Bæjarins besta - 05.08.1993, Qupperneq 6
6
BÆJARINS BESIA • Fimmtudagur 5. ágúst 1993
Vel á þriðja hundrað manns voru á ættarmóti afkomenda Sigríðar Ámadóttur og Jörundar
Ebenesersonar sem haldið var að Núpi í Dýrafirði um helgina.
Sömu sögu er að segja af ættarmóti afkomenda Hermanns Hermannssonar og Salóme
Rannveigar Gunnarsdóttur og systkina hennar sem haldið var í Ögri við ísafjarðardj úp.
Hér eru þeir frændur Kristján og Gunnar á tali á ættarmótinu í Ögri. Kristján (tv) er
sonur Gunnars Hermannssonar skipstjóra á Eldborginni og Gunnar er sonur Halldórs
Hermannssonar, skipstjóra og útgerðarmanns á Isafirði.
Dansleikir voru haldnir í samkomuhúsinu í Ögri um helgina þar sem þeir léku fyrir dansi
feðgarnir Steingrímur Birgisson frá Húsavík og eiginmaður Karítasar Hermannsdóttur
og Asgeir Steingrímsson trompetleikari hjá Sinfóníuhljómsveit Islands. A myndinni má
einnig þekkja Halldór Hermannsson frá ísafírði.
Karítas Hermannsdóttir tekur hér lagið fyrir viöstadda.
Fjöldi manns tjaldaði í Flókalundi í Vatnsfirði um helgina
enda var veður við Breiðafjörðinn eins og best verður á
kosið.
Vestfirðir/
verslunarmannahelgin:
Mikið líf og Qör
um alla firði
UMFERÐ um þjóðvegi Vestfjarða gekk eins og best
verður á kosið um verslunarmannahclgina. Mikil um-
ferð var inn ísafjarðardjúp og vcstur heiðar á föstudag
og sömu leið til baka síðdegis á mánudag. Að sögn
iögreglunnar á ísafirði cr ekki vitað un nein óhöpp um
helgina, hvorki á vegum eða á þeim stöðum þar sem fólk
safnaðist saman.
Engar skipulagðar útisamkomur voru á Vestfjörðum um
helgina en fjöldi fólks safnaðist saman á hinum ýmsu
stöðum s.s. í ísafjarðardjúpi, í Vatnsfirði, á Núpi og á
Hornströndum. I Reykjanesi við Isafjarðardjúp var ættar-
mót, sömu sögu er að segja frá Ögri en þar komu saman
afkomendur Hermanns Hcrmannssonar og Salóme Rann-
veigar Gunnarsdóttur og systkina hennar. Nokkur hundruð
manns voru í Ögri um helgina, þá var einnig mikill fjöldi við
Djúpmannabúð í Mjóafirði sem og í Þernuvík þar sem
hjónin Konráð Eggertsson, hrefnuveiðimaður og kona hans
Anna Guðmundsdóttir hcldu upp á síðbúið 100 ára sameigin-
legt afmæli sitt á laugardaginn.
A Hornströndum voru um 300 manns um helgina og 245
manns voru á ættarmóti afkomcnda Sigríðar Arnadóttur og
Jörundar Ebenesersonar sem haldið var að Núpi í Dýra-
firði. Þá var einnig mikill fjöldi fólks í Vatnsfirði, bæði á
hótelinu, í sumarhúsum og tjöldum en þar mun hafa verið
besta veðrið alla helgina. í Bjarkalundi var engin skipulögð
útisamkoma þetta árið en fjöldi fjölskyldufólks mun hafa
tjaldað þar um helgina. Ljósmyndarar blaðsins voru á ferð
og flugi um Vestfirði um helgina og tóku þá meðfylgjandi
myndir.
-s.
Þessir ungu sveinar seldu gestum í Flókalundi sólgler-
augu ó 500 hundruð kall og gekk salan vel að sögn eins
þeirra.
í Þernuvík í ísafjarðardjúpi héldu hjónin Konráð Eggerts-
son og Anna Guðmundsdóttir upp á síðbúið 100 óra
sameiginlegt afmæli sitt á laugardaginn og var margt
manna í afmælisveislunni. Hér eru þau hjón að fá sér
eftirréttinn, rabbabaragraut með rjóma.