Bæjarins besta - 19.05.1993, Blaðsíða 10
10
BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 19. maí 1993
Guðmundur Sölvason, Sigurbjörg Guðjónsdóttir og Anna Helgadóttir létu sig ekki vanta
á staðinn.
Fjölmenni var á samkomunni, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Hjónin Oddur Oddsson og Sigrún Ámadóttir fá sér snúning.
Og sömuleiðis Margrét Guðfinnsdóttir og Sigurgeir Sigurðsson frá Bolungarvík.
Eiríkur Guðjónsson og Þ orgerður Jensdóttir í léttri sveiflu.
Glaðvær hjón, Högni Sturluson og Jóhanna Friðriksdóttir.
Hnífsdalur:
Eldri borgarar
skemmta sér
SÍÐASTLIÐINN sunnudag stóð Félagsstarf aldraðra á
ísafirði fyrir samkomu í Félagsheimilinu í Hnífsdal. Boðið
var upp á kaffi, kökur, söng og dans svo eitthvað sé nefnt.
Þarna voru um 170 eldri borgarar frá ísafirði og Bolungarvík
samankomnir, og fengu þeir sér kaffi og kökur á meðan þeir
nutu fjölbreyttrar dagskrár. Barnakór Grunnskólans söng nokkur
lög, auk þess sem í boði var ljóðalestur, írsk þjóðlagamúsík,
happdrætti o.fl. Að lokum var stiginn dans, við undirleik
Harmonikkufélags Vestfjarða. Það fór ekki á milli mála að
allir skemmtu sér mjög vel.
Afmælis„barn“ dagsins Guðrún Sigurðardóttir frá
Bolungarvík, en hún varð 92ja ára á sunnudaginn.
Tónlistarskóli Isafjarðar
Lokahátíð og skólaslit
veróur í sal Grunnskóla Isafjarðar
fimmtudaginn 20. maí (uppstigningardag)
kl. 17:00.
Tónlistarflutningur
Avörp.
Nemendur, foreldrar og aðrir
velunnarar skólans, fjölmennið!
Skólastjóri.
ísafjörður:
LAUGARDAGINN 22. maí
verður á ísafirði háð
bæjurkeppni í sundi, í til-
efni af heilsuviku á vegum
IFA (íþróttir fvrir alla), sem
standa mun vikuna 20.-26.
maí. Sunddeild Vestra mun
sjá um léttar veitingar að
sundi loknu fyrir þátttak-
endur.
22. maí verður scrstakur
sunddagur á íslandi, og ætlar
Sundsamband íslands með
bæjarkeppninni áð endur-
vekja 200 m surtdið. Fyrir-
komulag þessara keppna
verður þannig að hver ein-
staklingur er skráður niður
cftir að hannhefur lokið sínu
200 m sundi og getur hann
áðeins látiö skrá sig einu
sinni. Sigurvegari í keppninni
verður það bæjarfélag sem
hefur flésta þáíttakendur
miðað við íbúafjölda. SSÍ
ætlar síðan að gefa bikar til
þess bæjarfélags sem sigrar
og verður þeim bikar komið
fyrir S sundstað viðkomandi
bæjarfélags.
Ólafur Þór, sundþjálfari
skoraðí i dag ábæjarstjóm og
bæjarráð að mæta með
skýlurnar og leggja sitt af
mörkum. Það verður fróð-
legt að sjá hvemig þeir verða
við þeirri áskorun.
Skráning til þátttöku og allar
upplýsingar veitir Sund-
félagið Vestri í Sundhöllinni.
Félagið mun einnig sjá um
léttar kaffiveitingar fyrir alla
þá sem taka þátt í bæjar-
keppninni. Ölium er heimil
þátttaka og er aðgangur að
Sundhöll Isafjarðar ókeypis
á sunddaginn. Sundfélagið
Vestri hvetur sem flesta aó
taka þátt, því ísafjðrður á
mjög mikla vinningsmögu-
leika, vegna smæðar sinnar.
flhþ.