Bæjarins besta - 20.01.1993, Blaðsíða 4
4
BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 20. janúar 1993
Óháð vikublað
á Vestfjörðum,
Útgefandi:
H-prent hf.
Sólgötu 9,
400 ísafjö<’ðar
@ 94-4560
i 94-4564.
Ritstjóri:
Sigurjón J.
Sigurðsson
S 4277 8e
985-25362.
Ábyrgðarmenn:
Sigurjón J.
Sigurðsson og
Halldór
Sveinbjörnsson
@ 4101 8e
985-31062.
Blaðamaður:
Margrét Björk
Arnardóttir
@ 3675.
Útgáfudagur:
Miðvikudagur.
Prentvinnsla:
H-prent hf.
Bæjarins besta
er aðih að
samtökum
bæjar- og
héraðsfrétta-
blaða.
Eftirprentun,
hljóðritun,
notkun ]jós-
mynda og
annars efnis er
óheimil nema
heimilda sé
getið.
ÓskarFriðbjarnarson hákarlsverkandi íHnífsdal:
Hákartinn hefur
lœkningamátt
■sá sem einu sinni smakkar hœttir aldrei
HÁKARL hefur í gegnum
tíðina verið mjög vinsæll
matur á borðum Islendinga
og virðist jafnvel vera að
aukast nú í seinni tíð. Unga
fólkið sækir mikið í þessa
vöru og þykir hún góð. Oskar
Friðbjarnarson er einn af
stærstu hákarlsverkendum á
landinu og hefur í gegnum
tíðina skapað sér stóra'n sess
meðal neytenda því eins og
Oskar segir þá kemur ánægð-
ur neytandi alltaf aftur.
„Ég sel alveg heilmikið af
hákarli út um allt land. Jafnt
austur á firði sem norður í
land og allt þar á milli. Há-
karlinn hjá mér er alger gæða-
vara. Mér var kennt það þegar
ég var ungur að plata aldrei
náungann. Þegar við seldum
góða vöru kom neytandinn
alltaf aftur en ef við seldum
honum slæma vöru þá kom
hann ekki aftur” sagði Óskar
um söluna.
Nú er þorrinn að ganga í
garð og það er enginn þorra-
bakki fullkominn nema hann
prýði góður hákarl. Óskar
sagði að mesti annatíminn í
hákarlssölunni væri að ganga
í garð. Hann kvaðst ekki hafa
neinar haldbærar tölur yfir
söluna undanfarin ár en sagði
að þar væri um nokkur tonn
að ræða. „Ég geri ráð fyrir
að fyrir þorrann í fyrra hafi ég
selt ein 5-6 tonn og svo seldi
ég einnig nokkuð fyrir ára-
mótin því mörgum finnst há-
karlinn alveg ómissandi með
áramótabrennivíninu.”
Unga fólkið virðist kunna
vel að metahákarl því aö sögn
Óskars kemur það mjög mikið
og verslar, „mun meira en t.d.
fólk á mínum aldri. Sá sem
einu sinni smakkar hákarl
verður alveg sjúkur í hann og
kemur alltaf aftur.
Það hefur sannast æ ofan í æ
að hákarlinn hefur vissan
lækningamátt. Margt fólk sem
ég hef talað við og er með
brjóstsviða eða er veikt í
maganum segist ekki kenna sér
meins ef það fær örlítinn há-
karl að morgni dags.”
Verkunartími hákarls er 8 til
9 mánuðir. Um Ieiö og sjó-
mennirnir byrja á grálúðu-
veiðum í apríl/maí fer Óskar
að fá hákarl til verkunar sem
síðan er tilbúinn á áramótum.
Heildsöluverð á hákarli frá
honum er 700 kr/kg en kunnir
menn segja að það sé með
því lægst sem býðst.
„Salan er misjöfn frá ári til
árs og aldrei hægt aö stóla á
ákveðna sölu. Maður veit
aldrei fyrr en kemur að sölu
hvort hákarlinn er skemmdur
eða ekki og þvl gæti komið
fyrir að framboðið annaði
ekki eftirspurn. Það er alltaf
einhver hluti sem skemmist en
við því er ekkert að gera.
• Óskar Friðbjarnarson.
Ég veit ekki hversu mörg
fyrirtæki það eru sem versla
við mig en þau eru fjölmörg.
Þetta gengur alveg ágætlega
og ég er ekki með neitt væl.
Það er ekkert væl í
Vestfirðingum” sagði Óskar
að lokum I samtali við
blaðið.
Feröamálasamtök Vestfjaröa og Fjórðungssamband Vestfjarða:
Efiia til samkeppni um merki og slagorð
FERÐAMALASAMTOK
Vestfjarða og Fjórðungs-
samband Vestfirðinga hafa
ákveðið að efna til sam-
keppni um hönnun merkis og
siagorða sem lýsir ímynd
Vestfjarða og birtist aug-
lýsing þess efnis hér í blaðinu
ídag.
Markmiðsamkeppninnarer
að leita eftir merki og slag-
orðum sem verða samnefnari
ferðaþjónustunnar í fjórð-
ungnum og er merkinu ætlað
aó prýða minjagripi, um-
búðir, auglýsingar og annað
sem tengist ferðaþjónustu.
Slagorðin eru fyrst og fremst
ætluð til nota í auglýsingar og
kynningar. Skilafresturtillagna
eru 15. mars 1993 og verða
veitt 100 þúsund króna verð-
laun fyrirþað merki sem valið
verður og kr. 5.000 fyrir hvert
slagorð, en alls verða fimm
slagorð verðlaunuð.
-s.
íþróttir/körfubolti:
Önnur umferð íslandsmótsins
NÆSTKOMANDI helgi fer
fram önnur umferð Islands-
mótsins í körfuknattleik í ung-
lingaflokki kvenna. Keppt er í B-
riðli þar sem lið UMFG, f A og
Vals mæta UMFB í íþróttahúsinu
í Bolungarvík á laugardag og
sunnudag í hörkukcppnum.
Á íslandsmóti í unglingaflokki
kvenna er keppt í tveimur riðlum
þar sem fjögur lið skipa hvom riðil.
í fyrstu umferð féll UMFG lið
Grindvíkinga í B-riðil en Snæfell
færðist upp í A-riðil. Spilaðar eru
þrjár umferðir, fjórða mót er
keppni um fjögur efstu sætin, og
loks eru undanúrslit og úrslit.
Á laugardaginn verða fjórir
leikir í annarri umferð íslands-
mótsins. UMFG og ÍA keppa kl.
14.00. UMFB og Valur kl. 15.15.
UMFBogUMFGkl. 17.00ogValur
og ÍA kl. 18.15.
Á sunnudaginn verða tveir leikir
og verðurfyrri leikurinn ámilli IA
og UMFB kl. 10.00 en seinni
leikurinn ámilli UMFG og Vals kl.
11.15.
Það er engin spurning að það
verður hart barist í Bolungarvíkinni
á helginni og er körfuknattleiks-
áhugafólk eindregið hvatt til að
mæta og styðja vió bakið á stelp-
unum.
-ma.
Leiðarinn:
Bóndadagurinn er í nánd. Þorrinn heldur innreið sína í
vikulokin. Framundan er sá tími vetrar er áður fyrr olli
mestum kvíða. Tækist að þreyia Þorrann og Góuna voru
flestir vegir færir.
En þrátt fyrir árstíma jrar sem allra veðra er von er
bjartsýni ríkjandi meðal ísfírðinga. Betur horfir nú í at-
vinnumálum en um langt tímabil. Svartsýnin, sem óneitan-
lega hafði graftð um sig, er á undanhaldi.
Ljóst er að menn binda miklar vonir við kaupin á
togaranum Gylli. íshúsfélaginu var vissulega þörf á auknu
hráefni. Meó tilkomu togarans ætti að vera unnt að halda
uppi meiri og jafnari atvinnu í frystihúsinu.
Aukningin á skipaflota ísfirðinga að undanfömu hefur
einnig jákvæð áhrif á fyrirtæki er þjónusta sjávarútveginn.
Þannig myndast keðjuverkandi áhrif.
Bæjarstjórinn á ísafirði er að vonum ánægóur meó
kaupin á Gylli, eins og fram kom í viðtali við hann í
síðasta tölublaöi BB, og áhrifin sem þau hafa á atvinnulíf
í bænum. En um leið og bæjarstjórinn lét ánægju sína í ljós
drap hann á annað, sem blaðið hefur margsinnis hamrað á.
„Mér finnst mjög ánægjulegt til þess að vita hvað sam-
vinna milli fyrirtækja á þessu svæði hefur aukist sem segir
manni að svæðió er að renna saman í eina heild,” sagði
bæjarstjórinn á ísafirði, Smári Haraldsson, I tilvitnuðu við-
tali.
Þetta skyldi þó aldrei vera þungamiðjan í í Gyllismálinu?
Samvinna og jafnvel samruni fyrirtækja og sveitarfélaga á
svæðinu. Auðvitaó var sárt fyrir Flateyringa aö sjá á eftir
jafn glæstu skipi og togaranum Gylli. Salan var nauóvörn.
En betri er hálfur skaói en allur. Ahöfnin á togaranum
veróur að stofni til hin sama og áður. Það hlýtur að vera
Flateyringum afar mikilvægt í erfiðleikum, sem allir vona
að séu tímabundnir.
En fleiri oró um bjartsýnina. Mótvægi við Þorra karlinn,
sem hefur göngu sína á föstudaginn, er hækkandi sól. Og þá
styttist í Sólarkaffiö, hina hefðbundnu athöfn við að fagna
komu sólarinnar á ný eftir langa skammdegisfjarvist.
En það eru ekki bara heimamenn sem fagna komu
sólarinnar. Á Bóndadaginn gengst ísfirðingafélagið í Reykja-
vík fyrir árlegu Sólarkaffi, hinu 48. í röóinni.
Isfiróingafélagið í Rcykjavík er öflugt félag, sem hin
síóari ár hefur æ meira látið til sín taka hér í „heimabænum”.
Má í því sambandi nefna kaup þess á Sóltúni, sem félagiö
rekur sem orlofshús og styrki til menningarmála. Þá gefur
félagið út Vestanpóstinn, hið myndarlegasta rit.
Endahnúturinn á bjartsýnisleiðara i vetrarskammdeginu
er vitneskja blaósins um að nokkrir tugir ísfiróinga hafi hug
á að bregóa sér bæjarleið til Reykjavíkur til að taka þátt í
Sólarkaffi ísfirðingafélagsins.
Horft til veðurs undanfarió nær aðeins eitt orð yfir
ferðaáætlunina: Bjartsýni.
En þaó er einmitt bjartsýni af þessu tagi, sem gefur lífinu
gildi og kennir fólki um leið að mæta því með æðruleysi,
sem veit að það fær engu um ráðið, veðrinu.
s.h.