Bæjarins besta


Bæjarins besta - 20.01.1993, Page 9

Bæjarins besta - 20.01.1993, Page 9
BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 20. janúar 1993 9 • Jóna Valgerður Krist- jánsdóttir. Kvennalistinn: Þingflokkurinn fundar á ísafirði ÞINGFLOKKUR Kvcnnalistans ásamt einni starfskonu listans koma til ísafjarðar og ræða við sveitarstjórnir á ísafirði og nágrenni í dag, miðviku- dag og á morgun. Þá munu þær skoða stofnanir og fyrirtæki og ýmsar framkvæmdir sem í gangi eru m.a. jarðganga- gcrðina. I>ingflokksfundur verður haldinn á Hótel Isafirði í dag kl. 17 og eru allar kvennalistakonurvelkomnar á fundinn. Þar verður rætt um vestfirsk málefni og þjóðmál almennt. Fundurinn er hvorutveggja í scnn vinnufundur og kynningarfundur og fram- hald af fundarferðum þings- flokksinssl.sumarenþáfóru þær á Austurland og Norð- Vesturland. Einnig má geta þess að Jóna Valgerður Kristjánsdóttir fór sl. sumar uni Strandasýslu og Reyk- hólasvcit til að kynna sér málefni þeirra byggða og voru þær heimsóknir vel heppnaðar. í þingflokki Kvennalistans eru þær Kristín Astgeirs- dóttir.þingilokksformaður, Anna Olafsdóttir Björnsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Jóna Valgerður Kristjáns- dóttirog Kristín Einarsdóttir. Starfskona listans er Þórunn Sveinbjörnsdóttir. -s. Ferðamál: Stofnfundi frestað SÖKUM ótryggrar vcðráttu var ákveðið að frcsta stofnfundi Ferða- málafélags ísafjarðar sem halda átti sl. miðvikudag þar scm nokkrar lykilpersónur voru vcðurtcpptar í Reykja- vfk. Til stóð að reyna á ný í kvðld miðvikudaginn 20. janúar kl. 20.30. Fundurinn verður haldinn áefstu hæó Stjómsýslu- hússins þegar þar aó kemur. Þðr- dís 0. Arthursdóttir, feróamála- fulltrúi Akraness, kemur og heldur erindi um samstarf fyrir- tækja og stofnana á Akranesi við uppbyggingu feróaþjónustunnar þar í bæ. VegnaveikindaÞórdisarfrest- ast fundurinn þó enn um sinn og verður hann auglýstur sér- stakiega þegar þar að kemur. -ma. Uppboðið á Mánagötu 1: Jakob Olason hæstbjóðandi -að frágengnu tilboðið Djúps hf. SVOKALLAÐ vanefnda uppboð á Mánagötu 1 fór fram 4. janúar sl. Hæst- bjóðandi var Jakob Olason, eigandi veitingastaðarins Frábæjar, og hljóðaði tilboð hans upp á 6,3 milljónir. Til- boð Djúps hf. var ekki tekið til greina þar sem engar tryggingar fyrir grciðslu lágu fyrir. Djúp hf. hefur áður verið hæstbjóðandi í Mána- götu 1 en efndi ekki boð sín og var því efnt til þessa van- efnda uppboðs. Að sögn Jakobs Olasonar kemur uppboðið ekki til með að breyta neinu í rekstri Frá- bæjar. Eini munurinn er sá að nú eiga þau húsnæðið í stað þess að leigja það áður en síðasti leigusamningur sem gerður var átti ekki að renna út fyrr en eftir 6 ár svo engar ráðstafanir höfðu verið gerð- ar varðandi þau mál. • Mánagata 1. Aðspurður sagði Jakob að reksturinn hefði gengið vel á síðasta ári þrátt fyrir að hann hefði orðið var við örlítinn samdrátt og vildi kenna veður- farinu um. Ferðamenn komu seinna en ella á síðasta sumri og í vetur hefur fólkið vestan heiöa komið minna sökum ófærðar. Jakob sagði að breyting- arnar sem gerðar hefðu verið á sl. ári hefðu skilað sér vel og að fólk kynni vel að meta þennan nýja valkost. Nýlega var ráðinn kokkur í fasta vinnu og býður það upp á ýmsa möguleika varðandi veisluhald og annað þess háttar. Hvað starfsmannahald snertir sagði hann að fjöldi þess stæði jafnan í stað. Einhverjar mannabreytingar hefðu verið en engin fækkun. Hann bjóst jafnframt við því að á komandi sumri yrði tekið eitthvað inn af sumarfólki eins og undanfarin sumur. _ma Arnarfjörður: 212 tonn af rækju á land á haustvertíð -desember með eindæmum lélegur RÆKJUVEIÐIN við Arn- arfjörð byrjaði hcldur ró- lega nú eftir áramót. Ver- tíðin hófst á fimmtudag fyrir hálfum mánuði. Góð veiði var á föstudeginum en í síðustu viku átti veður stór- an jiátt í lélegri veiði. A bátana við Arnarfjörð er skammtað kvóta til einnar viku í senn. Það þýðirþað að bátur með einfaldan skammt má veiða 3,3 til 3,5 tonn en bátur með tvöfaldan skammt helm- ingi meira. Vikuskammtur í rækjuvinnsluna Rækjuver er því um 40 tonn en þar eru 17 manns í vinnu. I nóvember var mjög góð veiði. Alls veiddust 145 tonn af rækju en í desepiber aðeins 63 tonn. Kenna menn ótíð og stuttum degi um. Veiðin nú og í fyrra er með svipuðu móti þó er hún aðeins lakari nú. Alls veiddust 212 tonn á síðustu vertíð af 700 tonna kvóta og eru því eftir 488 tonn sem veidd veróa á vorvertíð. Flestir rækjuveiðimenn hefðu ekkert á móti meiri kvóta því skammturinn er fljótkláraóur. Tonnin 488 eiga að duga fram í apríl en ef allir mánuðir verða eins og nóvember cr nokkuð víst að sá skammtur verði uppurinn fyrirþann tíma. -ma. • Sunnukórinn á ísafirði æfir nú á fullu fyrir ferð sem áætluð er til vinabæja ísafjarðar í Danmörku og Svíþjóð. Sunnukórinn á ísafiröi: Æfir á fullu fyrir Danmerkurferð STARFSEMI Sunnukórs- ins cr nú í fullum gangi og þessa dagana cr kórinn að æfa fyrir hið árlcga sólar- kaffi þeirra sem verður nk. laugardag. Síðan verður haldið áfram með vorverkefnið, sem er að þessu sinni ferð kórsins til Danmerkur í júní nk., nánar tiltekið til vinabæ Isafjarðar, Hróarskelduog jafnvel verður skroppið til Svíþjóðar í ferð- inni þar sem vinabær ísa- fjarðar Linköping verður heimsóttur. Feröin mun taka tiu daga og því er nú tækifæri fyrir alla á Isafirði og nágrenni að syngja með kórnum. Æfingar hefjast þriðjudaginn 26. janúar kl. 20.15 og verða þær í Tónlistar- skólanum. í fréttatilkynningu frá kórnum segir að það sé alltaf pláss fyrir fleiri félaga, bæði karla og konur og eru þeir sem áhuga hafa á að vera með beðnir að hafa samband við formann kórsins Reynir Ingason í síma 3155 eða 3016 eða söngstjórann Beötu Joó í síma 3397. -slf • Frá Sólarkaffinu á sl. ári. Sólarkaffi ísfirðingafélagsins: Haldið í 4$. skipti á fóstudagskvöldið ÍSFIRÐINGAFÉLAGIÐ í Reykjavík gengst fyrir sínu áriega „Sólarkaffi”, hinu 48. í röðinni á Hótel íslandi nk. föstudagskvöld, 22. janúar. Hefur þessi hátíð, þar sem því er fagnað að hefðbundnum vestfirskum hætti, með rjúkandi heitu kaffi og rjóma- pönnukökum, að sól er farin að hækka á iofti, átt stöðugt vaxandi vinsældum að fagna hin síðari árin. Húsið opnar kl. 20, en ki. 21 hefsthátíðar-og skemmtidagskrá. Guðjón B. Ólafsson, fyrrv. forstjóri, flytur ávarp og dans verður stiginn til kl. 03. Miða- og borðapantanir eru milli kl. 14 og 18 í síma 91 -687111 til föstudags en aðgangseyrir cr kr. 1.800. Stjórn ísfirðingafélagsins skipa nú þau Einar S. Einars- son, formaður, Guðfinnur R. Kjartansson, varaformaður, Gunnar F. Sigurjónsson, gjaidkeri, Rannveig Margeirs- döttir, ritari, Bjarni Brynjólfsson, ritstjóri, Jóhann Jensson og Helga Þ. Bjamadóttir, meðstjómendur. -s/f. Isafjarðarkaupstaður Félagsstarf aldraðra Sólarkaffi Sólarkaffió verður fimmtudagurinn 28. janúar 1993 kl. 14 á Hótel ísafirói. Kaffihlaðborð kr. 600,- Feróir frá Hlíf kl. 14.00. Allir eldri borgarar velkomnir. Sundkennsla fyrir fullorðna Ef næg þátttaka fæst verður boðið upp á sundnámskeið fyrir fullorðna á vegum Sundhallar ísafjaróar á mánudögum og fimmtudögum kl. 21. Kennsla veróur fyrir byrjendur í sundi og fyrir þá sem eiga í einhverjum erfiöleikum meó t.d. öndun o.fl. atriði í bringusundi og baksundi. Einnig gæti þetta námskeið nýst þeim sem vilja hressa upp á fyrri kunnáttu sína í sundinu. Ef vilji er fyrir hendi veróur skriósund kennt. Aðeins 10-12 nemendur verða saman í hóp í einu. Kennari verður Rannveig Pálsdóttir íþróttakennari sem gefur nánari upplýsingar í síma 3696 eftir kl. 18.00. Sundhöll ísafjarðar.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.