Bæjarins besta


Bæjarins besta - 05.08.1993, Page 10

Bæjarins besta - 05.08.1993, Page 10
10 BÆJARINS BESTA • Fimmtudagur 5. ágúst 1993 Sigmundur Þorkelsson SPAUGARI síðustu viku, Ketill Helgason fisk- verkandi í Bolungarvík skoraði á Sigmund Þor- kelsson harðfiskverkanda í Bolungarvík að koma með næstu sögu og hér kemur framlag hans: „Síðastliðið sumar var ég að þrifa bílinn minn á þvottaplani Shell-skálans í Bolungarvík er þangað snar- aðist Ketill Helgason með miklum bægslagangi og bauð mér uppá py lsu og kók. Ég jánkaði því þar sem ég þekkti hann ekki af slíkum höfðingsskap, og ákvað þess vegna að grípa gæsina á meðan hún gafst. Nóg um það. Stuttu síðar kom að skuldadögunum því vinurinn hafði látið skrifa þetta á mig í Shell-skálanum sbr. meðfylgjandi reikning- ur sem segir: Veitingar kr. 700. Afhent Katli Helgasyni. Sigmundur sást borða af veitingunum." Eg skora á Gunnar Halls- son Shell-skálaforstjóra að koma með nœsta spaug. Shell Veitingareikningurinn. .fljótt flýgur fiskisagan Fréttir af sjávarútveginum, fiskvinnslunni og fleira í þeirn dúr Súðavtk: Bessinn með 150 tonn Bessinn kom til hafnar í Súðavík á þriðjudag með 150 tonn eftir viku útivist. Uppistaðan í afla skipsins var þorskur. Á miðvikudag í síðustu viku landaði Sighvatur Bjarnason 23 tonnum af rækju, Orrinn kom á fimmtudag með 9 tonn af rækju og Kofrinn sama magn daginn Bolungarvík: Enn landar Höfrungur Höfi-ungur AK landaði tvisvar í síðustu viku í Bolungarvík, samtals I. 668 tonnum af loðnu sem fóru til vinnslu hjá síldarmjölsverksmiðju þeirra Bolvíkinga. Línubátar staðarins lönduðu alls 3,4 tonnum í síðustu viku og var Guðný þeirra aflahæst með 2,6 tonn úr einum róðri. Drag- nótarbátarnir komu með II, 8 tonn og var Páll Helgi þeirra aflahæstur með 5 tonn úr ijórum róðrum. Næstur kom Jakob Valgeir með 3,7 tonn úr þremur róðrum. Færabátarnir lönduðu alls 12 tonnum og var Árni Ola þeirra afla- hæstur með 2,2 tonnum úr fiórum róðrum. Þá landaði Flosi 10 tonnum af rækju og Gunnbjörn 7,4 tonnum, báðir eftir eina veiðiferð. ísafiörður: Hálfdán í Búð með 51 tonn af grálúðu Allir ísfisktogarar ísfirðinga hafa landað á ísafirði frá því við sögðum síðast aflafréttir. Hálfdán í Búð landaði 51 tonni af grálúðu á föstudag og Guðbjartur landaði 70 tonnum af blönduðum afla á laugardag. Stefnir landaói síðan 100 tonnum af blönduðum afla á þriójudag og sama dag lönduðu einnig Páll Pálsson 90 tonnum og Guðbjörg 105 tonnum. Oll skipin eru farin aftur á veiðar og eru væntanleg í land á þriðjudag í næstu viku. Þingevri: væntanlegt á morgun Fry stitogarinn Sléttanes frá Þ ingeyri er vænt- anlegt til heimahafhar sinnar á morgun föstu- dag. Á laugardag var skipið komið með 153 tonn að verðmæti um 25 milljónir króna. Framnesið landaði á Þingeyri um miðja síðustu viku, samtals um 85 tonnum. Skipió fór síðan í klössun til Bolungarvíkur þar sem það er enn. ísafjörður: Rækjuskipin með 172 tonn Rækjuskipin sem leggja upp á ísafirði komu með samtals 172,1 tonn að landi í síðustu viku og fram til dagsins í gær. Albert GK landaði á miðvikudag í síðustu viku 21 tonni. Sama dag kom Guðmundur Péturs meö 14 tonn og daginn eftir kom Huginn með 17 tonn. Skutull kom síðan á laugardag með 90 tonn og Auðunn landaói sama dag 3,5 tonnum. Hafberg landaði síðan á þriðjudag 16 tonnum af rækju og 3 tonnum af fiski og Albert landaði í gær 10 tonnum. Hlutavelta til styrktar sundlaugarbyggingu Stúlkurnar þrjár á myndinni hér ad ofan héldu fyrir stuttu hlutaveltu til styrktar sundlaugarbyggingu á I’ingeyri og söfnuðu alls 1.050 krónur. Afraksturinn færðu þær verktaka byggingarinnar Sigmundi Þ órðar- syni sem kom peningunum til skila á hreppsskrif- stofuna. Stúlkurnar heita Bylgja Dögg Hafsteinsdóttir, Lína Þóra Friðbertsdóttir og Guðrún Lind Rúnars- dóttir. Með þeim á myndinni er Sigmundur Þórðarson. ísafjöröur: Hlutavelta til styrktar Rauða krossinum í lok síðasta mánaðar héldu börnin á myndinni hér að ofan hlutaveltu til styrktar Rauða kross íslands. Afrakstrinum kr. 1.211.10 færðu þau sóknarprestinum á ísafirði sem mun koma peningunum til skila. Börnin heita f.v. Alberta, Marta Dís, Gunnar Ingi, Jónína og Dagný. Slunkaríki: Guðrún Guðmunds^ dóttir sýnir ný verk s - unnin í Astralíu og Bandaríkjunum LAUGARDAGINN 7. ágúst opnar Guðrún Guð- mundsdóttir einkasýningu í Slunkaríki. Þetta er önnur sýning Guðrúnar hér á heimaslóðum. Hún sýnir nú sem fyrr verk úr handunnum pappír, unnin í Ástralíu og Bandaríkjunum á síðustu tveimur árum. Guðrún lauk í vor meistara- prófi frá School of the Art Institute of Chicago, en áður hafði hún nuymið við Curtin háskóla í Perth í Ástralíu, Iowa háskóla í Bandaríkjunum og við Haandarbejdets Fremmes Seminarium í Kaupmanna- höfn. Þetta er fjórða einka- sýning Guðrúnar, sú þriðja á íslandi, en undanfarin ár hefur hún auk þess tekið þátt í nokkrum alþjóðlegum sam- sýningum í Bandaríkjunum og Ástralíu. Hún varmeðal annars einn af fulltrúum Islendinga á samsýningu sem íslenskar konur héldu með konum frá Minnesota í Minneapoilis árið 1990. verður í efri sal Slunkaríkis. Guðrún mun nýta báöa sali Slunkaríkis að þessu sinni. í þeim efri verður innsetning unnin úr japönskum pappír, en í kjallaranum verða vegg- myndir úr vestrænum pappír sem hún bjó tii sjálf. Sýning Guðrúnar verður opnuð klukkan fjögur á laugar- daginn og eru allir velunnarar velkomnir. Sýningin stendurtil 29. ágúst. fihþ.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.