Bæjarins besta - 19.05.1993, Page 8
8
BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 19. maí 1993
Sunnukórinn á ísafirði.
Surmukórinn fer í tón-
leikaferð um Norðurland
SUNNUKÓRINN á ísafirði fer í tónleikaferð um Norður-
land í næsta mánuði. Æfingar standa nú sem hæst og mun
kórinn syngja í Skagafirði og Ólafsfirði. Isfirska sópran-
söngkonan Guðrún Jónsdóttir mun syngja með kórnum á
Ólafsfirði, auk þess sem gestakórar Ijá þeim lið.
Sunnukórinn flýgur til Sauðárkróks föstudaginn 4. júní og fer
beint upp í rútu til Varmahlíðar í Skagafirði, þar sem hann mun
syngja í félagsheimilinu Miðgarði þá um kvöldið. Kór heima-
manna, Rökkurkórinn mun opna tónleikana. A laugardaginn
heldur Sunnukórinn söngskemmtun í Tjamarborg á Ólafsfirði
og þar mun ísfirska sópransöngkonan Guðrún Jónsdóttir syngja
bæði einsöng og með kórnum. Gestakórar þeirra tónleika eru
kirkjukórar Dalvíkur og Ólafsfjarðar. Loks verður flogið heim
á sunnudeginum. Þrír undirleikarar eru með í för, auk kór-
stjórans Beötu Joó, sem ber hitann og þungan af æfingum og
undirbúningi og kann ferðanefnd henni miklar þakkir fyrir.
... JTi
Beáta Joó.
Hjólabrettapallurinn verður fluttur um set á næstunni.
Körfuboltaæði á meðal barna
ÍSFIRSKIR krakkar hafa
ekki farið varhluta af körfu-
boltaæðinu sem gengið hef-
ur yfir landsmenn að undan-
fórnu. Hafa krakkarnir setið
límdir við sjónvarpsskjáinn
þegar leikir frá NBA deild-
inni hafa verið á dagskrá og
þess á milli hafa þau verið
aðskipta á leikmannamynd-
um og kasta körfuboltum í
allt með gati.
Nú hefur bæjarstjórn ísa-
fjarðar ákveðið að koma á
móts við krakkana, því á næst-
unni verða settar upp þrjár
körfur þar sem krakkamir geta
unað sér. Ein karfan verður
sett upp við leikskólann í
Hnífsdal, önnur við gamla
sjúkrahúsið á Isafirði og sú
þriðja við leikvölinn í Holta-
hverfi. Aö sögn Bjöms Helga-
sonar, íþrótta- og æskulýðs-
fulltrúa er ráðgert aó þessu
verki verði lokið fyrir mán-
aðamót og kostnaður við
verkið er áætlaður um 80
þúsund á hverja körfu án upp-
setningar. Bæði í Holtahverfi
og í Hnífsdai verður sett
bundið slitlag u.þ.b. 35 fer-
metrar í kringum körfumar.
Þá hefur verið ákveðið að
færa hjólabrettapallinn sem
staðsettur hefur verið við
íþróttahúsið á Torfnesi og
verður honum að öllum lík-
indum valinn staður við gamla
sjúkrahúsið. Einnig kemur til
greina aó setja hann upp á
planinu við Grunnskólann eða
á bakvið Sundhöllina að sögn
Bjöms. _s
Ingþór Bjarnason.
sálfræðingurinn á
jöklinum
Eins og komið hefur fram
ífjölmiðíum.em þríríslensk-
ir skíðamenn nú á gangi
vestur yfir Grænlandsjökul.
Um miðja síðustu viku voru
þeir staddir í um 2000 metra
hæð og höfðu þá lagt að
baki 150 km og áttu eftir 450
km. Féjagamir þrír eru þeir
feógar Ólafur Haraldsson og
Haraldur Ólafsson og Ingþór
Bjarnason, fyrrum sálfræð-
ingur hjá fræðsluskrifstofu
Vestfjarða. Ingþór er faðir
hins þekkta skíðagöngu-
manns Rögnvaldar ingþórs-
sonar.
• •• þrjár vestfírskar
fegurðardísir
Einsog lesendum blaðsins
er eflaust enn í fersku minni
er fegurðarsamkeppni Is-
lands nýlokið. Meðal feg-
urðardísanna sem kepptu um
hinn eftirsótta titil voru þrjár
stúlkur sem eiga rætur sínar
að rekja til Vestfjarða. Fyrsta
skal telja sjálfa fegurðar-
drottningu Islands, Svölu
Björk Arnardóttur en hún er
dóttirþeirrahjónaBjarnfríðar
Jóhannsdóttur og Arnars
Ámý Hilmarsdóttir.
... og tvær til
viðbótar
Meira af fegurðardísum.
Ein þeirra stúlkna sem gert
hcfur það gott aó undanförnu
og á ættir sínar að rekja til
ísafjarðar er Árný Hilmars-
dóttir. Hún tók nýlega þátt í
keppninni um titillinn „Miss
Hawaiian Tropic” sem fram
fór í Flórída í Bandaríkjunum
og keppti þar fyrir hönd Isa-
fjarðar. Var það gert til að-
greiningar frá tve im ur öðrum
íslenskum þátttakendum sem
kepptu fyrir hönd Ólafsvíkur
og Reykjavíkur. Ámýerdóttir
Hilmars Guðmundssonar frá
Flateyri og Sigríðar Brynju
Sigurðardóttur, Ingvarssonar
afgreiðslumanns í Ríkinu á
ísafirði. Síðasta fegurðar-
dísin sem við segjum frá að
sinni er ein af stúlkunum sem
kepptu um titilinn „Fegurðar-
drottning Vestfjarða 1993",
BylgjaBáraBragadóttir. Hún
opnaði fyrir stuttu sólbaðs-
stofuna Kosta del sól að
Borgarbraut 3 í Borgamesi
ásamt móóur sinni Aldísi
Zalweski.
Þorsteinn Jóhannesson.
... nýr ræðismaður
Þýskalands á
ísafírði
Dr. Þorsteinn Jóhannesson,
yfirlæknir FSI tók í síðustu
viku við embætti ræðis-
manns Þýskalands á ísafirði.
Það var sendiherra Sam-
bandslýðveldisins Þýska-
lands á íslandi, Dr. Gottfricd
Pagenstert sem gekk frá
embættisveitingunni og af-
henti Þorsteini skilríki þar að
lútandi. Embættistakan fór
fram í Stjórnsýsluhúsinu á
ísafirði. ForverJ Þorsteins í
embættinu var Úlfur heitínn
Gunnarsson,fyrrverandi yfir-
læknir við FSÍ.
Gunnsteinn Jónsson.
• •• rotaði mink með
trékylfu nr. 3
IsFirski golfspilarinn Gunn-
steinn Jónsson, sonur Jóns
Rafns Oddssonar og Sig-
þrúðar Gunnarsdóttur, tók um
síðustu helgi þátt í Flugleiða-
mótinu í golfi sem fram fór á
Keilisvellinum í Hafnarfirði.
Þegar hann var á 17. holu og
rétt búinn að slá upphafs-
höggið sá hann mink koma
hlaupandiyfirbrautína. Greip
Gunnsteinn þá kylfu, trékylfu
nr. 3, hljóp á eftir minknum
og náði aó steindrepa hann í
einu höggi. Til að klára 17.
holu hafa menn fjögur högg.
Gunnsteinn fór hins vcgar
holuna á fimm höggum og
einu rothöggi.
...og líka sílung með
„wedge”
Atgangurinn hjá Gunn-
steini á Keilisvellinum var
ekki sá fyrsti sem hann hefur
lent í því fyrír fjórum árum
rotaði hann silung t Tunguá
með „wedge” jámi er hann
tók þátt í golfmóti á ísafirði.
Þegar það gerðist lenti kúlan
út í á og gekk Gunnsteinn að
bakkanum í þeirri von aö
finna hana. Þá sá hann allt í
einu silung og reiddi hann
því „wedge” jámið til höggs
og rotaði silunginn. Gunn-
steinn vann þá mótið og fékk
silunginn í kaupbæti. Minkinn
ætlaði hann með til lög-
reglunnar til að fá upp í móts-
gjaldið.
Úr einu í annað:
...bræður urðu
feður sama dag
Þann 10. maí síðastliðinn
gerðist sá skemmtilegi at-
burður að tveir bræður
Smári og Sævar Þorvarðar-
synir eignuðust sinn soninn
hvor með aðeins eins og
hálfs tíma millibili. Annar
drengjanna, sonur Sævars og
Guðríðar Ingunnar Krist-
jánsdóttur fæddist á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Isafirði
kl. 07.40 og síóari drengur-
inn, sonur Smára og Kristínar
Thorarensen kom í heiminn á
Fæðingardeildinni í Reykja-
vík kl. 09.15.
...ísfirskur leikari í
Sviss
Gamanleikritió „Undir
stiganum” eftir Charles Dyer
var frumsýnt í leikhúsi Jóns
Laxdals í Kaiserstuhl í Sviss
nýlega við frábærar við-
tökur. Jón Laxdal ieikstýrir
verkinu og leikur annað aðal-
hlutverkið. Jón þessi Laxdal
er Halldórsson og á ættir sínar
að rekja til Isafjarðar. Á ísa-
firði búaídagfjögursystkini
hans en það eru þau Lilja,
Málfríður, Olafur og Sturla
Halldórsböm.
Svala Björk Amardóttir.
Hólmfríður Einarsdóttir.
Bárðar Jónssonar, en hann er
sonur Jóns Ö. Bárðarsonar
sem lengi rak verslun með
sama nafni og var að Aðal-
stræti 24. Önnur vestfirska
fegurðardísin er Hólmfríður
Einarsdótdr sem kjörin var
fegurðardrottning og Ijós-
myndafyrirsæta Vesturlands.
Hólmfríður er fædd og upp-
alin í Bolungarvík, dóttir
þeirra hjóna Ásdísar Svövu
Hrólfsdóttur og Einars Guð-
mundssonar. Hún á nú iög-
heimili á Akranesi en er bú-
sett t Reykjavlk. Þriðja feg-
urðardísin er svo feguróar-
drottning Vestfjarða 1993,
BirnaMálfríðurGuðmunds-
dóttir.
ísafjörður:
ísafjörður: