Bæjarins besta


Bæjarins besta - 02.03.1994, Page 12

Bæjarins besta - 02.03.1994, Page 12
Fljúgið meö elsta BÍLALEIGAN (-JERNIR starfandi áætlunar■ flugfelagi á íslandi FLUGFÉLAGIÐ ERNIRf ÍSAFJARÐARFLUGVELLI <ö 4200 • □ 4688 / / Þar sem bílarnir skipta um eigendur A ISAFIRÐI SÍM! 5267 SKEIÐI 5 • ÍSAFIRÐI © 4300 • © 4448 Fyrir hann... JONEl iGUNNA Ljóninu, Skeiði, ísafirði, sími 3464 ísafjöröur: Framtíðin liggur í sam vélsmiðjanna við Djúp einingu - segir Sævar Birgisson, starfandi framkvæmdastjóri Skipasmíðastöðvar Marsellíusar hf., en 24 starfsmönnum fyrirtækisins var sagt upp störfum á föstudag ÖLLUM starfsmönnum Skipasmíðastöðvar Marsellíusar hf„ á Isafirði var sagt upp störfum á föstudaginn. Starfs- mennirnir sem eru 24, hafa flestir þriggja mánaða upp- sagnarfrest og standa vonir til að flestir þeirra ef ekki allir verði endurráðnir. Skipasiníðastöð Marsellíusar hf., hefur líkt og flest önnur málmiðnaðarfvrirtæki landsins átt í veru- legum rekstrarörðugleikum undanfarin ár en sú staða hefur að stærstum liluta skapast vegna gjaldþrota viðskiptavina fvrirtækisins á undantörnum fjórum árum en á því tímabili hefur Skipasmíðastöðin tapað rúmum 40 milljónum króna. „Við reiknum með að endur- ráða flest alla en það skýrist á næstu vikum. Það hefur farið fram endurskipulagning á rekstri fyrirtækisins og er sú vinna á lokastigi. Ætlunin var að ijúka þeirri vinnu fyrir síðustu mánaðarmót en þá hefðum við að öllum líkindum komisthjáþessum uppsögnum. Það tókst ekki og því þurftum við að grípa til þessara ráða án þess þó að það sé ætlunin að segja þessum mönnum endan- lega upp störfum,” sagði Sævar Birgisson, starfandi fram- kvæmdastjóri Skipasmíða- stöðvar Marsellíusar hf. „Síðustu fjögur árin höfum við tapað um 40 milljónum króna á gjaldþrotum viðskipta- vina okkar. Við höfum horft upp á rækjuiðnaðinn hrynja á undanförnum árum og fyrir- tækjum í þeim iðnaði hefur alltaf fylgt miklar skuldir hjá okkur. Við höfum fengið lang- verstu útreiðina í rækjuiðnað- Afhending Sævar Birgisson. inum þó svo að við höfum tapað hjá fyrirtækjum í ýmsum öðrum greinum.” Verkefnastaða fyrirtækisins hefur verið mjög góð að undan- förnu sem er ólíkt því sem verið hefur hjá mörgum öðrum fyrir- tækjum í skipaiðnaði en þess ber þó að geta að starfsmönnum fyrirtækisins hefur fækkað um helming á undanförnum árum en þeir voru flestir um 50 talsins. Greint hefur verið frá því að allar vélsmiðjur við Djúp séu að vinna sameiginlega að end- urskipulagningu með samstarf eða samruna í huga en ekki hefur fengist staðfest hvort einhverjar þeirra muni sam- einast á næstunni. „Ég veit ekki hvað aðrir eru að hugsa en gagnvart Skipa- smíðastöðinni hefur slíkt ekki borið á góma. Ég veit til þess að smiðjurnar við Djúp hafi verið að ræða saman um hugsanlegt samstarf við þróunarstarf og markaðssetningu en ég hef ekki heyrt um neina sameiningu. Skipasmíðastöð Marsellíusar hf., á ísafirði. Hins vegar er fyrir löngu orðið tímabært að renna þessum fyrir- tækjum saman. Skipasmíðastöð Marsellíusar er með um þriðj- ung af allri veltu í skipavið- gerðum á svæðinu og hér eru 24 menn. Hitt eru skonsur með tveimur til fimm mönnum. Ég gæti trúað því að smiðjurnar væru orðnar tíu frá Suður- tanganum og út í Bolungarvík. Það sér hver heilvita maður að slíkt gengur ekki til lengdar. Ef menn ætla að ná verk- efnum inn á svæðið verða þeir að standa saman. Það getur engin þessara smiðja tekið nein stærri verk að sér án samvinnu. Það er alveg skelfilegt að horfa upp á hvernig sá litli vísir sem var að samvinnu í framleiðslu á jámi er farinn. Við erum al- gjörlega búnir að missa for- ystuna varðandi rækjuiðnaðinn svo dæmi séu tekin. Mín skoðun er sú að framtíðin liggi í sam- einingu vélsmiðja við Djúp. Ef það gerist ekki ráðum við ekki við nein stærri verkefni,” sagði Sævar Birgisson. Sævar sem starfað hefur hjá Skipasmíðastöð Marsellíusar hf„ og þar áður hjá M. Bem- harðsson skipasmíðastöð í rúm ellefu ár er senn á förum frá ísafirði og hefur nýr fram- kvæmdastjóri verið ráðinn í hans stað. Það er Sigurður Jóns- son, skipatæknifræðingur sem starfað hefur hjá fyrirtækinu um nokkurra ára skeið. „Það er ekki komið á hreint hvenær ég fer. Ætlunin er að sjá fyrir endann á þessari uppstokkun áður en af því verður,” sagði Sævar. -s. ráðgerð eftir fjóra mánuði ÞESSA dagana vinna starfsmenn Ágústar og Flosa hf„ á Isafirði hiirðuni höndum að því að reisa burðarvirki hinnar nýju sorpeyðingarstöðvar Is- Hrðinga í Engidal í Skutuls- Firði en ráðgert að því verki verði iokið í næsta mánuði. I framhaldi af því munu starfsnienn Orms og Víg- lundar hf„ setja upp brennslu- búnaðinn og síðan fer fram vinna við lokafrágang húss- ins sem boðin var út í síðustu viku. Ráðgert er að þeim áfangaverði lokiðsíðari hluta maímánaðar. Þá fer fram prufukeyrsla á vélbúnaði stöðvarinnar en formleg af- hending stöðvarinnar er ráð- gerð í júlímánuði. Bolungarvík: Bakarinn hf. kaupir bakarí Vöruvals BAKARINN hf. á ísafirði, í eigu Guðbjarts Guðbjarts- sonar, keypti um síðustu helgi bakaríið í Vöruval í Bolungarvík (fyrrum Verslun E. Guðfinnssonar) og hófst nýji reksturinn í gær en Vöruval hefur haldið uppi rekstri bakarísins frá 1. desember síðastliðnum. „Ég ætla að halda uppi bakstri ábáðum stööum, jafnt á ísafiröi og í Bolungarvík og þó að þetta sé aðeins fyrsti dagurinn okkar, þá er allt þegar komið á fullt,” sagði Guðbjartur í gær en hann vildi ekki gefa upp kaupverðið á nýja fyrirtækinu. „Ég réðst í stækkunina því að ég tel að bakaríið í Vöruvali passi vel inn í minn rekstur og ég er sannfærður um að þetta gengur upp. Bolvíska bakaríið baraeitt og sér, væri líka of lítil eining fyrir einhvem aðila að reka.” -hþ. ÓHÁÐ FRÉTTABLAÐ r A VESTFJÖRÐCM ísafjöröur: Stálu bensíni Á MIÐVIKUDAG í síð ustu viku fékk lögreglan til- kynningu uin að fjórir ungir menn væru að stela bensíni af bifreiðum sem stóðu við Bílaleiguna Erni á Skeiði á Isafirði. Lögreglan fór þegar á staðinn og stóð þjófana að verki. Höfðu þeir m.a. tekið botnveniil af nokkrum ben- síntönkum og létu bensínið renna þannig niður en það mun vera tnjög sjaldgæf að- ferð við slíka iðju. -s. ísafjöröur: MÍSStí skírteinið SÍÐASTA helgi var fremur róleg að sögn lög- reglunnar á ísafirði. Einn maður fékk þó að gista fangageymslur lögreglunn- ar vegna óláta og tveir aðrir voru stöðvaðirgrunaðir um ölvun við akstur. Síðdegis á fimmtudag var ungur ökumaður stöðvaður á Strandgötu í Hnífsdal en þar ók hann á 95 km hraða en leyfður hántarkshraði á þess- um slóðum eru 35 km. Öku- ntaðurinn missti skírteini sitt um tíma. Aðfararnótt laugardags fékk lögreglan tilkynningu um rúðubrot í Bókaverslun Jónasar Tómassonar og er það mál í rannsókn. Nóttina á eftir iékk maður einn að gista fangageymslur lög- reglunnar vegna ölvunaról- áta og var það eina gisting helgarinnar hjá lögreglunni. Rétt fyrir klukkan 8 á sunnudagsmorgun var síðan ökumaður bifreiðar einnar tekinn grunaður um ölvun við akstur og annar var tekin vestan Breiðadalsheiðar að- fararnótt sl. þriðjudags. -s. RITSTJORN ^ 4560 • FAX ^ 4564 • AUGLYSINGAR OG ASKRIFT ‘S8 4570

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.