Bæjarins besta - 20.01.1993, Blaðsíða 7
BÆJARINS BESTA ■ Miðvikudagur 20. janúar 1993
7
Fyrsta skíðagöngumót vetrarins:
Olafiir, Sigurður og Bjarni í
sigursveitinni í bo&öngu
FYRSTA skíðagöngumót
vetrarins á Isafirði fór fram
á Torfnessvæðinu á Isafirði
á laugardaginn. Þá fór fram
svokallað Boðgöngumót
1993 og tóku fimm sveitir þátt
í mótinu.
Sigurvegari á mótinu var
sveit 3, sem skipuð var þeim
bræðrum Bjarna og Sigurði
Gunnarssonum og Olafi Arna-
syni en heildartími þeirra var
37.59.1 öðru sæti var sveit 1,
sem skipuð var þeim Hákoni
Hermannssyni, Halldóri Marg-
eirssyni og Gísla Einari Arna-
syni en heildartími þeirra var
39.21.1 þriðja sæti á tímanum
• Sigurður Gunnarsson, sem hér sést í keppninni á
laugardaginn sigraði fyrsta göngumót vetrarins ásamt
bróður sínum Bjarna og Ólafi Árnasyni.
Skíöasvæöiö á Seljalandsdal:
40.20 varð sveit nr. 4 en hana
skipuðu þeir Friðrik Omars-
son, Guðjón Höskuldsson og
Amar Pálsson.
Sveit 2, sem þeir Greipur
Gíslason, Oli M. Lúðvíksson
og Hlynur Guðmundsson
skipuðu hafnaði í fjórða sæti
á tímanum 42.16 og sveit 5,
hafnaði í fimmta sæti á
tímanum 42.28. Hana skipuðu
þeir Gylfi Olafsson, Gunnar
Pétursson og Arni Freyr Elías-
son. A mótinu voru gengnir
þrír hringir og eru nánari tíma-
setningar hér að neðan:
II-1. H-2. H-3. H-lími.
Svcit 1:
Hakon Hermannsson 8.39. 8.39.
Ilalldór Margcirsson 7.07. 7.24. 14.31.
Gísli Finar Árnason 5.13. 5.34. 5.24. 16.11.
Sveil 2:
Greipur (iíslason 10.02. 10.02.
Óli M. Lúðvíksson 7.00. 7.28. 14.28.
Hlynur Guðmundss. 5.35. 6.04. 6.07. 17.46.
Sveit 3:
Ólafur Árnasoii 8.25. 8.25.
Sigurður Gunnarss. 6.12. 6.26. 12.38.
Bjarni Gunnarsson 5.05. 5.49. 6.42. 16.56.
Sveit 4: ■ ■ ■
l-'riörik Ómarsson 9.00. 9.00.
Guðjón Höskuldsson 7.01. 7.16. 14.17.
Arnar Pálsson 5.30. 5.50. 5.43. 17.03.
Sveit 5:
Gylfl Ólafsson 10.26. 10.26.
Gunnar Pétursson 6.53. 7.03. 13.56.
Árni Freyr Elíasson 5.43. 6.14. 6.07. 18.04.
íþróttir/sund:
Helga gerir það gott
í Bandaríkjunum
Aldrei meiri sala
á vetrarkortum
SALA á vetrarkortum á
Skíðasvæðiðá Seijalands-
dal hefur gengið vonum
framar þaðsem af er vetri.
Búið er að selja um 200
barnakort og um 160 full-
orðinskort sem er mikið
meira en selt var í allan
fyrravetur. Mjög gott
veður var á Dalnum sl.
helgi og var fjöldi fólks á
skíðum.
Sala vetrarkorta hófst fyrr
nú en undanfarlð og hefur
gengið vonum framar. Full-
orðinskort kostar kr. 9.500,-
en barnakort kr. 5,000.- svo
það er fljótt að borga sig.
Miðað er við að 13 skipti á
skíði sé samsvarandi heil-
sárskorti.
Sl. sunnudag var veður
mjög gott og segja menn að
þetta sé besta skíðaveðrið í
vetur til þessa. Bjart var, gott
færi og mjög gott skyggni
og rúmlega' 300 manns á
sktðum sem augljóslega
kunnu vel að meta dýrðina.
Tveir ungir drengir urðu
fyrir því öhappi á sunnu-
daginn að leiðin sem þeir
völdu sér til að skíða heim
reyndist ekki eins góð og í
upphafi varætlað.Þeirduttu
báðir með þeim afleið-
ingum að þeir brotnuðu,
annar það iíla að flytja þurfti
hann suður.
Óhöpp hafa ekki verið
mörg það sem af er vetri og
er það von gæslumanna
skíðasvæðisins að fólk sé
ekki að ana út í eitthvað
sem það veit ekki hvað er
sem gæti svo auðveldlega
endað með ósköpum.
-ma.
HELGA Sigurðardóttir
sundkona úr Vestra tók þátt í
Háskólamóti í Suður-Caro-
lina um síðustu helgi þar sem
hún synti á mjög góðum
tímum í jardalaug. Hún náði
öðrum besta tíma sínum í
100 metra skriðsundi og
sínum besta tíma í 200 metra
skriðsundi.
Helgasynti 100 metra skrið-
sund á 52.94 sem breytist í
58.12 í 25 metra laug og 200
metra skriðsund á 1.53.79 sem
breytist í 2.04.93 í 25 metra
laug en sá tími er 2/100 frá
giidandi Islandsmeti í grein-
inni. Hún sigraði í báðum
sínum greinum og skóli Helgu
Alabama háskóli vann mótið.
Um næstu helgi tekur hún þátt
í sterku háskólamóti og 17.
febrúar tekur hún þátt í
• Helga Sigurðardóttir
sundkonan snjalla úr
Vestra gerir það gott í
Bandaríkjunum um þessar
mundir.
meistaramóti háskóla, South
Eastern Confrens. c
BÆIARINS BESTA
• fylgist vel með íþróttum
• Óli M. Lúðvíksson og félagar í sveit 2 höfnuðu í 4.
sæti í boðgöngunni.
íþróttir / skfði:
Skíðafélagsmót í
göngu á laugardaginn
NÆSTKOMANDI laugar-
dag fer fram á Seljalands-
dal svokallað Skíðafélags-
mót í göngu þar sem keppt
verður í öllum aldurs-
flokkum.
Meðal annars verður
keppt í 5 km. göngu í flokki
13-14 ára drengja, 7.5 km.
göngu 15-16 ára drengja, 10
km.göngu 17-19áradrengja,
15 km. göngu 20-34 ára
karla, 10 km. göngu 35-49
ára karla og 10 km. göngu
karla 50 ára og eldri.
Þá verður keppt í 3.5 km.
göngu 13-15 ára stúlkna og
5 km. göngu stúlkna 16 ára
og eldri. Allar göngurnar
verða með hefðbundinni
aðferð. Skráning í mótið er
í Sporthlöðunni og er
skráningargjald kr. 400.
-slfi
Bíll til sölu
Til sölu er Mitsubishi Pajero, árgerð 1987,
bensín, 31" dekk. Skoðaður 1993.
Skipti koma til greina.
Upplýsingar í símum 3072 og 3135.
S.ÁA.-félagar
og aðrir áhugamenn
Fundur verður með Þórarni Tyrfingssyni,
fbrmanniS.Á.Á. áHótel ísafirði miðvikudaginn
27. janúar kl. 20.00.
Rætt verður um stöðu S.Á.Á. og fleira.
Aliir hjartanlega velkomnir.