Bæjarins besta - 17.11.2016, Side 7
FIMMTUdagUr 17. NÓVEMBER 2016 7
Örn segist spenntur fyrir þeirri
tíð sem nú fer í hönd, að spila
út um allar trissur til að kynna
afurðina: „Ég er búinn að vera
mikið heima síðustu fimm árin
og spila lítið, svo ég er alveg til.
Það fylgir því kraftur að klára
svona plötu og maður verður
svolítið óraunsær í gleðivímunni
og upplifir að maður geti bara
strax hent í tvær plötur til við
bótar.“ Hann segir að fólk megi
búa sig undir spennandi nýja vídd
á tónleikunum þar sem akústíkin
og röddin verði í fyrirrúmi. Í
hljómsveit Mugisons eru sem
áður Arnar Gíslason sem leikur á
trommur, Guðni Finnson á bassa
og Þorbjörn (Tobbi) Sigurðsson
sem leikur á hljómborð og gítar.
Til að ná enn betur fram hinum
þétta hljómi plötunnar, mun
tónlistarkonan Rósa Sveinsdóttir
koma fram með hljómsveitinni á
tónleikunum, en hún er söngkona
og saxófónleikari, ásamt því sem
hún spilar bæði á þverflautu og
blokkflautu.
Það er alveg ljóst eftir að setj
ast niður í smá stund með Erni
að það fylgir því mikill erill að
vera sjálfur Mugison, er ekki liðu
margar mínútur á milli þess sem
síminn glumdi við. Svo honum
og hundinum Skugga var sleppt
aftur út í regnblautan daginn,
en nú er ekkert annað en að
byrja að leyfa sér að hlakka til
tónleikanna.
annska@bb.is
Lyftaranámskeið ( J- réttindi)
Lyftaranámskeið fyrir lyftara með allt að 10 tonna lyftigetu verður haldið
á Ísafirði dagana 2. desember frá kl. 09 – 16 og 3.desember 09 – 15
hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða Suðurgötu 12, Ísafirði.
Hægt er að skrá sig á heimasíðu Vinnueftirlitsins http://www.vinnu-
eftirlit.is/fraedsla/dagsett-namskeid/ einnig er hægt að hafa samband
í síma 550 4600 eða 550 4655.
Lyftaranámskeið fyrir allt að 10 tonn
Hvar? Fræðslumiðstöð Vestfjarða,Suðurgötu 12, Ísafirði
Hver heldur? Vinnueftirlit ríkisins
Hvenær? Föstudaginn 2.des og laugardaginn 3.des
Frá kl.: 09:00 til 16:00