Bæjarins besta - 20.01.1993, Blaðsíða 12
Fljúgið með elsta starfandi
áætlunarflugfélagi
a
FLUGFELAGID
ERNIRf
/SA FJA RÐA RFL UG VELL/
S 4200- 04688
LOKAÐ eg
vegna
Þorrablóts Víkurbær
Bolvíkinga Skemmtistaður BolungarvíkS 7130
Kirkjubygging á ísafirði:
Bærinn greiði
sóknarbarn
er ein af óskum sóknarnefndar
FRAMKVÆMDIR við
kirkjubyggingu á Isafirði
hafa staðið í stað í vetur
eins og skiljanlegt er en það
er h vergi staðar numið við
fjáröflun. Fqrmaður Sókn-
arnefndar, Björn Teitssoh,
hefur sent bæjarráði bréf
þar sem óskað er eftir fjár-
hagsaðstoð við bygg-
inguna.
I bréfinu er óskað eftir aó
byggingarleyfisgjöld vegna
nýrrar kirkju og safnaðar-
heimilis verði alveg felld
niður. að kaupstaðurinn
kaupi af sðknarnefndinni lóð
íbúóarhússins að Sólgötu 5
og að kaupstaðurinn styðji
kirkjubygginguna að ein-
hverju leyti með beinum
fjárframlögum. Farið er
fram á að greiddar verði
eitt þúsund krónur á hvert
sóknarbarn á ári meðan
kirkjubyggingin stendur sem
hæst og er talið að sá tími
sé 10 ár.
Árið 1993 er verið að
tala um þrjár milljónir og
líklega sömu upphæð öll hin
árin. Samtals gera þetta 30
milljönir sem Bjöm Teits-
son telur sóknarnefnd eiga
inni hjá bænum. Ástæðuna
segir hann vera að bærinn
hafi gert minna en upphaf-
lega hefði verið búist við í
sambandi við niðurtöku Og
flutning á gömlu kirkjunni.
Einnig talar hann um „þá
atburðarrás sem átti sér stað
um íóðarmál hér áður þar
sem bæjarráð gaf í skynhluti
sem þaðgatekki staðið við.
Hafa þessi atvik valdið
sóknarnefnd verulegu fjár-
hagstjóni sem skíptir mörg-
um milljónúm.”
Engin s vör hafa enn borist
frá bænum varðandi þetta
mál þar sem erindinu var
vísað til fjárhagsáætlunar-
gerðar. Björn sagðist ein-
ungis hafa heyrt á bæjarráðs-
mönnum að það væri ekki
ólíklegt að um einhvem fjár-
hagsstuðning yrði að ræða.
-ma.
• Nýstofnað fyrirtæki á ísafirði, Sandeyri hf. hefur fest kaup á togaranum Látravík
BA (áður Þrymur BA) og er skipið væntaniegt til ísafjarðar í byrjun febrúar.
Pátreksfjöröur / ísafjörður:
Látravíkin í flota ísfirðinga
ÚTGERÐARFÉLAG Pat-
reksfjarðar hf. hefur selt
togarann Látravík BA til
Sandeyrar hf., sem er ný-
stofnað hlutafélag á Isafirði
í eigu Básafells hf., Vél-
smiðjunnar Þryms hf., og
Pálma Stefánssonar skip-
stjóra.
Meó Látravíkinni sem áður
hét Þrymur BA 7 er seldur 245
tonna rækjukvóti en Útgerðar-
félag Patreksfjarðar hélt eftir
750 þorskígilda botnfiskkvóta
sem fyrirtækið fyrirhugar að
hluta til að selja til útgerða á
Patreksfirði og færa hluta yfir
á minni bát sem fyrirtækið
hefur hug á að kaupa í stað
Látravíkur.
Að sögn Eiríks Böðvars-
sonar hjá Básafelli hf. er á-
ætlað að skipið komi til ísa-
fjarðar um næstu mánaðar-
mót og mun það þá þegar hefja
togveiðar og mun afli skipsins
verða seldur á mörkuðum eða
fluttur beint út á erlenda
markaði. Síðar mun skipið
fara á úthafsrækjuveiðar og
verður aflanum þá landað hjá
Básafelli.
Látravík B A var upphaflega
í eigu Hraðfrystihúss Patreks-
fjarðar en þegar það varð
gjaldþrota keypti Oddi hf.
skipið af Byggðastofnun.
Árið 1991 stofnaði Oddi hf.
sjálfstætt félag um reksturinn
með þátttöku Straumness hf.
og verkalýðsfélagsins á stað-
num og gekk Patrekshreppur í
ábyrgð vegna kvótakaupa fy rir
útgerðina, en á síðasta ári
leysti hreppurinn ábyrgðirnar
til sín.
-s.
Bíldudalur:
Þingeyrarprestakall:
Olafur Jens kjörinn
sóknarprestur
Sölvi farinn til
Grundarfjarðar
ÍSÍÐUSTUvikuvarendan- I fjarðarhf.átogaranumSölva
lega gengið frá kaupum Bjarnasyni BA af Útgerðar-
Hraðfrystihúss Grundar- | félagi Bílddælinga hf.
Samþykki stærstu veðkröfu-
hafa og annarra kröfuhafa lá
fyrir er gengið var frá sölunni
og hefur skipið verið afhent
nýjum eigendum. Áhöfn skips-
ins var boðið að halda skips-
rúmi sínu, þrátt fyrir söluna.
-s.
ÓHÁÐ
FRETTABLAÐ
/
A
VESTFJÖRÐUM
ísafjörður:
Tvö innbrot
MJÖG rólcgt var á ísa-
firði uiti síðustu helgi að
sögn lögreglunnar á ísa-
firði. Lítið bar á ölvun og
óspektum og virðist sem
einhver værðsé yfir bæjar-
búum þessa síðustu daga
áður en Þorrinn hefst.
Einn maður gisti þó
fangageym sl u r 1 ögregl u nnar
aðfararnótt föstudagsins
eftir heimilisófrið á milli
hans og eiginkonu hans. Að-
faramótt laugardagsins kom
maður, alblóðugur í andliti
á lögreglustöðina, og sagði
að flösku hefði verið kast-
að í höfuð hans er hann var
að ganga frá heimili sínu.
Maðurinn taldi sig vita hver
hefði þarna verið að verki
og ætlaði að útkljá málið
upp á eigin spýtur.
Sömu nótt var tilkynnt um
innbrot í fiskvcrkun Ásgeirs
SalómonssÖnar við Sunda-
höfn þar sem talið er að 5-6
kílóum af harðfiski hafi
verið stolið. Innbrotið er
óupplýst. Þá fékk lögreglan
tilkynningu um aðþað væri
verið að brjótast inn í Gamla
sjúkrahúsið við Eyrargötu.
Lögreglan fór á vettvang og
gómaði þrjú ungmenni á
staðnum. Litlar skemmdir
urðu á húsinu aðrar cn að
tveir gluggar höfðu verið
brotnir. Ungmennin gátu
litlar skýringar gefið á at-
ferli sínu aðrar en að um
fíflaskap hafi vcrið aó
ræða. -5.
Á FIMMTUDAG í síðustu
viku fóru fram prcst-
kosningar í Þingeyrarpresta-
kalli. Einn umsækjandi var
um prestakallið sr. Olafur
Jens Sigurðsson núverandi
fangaprestur í Reykjavík og
var hann kjörinn með 20 at-
kvæðum en 21 sóknar-
nefndarmaður tók þátt í
kosningunni.
Til stóð að kosningin færi
fram að Núpi í Dýrafirði en
vegna óveðurs og ófærðar
varð að færa hana að Gemlu-
falli þar sem til leiks mættu 21
atkvæðisbær maður af þeim
39 sem höfðu rétt til að kjósa.
Gert er ráð fyrir að Ólal'ur
Jcns taki til starfa í byrjun næsta
mánaöar.
-s.
Verkalýðsfélagið Baldur á ísafirði:
Verkfafl er eina
vopn verkafólks
-segir m.a. í ályktun félagsins sem sagt
hefur upp kjarasamningum
VERKALÝÐSFÉLAGIÐ
Baldur á ísafirði samþykkti
á fundi sínum sem haldinn
var 6. janúar síðastliðinn
að segja upp kjara-
samningum félagsins með
mánaðarfyrirvara og verða
því samningar félagsins
lausir frá og með 7. febrúar
nk.
Uppsögn kjarasamninganna
er byggð á ákvæði í 12. grein
laga félagsins þar sem segir
m.a. að verði breyting á
gengisviðmiðun íslensku
krónunnar er samningurinn
uppsegjanlegur með eins
mánaðar fyrirvara. Á
fundinum var einnig samþykkt
ályktun þess efnis að
fundurinn telji að með efna-
hagsráöstöfunum sínum hafi
ríkisstjórn Islands rofið þá
þjóðarsátt sem gilt hefur frá
vordögum 1990 og að verka-
lýóshreyfingin geti ekki sætt
sig við vöruverðshækkanir,
stórauknar skattaálögur,
vaxtaokur og skerðingu á
félagslegri þjónustu sem
launafólk hefur mátt þola að
undanförnu.
Þá hvatti fundurinn verka-
fólk til baráttu fyrir launa-
hækkunum til að mæta
minnkandi kaupmætti og ef
stjórnvöld breyttu ekki um
stefnu ætti verkafólk ekki
nema eitt vopn til að grípa til
þ.e. að fara í verkfall.
-s.
• Húsnæði Verkalýðsfélagsins Baidurs á ísafirði.
Félagið hefur sagt upp kjarasamningi sínum.