Bæjarins besta - 19.05.1993, Page 2
2
BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 19. maí 1993
Stóra flugskýlið á ísafjarðarflugvelli:
Nýting skýlisins verður
til hagsbóta fyrir flug-
samgöngur á ísafirði
- sagði flugmálastjóri á fundi með bæjarráðsmönnum.
Smári Haraldsson bæjarstjóri telur hugsanlegar breytingar
á skýlinu úr sögunni í bili
ALLT virðist nú benda til
jiess að stóra flugskýlið á
Isafjarðarflugvelli verði
ekki stúkað niður eins og
hugmyndir voru uppi um af
hálfu umdæmisstjóra Flug-
málastjórnar á Isafirði og
greint hefur verið frá hér í
blaðinu. Bæjarráð Isafjarð-
ar fól fyrir skemmstu, Smára
Haraldssyni bæjarstjóra að
afla upplýsinga um breyt-
ingarnar og skrifaði hann
m.a. Flugleiðum, Land-
helgisgæslunni og Flugfélagi
Norðurlands hf. bréf vegna
þessa máls.
Landhelgisgæslan og Flug-
félag Norðurlands lýstu bæði
þeirri skoðun sinni að best
væri að halda flugskýlinu í
þeirri mynd sem það er í nú,
annað myndi rýra notagildi
þess. Að sögn Smára Haralds-
sonar hafa þrír fundir verið
haldnir vegna þessa máls, einn
með Guðbirni Charlessyni
umdæmisstjóra Flugmála-
stjórnar á Isafirði, annar með
Herði Guðmundssyni eiganda
Stóra flugskýlið ó ísafjarðarflugvelli. Líklegt er talið að
ekkert verði að fyrirhuguðum breyti á skýlinu að sinni.
Flugfélagsins Emis og sá þriðji
með þeim Þorgeiri Pálssyni
flugmálastjóra, Jóhanni H.
Jónssyni framkvæmdastjóra
flugvalladeildar og Guðbimi
Charlessyni og virðist sem
ekkert verði af fyrirhuguðum
breytingum að sögn Smára.
A fyrsta fundinum sem Guð-
björn Charlesson mætti á að
eigin ósk gerði hann grein fyrir
afstöðu Flugmálastjórnar til
málsins og taldi það rangt sem
komið hefði fram í blaða-
viðtali við Hörð Guðmunds-
son, um að öryggi flugs um
Isafjarðarflugvöll yrði stefnt
í hættu ef flugskýli 3 (stóra
flugskýlið) yrði skipt upp.
Taldi hann aðnægjanlegt rými
væri í skýli 1 ásamt því sem
eftir yrói af skýli 3, þótt búið
væri að taka hluta þess undir
starfsemi Flugmálastjórnar á
flugvellinum og lagði hann
fram hugmyndir um nýtingu
skýlis 1 og 3 fyrirskrifstofu og
tækjageymslu.
ísafjarðarflugvöllur. Flugmálastjórn kannar nú hvort hægt verði að leyfa brottfarir frá
vellinum seinna dags en nú er gert.
Á öðrum fundinum sem
haldinn hefur verið um málið
lýsti Hörður Guðmundsson
afstöðu sinni til málsins og
samskiptum sínum við um-
dæmisstjóra um málið. Lagði
hann áherslu á að ekki yrði
breytt um notkun skýlisins frá
því sem nú er auk þess sem
hann rakti upphaflegar hug-
myndir um rekstur þess og af-
stöðu flugmálayfirvalda. A
fundinum lét Hörður færa til
bókunar að Guðbjörn Charles-
son flugvallar- og umdæmis-
stjóri Flugmálastjórnar hefði
komið til fyrri fundarins á eigin
vegum, en ekki í nafni Flug-
málastjórnar, að sögn yfir-
manna hans.
Þann 5. maí síðastliðinn
komu síðan þeir Þorgeir,
Jóhann og Guðbjörn til fundar
við bæjarráð og gerði Flug-
málastjóri þar grein fyrir af-
stöðu Flugmálastjórnar til
reksturs og nýtingar skýlisins.
Lagði hann áherslu á að ekki
væri búið að taka neina
ákvörðun um nýtingu en sagði
að í þeirri athugun sem nú færi
fram á nýtingu skýlisins yrði
'haft að leiðarljósi að niður-
staðan yrði til hagsbóta fyrir
flugsamgöngur á Isafirði.
Lýstu bæjarráðsmenn ánægju
sinni með þann farveg sem
málið væri komið í.
Smári Haraldsson sagði í
samtali vió blaðið að engin
endanleg niðurstaða væri
fengin í málinu og taldi hann
málið „sofnað”. ,,Ég held að
það verði ekkert af þessum
breytingum þó svo að endan-
legt svar hafi ekki borist frá
Flugmálastjórn,” sagði Smári
Haraldsson í samtali við
blaðið.
Ekkert næturflug
á ísafjörð
Á fundinum meó þremenn-
ingunum var einnig rætt um
hugsanlegt næturflug til og frá
Isafirði eða heimild til brott-
farar seinna að degi til en nú
er. Guðbjöm Charlesson gerði
grein fyrir því með tilliti til
alþjóðastaðla væri næturflug
ekki mögulegt á Isafjarðar-
flugvelli. Hann sagði að
hugsanlega væri hægt að
heimila brottför seinna að degi
til en gert er nú, en það út-
heimti m.a. vararafstöð,
hindranalýsingu, aukin
öryggissvæði við brautina,
öryggismæli og skýjahæða-
mæli.
Jóhann H. Jónsson gerði
grein fyrir því að þar sem fram-
lag ríkissjóðs til flugmála
hefði ekki verið í takt við
það sem sett var fram 1986
þegar framkvæmdaáætlun til
10 ára var lögð fram, hefði
verkefnum seinkaó í takt við
það. Bæjarráðsmenn lögðu
áherslu á að niðurstaða fengist
sem fyrst á því hvort hægt væri
að heimila brottför frá Isa-
fjarðarflugvelli seinna dags en
nú er og þá hvaó það myndi
kosta. Er beðið svara við
þeirri fyrirspurn frá Flug-
málastjóm.
-5.
ísafjöröur:
Félags-
málastjór-
ar halda
landsfund
ÁK VEÐIÐ hefur verið
að landsfundur félags-
málastjóra verði haldinn
á ísafirði dagana 2. og 3.
júní næstkomandi og
verður fundurinn sá
fyrsti sinnar tegundar
sem haldinn er á Isafirði.
I dag eru starfandí 31
bæjarfélag á landinu og er
því gert ráð fyrir að þátt-
takendur verði alit að
fjörutíu. Félagsmálastjórar
landsins hafahaft það fyrir
venju að hittast tvisvar á
ári, vor og haust og bera
þeirþásamanbækur sínar.
Samkvæmt upplýsingum
blaðsins hefur áóur stað-
ió til að halda landsfund
sem þennan á Isafirði en
af því hefur ekkí orðið
fyrr en nú og mun ástæðan
fyrir þvi vera tíð skipti
félagsmálastjóra á vegum
ísafjarðarkaupstaðar. _s
Félagsstarf aldraðra
Fimmtudaginn20. maínk. kl. 15:00 veróur
söluboró og kaffisala í sal Hlífar 2. hæö.
Á söluborói veróur margt failegra muna
sem eldri borgarar hafa unnió í
sjálfboóavinnu. Allir bæjarbúar velkomnir.
Þakkir
Þökkum öllum félagasamtökum og
einstaklingum mikið og gott starf í þágu
eldri borgara ísafirði.
Félagsstarf aldraðra.
Vatnsveituhúsið fyrir ofan Urðarveg. Ráðgert er að nýr vatnshreinsibúnaður sem
settur hefur verið upp í húsinu verði tekinn í notkun innan fárra daga.
íbúð til sölu
Til sölu er 3ja herb. íbúð í Aðalstræti 15 á
ísafirói. Ibúðin er nýstandsett að miklum
hluta.
Upplýsingar í síma 5222 á kvöldin.
ísafjörður:
Nýr vatnshreinsibúnaður prófaður í vikulok
ÞESSA dagana er unnið að lokafrágangi á uppsetningu á nýjum vatnshreinsibúnaði
fyrir ísaQarðarkaupstað og er þess að vænta að hinn nýi búnaður verði tekinn í
notkun innan mjög skamms tíma.
Verkinu hefur seinkað nokkuð frá upphaflegri áætlun en nú er loks farið að sjást fyrir
endann á því. Prófanir á búnaðinum fara fram í þessa dagana og í lok vikunnar er væntanlegur
til ísafjarðar maður frá framleiðanda búnaðarins, sem mun sjá um iokafrágang verksins.
-s.