Bæjarins besta


Bæjarins besta - 20.01.1993, Side 2

Bæjarins besta - 20.01.1993, Side 2
2 BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 20. janúar 1993 Framhaldsskóli Vestfjarða brautskráir sína fyrstu nemendur: Ellefu nemendur útskrifuðust, þar af einn stúdent SÍÐASTLIÐIN laugardag brautskráði Framhaldsskóli Vestfjarða sína fyrstu nem- endur eftir að skólanum var breytt úr Mcnntaskóla og fór athöfnin fram á sal skólans. Að þessu sinni útskrifuðust tveir málarar, einn stálvirkja- smiður og sex vélaverðir. Þá útskrifaðist einn ncmandi af viðskiptabraut og einn stú- dent af eðlisfræðibraut. Það var Jón Reynir Sigur- vinsson aðstoðarskólameist- ari sem brautskráði nem- endurna en skólameistarinn sjálfur Björn Teitsson var vant við látinn vegna veikinda. I ávarpi sínu sagði hann m.a. að þeir nemendur sem nú voru brautskráðir hefðu lokið prófum sínum fyrir síðustu jól og hefði þar verið um að ræða lokapróf, brautar- og áfangapróf sem geta leitt til áframhaldandi náms í skól- anum. Síðar í ávarpi sínu sagði hann: „Ég legg áherslu á að þetta er fjölbrautarskóli, sem hefur víðtækar skyldur við ráðamenn skólans hefðu viljað reka en ekki fengið nemendur á síðustu tvö árin væri skipstjórabrautin. A hinn bóginn hefði aðsókn að vél- stjórnarbraut verið mjög góð. Þá hefði aðsókn að grunn- deild rafiðna og málmiðna farið batnandi. Hann sagði það stefnu skólans að bjóða uppá fleiri stuttar brautir, sem yrðu sambærilegar við véla- varðarnámið og fyrir for- göngu BjömsTeitssonarskóla- meistara hefðu nú þegar verið haldnir þrír vinnufundir þar sem ýmsir áhugamenn úr at- vinnulífinu ásamt starfsliði skólans hefðu tekið þátt. I framhaldi af því hefði verið ákveðið að kanna á meðal Vestfirðinga hvort áhugi væri fyrir stuttum námsbrautum sem tengdust atvinnulífinu. Því næst var komið að af- hendingu námsskírteina og hvatti Jón Reynir alla þá sem nú fengu skírteini að halda áfram námi með einhverjum hætti, þó að siðar yrði, þeim til gagns og ánægju. Fyrst út- • Einn stúdent útskrifaðist frá skólanum að þessu sinni og var hann þar með fyrsti stúdentinn til að útskrifastfráFramhaldsskólaVestfjarða. Þaðvar Jónas Pétursson sem útskrifaðist af eðlisfræðibraut. nemendur sína, sem einkum eru vestfirskir. Okkur er uppá- lagt aö reka ýmsar náms- brautir, eftirþví sem nemendur fást til. Mikið vandamál er að margir nemendur innrita sig stundum ekki til náms með tilskyldum fyrirvara, heldur koma nánast þegar þeim hentar, en þá hefur námi á viðkomandi braut e.t.v. verið aflýst vegna lítillar aðsóknar eða náms- hópurinn hefur náð þeirri stærð, að við getum ekki bætt fleirum við. Fyrirvarareru m.a. bráðnauðsynlegir vegna ráðningar kennara, en skylt er að auglýsa öll kennarastörf og leita til sérstakrar undanþágu- nefndar, hafi umsækjandi ekki full kennsluréttindi. Ég bið því alla viðstadda að minnast þess að umsóknarfrestur um nám á haustönn rennur út í júní en umsóknarfrestur um nám á vor- önn rennur út snemma í des- ember.” Jón Reynir sagði síðan að meðal þeirra brauta sem for- skrifaði hann tvo málara en það voru bræðurnir Asgeir og Guðmundur Eltas Sæmunds- synir, en þess má geta að þeir eru báðir stúdentar frá Mennta- skólanum á Isafirði. Þá var stálvirkjasmiðurinn Jakob OlafurTryggvason útskrifaður og Sædís María Jónatansdóttir af viðskiptabraut. Þá var komið að véla- vöröunum en í vélavarðar- námi á haustönn voru skráðir 17 nemendur. Ellefu þeirra hafa ekki lokið námi í skyndi- hjálp og eldvörnum og því var einungis hægt að útskrifa sex vélaverði. Þeir voru: Arni Freyr Elíasson, Egill Jónsson, Elías Hafsteinn Ketilsson, Guðmundur Jens Jóhannsson, Kristinn E. Arnarsson og Tryggvi Sigtryggsson, faðir Jakobs Ólafs, en þess má geta að Tryggvi er einnig kennari við skólann. Þá var eini stú- dentinn útskrifaður en það var Jónas Pétursson sem lauk námi af eðlisfræðibraut. Patreksfjörður: • Nemendurnirsem útskrifuðustfrá Framhaldsskóla Vestfjarðaá laugardaginn þ.e.a.s. þeirsem voru viðstaddir brautskráninguna. ______________________________________________________________________________ Við lok athafnarinnar ósk- aði Jón Reynir handhöfum skírteinanna svo og vanda- mönnum þeirra til hamingju með þennan áfangasigur og kynnti síðan breytingar á starfsliði skólans við upphaf nýrrar annar sem þó voru litlar. Birna Lárusdóttir starfsmaður Svæðisútvarps Vestfjarða hefur verið fengin sem stunda- kennari við skólann og mun hún kenna fjölmiðlafræði. Þá hafa tveir nýir stundakennarar verið ráðnir við öldunga- deildina á Patreksfirði en það eru þeir Hilmar Ámason sem áður hefur kennt við öldunga- deildina en kennir nú verslunar- reikning og Söl vi Söl vason sem kennir verslunarrétt. -s. • Feðgarnir JakobÓlafurTryggvasonogTryggviSigtryggssonfengu báðirskírteini við brautskráninguna á laugardaginn. Jakob í stálvirkjasmíði og Tryggvi sem vélavörður en þess má geta að Tryggvi er kennari við skólann. í HAUST réðu Patreks- flrðingar til sín körfubolta- þjálfara, Ara Gunnarsson úr Val, og er óhætt að segja að körfuboltalíf á Patreksfirði hafi tekið stakkaskiptum síðan. Áhugi fólks hefur aukist til muna og hefur jafnt og þétt fjölgað í þeim hópi sem æfir körfubolta að staðaldri. Sem dæmi má nefna mættu 22 gal- vaskir kappar á síðustu meist- araflokksæfingu sem sýnir glöggt hversu áhuginn er mikill. Að sögn Ara Hafliða- sonareins af stjómarmönnum í körfuknattleiksdeild Patreks- fjarðar er það aðstöðuleysi sem aðallega háir þeim. 23.janúarnk. fer 10. flokk- ur kvenna til Borgarness að keppa í svokölluðu fjölliða- móti. Helgina á eftir fer 10. flokkur drengja í Borgames og keppir einnig í fjölliða- móti. I þessum mótum er skipt i þrjá styrkleika riðla A,B og C og eru drengirnir í C riðli. Frammistaða þeirra hefur verið mjög góð í undan- fömum keppnum og vonast menn til að þeir komist í B riðil eftir næsta mót. Meistaraflokkurinn leggur síðan land undir fót fyrstu helgina í febrúar til keppni í annarri deild íslandsmótsins. Sagði Ari að hann væri óhræddur við að spá þeim sigri í sínum riðli og svo væri að bíða og sjá hvernig barn- ingurinn við hin liðin tækist. Við óskum Patreksfirð- ingum góðs gengis í komandi keppnum og munum fylgjast með framvindu mála. -ma.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.