Bæjarins besta


Bæjarins besta - 02.03.1994, Side 11

Bæjarins besta - 02.03.1994, Side 11
MJARINS BESTA • Miðvikudagur 2. mars 1994 1 1 Keppendurnir tíu að loknum fyrstu Vetraríþróttum stúlkna. Verðlaunaafhending fór fram á tilhöggnum ís-verðlaunapalli sem einn faðirinn útbjó. Allt of fáir foreldrar sáu sér fært að mæta og fylgjast með þessum skemmtilegu börnum í þessari einstöku keppni. ísafjöröur: Hópur ellefu ára stúlkna hólt sína eigin skauta- keppni á Torfnesi - ágóði keppninnar til styrktar Lilju Óskarsdóttur, kristniboða HÓPUR ellefu ára ísfirskra vinkvenna héldu svokallaðar Vetararíþróttir stúlkna ’94 síðastliðinn sunnudag. Kepp- endur voru tíu talsins en að félögum og stuðningsmönn- um meðtöldum voru á þriðja tug barnaá leikunum. Keppn- in fór fram á ísilögðum malar- vellinum á Torfnesi og var keppt í skautahlaupi, listdans (para-og einstaklingskeppni) og sleðabruni. Sigurvegari leikanna var Ingunn Einars- dóttir en dómgæsla og tíma- varsla var í umsjón Engil- ráðar Osk Einarsdóttur. Stúlkurnar lögðu mikið á sig við undirbúning þessara leika, þær nutu tjárstyrks foreldra fyrir verðlaunapeningum og seldu samlokur, brjóstsykur og kakó á meðan að keppninni stóð. Aðalsöfnunin, og jafnframt einn aðaltilgangur leikanna, var hins vegar að styrkja Lilju Óskarsdóttur, kristniboða í Eþíópíu sem stúlkurnar höfðu heyrt og lært um í Hvítasunnu- skólanum í Salem. 1 skautahlaupinu var ekkert gefið eftir, hlaupið var á harða- spretti yfir hálfan fótbolta- völlinn og má með sanni segja að í þeirri grein hafi keppnin verið afar hörð enda skildu aðeins örfá sekúndubrot efstu sætin að. Vinkonurnar sýndu mikla skautasnilld á svellinu og skemmtilegar sveiflur og taktar komu fram í listdansinum og mátti sjá að sumar stúlknanna höfðu greinilega fylgst náið með listdanskeppninni á ÓL í Lillehammer, þvílíkir voru hringirnir og stíllinn. Þá fór fram sleðakeppni í brekkunni fyrir ofan skauta- svellið en aðeins var notast við eina snjóþotu og var keppt um að komast á sem stystum tíma niður brekkuna. Milli keppnis- greina tóku keppendur kakóhlé enda nægur tími til stefnu, ræddu dómgæslunaog frammi- stöðuna jafnt við andstæðinga Hart var barist í skautahlaupinu og var minnsti munur á keppendum aðeins tjögur sekúndubrot. sem og áhorfendur. Að lokinni eins og hálfs klukkustundar keppni lágu úrstlitin Ijós en þau voru fengin með vísindalegum aðferðum. Lagður var saman árangur keppenda úr öllum greinum þar sem listfengi og tími skiptu höfuðmáli. Gullið hreppti Ingunn Einarsdóttir, silfrið Edda María Salmars- dóttir og bronsið hlaut Berg- lind Ósk Aðalsteinsdóttir. Að auki fengu verðlaunahafar viðurkenningarskjöl, vandlega rituð og skreytt af mótsnefnd með áfestum sleikipinnum. Þess skal sérstaklega getið að Vetraríþróttir stúlkna ’94 voru ekki haldnar í neinum tengslum við skóla eða félaga- samtök, heldur gerðu börnin þetta algjörlega uppá eigin spýtur og af eigin frumkvæði. Einhverra hluta vegna vildi karlpeningurinn í árganginum sem minnst af þessari keppni vita en Ijóst er að hér er kjarna- árgangur á ferð, konur með frumkvæði og vilja, sem án efa munu skara fram úr í félagslífi, starfi oa leik um ókominn tíma. -hþ. Þegar fréttaritari BB leit inn í Grunnskólann á Suðureyri á dögunum varð hann þess var að nemendur skólans gera fleira en að sitja yfir bókalestri. Ólöf Oddsdóttir leirlistakona var þennan dag að kenna 5. og 6. bekk að hnoða og rnóta leir svo úr urðu hinir eigulegustu hlutir. Krökkunum líkaði vel að fá að handfjatla leirinn og þótti það góð tilbreyting frá bókayfirsetunni. _v„v Halldór Mikkaels SPAUGARI síðustu viku, Alla Gunnlaugsdóttir, stöðv- arstjóri Pósts og sínia á Flat- eyri, skoraði á útgerðar- manninn og stórbóndann Halldór Mikkaelsson að Neðri-Breiðadal að koma með næstu sögu og hér kemur framlag hans: Þegar mér varð Ijóst að ég yrði spaugari vikunnar að þessu sinni, varð mér hugsað til allra þeirra símhringinga sem dynja yfir mann alltaf hreint, nánast á hverju einasta kvöldi. Sérstak- lega fyrir jólin, þá er verið að bjóða manni allt mögulegt. Svo var eitt sinn hringt að kvöldlagi og röddin bauð gott kvöld og sló á vingjarnlegustu raddböndin. Sölumaðurinn bauð liltekna bók á tilboðsverði. „Nei takk! Þú hringirheldur seint því ég er á leiðinni að deyja,” sagði ég rámri röddu. „Hvað í ósköpunum amar að?” spyr þá manngreyið. „Krabbi í hálsi,” var svarið. Þá kom löng þögn og eftir vandræðalegar sekúndur stundi maðurinn upp úr sér, „hann móðurbróður minn var með... Og svo var bara eins og hann hefði gufaðupp þvíþaðheyrðist ekki meira í honum frarnar. Ég skora á spaugsama hjartaknúsarann Sigurgeir Jó- hannsson eggjabónda í Minni- hlíð í Bolungarvík að koma með nœstu sögu. Fastáúmr Vídeóhallarirwar athuejið!!! Þið fáið nftt glæsilegt 30 síðna blað með öllum útgefnum myndum marsmánaðar FRÍTT! NÝJAR OG FUNHEITAR MYNDIR: INNOCENT BL000 BLOODIN, BLOOD OUT SUVER 06 MARGAR FLEIRIGÓÐAR... Qóða skernntftm, Gaui- M Veðurspádeild Veðurstofu Islands 2. mars 1994 kl. 10:26 Horfur á landinu næsta sólarhring: STORMVIÐVÖRUN: Gert er ráð fyrir stormi á SV-djúpi. Fremitr hæg SV-átt á landinu, en fer þó vaxandi SV-og V-lands í íyrramálið. S- og V-lands verða él eða slydduél.en úrkomu- laust í öðrum landshlutum. Kólnandi veður. Horfur á landinu föstudag: Fremur hæg SV- og S-átt. Smáél suðvest- an- og vestanlands, en úrkomulaust annars staðar. Frost 5 til 7 stig. Horfur á landinu laugardag: Breytileg átt, gola eða kaldi. É1 norðan- og norðvestanlands en að mestu úrkomu- laust annars staðar. Frost 4 til 6 stig. Horfur á landinu sunnudag: Worðanátt, allhvöss víða norðan- og vestanlands, en hægari annars staðar. É1 um norðanvert landið, en bjartviðri sunnatil á landinu. Frost 7 til 8 stig. SMÁ Til sölu er Nintendo leikja- tölva meö 3 leikjum, 2 stýri- pinnum og byssu. Upplýs- ingar í síma 3613. Til sölu er Arctic Cat EXT Special vélsleöi árg.’91, ekinn 5000 km. Verö kr. 450.000. Ábreiöa fylgir. Upp- lýsingar I síma 7316og 7554. Til sölu erDaihatsu Charade bifreiö árg.'89, ekinn 50.000 km. Mjög vel meö farinn og lítur vel út. Upplýsingar a daginn í sima 7348 og á kvöldin í s. 7272. Til sölu er Yamaha hljóm- borð. klassískur gítar, Fighter gítarmagnari (Max Fright), golfsett, skíöa- klossar og hvítir skautar nr. 42. Upplýsingar gefur Einar Örn í sima 7543. Óska eftir Slides-sýningar- vél á sanngjörnu veröi. Upp- lýsingar gefur Sigfús, Pólgötu 6, í síma 3049. Óskum eftir aö ráöa mann- eskju tilinnheimtustarfafyrir Áral-Metró. Upplýsingar í síma 4027 eftir kl. 19. Til söiu er Silvercrossbarna- vagn og Brio kerra. Upp- lýsingar í síma 4027. Ungur maður sem er aö hefja búskap vantar allan hús- búnað, ódýrteöagefins. Upp- Iýsingarísíma5131 ákvöldin. Hestamenn! Til sölu eru 4 básarf hesthúsinu að Búöar- túni 9, Hnífsdal. Upplýsingar í síma 4023. Til sölu er Arctic Cat EXT MC vélsleði, árg.'90. ekinn 4000 km. Allar legur í búkka nýjar, 2 löng belti, farangursgrind, bensínbrúsar o. m. fl. Upp- týsingar í síma 5222 á kvöldin. Óska eftirskíðum, 80-90 cm, með bindingum. Upplýsingar I síma 4332. Til sölu eræfingabekkurfyrir fætur og bekkpressa ásamt lyftistöng. Meöfylgjandi eru sex 10 kg lóö og tvö 5 kg lóð og gólfstatíf fyrir lóöin. Upp- lýsingar í s. 5420 á daginn og 4660 á kvöldin. Óska eftir kojum. Upplýs- ingar í vs. 3110 og hs. 4108. ísafjöröur: Stal úr bifreið UM MIÐJAN dag á sunnudag l'ékk logreglan á ísafirði tilkynningu um að hljómflutningstækju m hefði verið stolið úr hifreið sem stóð við Hlíðarveg. Ekki hcfur tekist að hafa upp á þeim sem þar var að verki en málið er í rann- sókn. Síðar um daginn fékk lög- reglan svo tilkynningu um að brotist hefði verið inn í sjoppu ncmendafclags Framhalds- skólans og þaðan stolið rtokkru magni af sæigæti auk peninga. Málið erí rannsókn. Lögreglan á ísafirði er jicssa dagana í sérstöku um- ferðarátaki þar sem rnegin áhersla er lögð á hraðakstur og stöðvunarskyldubrot. Auk þess hefur lögreglan fylgst vel með Ijósabúnaði bifreiða og mega ökumenn búast við að verastöðvaðirafþeimsökum.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.