Bæjarins besta


Bæjarins besta - 20.01.1993, Qupperneq 3

Bæjarins besta - 20.01.1993, Qupperneq 3
MJARINS BESTA • Miðvikudagur 20. janúar 1993 3 Leikskólamál á Isafirði: Fjöldi barnaá biðlista LEIKSKOLAR á Isafirði eru þétt setnir og fjöldi barna á biölista. I desember voru 69 börn á biðlista þar af eru 19 börn á biölista eftir plássi allan daginn. Að sögn Helgu B. Jóhanns- dóttur fulltrúa félagsmálastjóra eru nú 187 börn sem dvelja á leikskólum bæjarinsogereftir- spumin mun meiri en fram- boðið. Til að mæta þessari miklu þörf og til að nýta húsnæði og starfsfólk skóladagheimilis á Isafirði betur eftir hádegi, var lögðfram tillagaáfundifélags- málaráðs þess efnis að skóla- dagheimilið yrði nýtt betur • Leikskólinn Hlíðarskjól. eftir hádegi og þá fyrir yngri börn allt niður í 4. ára aldur. Einungis er um tilraun að ræða og er í fyrstu gert ráð fyrir 6 börnum. Skóladagheimilið er til húsa að Skólagötu 10 og eru það um 23 börn sem að jafnaði sækja það. Meirihluti bamanna er þarna á morgnana en oftast eru ekki nema um 3 börn eftir mat. Aldurshópurinn sem um ræðir eru börn frá 6-8 ára en börnum allt upp í 10 ára aldur erheimill aðgangurað skóla- dagheimilinu. Húsnæðið sem skóladag- heimilið er í er mjög stórt og gæti rúmað mun fleiri börn en þangað sækja. Tillaga um betri nýtingu skóladagheim- ilisins eftir hádegi gæti þannig komið til móts við þessa miklu eftirspurn en þó einungis að litlu leyti. Félagsmálaráóhefur mælt með tillögunni en endan- leg ákvörðun verður tekin á næsta bæjarstjórnarfundi. Gjaldþrotamál á Vestfjörðum: 11 fyrirteeki tekin til gjald- þrotaskipta á árinu 1992 HERAÐSDOMUR Vest- fjarða kvað upp úrskurð í 11 gjaldþrotamálum á sl. ári. Þau fyrirtæki sem um ræðir eru frá Bíldudal, ísafirði, Barðastrandasýslu, Patreks- firði og Suðureyri. Sumum þeirra mála sem tekin voru til gjaldþrotaskipta á síðasta ári er enn ekki lokið og því ekki hægt að birta neinar tölur um hvaða mál er stærst að umsvifum. Þau fyrirtæki sem um ræðir eru Lax hf. Pat- reksfirði, Sævar Arnason Pat- reksfirði, Kögurás hf. Suður- eyri, Suðurver hf. Suðureyri, Stekkur hf. Suðureyri, Fisk- vinnslan á Bíldudal, Rækju- stöðin hf. Isafirði, Niður- suðuverksmiójan hf. Isafirði, Flóki hf. Brjánslæk, Ferða- skrifstofa Vestfjarða hf. Isa- firði og Arni Sigurðsson Isa- firði. 1. júlí 1992 var meðferð gjaldþrotamála flutt frá sýslu- mannsemþættinu yfir til Hér- aðsdóms Vestfjarða og hafa þau mál verið til meðferðar þar síðan. Sú breyting varð á í kjölfar flutninganna að nú er alltaf skipaður skiptastjóri yfir hverju búi. Hans hlutverk er síðan að sjá um allan frágang á búinu. _mn Hreppsnefnd Súöavíkurhrepps: Lýsir yfir fiillum stuðningi við Ólaf Kristjánsson HREPPSNEFND Súða- víkurhrepps ákvað á fundi sínum sem haldinn var um miðja síðustu viku að lýsa yfir fullum stuðningi við Ólaf Kristjánsson bæjar- stjóra í Bolungarvík sem vill að kaupum á sorpbrennslu- stöð fyrir norðanverða Vestfirði verði frestað þar til ódýrari kostir verði full- kannaðir. Ólafur hcfur farið þess á leit við Sorpsamlag Vestfjarða að það íhugi ódýrari lausnir í sorpmálum þcssa svæðis, þar sem aðild að nýrri sorp- brennslustöð gæti reynst sum- um sveitarfélögum of dýr. Upp- haflega var talað um að stöðin myndi kosta um 70 milljónir króna og að hámarki 100 milljónir en nýjustu tölur eru komnaruppí 170-200 milljónir og finnst Súðvíkingum og Bol- víkingum að hér verði að stoppa við og dæmið endur- skoðað eins og Ólafur fer fram á í bréfi sínu til Sorp-Vest. FulltrúarSorp-Vest voru um síðustu helgi staddir í Vest- mannaeyjum þar sem þeir voru viðstaddir opnun nýrrar sorp- brennslustöðvar og síðan var ferð þeirra áætluð til Banda- ríkjanna og Norðurlandanna þar sem þeir ætluðu að kynna • Fulltrúar Sorpsamlags Vestfjarða eru nú á erlendri grund að kynna sér aðferðir til að losna við rusl á hentugri hátt en gert hefur verið á Skarfaskeri. þá sem hugsanlega verður keypt til Vestfjarða. sér frekar starfsemi sorp- brennslustöðvar á borð við ':"á Frá Framhcddsskóla Vestfjarða: •• /l . / - árshátíð og Sólrísa umfangsmest NU þegar nýtt ár er gengið í garð og viljum við í nemendaráði Framhaldsskóla Vest- fjarða óska nemendum og kennurum gleðilegs árs og þökk fyrir það liðna og er það von okkar að samstarfið gangi vel á nýju ári eins og endranær. Ýmislegt er á döfinni í skólanum á næstunni. Fyrst má nefna að á komandi helgi verður framhaldsskólamótið í bridge. Bridgeliðiðokkar náði glæstum árangri í fyrra með sigri á mótinu og hlaut því titilinn Framhaldsskólameist- arar í bridge. Vonandi verður heppnin með þeim í þetta skiptið og óskum við þeim góðs gengis. Eins og margir hafa eflaust tekið eftir hefur hin árlega spurninga- keppni Framhaldsskól- anna hafist á Rás 2. Framhaldsskóli Vest- fjaróa mun að sjálfsögðu taka þátt. Þetta ár stát- um við af efnilegu liði og er ætlunin að komast áfram í keppninni. Lióið skipa þau Ragnar Torfi Jónasson, HQynur Magn- ússon, Hilmar Magnús- son og Margrét Katrín Guðnadóttir sem er liós- sljóri. Framhaldsskólinn keppir í fyrstu umferð við Fjölbrautaskóla Suður- nesja þann 4. febrúar nk. Þann 5. febrúar er á dagskránni stærsti at- burðurinn í félagslífi skólans fyrri hluta vetr- ar, árshátíðin. Ætlunin er að hefja dagskrána seinni part dags og verð- ur leikið af fingrum fram fram eftir nóttu. Leik- listarklúbbur lætur ljós sitt skína, tónlist verður í hávegum höfó og ýmis- legt fleira kemur til með að vera á boðstólnum. Um kvöldið er venjan að borða hjá Sonj u og verður þeirri venju viðhaldið. Eftir matinn er síðan haldið á ball. 17.-24. febrúar kemur Fjölbrautaskólinn í Garðabæ í skíðaferð til ísafjarðar. Reynt verður að gera eitthvaó skemmtilegt með þeim og má þar m.a. nefna skíðakeppnir og íþrótta- keppnir einhverskonar. 3. bekkur hefur tekið að sér að halda skólaball á þessum tíma svo að Garðbæingum gefist kostur á að skemmta sér meö okkur. Aðalefni þessa vetrar er hin árlega Sólrisuhá- tíð sem haldin verður 8.- 14 mars, en hún er menningarvika okkar framhaldsskólanema svo og allra bæjarbúa. Sér- stök Sólrisunefnd hefur verið skipuö og mun sú nefnd sjá um dagskrá Sólrisu. Dagskrá Sólrisu er ekki tilbúin en verður án efa fjölbreytt og skemmtileg að vanda. Ætlunin er að halda ýmiss konar námskeió fyrir nemendur skólans fimmtudag og fostudag í Sólrisu og eru þaó þá elcki reglubundnir kennslu- dagar. MÍ-flugan, sem er út- varpsstöð framhalds- skólans, mun starfa alla vikuna. Nemendur í fjöl- miðlavali munu sjá um útvarpsstöðina. Fjöl- miðlaval er nýtt val innan skólans og umsjón með því hefur Birna Lárusdóttir fjölmiðla- fræðingur hjá Svæðisút- varpinu. Þaö er einnig í þeirra höndum að gefa út skólablað þessarar annar. Það er okkar ósk að Sól- risan takist í alla staói mjög vel svo að bæjar- búar og aðrir Vest- firðingar geti verið stoltir af skólanum. Ýmislegt fleira verður að gerast í skólalífinu þessa viku en um þaó verður nánar fjallað um síðar. Eftir Sólrisuhátíóna verður ekki mikið að gerast því þá fer að líða að páskum og vorprófum sem hefj ast í byrjum maí. Njótið vel. Kveðja. Sigga Harðar.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.