfa: Á ferð um Vestfirði
ISSN 1670-021X
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið bb@bb.is.
Auglýsingar þurfa að berast fyrir kl. 17 á mánudögum
fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum.
Ritstjórnargrein
Það er þetta með byggðamálin
Spurning vikunnar
Ertu hlynnt/ur endurkomu hersins?
Netspurningin er birt vikulega á bb.is og þar geta lesendur
látið skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér.
Alls svöruðu 396.
Já, algjörlega, sögðu 191 eða 48%
Hef ekki skoðun, sögðu 36 eða 9%
Nei, af og frá, sögðu 169 eða 43%
Í viðtali vikunnar er sjálfskipaður Strandamaður af lífi og sál
sem sjálfri sér og sennilega fleirum til mikillar undrunar hefur
komist að því að hamingjan er víða, bæði í 101 og á Ströndum.
Notaleg kjallaraíbúð í hringiðunni, með umferðargötur allt um
kring, stutt í latte og leikhús hentar mörgum meðan hafið og
fjöllin eru öðrum lífsnauðsyn. Að mörgu leyti búum við öll við
þetta val, að velja sér búsetu þar sem okkur líður vel. En það er
samt þessi mismunun sem við þurfum endalaust að berjast gegn
og þessi endalausa vörn fyrir því að velja hafið og fjöllin framyfir
mannfjöld og umferð.
Það er hagkvæmt fyrir þjóðarbúið að byggja landspítala
þar sem mestur fjöldinn er og gríðarlegt hagræði fyrir þá sem
næst honum búa, það er sanngjarnt að bregðast við óhagræði
þeirra sem fjær búa og sanngjarnt að allir beri kostnað af því.
Landspítali er þjóðareign, allir eiga að hafa sömu möguleika á
að sækja þangað þjónustu. Sömu rök gilda fyrir alla opinbera
þjónustu eins og til dæmis menntastofnanir, staðsetning þeirra
þar sem flestir búa er hagkvæmt fyrir þjóðarbúið en búa þarf
þannig um hnútana að allir landsmenn geti nýtt sér þjónustuna
á jafnréttisgrundvelli.
Við sem kjósum hafið og fjöllin verðum að búa við góðar
samgöngur, við þurfum aðgang að vistarverum „á mölinni“
þegar við þurfum til dæmis að bíða eftir fæðingu barns, fara í
krabbameinsmeðferðir eða aðra tímafreka heilbrigðisþjónustu.
Við nefnilega eigum líka Landspítalann og vildum bara gjarnan
fá hann vestur, myndum örugglega taka vel á móti þeim sem
hingað þyrftu að sækja þjónustu. Þá myndum við fá flugvöll en
ekki áhættuatriði, hugsanlega fleiri göng og þverun fjarða og
jafnvel gæti þeim fjölgað sem veldu hafið og fjöllin.
Ef Gunna á Ströndum þarf bara póst einu sinni viku, af hverju
þarf þá Gunna í Breiðholtinu póst daglega?
BS
Academic Director
Tilboð Óskast
Til sölu eru frístundafiskiskipin
Bobby 12 ÍS 372 – sk.skrnr. 7605
Bobby 14 ÍS 374 – sk.skrnr. 7607
Bobby 16 ÍS 376 – sk.skrnr. 7609
Skipin voru byggð úr trefjaplasti árið 2007 af Seiglu ehf. á Akureyri
Vélar eru Yanmar, afl. 85 kW
Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Vestfjarða
s.4563244
eignir@fsv.is
www.fsv.is