Bæjarins besta - 02.03.1994, Page 6
6
BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 2. mars 1994
Sólrisuhátíðin
hefst á föstudaginn
HIN árlega Sólrisuhátíð
Framhaldsskóla Vestfjarða
hefst n.k. föstudag með því
að útvarpið Mýflugan hefur
flug sitt um Isafjarðarkaup-
stað.
Er þetta 21. hátíðin sem
haldin hefur verið til að minnast
sólrisunnar og mun hún standa
í níu daga, eða til 13. mars nk.
Dagskrá Sólrisunnarer að venju
mjög fjölbreytt en meðal
skemmtikrafta má nefna þá
Stein Ármann Magnússon og
Davíð Þór Jónsson, sem kalla
sig Radíusbræður. Þá mun Illugi
Jökulsson lesa upp úr verkum
sínum, Megas mun skemnita
sem og Borgardætur. Þá mun
dúettinn Súkkat koma fram auk
fjölmargra ísfirskra skemmti-
krafta. Dagskrá Sólrisuhátíðar
er annar sem hér segir:
Föstudagur
4. mars kl. 16.00.
Utvarp Mýflugan hefur flug
sitt um ísafjarðarkaupstað. Ut-
varpsstöðin er að vanda til húsa
í heimavist Framhaldsskólans.
Sent verður út daglega fram til
12. mars, léttu tónlistarefni og
töluðu máli og standa útsend-
ingar að jafnaði frá kl. 16-20.
Útvarpsstjóri er Hermann Vem-
harður Jósefsson. Símanúmer
stöðvarinnar er 4241.
Föstudagur
4. mars kl. 20.30.
Frumsýning á Sköllóttu söng-
konunni og Góð til að giftast,
eftir Eugéne Ipnesco í þýðingu
Karls Guðmundssonar undir
leikstjórn Olafs Guðmunds-
sonar. Leikendureru nemendur
Framhaldsskóla Vestfjarða. Um
er að ræða grátbrosleg „and-
leikrit” eftir einn frægasta leik-
ritahöfund 20. aldar. Sýnt er í
aðalsal Framhaldsskólans. Verð
aðgöngumiða er kr. 800, en
börn 12 ára og yngri greiða þó
aðeins kr. 400.
Laugardagur
5. mars kl. 17.00.
Söngskemmtun í Frímúrara-
salnum á ísafirði í samvinnu
við Tónlistarfélag ísafjarðar.
Elín Ósk Óskarsdóttir og Kjart-
an Ólafsson syngja við undir-
leik Hólmfríðar Sigurðardóttur.
Sunnudagur
6. mars kl. 20.30.
Sköllótta söngkonan og Góð
til að giftast eftir Ionesco. Önnur
sýning leikhóps nemenda í aðal-
sal Framhaldsskólans. Veit-
ingasala í hléi. Verð aðgöngu-
miða er kr. 800 fyrir fullorðna
og kr. 400 fyrir börn 12 ára og
yngri.
Mánudagur
7. mars kl. 20.30.
Skáldavaka og kökukeppni í
aðalsal Framhaldsskólans. 111-
ugi Jökulsson rithöfundur les
upp úr verkum sínum og rabbar
við áheyrendur. Einnig ferfram
samkeppni um kökubakstur.
þ.e. valin verður bragðbesta
kakan. Keppnin er síðasti liður
í allsherjarkeppni námshópa
Framhaldsskóli Vestfiarða. Næstkomandi föstudag hefst níu daga hátíð á vegum
skólans, sólrisuhátíðin svol
skólans sín á milli, m.a. í
íþróttum.
Mánudagur
7. mars kl. 23.00.
Kvikmyndasýning í ísafjarð-
arbíói.
Þriðjudagur
8. mars kl. 21.00.
Radíuskvöld. Steinn Ármann
Magnússon og Davíð Þór Jóns-
son skemmta áheyrendum með
gamansemi sinni, í sal Fram-
haldsskóla Vestfjarða. Veit-
ingasala í hléi. Verð aðgöngu-
miða kr. 700.
Þriðjudagur
8. mars kl. 23.00.
Kvikmyndasýning ífsafjarð-
arbíói.
Miðvikudagur
9. mars kl. 10.00-15.00.
Opið hús í Framhaldsskóla
Vestfjarða. Kynntar verða hinar
ýmsu námsbrautir skólans. Gert
er ráð fyrir að nemendur í 10.
bekk grunnskólanna á Isafirði,
í Bolungarvík og annars staðar
í Isafjarðarsýslu komi í heim-
sókn í Framhaldsskólann. Þeim
verða sýnd húsakynni skólans
á meðan þar fer fram bæði bók-
leg og verklega kennsla; einnig
verður skipulag skólans og
félagslíf kynnt.
Miðvikudagur
9. mars kl. 20.30.
Sköllótta söngkonan og Góð
til að giftast eftir lonesco. Þriðja
illaða, sem nú er haldin í 21
og e.t.v. síðasta sýning leikhóps
nemenda í aðalsal Framhalds-
skólans. Verð kr. 800 fyrir full-
orðan og kr. 400 fyrir börn 12
ára og yngri.
Miðvikudagur
9. mars kl. 23.00.
Kvikmyndasýning ífsafjarð-
arbíói.
Fimmtudagur
10. mars kl. 10.00
(nema annað verði auglýst)
og föstudagur
11. mars kl. 10.00.
Kennsla í Framhaldsskól-
anurn með óhefðbundnum
hætti. Haldin verða sextán stutt
námskeið um hin ýmislegustu
efni. Dæmi um heiti námskeiða:
Skíðanámskeið, ljósmyndun,
gerbakstur, fluguhnýting,
postulínsmálning, hattagerð,
nudd, saga írska lýðveldis-
hersins. Leiðbeinendur á nám-
skeiðunum verða bæði kennarar
skólans og ýmsir nágrannar sem
góðfúslega hafa lofað að miðla
nemendum skólans nokkru af
reynslu sinni og þekkingu.
Fimmtudagur
10. mars kl. 21.00.
Megas,Magnús Þór Jónsson.
Hinn þekkti tónlistarmaður
heldur tónleika í aðalsal Fram-
haldsskólans. Verð aðgöngu-
miða er kr. 600. Veitingasala í
hléi.
skipti.
Föstudagur
11. mars kl. 23.00.
Sólrisudansleikur í Sjálf-
stæðishúsinu á Isafirði. Meðal
annars koma fram dúettinn
Súkkat og ísfirska stórhljóm-
sveitin K-Y.
Laugardagur
12. mars kl. 21.00.
Stórtónleikar ísfirsku rokk-
hljómsveitarinnar Urmuls í
Sjálfstæðishúsinu. Tónleikamir
verða haldnir í samvinnu við
Ungmennafélag Grænagarðs.
Sunnudagur
13. mars kl. 21.00.
Söngskemmtun. Borgardæt-
ur skemmta við undirleik á sal
Framhaldsskólans. Kaffiveit-
ingar. Miðaverð kr. 800.
Ákveðið hefur verið, að
nemendur í Patreksfjarðarúti-
búi Framhaldsskóla Vestfjarða
komi í hópferð á sólrisuhá-
tíðina, og munu þeir m.a.
notfæra sér hina óhefðbundnu
kennslu, þ.e. taka þátt í nám-
skeiðunum 10. og 11. mars.
Starfsfólk og nemendur
Framhaldsskóla Vestfjarða vill
koma á framfæri þökkum til
allra þeirra sem aðstoðað hafa
við undirbúning þessarar 21.
sólrisuhátíðar um leið og allir
nágrannar skólans um Vestfirði
eru hvattir til að sækja hin ýmsu
dagskráratriði. ,r
FJORÐUNGSSJUKRAHUSIÐ
Á ÍSAFIRÐI
Sendibifreið til sölu
Sendibifreið FSÍ með skráníngarnúmeri í-4951
er til sölu. Bifreiðin er af tegundinni Mitsubishi
L-300, árgerð 1985, ekin u.þ.b. 80.000 km og selst
i núverandi ástandi. Nánari upplýsingar gefur
framkvæmdastjóri í vs. 4500.
Laus staða
Auglýst er laus til umsóknar staða
skrifstofumanns. Um er að ræða hálft starf
hjá hafnarsjóði og hálft hjá bæjarsjóði.
Laun skv. kjarasamningi FOS-Vest.
Umsóknarfrestur er til mánudags 7. mars
1994. Upplýsingar veitir undirritaður.
Bæjarstjórínn á Ísaíirði.
Sla'ifstofuhúsnæði
til leigu
Til leigu er skrifstofuhúsnæði að 2. hæð
í Hafnarhúsinu (þar sem Sjómannastofan
var áður), u.þ.b. 100 m2.
Umsóknir sendist undirrituðum, sem
jafnframtveitirnánariupplýsingar, fyrir 10,
mars nk., pósthólf 183.
Hafnarstjórínn á ísafirði.
ÚTBOÐ
Flugmálastjóm ríkisins óskar tilboða í
innri frágang flugstöðvarhúss á Bíldudals-
flugvelli. Húsið er að flatarmáli 130 m2.
Áætluð verklok em 30. júní 1994.
Gögn verða afhent á skrifstofu Flugmála-
stjórnar, Reykjavíkurflugvelli og hjá um-
dæmisstjóra Flugmálastjómar á ísafjarð-
arflugvelli, gegn 10.000,- króna skilagjaldi.
Tilboðum skal skila til skrifstofu Flug-
málastjómar á Reykjavíkurflugvelli fyrir kl.
11:00 þriðjudaginn 22. marz nk., og verða
þau opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem
þess óska. Flugmálastjórí.
ísafjörður: